Meme junior 8. bekkur
Digraneskirkja
Fimmtudagar
19:30 - 21:30
Nánar
Hjalla 8 8. bekkur
Hjallakirkja
Fimmtudagar
20:00 - 21:30
Nánar
Hjalla/Meme senior 9 - 10. bekkur
Digraneskirkja
Þriðjudagar
19:30 - 21:30
Nánar
|
 26. janúar 2012, 18:20
Í kvöld ætlum við að undirbúa aðeins fyrir Febrúarmótið sem er 17.-19.febrúar. Við ætlum að ákveða hvort við viljum vera með atriði á mótinu eða taka þátt í snilldar spurningakeppni sem verður á milli æskulýðsfélaganna. Einnig þurfum við að ákveða hvernig við viljum hafa peysurnar sem við ætlum að panta, hvaða liti við viljum og fleira. Þeir sem vilja geta klárað að horfa á !HERO, við bjóðum upp á heitt kakó og jafnvel spil ef fólk hefur áhuga á því. Hlökkum til að sjá ykkur hress í kvöld.
 24. janúar 2012, 00:27
Í kvöld kl.19.00 hittumst við í Digraneskirkju með það að markmiði að safna eins mörgum dósum og við mögulega getum. Afhverju ætlum við að gera það? Jú, vegna þess að við erum á leiðinni á Febrúarmót ÆSKR í næsta mánuði. Hvetjum ykkur til að kippa foreldrum ykkar með, því fleiri bíla sem við höfum …. því fleiri dósum söfnum við. Mætið vel klædd og með góða skapið meðferðis.
Dósasöfnun er fyrir alla sem eru á leiðinni á Febrúarmót. Hlökkum til að sjá ykkur öll.
Kveðja, leiðtogarnir
 29. nóvember 2011, 20:34
Í kvöld ómaði Digraneskirkja af háværri og spennuþrunginni hermanna tónlist. Í myrkrinu þutum um tvö lið í svakalegum leik, þar sem hart var barist og enginn var tilbúinn til að gefa eftir. Íbúar í næsta nágrenni gerðu sér far um að fara í göngutúr og horfðu forvitnir inn um glugga kirkjunnar, hræddir við það sem kynni að leynast í myrkrinu. En loka tölur leiksins verða ekki birtar á netinu, enda ríkir ekki almenn sátt um hvort liðið væri rétt mætur sigurvegari.
Í næstu viku ætlum við að sleppa takinu af fánunum og skemmta okkur konunglega á annan máta – en skilyrði fyrir þátttöku í þeim fundi er að koma vel klædd og fylgjast með veðurspánni. Hlífðarbuxur eru mjög mikilvægar.
Síðasti fundurinn á þessu ári verður svo þriðjudaginn 13. desember, þá ætlum við að hafa litlu jólin og allir koma með smákökur og annað góðgæti til að deila með hinum. Auk þess ætlum við að auka á skemmtunina með því að hafa pakkaleik, þurfa því allir að koma með gjöf. Gjöfin má kosta allt að 800 krónur.
Hlökkum til að sjá ykkur hress í desember!
Kærar kveðjur,
Leiðtogarnir
 10. nóvember 2011, 17:25
Já, í kvöld er massafundur. Við ætlum að taka upp hrollvekju-stuttmyndina sem þið skrifuðuð síðast. Mikilvægt að mæta með það sem þarf. Minnir að það hafi verið t.d náttföt, jakkar og fleira. Einnig ætla allir að mæta með gómsætar og vel skreyttar kökur sem við borðum eftir fundinn og verðlaun verða veitt fyrir bestu . . . → Lesa meira
 3. nóvember 2011, 10:36
Jæja, ég vona að allir séu búnir að jafna sig á þreytunni eftir Landsmót ÆSKÞ síðustu helgi. Þetta var frábær helgi í alla staði og virkilega gaman að vera með ykkur. Í kvöld horfum við á nokkur vídjó og skoðum myndir frá mótinu. Einnig leggjum við drög að stuttmynd og hvað okkur langar að . . . → Lesa meira
 13. október 2011, 11:00
Stelpurnar gera e-ð stelpulegt og strákarnir gera e-ð strákalegt. Hvað það verður kemur í ljós í kvöld. EN stelpur mega koma með snyrtidót með sér (naglalökk, maskara, gloss og fleira). Strákar …. mega auðvitað koma með það líka … en mæli frekar með því að þeir kippi með sér þægilegum íþróttafötum eða slíku.
Þeir . . . → Lesa meira
|
|