Forsíða > Meme junior > Undirbúningur fyrir Febrúarmót, kakó og kósý …

Undirbúningur fyrir Febrúarmót, kakó og kósý …

Í kvöld ætlum við að undirbúa aðeins fyrir Febrúarmótið sem er 17.-19.febrúar. Við ætlum að ákveða hvort við viljum vera með atriði á mótinu eða taka þátt í snilldar spurningakeppni sem verður á milli æskulýðsfélaganna. Einnig þurfum við að ákveða hvernig við viljum hafa peysurnar sem við ætlum að panta, hvaða liti við viljum og fleira. Þeir sem vilja geta klárað að horfa á !HERO, við bjóðum upp á heitt kakó og jafnvel spil ef fólk hefur áhuga á því. Hlökkum til að sjá ykkur hress í kvöld.

Ekki er hægt að skrifa athugasemd við þessa frétt.