Forsíða > Almennt
Almennt

Dósasöfnun, fjáröflun og fjör

Í kvöld kl.19.00 hittumst við í Digraneskirkju með það að markmiði að safna eins mörgum dósum og við mögulega getum. Afhverju ætlum við að gera það? Jú, vegna þess að við erum á leiðinni á Febrúarmót ÆSKR í næsta mánuði. Hvetjum ykkur til að kippa foreldrum ykkar með, því fleiri bíla sem við höfum …. því fleiri dósum söfnum við. Mætið vel klædd og með góða skapið meðferðis.

Dósasöfnun er fyrir alla sem eru á leiðinni á Febrúarmót. Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Kveðja, leiðtogarnir

Almennt, Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

Smá upplýsingar

Flöskusöfnunin gekk alveg rosalega vel og þeir sem tóku þátt í henni eiga heiður skilinn!

Þeir sem að gleymdu eða gátu ekki skilað mér pöntunarlista geta gert það til kl 18.00 á morgun þið megið gjarnan senda mér nákvæmar upplýsingar um það sem þið eruð að panta á tölvupósti og takið fram annað hvort vörunúmer eða skrifið fullt nafn vöru, EKKI skrifa bara WC 6 Stk – því þá veit ég ekki hvaða tegund af pappír þið viljið. – Sendið þessar upplýsingar á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem gleymdu að greiðastaðfestingargjald þurfa að gera það fyrir klukkan 21:30 á fimmtudaginn (6.okt) best væri að þið kæmuð með peninginn niður í Hjallakirkju, en ég verð þar frá 19:00. Ef þið sjáið ykkur alls ekki fært að skila staðfestingargjaldinu á þessum tíma getið þið sent mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem eru ekki búnir að senda mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is fyrir klukkan 21:30 6.okt verða ekki skráðir á landsmót – munið að greiðsla þarf að fylgja skráningu.

Við munum svo senda út leyfisbréf með ykkur á næsta fundi þar sem það gleymdist í kvöld.

Vörurnar verða afhentar eftir viku til tíu daga. Ég mun láta ykkur vita þegar þær eru væntanlegar.

Ef eitthvað er óljóst þá látið mig vita – tölvupóstfangið hjá mér kemur fyrir þrisvar í þessum stutta texta auk þess sem þið getið skrifað skilaboð við þessa færslu en athugið að það á ekki að gera nema fyrir almennar upplýsingar sem sagt ekki skrá ykkur á landsmót með því að skrifa hér fyrir neðan.

Vona að þið hafið það öll sem best!

Kveðja,

Jónína Sif

 

 

Almennt

Dósasöfnun

Hæhæ,

Allir þeir sem ætla að taka þátt í dósasöfnuninni eru vinsamlegst beðnir um að senda mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is og taka það fram ef foreldrar geta hjálpað til. Því fleiri foreldrar á bíl sem geta komið með því betra!

Annað: ekki gleyma að skila innkaupalistanum og mætið með pening fyrir vörunum sem þið eruð að panta.

Það kostar 15.900 krónur á mótið, þar af er 5000 kr.staðfestingarfjald sem þarf að greiða í síðasta lagi 6.október.

Hlakka til að sjá ykkur hress og kát á þriðjudaginn kl 19:10 stundvíslega!

Jónína Sif

Almennt

Fjáröflun fyrir landsmót

Jæja hér með kemur listi með vörum sem þið getið selt. Þið hafið tvær vikur til að selja vörurnar, þannig að þriðjudag 4. okt verðið þið að skila pöntunarlistanum og borgið fyrir vörurnar. Þið fáið þær svo afhentar viku seinna.

Svo munum við taka þetta fyrir aftur eftir nokkrar vikur.

Á morgun munum við byrja fundinn á því að ræða búningamál, svo endilega leggið höfuðið í bleyti!

Annars þá þurfið þið bara að muna eftir keppnisskapinu á morgun!

Hlakka til að sjá ykkur öll!

Kveðja,

Jónína Sif

Almennt, Hjalla/Meme senior

Fundur í kvöld hjá MeMe Senior!

Vill minna á fundinn í kvöld hjá MeMe Senior.

Fundurinn byrjar klukkan 20:00 og verður haldinn í Digranesi.

Sjáumst hress!

Kveðja,

Jónína Sif

Almennt

Gleðilegt sumar – Sjáumst í haust :)

Nú er veturinn liðinn og æskulýðsstarfið sömuleiðis….en örvæntið ekki því við byrjum aftur í haust :)   Við leiðtogarnir verðum á okkar stöðum og hlökkum til að undirbúa skemmtilegan og spennandi vetur.  En þar ber auðvitað helst að nefna LANDSMÓT sem verður 28.-30.október.  Fylgist vel með í haust og verið með frá byrjun…þið viljið ekki missa af næsta vetri.  MeMe/Hjalla Junior og MeMe/Hjalla Senior og MeMe/Hjalla Movie eru störfin sem eru í boði á næsta ári :)

Hafið það sem allra best í sumar og skemmtið ykkur vel.