Forsíða > Hjalla 8
Almennt, Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

Smá upplýsingar

Flöskusöfnunin gekk alveg rosalega vel og þeir sem tóku þátt í henni eiga heiður skilinn!

Þeir sem að gleymdu eða gátu ekki skilað mér pöntunarlista geta gert það til kl 18.00 á morgun þið megið gjarnan senda mér nákvæmar upplýsingar um það sem þið eruð að panta á tölvupósti og takið fram annað hvort vörunúmer eða skrifið fullt nafn vöru, EKKI skrifa bara WC 6 Stk – því þá veit ég ekki hvaða tegund af pappír þið viljið. – Sendið þessar upplýsingar á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem gleymdu að greiðastaðfestingargjald þurfa að gera það fyrir klukkan 21:30 á fimmtudaginn (6.okt) best væri að þið kæmuð með peninginn niður í Hjallakirkju, en ég verð þar frá 19:00. Ef þið sjáið ykkur alls ekki fært að skila staðfestingargjaldinu á þessum tíma getið þið sent mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem eru ekki búnir að senda mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is fyrir klukkan 21:30 6.okt verða ekki skráðir á landsmót – munið að greiðsla þarf að fylgja skráningu.

Við munum svo senda út leyfisbréf með ykkur á næsta fundi þar sem það gleymdist í kvöld.

Vörurnar verða afhentar eftir viku til tíu daga. Ég mun láta ykkur vita þegar þær eru væntanlegar.

Ef eitthvað er óljóst þá látið mig vita – tölvupóstfangið hjá mér kemur fyrir þrisvar í þessum stutta texta auk þess sem þið getið skrifað skilaboð við þessa færslu en athugið að það á ekki að gera nema fyrir almennar upplýsingar sem sagt ekki skrá ykkur á landsmót með því að skrifa hér fyrir neðan.

Vona að þið hafið það öll sem best!

Kveðja,

Jónína Sif

 

 

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

Myndlist

Smá pæling!

Er einhver hér sem hefur áhuga á myndlist en aldrei farið í myndlistarskóla?

Ef svo er og viðkomandi langar að fara í myndlistarskóla, þá getur sá hinn sami haft samband við mig í gegnum joninasif@hjallakirkja.is og eitthvað spennandi gæti gerst!

Bestu kveðjur,

Jónína Sif

 

 

Hjalla 8, Meme junior

Wiiiiiiii, Wiiiiiiiiii, Wiiiii…..

Stelpu og strákafundurinn okkar frestast þar til í næstu viku…svo við getum látið okkur hlakka til í eina viku í viðbót ;)   EN í kvöld ætlum við að spila fullt, fullt, fullt, fullt af Nintendo Wii tölvuleikjum, borða snakk og nammi (sem þið megið endilega koma með) og eiga saman tölvulega stund. Fundurinn verður í Digraneskirkju og húsið opnar kl.19:00 og tölvubrálæðið hefst svona um og uppúr 19:30.

Þeir sem eiga Wii fjarstýringar mega endilega koma með þær á fundinn.

Sjáumst hress

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

STELPUR VS STRÁKAR

Skilaboð til stelpna:

Mæting í HJALLAKIRKJU. Guðrún Eik Skúladóttir förðunarfræðingur ætlar að mæta á svæðið og kenna stelpum eitt og annað um förðun og húðumhirðu. Það er sniðugt ef þið takið með ykkur málningarfótið ykkar því hún verður með smá sýnikennslu!

Skilaboð til stráka:

Mæting í DIGRANESKIRKJU. Farið verður í Wii! ykkur er velkomið að taka með ykkur eigin leiki. Einhverjir ætluðu að koma með sínar eigin tölvur og þá er nauðsynlegt að mæta kl. hálf 8 í seinasta lagi svo hægt sé að setja dæmið upp. Endilega grípið með ykkur gos og snakk!

Fyrir ykkur öll: Mæting kl 8!!

Hjalla 8

Fundurinn næsta fimmtudag verður í Digraneskirkju!

Sælinú :)

Næsta fimmtudag, ekki á morgun, heldur hinn, verður æskulýðsfundur í Digraneskirkju í stað Hjallakirkju. Ég hvet ykkur til að segja fleirum frá þessu – það er væri ekki mjög skemmtilegt ef einhver kæmi að harðlæstum dyrum í Hjallakirkju.

Dagskrá fimmtudgasins auglýst síðar!

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior, Meme junior

Aðal æskulýðsfundurinn

Jæja – þá er komið að stórum sameiginlegum æskulýðsfundi.  Hann er fyrir eldra félagið og 8. bekk bæði í Hjallakirkju og Digraneskirkju.

Fundurinn verður í Hjallakirkju næsta fimmtudag (3. mars).  Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin byrjar kl. 20.  Farið verður í mjög skemmtilegan leik sem allir hafa gaman af.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!