Forsíða > Hjalla 8 > Page 2
 30. mars 2011, 15:37
Skilaboð til stelpna:
Mæting í HJALLAKIRKJU. Guðrún Eik Skúladóttir förðunarfræðingur ætlar að mæta á svæðið og kenna stelpum eitt og annað um förðun og húðumhirðu. Það er sniðugt ef þið takið með ykkur málningarfótið ykkar því hún verður með smá sýnikennslu!
Skilaboð til stráka:
Mæting í DIGRANESKIRKJU. Farið verður í Wii! ykkur er velkomið að taka með ykkur eigin leiki. Einhverjir ætluðu að koma með sínar eigin tölvur og þá er nauðsynlegt að mæta kl. hálf 8 í seinasta lagi svo hægt sé að setja dæmið upp. Endilega grípið með ykkur gos og snakk!
Fyrir ykkur öll: Mæting kl 8!!
 22. mars 2011, 14:21
Sælinú
Næsta fimmtudag, ekki á morgun, heldur hinn, verður æskulýðsfundur í Digraneskirkju í stað Hjallakirkju. Ég hvet ykkur til að segja fleirum frá þessu – það er væri ekki mjög skemmtilegt ef einhver kæmi að harðlæstum dyrum í Hjallakirkju.
Dagskrá fimmtudgasins auglýst síðar!
 1. mars 2011, 13:38
Jæja – þá er komið að stórum sameiginlegum æskulýðsfundi. Hann er fyrir eldra félagið og 8. bekk bæði í Hjallakirkju og Digraneskirkju.
Fundurinn verður í Hjallakirkju næsta fimmtudag (3. mars). Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin byrjar kl. 20. Farið verður í mjög skemmtilegan leik sem allir hafa gaman af.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
 17. febrúar 2011, 17:37
Kæru Hjallakirkju 8bekkingar. Í kvöld ætlum við að taka því rólega og horfa á video. Við mælum með því að taka með ykkur nammi og eitthvað að drekka
Þetta er síðasti fundurinn fyrir mót og svo tekur bara ný og spennandi dagskrá við!
Sjáumst í kvöld snillz
 9. febrúar 2011, 12:36
Jæja – þar sem ekki var fundur í gær þá þurfum við að hittast á öðrum tíma til að ganga frá peysunum. Núna á fimmtudaginn verð ég í Hjallakirkju milli 16 og 17 og tek við pöntunum og peningum. Ég er með peysur til að máta svo stærðin sé rétt.
Þeir sem eru í yngri félögunum geta pantað á fimmtudaginn á sínum fundi!
Peysan kostar 4500 og það verður að borga um leið og er pantað!
 3. febrúar 2011, 16:26
Nokkur undanfarin ár höfum við gert peysur fyrir æskulýðsfélögin og nú er komið að því. Nú er hægt að kaupa peysu sem er merkt æskulýðsfélaginu með merki í barminum og nafninu ykkur á bakinu.
Um er að ræða hettupeysu sem er heil, órennd.
Peysan kostar 4.500 kr og það þarf að borga fyrirfram, við pöntum ekki peysu nema búið sé að borga.
Við byrjum strax að taka á móti pöntunum!
|
|