Forsíða > Hjalla/Meme senior
Hjalla/Meme senior

Svakalegt Capture the flag!

Í kvöld ómaði Digraneskirkja af háværri og spennuþrunginni hermanna tónlist. Í myrkrinu þutum um tvö lið í svakalegum leik, þar sem hart var barist og enginn var tilbúinn til að gefa eftir.  Íbúar í næsta nágrenni gerðu sér far um að fara í göngutúr og horfðu forvitnir inn um glugga kirkjunnar, hræddir við það sem kynni að leynast í myrkrinu. En loka tölur leiksins verða ekki birtar á netinu, enda ríkir ekki almenn sátt um hvort liðið væri rétt mætur sigurvegari.

Í næstu viku ætlum við að sleppa takinu af fánunum og skemmta okkur konunglega á annan máta – en skilyrði fyrir þátttöku í þeim fundi er að koma vel klædd og fylgjast með veðurspánni. Hlífðarbuxur eru mjög mikilvægar.

Síðasti fundurinn á þessu ári verður svo þriðjudaginn 13. desember, þá ætlum við að hafa litlu jólin og allir koma með smákökur og annað góðgæti til að deila með hinum. Auk þess ætlum við að auka á skemmtunina með því að hafa pakkaleik, þurfa því allir að koma með gjöf. Gjöfin má kosta allt að 800 krónur.

Hlökkum til að sjá ykkur hress í desember!

Kærar kveðjur,

Leiðtogarnir

Almennt, Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

Smá upplýsingar

Flöskusöfnunin gekk alveg rosalega vel og þeir sem tóku þátt í henni eiga heiður skilinn!

Þeir sem að gleymdu eða gátu ekki skilað mér pöntunarlista geta gert það til kl 18.00 á morgun þið megið gjarnan senda mér nákvæmar upplýsingar um það sem þið eruð að panta á tölvupósti og takið fram annað hvort vörunúmer eða skrifið fullt nafn vöru, EKKI skrifa bara WC 6 Stk – því þá veit ég ekki hvaða tegund af pappír þið viljið. – Sendið þessar upplýsingar á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem gleymdu að greiðastaðfestingargjald þurfa að gera það fyrir klukkan 21:30 á fimmtudaginn (6.okt) best væri að þið kæmuð með peninginn niður í Hjallakirkju, en ég verð þar frá 19:00. Ef þið sjáið ykkur alls ekki fært að skila staðfestingargjaldinu á þessum tíma getið þið sent mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is

Þeir sem eru ekki búnir að senda mér tölvupóst á joninasif@hjallakirkja.is fyrir klukkan 21:30 6.okt verða ekki skráðir á landsmót – munið að greiðsla þarf að fylgja skráningu.

Við munum svo senda út leyfisbréf með ykkur á næsta fundi þar sem það gleymdist í kvöld.

Vörurnar verða afhentar eftir viku til tíu daga. Ég mun láta ykkur vita þegar þær eru væntanlegar.

Ef eitthvað er óljóst þá látið mig vita – tölvupóstfangið hjá mér kemur fyrir þrisvar í þessum stutta texta auk þess sem þið getið skrifað skilaboð við þessa færslu en athugið að það á ekki að gera nema fyrir almennar upplýsingar sem sagt ekki skrá ykkur á landsmót með því að skrifa hér fyrir neðan.

Vona að þið hafið það öll sem best!

Kveðja,

Jónína Sif

 

 

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

Myndlist

Smá pæling!

Er einhver hér sem hefur áhuga á myndlist en aldrei farið í myndlistarskóla?

Ef svo er og viðkomandi langar að fara í myndlistarskóla, þá getur sá hinn sami haft samband við mig í gegnum joninasif@hjallakirkja.is og eitthvað spennandi gæti gerst!

Bestu kveðjur,

Jónína Sif

 

 

Hjalla/Meme senior

Vina fundur!

Hæ ekki gleyma að bjóða vinum ykkar með á fundinn í kvöld!!!

 

Ætlum að hafa frábæran fund taka nokkra leiki, skipuleggja fjáröflun fyrir landsmót og skemmta okkur vel.

Þið megið líka drífa ykkur í að verða vinir okkar á Facebook :http://www.facebook.com/groups/228103033905429/

Landsmót 2011

 

Endilega kíkið á videoið!

Sjáumst svo bara hress og kát í kvöld!

Jónína Sif

 

Almennt, Hjalla/Meme senior

Fundur í kvöld hjá MeMe Senior!

Vill minna á fundinn í kvöld hjá MeMe Senior.

Fundurinn byrjar klukkan 20:00 og verður haldinn í Digranesi.

Sjáumst hress!

Kveðja,

Jónína Sif

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

STELPUR VS STRÁKAR

Skilaboð til stelpna:

Mæting í HJALLAKIRKJU. Guðrún Eik Skúladóttir förðunarfræðingur ætlar að mæta á svæðið og kenna stelpum eitt og annað um förðun og húðumhirðu. Það er sniðugt ef þið takið með ykkur málningarfótið ykkar því hún verður með smá sýnikennslu!

Skilaboð til stráka:

Mæting í DIGRANESKIRKJU. Farið verður í Wii! ykkur er velkomið að taka með ykkur eigin leiki. Einhverjir ætluðu að koma með sínar eigin tölvur og þá er nauðsynlegt að mæta kl. hálf 8 í seinasta lagi svo hægt sé að setja dæmið upp. Endilega grípið með ykkur gos og snakk!

Fyrir ykkur öll: Mæting kl 8!!