Forsíða > Hjalla/Meme senior > Page 2
Almennt, Hjalla/Meme senior

Fundur í kvöld hjá MeMe Senior!

Vill minna á fundinn í kvöld hjá MeMe Senior.

Fundurinn byrjar klukkan 20:00 og verður haldinn í Digranesi.

Sjáumst hress!

Kveðja,

Jónína Sif

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior

STELPUR VS STRÁKAR

Skilaboð til stelpna:

Mæting í HJALLAKIRKJU. Guðrún Eik Skúladóttir förðunarfræðingur ætlar að mæta á svæðið og kenna stelpum eitt og annað um förðun og húðumhirðu. Það er sniðugt ef þið takið með ykkur málningarfótið ykkar því hún verður með smá sýnikennslu!

Skilaboð til stráka:

Mæting í DIGRANESKIRKJU. Farið verður í Wii! ykkur er velkomið að taka með ykkur eigin leiki. Einhverjir ætluðu að koma með sínar eigin tölvur og þá er nauðsynlegt að mæta kl. hálf 8 í seinasta lagi svo hægt sé að setja dæmið upp. Endilega grípið með ykkur gos og snakk!

Fyrir ykkur öll: Mæting kl 8!!

Hjalla/Meme senior

Risa Twister

Í kvöld mun 9 og 10 bekkur fara í risa Twister.  Teiknað verður upp extra stór Twister dúkkur og spilað eftir hefðbundnum reglum.

Spilað byrjar kl. 20 – ekki mæta seinna en það!

Hjalla/Meme senior

Út í snjóinn!

Takk öll sömul fyrir góða helgi, frábæra messa í Hjallakirkju kl. 11 og ótrúlega skemmtilegt bænarý í Digraneskirkju.

Æskulýðsfélagið heldur svo að sjálfsögðu áfram og við hittumst eins og vanalega í kvöld.  Digraneskirkja opnar kl. 19:30 og dagskráin byrjar kl. 20:00.

Í kvöld ætlum við að sjálfsögðu að nýta snjóinn og fara út – því þurfa allir að koma vel klæddir, við sköffum plastpoka til að renna sér.  Ef einhver á rassþotu þá má endilega taka hana með.

 

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior, Meme junior

Aðal æskulýðsfundurinn

Jæja – þá er komið að stórum sameiginlegum æskulýðsfundi.  Hann er fyrir eldra félagið og 8. bekk bæði í Hjallakirkju og Digraneskirkju.

Fundurinn verður í Hjallakirkju næsta fimmtudag (3. mars).  Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin byrjar kl. 20.  Farið verður í mjög skemmtilegan leik sem allir hafa gaman af.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

Hjalla/Meme senior

Senior – undirbúningur fyrir mót!

Jæja þá er komið að síðasta fundinum fyrir mótið.  Á honum ætlum við að undirbúa mótið, huga að skemmtiatriði og fleira skemmtilegt.

Vegna þess að fundurinn féll niður í síðustu viku þá vantar að fá það alveg á hreint hverjir ætla með á mótið.  Þess vegna þurfa þeir sem ætla með á mótið að skrá sig í kommenti hér fyrir neðan.  Á fundinum á morgun þurfið þið svo að skila leyfisbréfi og borga.  Það er einnig í lagi að borga á föstudaginn þegar við leggjum af stað.

Muna: Skrá sig hér og mæta á morgun!