Forsíða > Meme junior
Meme junior

MeMe Junior!

Á morgun er fundur hjá okkur í MeMe Junior og við ætlum að ærslast eitthvað og hugsanlega mun Hjörtur stýra einhverju sprelli. Þetta er næst síðasti fundurinn okkar fyrir Febrúarmót og því eru nokkrir hlutir sem við þurfum að fá á hreint á morgun.

  • Á fundinum er síðasti sjens að skrá sig á Febrúarmótið. Til þess að skráningin sé gild þarf leyfisbréf að fylgja.
  • Þeir sem seldu wc-pappír og fleira geta sótt vörurnar á morgun. Annaðhvort á fundinum eða fyrir fundinn (frá kl.16.00).
  • MeMe peysurnar hafa lækkað og kosta nú einungis 3500. Hægt verður að máta prufu-peysur á morgun til að sjá hvaða stærð þið þurfið.
  • Peysurnar þurfa helst að greiðast á morgun.

Hlökkum til að sjá ykkur hress annað kvöld.

Kv.Leiðtogarnir

Meme junior

Undirbúningur fyrir Febrúarmót, kakó og kósý …

Í kvöld ætlum við að undirbúa aðeins fyrir Febrúarmótið sem er 17.-19.febrúar. Við ætlum að ákveða hvort við viljum vera með atriði á mótinu eða taka þátt í snilldar spurningakeppni sem verður á milli æskulýðsfélaganna. Einnig þurfum við að ákveða hvernig við viljum hafa peysurnar sem við ætlum að panta, hvaða liti við viljum og fleira. Þeir sem vilja geta klárað að horfa á !HERO, við bjóðum upp á heitt kakó og jafnvel spil ef fólk hefur áhuga á því. Hlökkum til að sjá ykkur hress í kvöld.

Meme junior

Stuttmyndagerð og kökukeppni!

Já, í kvöld er massafundur. Við ætlum að taka upp hrollvekju-stuttmyndina sem þið skrifuðuð síðast. Mikilvægt að mæta með það sem þarf. Minnir að það hafi verið t.d náttföt, jakkar og fleira. Einnig ætla allir að mæta með gómsætar og vel skreyttar kökur sem við borðum eftir fundinn og verðlaun verða veitt fyrir bestu kökuna.

Þið sem voruð í því að skrifa handritið að myndinni endilaga kommenta hér fyrir neðan ef þið munið eftir einhverju sem þarf að taka með sér.

MÆTING STUNDVÍSLEGA KL.19.30. UPPTÖKUR HEFJAST ÞÁ.

Sjáumst hress

Kv.Leiðtogarnir

Meme junior

Landsmóts – reunion og drög að stuttmyndagerð!

Jæja, ég vona að allir séu búnir að jafna sig á þreytunni eftir Landsmót ÆSKÞ síðustu helgi. Þetta var frábær helgi í alla staði og virkilega gaman að vera með ykkur. Í kvöld horfum við á nokkur vídjó og skoðum myndir frá mótinu. Einnig leggjum við drög að stuttmynd og hvað okkur langar að gera í tengslum við það. Hlökkum til að sjá ykkur.

Meme junior

Girls & Boys

Stelpurnar gera e-ð stelpulegt og strákarnir gera e-ð strákalegt. Hvað það verður kemur í ljós í kvöld. EN stelpur mega koma með snyrtidót með sér (naglalökk, maskara, gloss og fleira). Strákar …. mega auðvitað koma með það líka … en mæli frekar með því að þeir kippi með sér þægilegum íþróttafötum eða slíku.

Þeir sem pöntuðu wc pappír og fleira í tengslum við fjáröflunina geta sótt það í kvöld :)

Kv.Leiðtogarnir

Meme junior

Leynigestur á morgun!

Á morgun fáum við skemmtilegan leynigest til okkar í MeMe Junior, hann EÐA hún mun koma með skemmtilegt efni og …. já við segjum ekki meira. Endilega mætum sem flest og eigum saman skemmtilegan fund. Þeir sem ætla að koma með okkur á Landsmót ÆSKÞ þurfa að koma með eftirfarandi hluti á morgun:

  •  Leyfisbréfið, undirritað af foreldrum
  • 5000 krónur í staðfestingargjald
  • Pantanir fyrir wc pappír og fleira + greiðslu á því.

Þeir sem komu og tóku þátt í dósasöfnun í gær fá að vita á fundinum hversu mikið safnaðist. Einnig fáum við smá styrk frá prófastdæminu svo að kostnaðurinn við Landsmót minnkar aðeins. Þetta fáið þið allt að vita meira um á morgun.