Forsíða > Meme junior > Page 2
Meme junior

Girls & Boys

Stelpurnar gera e-ð stelpulegt og strákarnir gera e-ð strákalegt. Hvað það verður kemur í ljós í kvöld. EN stelpur mega koma með snyrtidót með sér (naglalökk, maskara, gloss og fleira). Strákar …. mega auðvitað koma með það líka … en mæli frekar með því að þeir kippi með sér þægilegum íþróttafötum eða slíku.

Þeir sem pöntuðu wc pappír og fleira í tengslum við fjáröflunina geta sótt það í kvöld :)

Kv.Leiðtogarnir

Meme junior

Leynigestur á morgun!

Á morgun fáum við skemmtilegan leynigest til okkar í MeMe Junior, hann EÐA hún mun koma með skemmtilegt efni og …. já við segjum ekki meira. Endilega mætum sem flest og eigum saman skemmtilegan fund. Þeir sem ætla að koma með okkur á Landsmót ÆSKÞ þurfa að koma með eftirfarandi hluti á morgun:

  •  Leyfisbréfið, undirritað af foreldrum
  • 5000 krónur í staðfestingargjald
  • Pantanir fyrir wc pappír og fleira + greiðslu á því.

Þeir sem komu og tóku þátt í dósasöfnun í gær fá að vita á fundinum hversu mikið safnaðist. Einnig fáum við smá styrk frá prófastdæminu svo að kostnaðurinn við Landsmót minnkar aðeins. Þetta fáið þið allt að vita meira um á morgun.

Meme junior

Vídjókvöld og landsmótsplön…

Í kvöld ætlum við í MeMe að kúra okkur niður yfir góðri bíómynd. Við munum skaffa poppkorn en þið megið mæta með gos, djús, sódavatn eða aðra svaladrykki sem þið kjósið helst. Einnig munum við kynna Landsmótið enn betur og sérstaklega fyrir þá sem ekki voru síðast. Núna er vika í að skráningarfrestinum ljúki svo það er gott ef allir eru komnir með það nokkurnvegin á hreint í kvöld hvort þeir ætli með á mótið. Lesið póstinn minn hér fyrir neðan þar sem ég setti inn allar upplýsingar um Landsmótið, ásamt upplýsingum um fjáröflun og fleira.

Hlökkum til að sjá ykkur í kvöld.

Kv.Rakel, Hjörtur, Konný, Hildur og Sigga.

Meme junior

Landsmót – fjáröflun og fleira.

Eins og við auglýstum á fundinum í gær þá ætlum við í MeMe Junior að fara á landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar 28.-30.október nk. Um er að ræða stórt mót (600 unglingar) sem haldið verður á Selfossi. Skemmtileg dagskrá verður á mótinu m.a: kvöldvökur, fjölbreytt hópastarf, fræðsla, sundlaugarpartý, hæfileikakeppni milli félaga OG búningaball þar sem Ingó Veðurguð, Stuðlabandið og fleiri halda uppi fjörinu.

Það kostar 15.900 krónur á mótið, þar af er 5000 kr.staðfestingarfjald sem þarf að greiða í síðasta lagi 6.október.

Við bjóðum upp á fjáröflun fyrir mót. Annarsvegar dósasöfnun sem við auglýsum betur á næstunni. Hinsvegar getið þið selt wc/eldhúspappír og lakkrís. Hér fyrir neðan getið þið sótt upplýsingar um þetta og pöntunarblað.

Þið hafið 2 vikur til að selja og þurfið að skila pöntunum og greiðslu á þeim í síðasta lagi 6.október.Vörurnar koma svo stuttu seinna.

Hér fyrir neðan er líka upplýsingabæklingur þar sem eru betri upplýsingar um mótið. Ef þið hafið einhverjar spurningar þá getið þið sett þær í komment hér fyrir neðan og ég svara þeim.

Meme junior

MeMe Junior í kvöld …. spennandi fréttir :)

Já, loksins fáum við að hitta ykkur í Digraneskirkju í kvöld, verðum eiginlega að viðurkenna það að við söknuðum ykkar pínupons síðasta fimmtudag. Í kvöld er semsagt fundur hjá okkur sem ber yfirskriftina Computer Something! það verður nánar auglýst síðar. EN EN EN EN EN …. við erum með mjög spennandi fréttir. Eftir 36 daga, eða í lok október eru öll æskulýðsfélög á Íslandi að fara á RISA landsmót sem verður haldið á Selfossi. Við erum að tala um það að þetta er það skemmtilegasta sem hægt er að hugsa sér, 600 unglingar – ein helgi – skemmtileg dagskrá :) Við útskýrum þetta allt í kvöld og kynnum þetta fyrir ykkur. Ef það er áhugi fyrir mótinu þá verðum við að fara á fullt í fjáröflun og fleira skemmtilegt.

Sjáumst í kvöld

En hér getið þið séð kynningarmyndbönd fyrir mótið :)

Kv.Rakel

Meme junior

Enginn fundur í kvöld…

Í kvöld verður mjög tómlegt í Digraneskirkju þar sem þið verðið öll í Vatnaskógi á fermingarnámskeiði :( En það er reyndar skemmtilegt fyrir ykkur og svona pínu leiðinlegt fyrir okkur…EN við sjáumst ELDHRESS í næstu viku á spennandi fundi. Hlökkum ógó mikið til að sjá ykkur öll.