Forsíða > Meme movie
Meme movie

Meme movie

Því miður þurfum við enn á aftur að aflýsa movie fundi í kvöld (17.jan).  Við stefnum hins vegar að sjálfsögðu að því að hafa fund næsta mánudag og ræða þá einnig um framtíðina og hvað við sjáum fyrir okkur hjá meme movie!

Hjalla 8, Hjalla/Meme senior, Meme junior, Meme movie

Nýtt ár

Þá er komið 2011!  Það er mikið spennandi framundan í æskulýðsfélaginu – fyrst og fremst að sjálfsögðu febrúarmót í Vatnaskógi 18-20 febrúar.  Það vill enginn missa af því.

Fjórið hjá okkur hefst í næstu viku.

Meme Movie hittist í Digraneskirkju mánudaginn 10 janúar kl. 20

9-10 bekkur/meme senior hittist í Digraneskirkju þriðjudaginn 11. janúar kl. 19:30

8. bekkur Hjallakirkju í Hjallakirkju fimmtudaginn 13. janúar kl. 20:00

Meme junior í Digraneskirkju fimmtudaginn 13. janúar kl. 19:30

Sjáumst hress í næstu viku!

Hjalla/Meme senior, Meme junior, Meme movie

Aðventuhátíð Meme

Í kvöld, annan í aðventu, verður aðventuhátíð Meme í Digraneskirkju. Um er að ræða aðventustund þar sem Meme sér um flest allt sem við kemur stundinni, tónlist, hugleiðingu o.fl.

Stundin hefst kl. 20 í Digraneskirkju og við hvetjum alla til að mæta :)

Meme movie

Movie fellur niður 15.nóv

Því miður verður ekki Movie fundur í kvöld.  Hittumst í næstu viku.

Hjalla/Meme senior, Meme junior, Meme movie

Kvöldmessa á sunnudaginn

Þá er komið að mánaðarlegri kvöldmessu.  Hún verður í Digraneskirkju kl. 20 á sunnudaginn.  Sönghópur úr Meme senior og Hjallakirkju er búinn að æfa og mun leiða tónlistina.

Eins og alltaf verður þetta góð og skemmtileg stund.  Hvet alla til að koma.

Minni þá sem ætluðu að hjálpa til að koma kl. 19:15 í kirkjuna.

Sjáumst á sunnudaginn

Meme movie

Movie

Nú er kominn mánudagur svo að sjálfsögðu verður Movie fundur í kvöld.  Hann hefst stundvíslega kl. 20.  Nú er búið að ganga frá öllum leiðtogamálum og þið erum sjálf tekin við stjórninni.  Það verður spennandi að fylgjast með og öllum þeim hugmyndum sem þið hafið.

Muna að mæta kl. 20!

Eins er kvöldmessa næsta sunnudag.  Okkur vantar alltaf eitthvað af góðu fólki til að taka þátt í messunni.  Þið getið annaðhvort skráð ykkur í kvöld eða skilið eftir komment hér fyrir neðan og ég hef samban.