Gude Rajya Lakshmi
Nafn: Gude Rajya Lakshmi
Fædd: 24. ágúst 1998
Skóli: Janet E.M. School
Við í Æskulýðsfélaginu Meme höfum ákveðið að taka að okkur barn á Indlandi. Það þýðir að við þurfum sameiginlega að safna pening og greiðum 2.500 kr á mánuði. Barnið okkar er stelpa og heitir Gude Rajya Lakshmi. Fyrstu tvö nöfnin eru eftirnöfn, og því köllum við hana Lakshmi. Lakshmi er 7 ára, alveg að verða 8. Hún er í skóla sem heiti Janet E.M. School og er rekinn af United Christian Church of India. Lakshmi er heilsuhraust og er í 2. bekk.
Lakshmi er Hindúatrúar og tilheyrir stétt sem heitir Kamma. Pabbi hennar er bóndi og mamma hennar húsmóðir. Þau eru bæði á lífi en mjög fátæk.
Lakshmi hefur gaman af að syngja og hana langar að verða læknir þegar hún verður stór.
Smelltu hér til þess að sjá stærri mynd af Lakshmi