MEME - Lengir lífið

Næst,

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána

Fundartími:

Fundir eru á fimmtudögum kl. 19:30-21:30 í Digraneskirkju. Húsið opnar kl. 19:00

Gestabókin

MEME er á Facebook

Útivistarferð ÆSKR

Jæja, ég veit að þetta kemur seint en vonandi nær þetta til ykkar :)

Miðvikudaginn 26. maí stendur ÆSKR fyrir stórskemmtilegri
útivistarferð í Björnslund í Norðlingarholtinu. Farið verður í skemmtilega leiki og mikið stuð í gangi. Sláum botninní veturinn, tökum okkur frí frá amstri dagsins og skemmtum okkur saman öll sem eitt!
Við bjóðum upp á grillaðar pylsur og drykki og endum með helgistund.
Mæting á svæið er á milli 17.30 og 18.00 og gerum við ráð fyrir að dagskráin
verði búin c.a. 20.15.

Hvernig kemst maður í Björnslund? spyrð þú.
Svarið er einfalt:

Til að komast í Björnslund er auðvelt að taka strætó, vagnar númer 5, 19 og 51 ganga inn í hverfið og stoppa fyrir utan lundinn.
Mikilvægt er að allir séu mættir fyrir klukkan 18:00 hér fyrir neðan má sjá hvernig hægt er að komast upp í Björnslund frá skiptistöðvunum í Ártúni og Mjódd.
Á vefsíðunni www.straeto.is má líka finna leiðarlýsingu og kort. Heimilisfangið á Björnslundi er Elliðabraut 14, 110 Reykjavík.

Frá Ártúni: Vagn 5
Frá: Ártún 17:30
Ártún 17:31 Leið 5

Elliðabraut v/Bugðu 17:47
Gengið 40 metra
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:48

Frá Ártúni 2: Vagn 19
Frá: Ártún 17:11
Gengið 110 metr
Breiðhöfði v/Ártún 17:13 Leið 19

Elliðabraut v/Bugðu 17:32
Gengið 40 metra
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:33

Frá Mjódd 3: Vagn 51
Frá: Mjódd 17:33
Mjódd 17:33 Leið 51

Norðlingabraut v/Árvað 17:44
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:48


Til að komast aftur heim
Að Mjódd: Vagn 51
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:34
Gengið 470 metra
Norðlingabraut v/Árvað 20:41 Leið 51

Mjódd 20:41 Gengið 0 metra
Til: Mjódd 20:41


Ártún: Vagn 19
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:16
Gengið 40 metra
Elliðabraut v/Bugðu 20:17 Leið 19

Breiðhöfði 20:33 Gengið 80 metra
Til: Ártún 20:34

Ártún: Vagn 5
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:46
Gengið 40 metra
Elliðabraut v/Bugðu 20:47 Leið 5

Ártún 21:02 Gengið 0 metra
Til: Ártún 21:02


.... okei svarið var kannski ekki ofur einfalt en flestir átta sig væntanlega á þessu. Ef ekki þá hvet ég ykkur til að skoða www.straeto.is eða fá einhvern til að skutla ykkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur og ekki gleyma að klæða ykkur eftir veðri og taka sólskinsskapið með ykkur!

♪ Það er ókeypis að B-R-O-S-A ♫


Ef einhver áhugi er fyrir því að fara þá megið þið senda mér sms í 6975755 og mæta svo í Björnslundinn. En þið verðið að láta mig vita ef þið ætlið að fara. Það þarf nefnilega leiðtogi að fara með ykkur og ég þarf að láta vita fyrir hádegi á morgun :)

sumarkveðja

Jessica

Jessica | 24.05.2010, 14:15 - Jarmaðu litla lamb

Árshátíð meme 2010

Já, þið lásuð rétt. Við ætlum að halda árshátíð í ár!

Hún verður ekki af verri endanum þar sem þið börnin góð sjáið að mestu um allt. Nú mætum við leiðtogarnir bara og njótum!

Þið ákváðuð að verðið yrði 1500 krónur og við hefjum herlegheitin kl 19:00 þann 22. apríl í Digraneskirkju.

Það sem þið þurfið að ákveða er:

  • Fordrykkur
  • Matur
  • Skreytingar
  • Skemmtiatriði
  • Veislustjóri
  • Dagskrá eftir árshátíðna, ball?
  • og fleira sem ykkur dettur í hug.

 

Lokatækifæri til að skrá sig á árshátíðina er miðvikudagskvöldið 21. apríl á arnor (hjá) jarma.net

Arnór | 14.04.2010, 15:13 - 1 lamb hefur jarmað

Vaktu með kristi Á EFTIR!!

Hæ hæ börnin góð.


Vaktu með kristi er á eftir í Hafnarfjarðarkirkju kl 22:00 og húsið lokar kl 23:00 og stendur vakan til 08:00 í fyrramálið. Því miður heppnaðist ekki að setja inn leyfisbréf en nóg er að mæta með bréfsnepil með undirskrift frá mömmu og pabba sem gefur leyfi fyrir viðveru á vökunni.


Hlakka til að sjá ykkur!

Arnór | 01.04.2010, 17:48 - Jarmaðu litla lamb

Njótum fjölbreytileikans

Þann 18. mars er alþjóðadagur gegn fordómum.

Eins og undanfarin ár eru æskulýðsfélögin á höfuðborgarsvæðinu beðin um að senda hópa í Smáralindina þennan dag til að taka þátt. Dagskráin stendur yfir frá kl 16:00 - 18:00. Þeir sem mæta kl 16 fá gefins bol og eru málaðir í framan og fá svo haug af nammi til að gefa (og smakka sjálf auðvitað).
Sviðið verður að þessu sinni staðsett hjá kaffihúsinu á neðrihæð Smáralindarinnar (fyrir framan Eymundsson)
 
Í ár fá krakkarnir spennandi aukaverkefni því þrisvar sinnum yfir þennan tíma kemur tilkynning um átakið í hátalarakerfi Smáralindar og þegar það gerist þá frjósa allir krakkarnir í eina mínútu.
Markmiðið er að vekja athygli hjá gestum og gangandi. Engin útskýring verður gefin á þessum lifandi myndastyttum heldur verður þetta í svokölluðum "Flash Mob" stíl. Krakkarnir eiga að frjósa kl 16:30, 17:00 og 17:30.

 

Það verður spennandi dagskrá út um alla Smáralind þennan dag. Sirkus Ísland leikur listir sínar, leikfélag Kvennó sýnir atriði, Gjörningahópur SGI verður á svæðinu, Leifur breik sýnir og kennir breikdans og auk þess verða fjölmörg verkefni í gangi svo sem mannréttindatwister, fólki boðið upp á að setja fingrafar sitt gegn fordómum og margt fleira.

MEME mun að sjálfsögðu ekki láta sitt eftir liggja. Við viljum að fólk fái að vera það sjálft og þurfi ekki að vera eins og allir hinir til að vera samþykkt.

Mætum í Smáralind og hittumst fyrir framan Eymundsson.

Þórunn | 17.03.2010, 10:23 - 1 lamb hefur jarmað

Sketch

Á morgun ætlum við að draga fram myndavélina, tölvuna og leikhæfileikana.

Við ætlum að taka upp, jafnvel gera grín :) ýmsa sketcha og hafa gaman af því. Þið eruð alveg eindregin hvatt til að koma með tillögur.

Þetta á bara að vera skemmtilegt og fyndið. Hittumst á morgun og hlæjum soldið saman, það lengir lífið :)

Jessica | 10.03.2010, 10:58 - Jarmaðu litla lamb

Æskulýðsdagurinn

Á morgun, sunnudaginn 7. mars, er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Af því tilefni verður æskulýðsmessa í Digraneskirkju kl. 11. Þar verður öll messan í umsjón æskulýðsstarfsins, s.s. tónlist, prédikun, biblíulestrar o.fl. Allir sannir MEME-ingar eru hvattir til að prófa að vakna eldsnemma og mæta ferskir kl. 11 :)

BÆNARÝ 2010

ÆSKR stendur fyrir margmiðlunarmessu í Neskirkju kl. 20 sama dag. Þar verður tæknin nýtt til hins ítrasta til að framkvæma hefðbundna messuliði. Notast verður við farsíma, hljóð, mynd, fjarfundabúnað o.fl. sniðugt. Þetta verður einstakur atburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. ALLRA SÍST MEME 

Guðmundur Karl | 06.03.2010, 17:31 - Jarmaðu litla lamb

Febrúarmót

Jæja þá er komið að atburði sem mörg ykkar hafið beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Já, það er sko Febrúarmót.

Febrúarmótið verður haldið 19-21 Febrúar í Vatnaskógi. Það er mikil og skemmtileg dagskrá sem þið getið fengið að sjá hjá okkur á fimmtudaginn fyrir þá sem voru ekki búin að fá bækling.

Á mótið kostar 8600 eða 8900, man ekki alveg hvort. Við ætlum að safna fyrir þessu á fimmtudaginn. Þannig að það er mjög mikilvægt að mæta á fimmtudaginn bæði til að skrá sig á mótið og vera með í söfnunni til að drýgja kostnaðinn.

Þegar þið skráið ykkur á mótið á fimmtudaginn þá verðið þið að greiða staðfestingargjald sem er 1000,-

Líka á fimmtudaginn ætlum við að máta og taka niður pöntun á peysur fyrir mótið. Við erum að vinna í því að fá tilboð þannig að það er ekki komið á hreint hvað peysurnar koma til með að kosta en það verður komið í ljós á fimmtudaginn.

Ok ALLIR AÐ MÆTA Á FIMMTUDAGINN

Þá verður:

Skráning á Febrúarmót, allir borga 1000, í staðfestingagjald

Söfnun fyrir mótinu, mæta vel klædd

Tekin niður pöntun fyrir þá sem vilja peysur

 

Ég vil taka það fram að það VERÐUR að skrá sig á fimmtudaginn, það er síðasti séns.

Hlökkum til að sjá ykkur

Jessica | 09.02.2010, 14:22 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Rapparinn SÆVAR POETRIX kemur í heimsókn...

- ÞÚ VILT EKKI MISSA AF ÞESSUM FUNDI -

 

Í kvöld kemur rapparinn SÆVAR POETRIX í heimsókn til okkar.  Orðið á götunni segir að hann muni jafnvel taka nokkur tóndæmi og gefa okkur innsýn í það sem hann hefur verið að gera.  Hver veit nema einhverjir heppnir fái að spreyta sig í rímnaflæðinu ef stemmningin verður þannig! 

 

POETRIX hefur m.a gefið út plötuna "Fyrir lengra komna" , unnið með tónlistarmönnum á borð við Bubba og fl., leikið burðarhlutverk í rokkóperunni !HERO og þannig mætti lengi telja.


KOMIÐ - HEYRIÐ - SJÁIÐ OG SANNFÆRIST


KEMUR ÞÚ EKKI ÖRUGGLEGA?

Rakel | 04.02.2010, 01:24 - Jarmaðu litla lamb

Meme fundur 28. janúar

Þá er komið að síðasta fundi þessarar mánaðar. Já, Janúarmánuður er að líða undir lok og febrúar kemur með sínar gleðistundir.


Á fundinum verða spurðar ýmsar spurningar og þeir sem geta svarað þeim rétt fá karmellu fyrir það.


Sem sagt. Karmelluspurningakeppni í meme á fimmtudaginn kl 19:00

Arnór | 27.01.2010, 16:56 - Jarmaðu litla lamb

Á næsta fundi, 21. janúar

Guðmundur Karl | 20.01.2010, 00:56 - Jarmaðu litla lamb

Junior og senior sameinast

Á vorönn 2010 verða fundir í fyrir 8.-10. bekk á fimmtudögum kl.19:30-21:00. Leiðtogarnir eru á staðnum frá 19:00-21:30 og þá er hægt að spila og spjalla. Sjáumst :)

Þórunn | 14.01.2010, 18:29 - Jarmaðu litla lamb

Ljósaganga

Þjóðkirkjan er aðili að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi, sem verið hefur árviss viðburður. Það hefst í dag með Ljósagöngu kl. 19.00 og eru allir hvattir til að mæta sem láta sig málið varða og möguleika á að koma.

 

Ljósaganga miðvikudaginn 25. nóvember.

 

markar upphaf 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi.

 

Gangan hefst kl. 19:00 fyrir framan Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu og lýkur við Sólfarið við Sæbraut.

 

Í broddi fylkingar verða kyndilberar sem láta sig málefnið varða. Þeirra á meðal verða Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, leikkona, leikskáld og höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli.

 

Það er von okkar að sem flestir mæti í gönguna!

 

Í tilefni dagsins er ljós Friðarsúlunnar tileinkað voninni um heim án ofbeldis. Friðarsúlan er verk Yoko Ono og hún sendir sérstaka friðarkveðju en þetta er í fyrsta sinn sem ljós Friðarsúlunnar er tileinkað sérstöku málefni: Alþjóðadegi um afnám ofbeldis gegn konum.

 

Við í Meme ætlum ekki að hafa formlega mætingu þangað en við hvetjum ykkur endilega til að kíkja við og taka þátt ef þið hafið tök á.

Anna | 25.11.2009, 08:50 - Jarmaðu litla lamb

- Tonight is the night my friends -

Í kvöld er sameiginlegur fundur MeMe Junior og MeMe Senior sem ber yfirskriftina LEYNIGESTUR.  OKkur langar reyndar að bjóða MeMe Movie krökkunum líka þar sem þetta verður bara svo fáránlega skemmtilegt og OSOM að við getum ekki skilið ykkur útundan.

Leynigestur kvöldsins er kannski ekkert gríðarlega leynilegur en við skulum ekkert vera neitt að auglýsa hann of mikið.  Leynigestur þessi er enginn annar en sjálfur danshöfundur Rokkóperunnar !HERO sem sýnd var hér á landi síðasta vetur og var nottla fáránlega geggjuð í alla stað.

;)

VIÐ ÆTLUM AÐ GERA TÓNLISTARMYNDBAND OG... ÞAÐ EINA SEM ÞÚ ÞARFT AÐ GERA ER AÐ MÆTA. - OG EF ÞÚ HEFUR GAMAN AF ÞVÍ AÐ DANSA ÞÁ MÁ ENDILEGA MÆTA Í ÞÆGILEGUM FATNAÐI.  EF ÞÚ HEFUR EKKI GAMAN AF ÞVÍ AÐ DANSA ÞÁ ÁTTU LÍKA AÐ MÆTA, ÞAÐ ER E-Ð VIÐ ALLRA HÆFI Í DIGRANESKIRKJU Í KVÖLD, ENDA Í MÖRG HORN AÐ LÍTA ÞEGAR GERA Á TÓNLISTARMYNDBAND.

ÞÚ VILT EKKI MISSA EF ÞESSUM FUNDI

SJÁUMST ELDHRESS Í BANANASTUÐI

Rakel | 17.11.2009, 12:43 - Jarmaðu litla lamb

-- STELPUFUNDUR --

Í kvöld er hinn þangþráði stelpufundur sem er sameinglegur með Senior og Junior.  Eins og nafnið gefur til kynna þá eru engir strákar velkomnir - þeirra fundur verður á fimmtudaginn í umsjón Jassers og Arnórs

Við ætlum að tala um sjálfsmynd, slúðra, naglalakka okkur, hlusta á tónlist, kjafta og borða kannski smá nammi og eiga saman góða stund.


Þið megið endilega taka með ykkur náttbuxur, naglalakk, tónlist og nammi á fundinn

 

Sjáumst í stelpugírnum í kvöld :)


Rakel | 03.11.2009, 12:32 - Jarmaðu litla lamb

Þraukarakeppni ÆSKR

Fimmtudaginn 1. október fór fram keppnin ÞRAUKARINN 2009 á vegum ÆSKR í Grafarvogskirkju. Fréttastofa MEME movie var á svæðinu.

Guðmundur Karl | 02.10.2009, 01:59 - 1 lamb hefur jarmað

ÞRAUKARAKEPPNI ÆSKR Á MORGUN!

Á morgun verður hin stórfenglega Þraukarakeppni ÆSKR í Grafarvogskirkju og hefst keppnin stundvíslega kl.19:30 að staðartíma.

Meðlimir MeMe Junior og MeMe Senior ætla að sjálfsögðu að taka þátt í þessu og þrauka með glans þar til yfir lýkur .... er það ekki?

Við ætlum að mæta á Smáratorg og taka saman strætó kl.18:40MIKILVÆGT að mæta tímanlega í strætóskýlið svo enginn missi nú af almenningsvagninum gula.

Munið að koma klædd í stíl við veðurspánna .... það spáir frekar köldu veðri á morgun ..... en með vettlinga og lopahúfu að vopni munum við þrauka til síðasta manns :)

Sjáumst á Smáratorgi annað kvöld (fimmtudag).  Strætóinn fer kl.19:20 :)

Rakel | 30.09.2009, 19:13 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Pizza & Video

Jæja, næsti fundur er annað kvöld og verður pizza & video! WOOHOO!

Þetta verður gífurlega skemmtilegt og hlakka ég mikið til að horfa á myndina og gæða mér á yummy pizzu.

En þar sem ekki allt er fríkeypis þá þurfa allir að koma með 500 kr. fyrir pizzunni.

Og ef þið viljið ekki pizzu þá þurfið þið ekki að koma með neinn pening.

Hlakka til að sjá ykkur!

Dagný

Dagný | 23.09.2009, 19:20 - Jarmaðu litla lamb

VELKOMIN Í MEME JUNIOR =D

Jæja núna eruð þið komin í 8. bekk, fermingarfræðslan að byrja allt komið í gang. en þar sem þið eruð komin í 8. bekk þá viljum við í Meme bjóða ykkur hjartanlega velkomin.

Vá var þetta ekki flott? ég var mjög formleg =D nú er það búið þannig að ég get bara spjallað venjulega við ykkur ;P

en já það er youtube fundur og komið endilega með link ef þið getið =D ég lofa að við tökum vel á móti ykkur og bítum ekki... eða ekki mjög fast það... hahaha

en já þið eruð allavega velkomin í kvöld;P

sjáumst þá =D


Telma Ýr

Telma Ýr | 17.09.2009, 13:23 - Jarmaðu litla lamb

Kaldárselsferð

 Smá áminning um ferðina okkar í dag.

Allir þurfa að koma sér sjálfir upp í Kaldársel. Kaldársel er rétt fyrir utan Hafnarfjörð. Ef keyrt er í gegn um Hafnarfjörðinn eins og maður sé á leið til Keflavíkur þá stendur á vegaskiltum hvar skal beygt til að fara í Kaldársel. Það þarf að fara upp á brúna og yfir í hesthúsabyggðina sem er rétt hjá kirkjugarðinum. Keyra fram hjá öllum hesthúsunum og áfram eftir veginum þar til komið er að Kaldárseli. Þetta er allt vel merkt á mörgum stöðum á leiðinni.

Síminn í Kaldárseli er: 555-6211

Það er ekki gott gsm samband í Kaldárseli nema við flaggstöngina og uppi á svölum. Þessvegna er gott að foreldrar hafi símanúmerið í Kaldárseli ef þau þurfa að ná í ykkur og eins ef þið villist á leiðinni uppeftir þá getið þið hringt til að fá leiðbeiningar.

Takið með ykkur svefnpoka (eða sæng eða teppi - hvað sem þið viljið sofa með) og lak. Það er mjög nauðsynlegt að taka með lak á rúmið sitt.
Einnig mæli ég með að þið takið nóg af aukafötum og nokkur pör af sokkum - fólk vill blotna í Kaldárseli.
Við ætlum líka í nokkrar gönguferðir svo takið með ykkur hlý föt og góða skó. Í einni gönguferðinni ætlum við í hellaferð svo gott væri að hafa með vasaljós.

Hlökkum til að sjá ykkur
ykkar ástkæru leiðtogar.

Anna | 05.06.2009, 08:58 - Jarmaðu litla lamb

Vorferðin okkar - fjör að loknum prófum

Já það er komið að því
í kvöld rennur út skráningarfrestur fyrir ferðina okkar.
Þeir sem ætla með verða að skrá sig á fundinum í kvöld eða á jörmum hér að neðan - þeir sem ekki komast á netið geta skráð sig með sms til Önnu.

Þeir sem eru að fara í útskrifarferð í dag skrái sig því í sms eða á netinu.

Allir sem tóku þátt í kaffisölunni í gær komast frítt í ferðina!
Takk fyrir frábært kvöld.

Sjáumst hress

ath. leyfisbréfið og allt sem ferðinni viðkemur má sjá hér: http://www.jarma.net/files/kaldarsel.pdf


Anna | 02.06.2009, 13:34 - Jarmaðu litla lamb

Fjör að loknum prófum - Ferð Meme og Fönix í Kaldársel

 Já eins og heyrst hefur þá erum við að fara í Kaldársel og ætlum að hafa heilmikið fjör þar eftir rúma viku. Ferðin kostar 5000 krónur á mann en við ætlum núna að gefa ykkur frábært tækifæri til að lækka ferðakostnaðinn og jafnvel gera ferðina ókeypis.

Á mánudaginn kemur verður mótorhjólamessa og eftir að henn lýkur verða á bilinu 300-400 svangir mótorhjólaknapar í kirkjunni okkar. Við ætlum að baka vöfflur og selja kökur og kaffi á staðnum svo að allir verði saddir og kátir.

Unnið verður útfrá punktakerfi og fá allir sem leggja hönd á plóginn punkt eftir því hvað þeir eru duglegir. Fjárhæðin sem safnast skiptist svo á punktana og þannig kemur í ljós í lok dags hversu mikið hver og einn fær upp í ferðina.
Enginn fær þó meira en upphæðina sem ferðin kostar. Ef einhver afgangur verður mun hann verða notaður til að gera ferðina ennþá skemmtilegri!

Svona fáið þið punkta:
1 punktur fyrir að mæta kl 19:00 og hjálpa til á staðnum. Baka vöfflur, leggja á borð, taka við peningum, ganga frá þegar kaffinu lýkur og fleira (leiðtogar áskilja sér rétt til að gefa aukapunkt fyrir sérstakan dugnað í salnum)

1 punktur fyrir hverja köku eða rétt sem þið komið með. Það getur verið skúffukaka, diskur af pönnukökum, kleinuskál, rjómaterta, fat með smurðum brauðum eða hvað sem ykkur dettur í hug. Passið ykkur bara að hafa réttina nógu vel útilátna til að svangir bifjhjólaknapar geti fengið nóg.

Ef einhver kemur t.d. með tvær kökur og hjálpar til í sal og er afbragðsduglegur fær sá hinn sami þrjá punkta.

Þeir sem eru í tónlistarhóp í messunni geta auðvitað ekki hjálpað til á meðan á messunni stendur en þeir fá punkt fyrir að taka þátt í frágangi og hjálp eftir að messu lýkur.

Allir sem eru í Meme eða Fönix og ætla með í ferðina geta tekið þátt í þessari söfnun. Endilega skráið í jörmin hér að neðan hvort þið ætlið að koma með og hvað þið ætlið að leggja á borðið.

Bestu kveðjur með von um miklar undirtektir
Anna og Sigurvin

Anna | 28.05.2009, 17:03 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Textar fyrir Hvítasunnudag og mótorhjólamessu

Söngtextar fyrir næstu tvö gigg eru nú komnir á veraldarvefinn. Smellið hér fyrir neðan til að skoða þá:

Hvítasunnudagur
Mótorhjólamessa

Föndurstund

Góðar stundir :-)

Guðmundur Karl | 28.05.2009, 12:24 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Hvítasunnuhelgin

 Já Hvítasunnuhelgin verður mega-busy hér í kirkjunni okkar.

Það er stór samkirkjuleg bæna- og lofgjörðarsamkoma hér á sunnudagskvöld vegna alþjóðlega bænadagsins. Allar kirkjurnar og samfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla að koma hingað og sameinast í bæn kl 20:00 - allir velkomnir.

Tónlistarhóprinn okkar ætlar að leiða tónlistina í upphafi samverunnar og í lok hennar. Mig vantar alla sem geta verið með til að koma og hjálpa til. Það vantar fólk til að syngja og spila og svo vantar líka fólk til að vera í móttöku og aðstoða við hitt og þetta sem fellur til.

Á mánudaginn er svo mótorhjólamessan okkar og þá eins og venjulega syngjum við og djömmum með mótorhjólagenginu. K.K. verður á staðnum og Pétur Hrafnsson og margir fleiri snilldar tónlistarmenn verða með okkur.

Í kvöld kl 18 er æfing fyrir mótorhjólamessuna og ég vona svo sannarlega að ég fái góðan sönghóp til að mæta með mér.
Þeir sem eru í prófum á morgun og komast ekki í kvöld geta engu að síður mætt á sunnudag kl 17:00 og tekið þátt. Þetta er mest allt lög sem þið kunnið og þau birtast hér á síðunni fljótlega, vonandi í dag.

Á mánudag kl 17:00 verður svo aftur æfing fyrir mótorhjólamessuna.

Vonast til að sjá sem flesta, hressa og káta. Þetta verður magnað stuð!

Anna | 28.05.2009, 12:22 - Jarmaðu litla lamb

Útivistarferð ÆSKR

Já sæll!!!
Mér urðu á mikil mistök þegar ég týndi pósti um útivistarferð ÆSKR.
Hún verður haldin næsta miðvikudag í Nauthólsvík og allar upplýsingar eru hér fyrir neðan.
Ég vona að mistök mín verði ekki til þess að þið missið af þessari frábæru ferð. Hér kemur bréfið:

Miðvikudaginn 20. maí er komið útivistarferð ÆSKR. Það er engin ástæða til að leita langt yfir skammt og því mun útivistin fara fram í einni af útivistaperlum Reykjavíkur - Nauthólsvík.
Við vonum að sem flest félög geti mætt og skemmt sér með okkur í Nauthólsvíkinni. Þátttaka kostar kr. 500 á mann (fyrir þau sem ætla á báta).
Skrá þarf fjölda þátttakenda frá hverri kirkju fyrir klukkan 09:00 mánudaginn 18. maí. Mikilvægt er að fá skráninguna upp á bátaskipulag.

Dagskráin:
16.30 Mæting í Siglunes(Nauthólsvík)

17.00- 18.00 Sigling á kajakbátum - kennsla á bátana og þrautir (má vera í sjósundi og potti)

18.00-19.00 Sjósund, pottur og kastalakeppni - muna eftir sundfötum og handklæði

19.00 Grillaðar pylsur - og borðaðar

19.30 Helgistund og fararblessun

ATH að það verður engin rúta til og frá kirkju heldur þarf að redda sér sjálfur niður eftir og aftur heim þegar dagskrá lýkur. Skráið ykkur í jörmunum hér að neðan og ég sendi svo inn skráninguna kl 09:00 á mánudagsmorgun.

Vonast til að sjá sem flesta á miðvikudaginn ;o)
Kveðja
Anna  og co.

Anna | 15.05.2009, 14:00 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Júróvísjón partý!!!

Já það verður júróvísjónpartý í Digraneskirkju í kvöld.

Allir velkomnir, höfum stuð og gaman og allir mega taka með sér nammi og gos eða hvað sem þeir vilja snarla á meðan horft er á syngjandi og dansandi evrópubúa!

Fönix kemur í heimsókn svo þetta verður rosa stuð!

Keppnin og partýið byrja kl 19:00

Sjáumst!

Anna | 12.05.2009, 12:19 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Vilt þú vera með í kvikmyndagerð Meme movie?

 Í dag og á morgun gefst Meme senior og Meme junior tækifæri tli að taka þátt í kvikmyndagerð meme movie.

Við erum að taka upp kvikmyndina Erfingjar Eilífðarinnar sem er saga um baráttu milli engla og púka - Jesú og Djöfulsins.

Í kvöld og á morgun ætlum við að taka upp stór atriði þar sem fylkingar engla og fylkingar púka eru að berjast.

Við óskum eftir aukaleikurum til að leika engla og púka í þessum atriðum í kvöld og á morgun.

Mæting er kl 17:00 í Digraneskirkju í dag og kl 18:00 á morgun.

Allir mega vera með!
Stúlkur eru beðnar um að mæta í svörtum leggings/sokkabuxum svörtum sokkum og skóm eða í hvítum leggings/sokkabuxum hvítum sokkum og skóm. Þið fáið svo kjóla hjá okkur.

Drengir eru beðnir um að mæta í svörtum eða rauðum fötum svörtum sokkum og svörtum skóm. Eða í hvítum buxum, hvítum sokkum og hvítum/ljósum skóm og hvítri skyrtu. 

Ég býst fastlega við því að fleiri eigi svart en hvítt svo ef einhver á bæði þá væri gott að hann/hún kæmi frekar í hvítu en svörtu eða tæki bæði með sér til að lána öðrum.

Vonast til að sjá sem flesta og hlakka til að hafa ykkur með

Anna og co

Anna | 20.04.2009, 12:35 - Jarmaðu litla lamb

Vaktu með kristi - skráning í dag og á morgun!


Vaktu með Kristi

Næturdagskrá í boði ÆSKR, ÆSKÞ og ÆNK.

Haldin í Hafnarfjarðarkirkju

aðfaranótt Föstudagsins langa, 9.-10. apríl 2009

Vakan hefst kl. 22:00 á skírdag, 9. apríl, og stendur til kl. 8:00 að morgni föstudagsins langa 10. apríl (húsið lokar kl 23.00, eftir það er ekki hægt að fara út, nema ef foreldrar/forráðamenn sækja viðkomandi). Mæting er inn í Hafnarfjarðarkirkju kl 22:00.

Uppbygging vökunnar er tvíþætt. Annars vegar eru helgistundir í kirkjunni og hins vegar er hægt að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem ýmislegt er í boði, svo sem afslöppunarherbergi, sjónvarpsherbergi, söngur og listasmiðja.

Þátttakendur þurfa í raun ekkert að taka með sér, en það er gott að taka með sér dýnu, svefnpoka og tannbursta, ef ætlunin er að hvílast eitthvað yfir nóttina. Boðið verður upp á sameiginlega máltíð um nóttina, en allt annað, s.s nammi, verður hver og einn að taka með sér. Ekki verður hægt að fá að skreppa út í sjoppu. Hægt er að hringja í Arnór í síma 8651423 á meðan vökunni stendur.

Boðið verður upp á rútuferð frá Hafnafjarðarkirkju í Digraneskirkju kl 8 á föstudagsmorgun þegar vökunni lýkur.

Allir eru velkomnir en undirskrift foreldra/forráðamanna er skilyrði fyrir þátttöku.

Síðasti skráningardagur er á morgun, fimmtudaginn 2. apríl. Skráning fer fram hér í commentum eða hjá Arnóri.

Síðasti dagur til að skila inn leyfisbréfi er 9.4.09

-----------------------------------------------------------------------------------

Samþykki forráðamanns 18 ára og yngri

Nafn þátttakenda: __________________________________________________

Sími forráðamanns meðan á vökunni stendur: ____________________________ 
 
Undirskrift forráðamanna: ____________________________________________

Arnór | 01.04.2009, 20:39 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Loksins komin dagskrá

 Jæja loksins loksins er hin langrþáða dagskrá komin á netið.

Við vonum að þið njótið þess að skoða hana og látið ykkur hlakka óendanlega mikið til hvers einasta fundar.

Munið þó að dagskráin er ekki heilög og hún gæti breyst eitthvað en þó á ég ekki von á miklum breytingum.

Njótið vel.

Anna | 30.03.2009, 13:12 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Pizza og mafía

 Í kvöld ætlum við að búa til Pizzu og (takið eftir því) hita hana upp í eldhúsinu. Þegar pizzan er klár ætlum við að borða hana í góðum fíling og fara í mafíu á meðan.

Þetta verður gott kvöld.

Leiðtogarnir.

Arnór | 19.03.2009, 09:41 - Jarmaðu litla lamb

Atburður gegn fordómum

Á morgun verður hátíð gegn fordómum í Smáralindinni kl 16-18.

Við ætlum að sjálfsögðu að taka þátt í því. Það eru Mannréttindastofa, Rauðikrossinn, kirkjan og fleiri sem standa að þessari hátíð. Fullt af ungmennum mæta í Smáralindina kl 16 og fá þar bol og eru máluð í framan í allskyns skemmtilegum litum. Svo verður farið í smá hópleiki og eftir það fara hópar af stað með ruslafötur og miða og bjóða gestum og gangandi að henda fordómum í ruslið. Einnig bjóða þau upp á sælgæti og lesefni um fordóma.
Á öðrum stað verður myndasýning um fordóma og fjölbreytni og á enn öðrum stað verður veggur þar sem við hengjum upp allskyns góða hluti sem tengjast fjölbreytni.

Á sviðinu verða svo atriði frá Rokkóperunni !Hero, söngleiknum Stardust og breikari sem dansar og kennir kannski gestum og gangandi einhver trikk.

Það er ekki ótakmarkað magn af bolum svo fyrstir koma fyrstir fá. Þeir einu sem hægt verður að taka frá fyrir eru þeir sem eru að vinna í 6-9 ára starfinu hér í kirkjunni og stefna á að koma strax eftir það. Þeir skulu láta mig vita svo að ég geti tekið frá bol handa þeim.

Vonast til að sjá sem flesta í Smáralindinni á morgun, fimmtudaginn 19. mars, kl 16.

Anna | 18.03.2009, 11:42 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Jörmun í kvöld

Í kvöld verður samjörmun í Digraneskirkju. Allir þeir sem hafa óbilandi þrá til þess að jarma eru velkomnir inn í kirkju kl 19:00 í kvöld.

Þeir sem eiga eftir að borga peysur og fá þær, þeir skulu gera það í kvöld.

Leiðtogarnir

Arnór | 12.03.2009, 10:45 - Jarmaðu litla lamb

Er eitthvað vit í efnafræði???

Svarið er einfalt... JÁ!!! Núna næstkomandi þriðjudag mun ég reyna að sannfæra ykkur um það að þetta er hið rétta svar við spurningunni. Það verður gert með að reyna einhverjar tilraunir sem verða þó í saklausari kantinum. Endilega komið og sjáið hvað verður prufað og hver veit nema einhverjir heppnir fái að prufa e-ð sjálf... 8. bekkingar eru velkomnir á þennan sérstaka tilraunafund. Sjáumst ÖLL hress!

Benjamín | 02.03.2009, 12:50 - 1 lamb hefur jarmað

Leikhúsferð Meme group

 Já við í Meme group ætlum að skella okkur saman í leikhús og það er ekki sýning af verra taginu sem við förum á.

Við ætlum að sjá rokkóperuna !Hero. Þetta er stórglæsileg sýning með haug af flottum dönsurum og söngvurum og röppurum og ég veit ekki hvað og hvað.
Í aðalhlutverkum eru Svenni úr Luxor, Dabbi T, Poetrix, Eiríkur Hilmar Rafnsson, María Magnúsdóttir, Ingunn Huld Sævarsdóttir, Þorleifur Einarsson, Siggi Ingimars og fleiri.
Sjá nánar á www.hero.is

Við ætlum að fjölmenna á tilboðssýningu sem verður sunnudaginn 8. mars. kl 17:00. Verð á sýninguna er 2300 kr. (venjulegt verð á þessa sýningu er 2800 kr.) og til að koma með þarf að vera búin að skrá sig og borga í síðasta lagi þriðjudaginn 3. mars. Þið megið líka gjarnan taka vini og ættingja með á sýninguna.

Vonumst til að fá sem flesta með á þessa mögnuðu sýningu.
Kveðja
Leiðtogar Meme group

Anna | 26.02.2009, 12:54 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Næsti meme fundur

 Hæbb.

Við hittumst í Digraneskirkju á morgun kl 19:00. Þar mun vera fjallað ítarlega um rock óperuna !HERO, starring: Anna Arnardóttir.

Við munum einnig fjalla um æskulýðsdaginn sem verður á sunnudaginn.

Hittumst heil.

Leiðtogar MEME.

Arnór | 25.02.2009, 10:55 - Jarmaðu litla lamb

Febrúarmót í dag!!!!

 Jeij við erum að fara í Vatnaskóg á eftir!!!!

Mæting í Breiðholtskirkju kl 17:45 - rútan fer kl 18:00

Mæta með kr 8000 og leyfisbréf ef það er ekki enn komið til skila.

(nema sjoppustjórar sem mæta bara með sjálfa sig og góða skapið)

Allir taki með sér svefnpoka eða sæng, tannbursta og allt þetta venjulega stuff og nóg af sokkum og auka skó því það verður blautt í Vatnaskógi núna...

Taka svo með peninga til að versla í meme sjoppunni ;o)

Anna | 13.02.2009, 14:50 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Febrúarmót nálgast eins og óð fluga

 Ég fór á sannleikann með Pjófjúsjon Sigfjúson á sunnudaginn. Hvílík snilld! Mæli klárlega með þessu.

Undir- eða yfirbúningur fyrir febrúarmótið í kvöld. Hlakkar einhvern til?? uuu já ÉG!!

Hver er til í mafíu?

Nýr leiðtogi, rauðhærður meira að segja...

Arnór | 12.02.2009, 14:22 - Jarmaðu litla lamb

Kvöldmessa á sunnudaginn

 Já það er kvöldmessa núna á sunnudaginn kl 20:00 í Digraneskirkju.

Allir eru hvattir til að mæta og eiga með okkur notalega stund í kirkjunni.

Ef einhverjir hafa áhuga á að koma og hjálpa til í messunni, t.d. með því að lesa ritningarlestra eða bjóða fólk velkomið í salinn eru þeir beðnir um að mæta kl 19:00 á sunnudaginn í kirkjuna. Gott væri að fá nöfn hér að neðan í jörmin til að vita á hverjum við getum átt von.

Hlakka til að sjá ykkur
kveðja
Anna

Anna | 06.02.2009, 14:05 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Spilafundur í kvöld

Jæja, krakkar mínir góðir.
Í kvöld ætlum við að vera með spilafund þar sem við setjumst niður og spilum skemmtileg spil. Endilega ef þú lumar á góðu spili heima hjá þér þá máttu endilega taka það með þér og við höfum gaman.

Ich hlakker meget til að see you.

Við skuldum mafíu frá því síðast. Klárlega.

Leiðtogarnir

Arnór | 05.02.2009, 17:37 - Jarmaðu litla lamb

Febrúarmót og Meme peysur

 Jæja þá er komið að því. Hið frábæra Febrúarmót ÆSKR í Vatnaskógi er á næstu grösum!!!

Skráning er í þessari viku og meme senior á að skrá sig í kvöld (þriðjudag) en meme junior á að skrá sig á fimmtudag.
Verð á mótið er 8000 krónur og innifalið í þeirri upphæð eru rútuferðir, gisting, matur og mikið fjör! Ekki þarf að borga fyrr en við rútuna.
Til þess að geta skráð sig er nauðsynlegt að mæta með leyfisbréf frá foreldri/forráðamanni þar sem segir að þið megið fara á mótið og með símanúmeri foreldris/forráðamanns þar sem hægt er að ná í viðkomandi á meðan á mótinu stendur. Svona ef ske kynni að eitthvert ykkar slasaðist eða eitthvað slíkt og við þurfum að ná í foreldra.

Nánari upplýsingar um mótið og staðlað leyfisbréf má finna hér.

Þá er það næsta mál á dagskrá:

MEME PEYSURNAR hafa alltaf verið vinsælar.
Undanfarin ár höfum við keypt Meme peysur inn í febrúar til að geta verið eins á febrúarmóti... ATH það er samt ekki nauðsynlegt að kaupa sér peysu til að geta farið á mótið. Bara þeir sem vilja kaupa sér peysu gera það, það er engin skylda.
Peysurnar kosta 4000 krónur - renndar peysur og 3000 krónur - heilar peysur.
Peysurnar eru svartar hettupeysur með Meme merkinu aftan á bakinu og litlu meme merki og nafni viðkomandi á brjóstinu.

Þeir sem vilja peysur þurfa að koma og máta í þessari viku. Seniorar máta í kvöld og juniorar máta á fimmtudaginn. Nauðsynlegt er að borga um leið og þið pantið. Pöntun er ekki tekin gild nema búið sé að greiða fyrir peysuna.


Vona að sem flestir geti nýtt sér þetta kostatilboð
Kveðja
Anna - Æskulýðsfulltrú sem er loksins komin aftur!!!!



Anna | 03.02.2009, 13:07 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Palli og Pálína mæta í kvöld

Í kvöld verður Palla og Pálínuboð í Meme. Þá koma allir með kökur, kræsingar og góðan mat og saman borðum við okkur pakksödd og höfum það kósý :)

Húsið opnar að venju kl 19:00.

Mafía dagsins verður að venju tekin.

Leiðtogarnir.

| 29.01.2009, 12:37 - 1 lamb hefur jarmað

Ljósmyndamaraþon

Á næsta meme junior fundi munum við taka upp myndavélarnar og taka myndir eins og óðir menn. Myndefnið verður kynnt á fundinum á morgun og verður án efa mjög spennandi.

Mikilvægt er að sem flestir komi með myndavél því við höfum ekki myndavélar til að lána. Símar eru vesen og því er gott að taka sem flestar myndavélar með sér.

Hlakka til að sjá ykkur.

p.s. Mafía dagsins? Klárlega

Arnór | 21.01.2009, 14:35 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Kabadi kabadi kabadi kabadi kabadi kabadi

 Þá er komið að því að hefja starfið á ný hjá okkur í Meme. Vonandi höfðuð þið það gott um jólin með jólaölið í vinstri, jólapakkann í hægri og jólasteikina í munninum.

Við ætlum að hefja veturinn á góðum, ferskum og öflugum leikjafundi. Mafía dagsins, klárlega tekin.

Það verður gaman að sjá ykkur, fersk á nýju ári.

Leiðtogar meme

Arnór | 15.01.2009, 14:29 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa 11. janúar 2009

Eins og komið hefur fram á vefnum hefst æskulýðsstarfið í Digraneskirkju í næstu viku, vikuna 12-16. janúar. Raunar byrjum við á sunnudaginn því Meme sér um tónlist í kvöldmessu á sunnudaginn kl. 20. Við hvetjum ykkur til þess að kíkja og njóta yndislegrar stundar í kirkjunni okkar.

Þeir úr tónlistarhóp sem komast eru vinsamlega beðnir að senda skilaboð á gudmundur (hjá) jarma.net. Æfing verður á sunnudaginn kl. 18:00 og munið að vera búin að borða kvöldmat eða taka með ykkur nesti.

Guðmundur Karl | 09.01.2009, 10:52 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsti fundurinn

Gleðiegt nýtt ár lömbin mín og takk fyrir það gamla.
Fyrsti fundur Meme junior verður fimmtudaginn 15. janúar kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00 eins og alltaf

Sjáumst :-)

Guðmundur Karl | 04.01.2009, 17:19 - 1 lamb hefur jarmað

Gleðileg jól

Leiðtogar Meme group óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Tengill á upphaflegu jólakveðjuna

Guðmundur Karl | 23.12.2008, 21:26 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Getur þú lesið þetta?

Nú langar mig að leggja próf fyrir tæknivædd Meme lömb. Ég óska eftir því að þið gerið ykkar til þess að ráða þetta dulmál og bregðast við skilaboðunum í því. Þorir þú???

Guðmundur Karl | 19.12.2008, 23:14 - 31 lömb hafa jarmað :-)

Friðarganga á Þorláksmessu

Ég fékk senda tilkynningu um friðargöngu á Þorláksmessu og vildi endilega deila henni með ykkur. Ég hvet sem flesta til að mæta :-)

Íslenskir friðarsinnar standa að blysför  niður Laugaveginn á Þorláksmessu.

Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og níuanda í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar.


Í lok göngu verður efnt til fundar á Ingólfstorgi þar sem Birna Þórðardóttir framkvændastjóri Menningarfylgdar Birnu flytur ávarp en fundarstjóri er Lárus Páll Birgisson sjúkraliði


Ráðlegt er fyrir göngufólk að mæta tímanlega því gangan leggur af stað studvíslega.

Guðmundur Karl | 18.12.2008, 10:28 - Jarmaðu litla lamb

Jólafundur Meme

Á morgun, þriðjudaginn 16. desember, er komið að jólafundi Meme group. Farið verður með rútu frá Digraneskirkju kl. 19:30 STUNDVÍSLEGA inn í Neskirkju þar sem við ætum að heimsækja vini okkar úr Vesturbænum.
Mætum öll í betri fötunum og eigum saman góða stund fyrir jólin :-)

Guðmundur Karl | 15.12.2008, 16:35 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Aðventukvöld hjá vinum okkar

Vinir okkar í Hjallakirkju eru með aðventukvöld í kvöld. Það hefst kl. 20 og er í umsjón æskulýðsfélags Hjallakirkju. Hljómsveit KSS spilar og ég veit ekki hvað og hvað. Allir Meme-ingar eru hvattir til að heimsækja Hjallakirkju til að eiga góða stund saman.

Guðmundur Karl | 14.12.2008, 13:02 - 1 lamb hefur jarmað

Hvað er í imbakassanum?

 Á næææææsta fuuuuundiiiiiiiii veeeeeeerðuuuuuum viiiiiiiiiið meeeeeeee YOUUUUUUUUTUUUUUUBEEEEEEEEEFUUUUUUUUUUUND!

Þið þurfið að gera smá heimavinnu kreeeks. Allir að koma með eitt youtube myndband sem gaman er að horfa á. Munið að halda þeim innan kristilegra marka elskurnar mínar.

Að sjálfsögðu verðu mafía dagsins tekin.

Hlakking tú síjú kids.

Leiðtogar

Arnór | 10.12.2008, 14:38 - Jarmaðu litla lamb

Glataður i-Pod touch - FUNDINN!! :D

Þriðjudaginn 2. desember hvarf i-Pod touch af skrifstofu Önnu Arnardóttur æskulýðsfulltrúa. Eðlilega er hans sárt saknað og ég vil endilega fá hann aftur. Ég vil biðja alla þá sem geta gefið mér upplýsingar um hvarf þessa tækis um að hringja í mig í síma 8651423 eða senda mér tölvupóst á arnor (hjá) kfum (punktur) is.

i-Pod

i-Podinn lítur svona út og hann var með skemmd á öðru hvoru neðra horninu. Endilega fylgist með þessu fyrir mig. Takk fyrir.

Arnór Heiðarsson, leiðtogi í 6-9 ára starfi Digraneskirkju og MEME junior.

Arnór | 06.12.2008, 17:55 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Aðventukvöld MEME

Á sunnudaginn kemur, 7. desember, verður aðventukvöld MEME í Digraneskirkju. Það er orðin hefð í kirkjunni að halda MEME aðventukvöldið á annan í aðventu. MEME sér um kvöldið og fáum við til liðs við okkur margt gott fólk. Eftir stundina í kirkjunni verður svo kökusala á vegum Mæðrastyrksnefndar Kópavogs. Kvöldið hefst kl. 20:00 og við viljum auðvitað fylla kirkjuna :-)

Á laugardaginn verður tónlistaræfing fyrir kvöldið. Æfingin hefst kl. 16 og er sönghópurinn allur beðinn að mæta.
Á sunnudag hefst æfing kl. 18.

Sjáumst ofursvöl um helgina :-)

 

Guðmundur Karl | 04.12.2008, 22:25 - 7 lömb hafa jarmað :-)

föndurkvöld

Á næsta fundi ætlum við að draga fram snyrtiputtana okkar og föndra! Það verður gaman að sjá hvernig okkur tekst að föndra heil ósköp á þessum tíma sem við verðum saman. Kannski leynir Telma á einhverjum öðruvísi aðferðum?? Hver veit.

Mafía dagsins verður tekin að venju, eftir heldur slappa Mafíu síðast! Aldrei að vita að það verði einhver læti í kvöld út af þessu.

Mættu í meme!

kv Leiðtogarnir

Arnór | 03.12.2008, 15:50 - 1 lamb hefur jarmað

Hafðu það...kósý, með FM 957

Á næsta fundi ætlum við að hafa það....kósý....Ég hvet fólk til að mæta í náttfötum, með sæng og kodda. Við ætlum að kúra inni í hlýjunni með heitt kakó og popp á meðan snjónum kyngir niður fyrir utan gluggan. Hver veit nema einhver góð bíómynd verði sett í tækið og í þegar hún verður búin verður mafía dagsins tekin, eðlilega. Þrjár ungar snótir komu, sáu og sigruðu á síðasta fundi og ég tók að mér að vera lélegasti lögreglustjóri í sögu bæjarinns. Það mun svo sannarlega ekki gerast aftur og ég hef harma að hefna.

Það er komið nýtt suspect í mafíunni hér á síðunni. Gummi er talinn líklegur núna.

Komdu og hafðu það .... kósý ....

kv. Leiðtogarnir

Arnór | 26.11.2008, 00:09 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Til tónlistarhóps: Æfing fyrir kvöldmessu/aðventukvöld

Næsta kvöldmessa er í raun ekki kvöldmessa heldur aðventukvöld á annan í aðventu, 7. desember. Aðventukvöldið er í umsjá Meme að vanda.

Fyrsta æfing yfir kvöldið verður þriðjudaginn 25. nóvember kl. 18-20 í Digraneskirkju. Það er mikilvægt að allir í tónlistarhópnum mæti þar sem við komum til með að læra og æfa jóla- og aðventulög fyrir kvöldið. 


Sjáumst á þriðjudaginn.

Guðmundur Karl | 23.11.2008, 22:37 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Hvað er að gerast?

Hvað haldið þið að ég hafi gert? Ég setti inn myndir frá Kópavogsdeginum. Það var ekki annað hægt fyrst hr. Arnór tók 273 myndir á viðburðinum :-O

Annars var bara voðalega gaman. Við hittum hressa krakka úr Hjallakirkju, en því miður mætti enginn úr Lindakirkju nema sr. Guðni Már. Við fórum í Survivor keppni og sumir átu mjög góðan mat með beztu lyst :-)

En kíkið endilega á myndirnar með því að fara inn í myndasafnið.

Guðmundur Karl | 14.11.2008, 00:10 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Kópavogsdagur

Jæja krekks(borið fram kúrreeekks).

Núna er komið að því

Kópavogsdagurinn er á fimmtudaginn!!!!!

Sæææææææll, þetta verður sjúkt. Við ætlum að hittast kl 19 og röltum af stað inn í Hjallakirkju kl 19:15. Herlegheitin hefjast síðan kl 19:30 í Hjallakirkju.

Vertu þar eða vertu Jókerinn í Batman 1.

(Var sko að horfa á Batman, the dark knight, Heath Ledger á skilið að fá óskarinn fyrir þetta!)

Hlökkum til að sjá ykkur. Leiðtogarnir í meeeeeeeeemeeeeeeee

Arnór | 10.11.2008, 14:00 - 75 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa í Digraneskirkju

Á sunnudaginn kl. 20:00 er kvöldmessa í Digraneskirkju. Meme group sér um messuna, nema hvað við ætlum að leyfa sr. Magnúsi að prédika :-)
Við þurfum að fá fólk til að lesa ritningartextana, ef það er einhver sem hefur áhuga þá má viðkomandi endilega senda rafpóst á gudmundur (hjá) jarma.net eða hringja bara í mig í síma 690-4005.
  • Tæknidúddarnir mínir er vel þegnir kl. 17:30.
  • Tónlistarfólk mæti kl. 17:45 til þess að geta byrjað að æfa kl. 18.
  • Bænafólk mæti kl. 19:00
  • Lesarar mæti kl. 19:30

Smelltu hér til þess að skoða söngtexta dagsins.


Guðmundur Karl | 07.11.2008, 15:18 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Teater sport

Ég var að horfa á Brokeback Mountain og vá, hvílík mynd....Heath Ledger var svo góður leikari!!!

Talandi um leikara, við ætlum að vera með Teater sport á næsta fundi þar sem bryddað verður á ýmsum leiklistaræfingum og skemmtilegheitum. Hver veit nema við finnum næsta Georg Washington á þessum fundi, eða er það Denzel...æji who cares!

Hlakka til að sjá þig í teater sporti á næsta fundi.

Tagg!!

Arnór | 03.11.2008, 23:29 - 1 lamb hefur jarmað

Tónlistarhópur - æfing

Á morgun, miðvikudaginn 29. október, verður æfing tónlistarhópsins fyrir næstu kvöldmessu. Æfingin hefst stundvíslega kl. 17:00 og stendur til kl. 19. Það er mikilvægt að mæta á æfinguna ef áhugi er fyrir hendi að vera með í tónlistarhópnum. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til þess að mæta á æfinguna, sérstaklega vantar söngvara :-)

Fyrir þá sem ekki vita þá eru kvöldmessur haldnar í Digraneskirkju annan sunnudag í hverjum mánuði. Meme group sér um messurnar og þannig sjáum við um tónlist, bænir, lestur, móttöku o.fl. Þetta eru léttar og skemmtilegar messur þar sem við flytjum tónlist sem OKKUR finnst skemmtilegt og höfum það bara reglulega kósý. Næsta kvöldmessa verður 9. nóvember kl. 20.

 

Guðmundur Karl | 28.10.2008, 11:22 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Jólin, jólin allstaðar...

 ...með jólagleði og gjafirnar :)  Snjórinn er mættur og þá er nú ekki úr vegi að dusta rykið af jólaskapinu og skella sér á MeMe fund í kvöld.  Við ætlum að hafa það kósý og búa til jólagjafir handa fátækum börnum í Úkraínu.  Aldrei að vita nema við svindlum og spilum örfá jólalög til að koma okkur í gírinn :)  Allar upplýsingar um frágang á skókössunum og hvað þarf að hafa með sér í kvöld eru hér fyrir neðan.

Hlökkum til að sjá ykkur í jólaskapi


Rakel | 23.10.2008, 15:54 - Jarmaðu litla lamb

Jól í skókassa!!!

Á næsta fundi (þriðjudag 21. hjá senior og fimmtudag 23. hjá junior) ætlum við að leggja okkar af mörkum í verkefninu "Jól í skókassa"

Allar upplýsingar um þetta verkefni má finna hér:
http://www.skokassar.net

Jól í skókassa snýst um að gefa fátækum börnum í Úkraínu jólagjafir í skókössum. Í skókössunum eiga að vera ýmsir hlutir svo sem hreinlætisvörur (tannbursti og tannkrem), sælgæti, leikföng, fatnaður og ritföng. Í hverjum kassa þarf að vera að minnsta kosti eitt úr hverjum af þessum fimm flokkum. 

Einnig þarf að vera þar 300 - 500 krónur sem fer upp í sendingarkostnað.

Ég hvet ykkur til að skoða heimasíðuna og lesa vel upplýsingarnar þar til að athuga hvað má og hvað má ekki setja í kassana.

Það sem þarf að taka með á fundinn er eftirfarandi:

Tómur skókassi,
Jólapappír,
300-500 krónur,
gjafir í kassann (ein úr hverjum flokk)
límband

Það er tilvalið að tveir eða fleiri taki sig saman um að gera einn kassa.
Kassana þarf að útbúa með ákveðinn aldursflokk og kyn í huga. Þeir eru svo merktir með miðum sem stendur á t.d. stelpa 5-9 ára eða strákur 15-18 ára.
Aldursflokkarnir eru 2-4 ára, 5-9 ára, 10-14 ára og 15-18 ára.

Það kemur inn minnst af kössum fyrir unglinga og allra minnst fyrir unglingsstráka svo endilega ef einhverjir sjá sér fært að senda til þeirra þá væri það frábært.

Það er mjög gott að finna til notaða hluti til að senda út eins og t.d. notuð föt sem dottin eru úr týsku eða viðkomandi er vaxinn uppúr eða hættur að nota af öðrum ástæðum eða leikföng sem viðkomandi vill láta frá sér. Það eina sem þarf að athuga í þeim efnum er að hlutirnir eða fötin séu ekki illa með farin eða skemmd. Að allt sé heilt og gaman að fá það gefins.

Þetta þarf ekki að kosta mikið en getur glatt unga einstaklinga sem ekkert eiga.

Hjálpumst að við að gefa gleði fyrir jólin

Anna | 19.10.2008, 17:29 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Rakel!!!

 Já leikstjórinn okkar hún Rakel á afmæli í dag skvísan sú.

Hún er orðin heilla 26 vetra daman og við óskum henni innilega til hamingju með daginn.

Ég sat einmitt á kóræfingu með henni rétt áðan - hún söng reyndar ekki en tók myndir af mikilli snilld. Við vonum að hún hafi átt góðan afmælisdag og ég segi fyrir mitt leiti að allir juniorar þurfa að vera súper góðir við hana á fundinum á morgun og seniorar verða að vera það líka á landsmótinu um helgina (því hún fer jú með okkur þangað)

Eigðu gott kvöld Rakel mín og njóttu þess að vera 26.

Myndakerfið er ennþá í ólagi svo við verðum að ímynda okkur mynd af Rakel með stóra blöðru og fallega afmælisköku ;o)

Anna | 15.10.2008, 22:04 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Pizza & Video á fimmtudaginn

Já krúttið mitt. Þú last rétt. ÞAÐ VERÐUR PIZZA OG VIDEO á fimmtudaginn í Meme junior. Er það er hrikalega ofursvalt???

Allavega, húsið opnar eins og venjulega kl. 19:00 og svo byrjum við kl. 19:30. Þeir sem hafa áhuga að snæða pizzu þurfa að koma með 500 kr með sér. Pizzan verður pöntuð kl 19:37 og þá verða allir þeir sem ætla að borða að vera komnir. You get it?

Okei, þeir sem ætla að horfa á video en búnir að borða plokkfiskinn hennar mömmu þurfa ekki að borga 500 kr því það er frítt að horfa. En þeir sem vildu ekki plokkfiskinn og ætla að borða pizzu koma með 500 kr og ekki seinna en 19:30.

Skýrt? Flott :-)

Guðmundur Karl | 08.10.2008, 11:49 - Jarmaðu litla lamb

Óttist ekki - Hræðslumót ÆSKR

Við minnum á óttist ekki - hræðslumót ÆSKR sem fram fer í Hjallakirkju í kvöld kl 19:45 - 21:45

Meme senior og Meme junior hittast í Digraneskirkju uppúr 19:00 og ganga saman upp í Hjallakirkju. - Ef þú kemur of seint þá ráðleggjum við þér að mæta beint í Hjallakirkju
Mætið vel klædd og með brosin límd á andlitin.

Þorir þú að mæta?

Anna | 02.10.2008, 15:14 - 3 lömb hafa jarmað :-)

FreeRice.com - nýjir leikir

 Mig langaði bara að benda ykkur á að það eru komnir nýjir leikir á FreeRice.com síðunni.

Núna er hægt að læra einfaldari ensku - allt niður í mjög einföld orð - maður velur bara level og ef maður velur level 1 þá eru þarna mjög einföld orð en ef maður velur level 40 þá eru þau temmilega erfið.

Einnig er hægt að læra stærðfræði, landafræði, spænsku og fleira þarna núna. Endilega kíkið á þetta.

Þetta er skemmtileg leið til að troða kunnáttu í hausinn á sér og gefa fátækum að borða í leiðinni, því eins og þið vitið þá fá fátækir í heiminum að borða 20 hrísgrjón fyrir hvert rétt svar sem við svörum. Endilega kíkið á þetta ;o)

http://www.freerice.com/

kveðja
Anna

Anna | 28.09.2008, 18:56 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Heavens kitchen ??

Já krakkar mínir, hvað haldiði að það sé?? Það kemur í ljós í kvöld ef þið mætið. Þetta er rosalega skemmtilegur fundir þannig ég mana alla krakka í að koma.
Fundurinn byrjar klukkan 19:30 en ykkur stendur til boða ef þið viljið að mæta klukkan 19:00 til að spila borðtennis, fótbolta spil eða jafnvel spjalla saman.

Þessi frétt mun ekki vera lengri. Til að gera hana lengri ætla ég að setja inn eina mynd sem gæti glatt ykkur.

Brostu framan í heiminn, þá mun heimurinn brosa fram í þig.

Kveðja Sigrún Gróa

Sigrún Gróa | 25.09.2008, 15:38 - 1 lamb hefur jarmað

Leikjafundur í kvöld!

Það verður líf og fjör hjá Meme junior í kvöld.
Ég hvet alla til að mæta og skemmta sér vel með okkur.
Leikjafundir Meme eru þekktir sem skemmtilegustu fundir æskulýðsfélaganna á landinu ;o)
svo það er um að gera að missa ekki af þessari einstöku skemmtun.

Munið að fundurinn hefst kl 19:30 og honum lýkur kl 21:30.
Húsið opnar kl 19:00 og þá er hægt að fara í borðtennis, billiard, fótboltaspil eða bara spjalla ;o)

Hlökkum til að sjá ykkur
Anna, Arnór, Rakel, Sigrún Gróa og Telma Ýr

Anna | 18.09.2008, 13:18 - 1 lamb hefur jarmað

Til lukku með hrukku Arnór!!!

 Já þið lásuð rétt - ofur fótboltaleiðtoginn Arnór á afmæli í dag og er orðin heilu ári eldri en hann  var í fyrra.
Frést hefur að hann sitji að ljúffengum afmælissnæðingi í Hafnarfirði þessa stundina. Við vonum að honum verði að góðu og að hann njóti þess að eldast þetta krútt.

Bestu afmælisóskir frá Meme

því miður var ekki unnt að setja inn mynd því það er eitthvað bilerí í gangi en vittu að hér er ósýnileg mynd af Arnóri að borða afmælisköku ;o)

Anna | 15.09.2008, 20:56 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Dagskrárgerðarfundur

Gaman að segja ykkur af því að við leiðtogar senior og junior sitjum hér saman og erum að búa til dagskrá. Hún verður birt á netinu eftir nokkra daga!

Spennandi

Arnór | 04.09.2008, 22:29 - 1 lamb hefur jarmað

Velkomin í Meme

Heil og sæl 8. bekkingar.

Nú er fermingarfræðslan að fara að byrja og í sömu viku hefjast vetrarfundir æskulýðsfélagsins Meme.

8. bekkingar eru boðnir hjartanlega velkomnir á fundi hjá Meme junior alla fimmtudaga kl 19:30 - 21:30. Fyrir fundi er opið hús frá kl 19:00 þar sem hægt er að spjalla, spila borðtennis, fótboltaspil, billjard og fleira.

Dagskrá vetrarins er væntanleg á vefinn í næstu viku.

Hlökkum til að sjá ykkur

Anna, Arnór, Rakel, Sigrún Gróa og Telma.
 

Anna | 27.08.2008, 15:21 - Jarmaðu litla lamb

Til hamingju með afmælið Gummi!!!

Já þið lásuð rétt. Okkar ástkæri Gummi á afmæli í dag og er orðinn ** gamall þessi dáðadrengur. Það er s.s. akkurat ár síðan við vorum öll saman í Kaldárseli að halda upp á afmælið hans og gáfum honum MEME húfuna flottu áður en við fórum og skelltum okkur á Harry Potter veiðar ;o)
Snilldarhelgi það.
Gummi minn við vonum að þú eigir jafn frábæran dag í dag og við áttum með þér þá.
Til lukku með hrukku
Meme group.

 

Anna | 20.07.2008, 13:59 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Sigrún Jóna á afmæli í dag

Upplýsingadeild Varnamálastofnunar Íslands var að hafa samband við mig og tilkynna mér að ofurlambið Sigrún Jóna Jafetsdóttir hefði fæðst þennan dag fyrir nákvæmlega 16 árum síðan.
Við óskum henni að sjálfsögðu innilega til hamingju með daginn. Vonandi verður þetta skemmtilegasti afmælisdagur til þessa :-)

Ofurkveðjur
Anna, Friðrik, Guðmundur, Guðrún og Stefán... og Heiðdís

Til hamingju með daginn Sigrún Jóna

Guðmundur Karl | 19.07.2008, 11:36 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Fundur þriðjudaginn 22. júlí

Það virðist hafa farið framhjá einhverjum en það er s.s. fundur næsta þriðjudag.
Við ætlum að hittast í kirkjunni á hefðbundnum tíma kl 19:30 og fara í leiki og spjalla og ræða svolítið um Pragferðina (þeir sem eru að fara þangað).
Meðal annars ætla ég að kenna tvo indverska íþróttaleiki sem ég lærði í Liverpool af indversku vinum mínum sem voru með mér þar.
Spennó!


Hér er mynd af mér og Kabaddi hópnum mínum (annar leikurinn heitir Kabaddi og við nefndum hópinn okkar eftir þeim frábæra leik) Á myndinni er líka annar af tveimur bönunum sem notaður var í hinum leiknum sem nefnist Kókó.


Hlakka til að sjá ykkur
KABADDI!!!
Anna

 

Anna | 17.07.2008, 22:41 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Sumarfundir felldir niður fram að Pragferð

Þar sem lítill áhugi hefur verið á sumarfundum Meme höfum við ákveðið að fella þá niður fram að Pragferð. Það kostar bæði tíma, fyrirhöfn og peninga að halda sumarfundi og það er eitthvað sem við leiðtogarnir og kirkjan vorum alveg tilbúin að leggja í en þar sem fæstir virðast hafa áhuga á að taka þátt í sumardagskránni höfum við ákveðið að spara krafta okkar í sumar og koma sterkari inn í haust. Mér þykir þetta ákaflega leiðinlegt og þá sérstaklega gagnvart þeim fáu sem hafa sýnt því áhuga að mæta og taka þátt.

Við verðum í sambandi við Pragfara fljótlega varðandi síðustu fjáröflunina okkar. Ætlum að taka aðra svona klósettpappír/poka/garðáhalda/bílapakka og fleira sölu fljótlega því nú þarf að fara að klára að borga upp ferðina.
Nánari upplýsingar um þessa sölu birtast hér á síðunni á næstu dögum svo fylgist með.

 

Í öðrum fréttum þá fann ég heiðursmeðlim Meme úti í Liverpool um daginn.
Það er enginn önnur en Ofur Bananakindin eða eins og hún nefnist á Liverpoolísku Superlambanana. Ég tók mynd af henni og birti hana hér með. Ofur Bananakind við bjóðum þig velkomna í hópinn. Go Superlambanana!!!

Anna | 25.06.2008, 12:17 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Hrísgrjónaleikurinn

Langaði bara að benda ykkur á frábærann leik sem ég rakst á á netinu.
Hann má finn á: http://www.freerice.com/
Leikurinn er frábær leið til að bæta sig í ensku en það sem er enn betra er að fyrir hvert rétt svar sem maður gefur í þessum leik gefa styrktarðilar síðunnar hrísgrjón til matarsöfnunnar Sameinuðu Þjóðanna.
Frábær leikur sem bætir enskukunnáttu og hjálpar hungruðum heimi! Bara snilld!

 

Anna | 21.06.2008, 11:25 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Sumarfundur 24. júní - Gospelhátíð

Heil og sæl elskurnar mínar

 ATH - kíkið á auglýsinguna um Gospelnámskeiðið hér að neðan

Næsta þriðjudag 24. júní verður sumarfundur hjá Meme group.
Við ætlum að fara út í Hafnarfjörð og taka þátt í mikilli Gospelhátíð sem stendur yfir þar næstu vikuna og skemmta okkur vel.
Rúta fer frá kirkjunni kl 18:40. - þið fáið ekkert að borða svo borðið snemma kvöldmat eða hafið með ykkur nesti (eða peninga það eru sjoppur á staðnum).
Kl 19:00 er hópur á stóra sviðinu sem kallar sig Jesus Revolution. Það eru ungmenni frá Noregi sem syngja, dansa og skemmta fólki konunglega.
Kl 20:00 er svo hljómsveit frá Ameríku sem heitir Constella.
Kl 21:00 verður svo sýnd stórmyndin Lífsins Lengsta Nótt ;o)
Við ætlum að sjálfsögðu öll að vera viðstödd þá sýningu og skemmta sjálfum okkur og öðrum. Auk þess ætlum við að selja myndina okkar og árita hana og plaköt fyrir þá sem vilja.

Nánari upplýsingar um Gospelhátíðina má finna hér: http://www.biggospelfestival.com/

Við komum því svolítið seinna heim en venjulega en áætlað er að síðasti einstaklingur í hringferð okkar um hverfið verði kominn heim kl 23:00.

Hlakka til að sjá ykkur, er farin að sakna ykkar ferlega.
kveðja
Anna

Anna | 19.06.2008, 20:28 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Gospelnámskeið

Hann Siggi Bjarni var að senda mér póst og vildi vekja athygli ykkar á þessu námskeiði. Ef einhver hefur áhuga þá hvet ég ykkur til að kíkja á þetta Þetta væri eðal fyrir sönghópsfólk:

Gospelnámskeið fer fram helgina 21-22. júní Víðistaðakirkju og Víðistaðaskóla kl. 13:00-16:00
Leiðbeinendur eru Kay og Heidi Wächter, en sérstakur gestur verður Christian-Charles de Plicque.
Hjónin Kay og Heidi eru reyndar kórstjórnendur frá Þýskalandi - hann er þýskur og hún er norsk.
Þau vinna bæði við tónlist.
Kay er sjálfstæður tónlistarkennari og tónlistarmaður og hefur samið mikið af efni í gegnum tíðina,
útsett það og gefið út. Heidi kennir söng/raddbeitingu í nokkrum mismunandi skólum í Þýskalandi.

Christian-Charles de Plicque er bandarískur gospelsöngvari sem býr í Finnlandi.
Hann hefur 40 ára reynslu sem tónlistarmaður og mun koma fram á hátíðinni.

Allir eru velkomnir á þetta námskeið.

Sjá nánar heimasíður Þeirra:
www.heikaymusic.de
www.deplicque.net

Dagskrá:
Laugardag frá kl. 13-16
Sunnudag frá kl. 13-16
Ráðgert er að Það sem við lærum á námskeiðinu munum við syngja sunnudagskvöldið á sérstakri
samverustund  í Víðistaðakirkju sem hefst kl. 20:00.

Sérstök athygli er vakin á Því að hægt er að hlýða á Christian-Charles de Plicque á laugardagskvöldið
21. júní á stóra sviðinu á Víðistaðatúni Þegar hann kemur fram ásamt hljómsveitinni Tepokanum.

Verð fyrir námskeiðið er 5.500 kr. innifalið eru  nótur, kaffi og meðlæti
Skráning í síma 8487142

Námskeiðsgjald óskast lagt inn á eftirfarandi reikning

Nafn: Gospeldagar
Kt. 570408-1190
Bankareikngur: 1101-26-505259

Nauðsynlegt er að fram komi upplýsingar um greiðanda og senda staðfestingu
úr heimabanka á sigurdurb (hjá) lh.is
Einnig er hægt að skrá sig á staðnum.

Umsjónaraðili: Gospeldagar

 Og þar fyrir utan má geta þess að ég er að stjórna sunnudagaskóla á stórasviðinu kl 11:00 á sunnudagsmorgun 22.júní. Ef einhvern langar að taka systkin/frænsystkin eða litla vini með þá væri gaman að sjá ykkur.

Kveðja
Anna

Anna | 19.06.2008, 20:25 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með daginn Anna

Hún Anna okkar á afmæli í dag. Ég komst ekki í tölvu fyrr en nú en vona að það komi ekki að sök. Við óskum henni að sjálfsögðu innilega til hamingju með daginn, en hún er víst orðin 29 ára skvísan. (Nálgast fertugsaldurinn)

Svo er ekki úr vegi að taka fram að sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson á líka afmæli í dag. Hann er þó nokkuð yngri en háaldraður æskulýðsfulltrúi Digraneskirkju, eða 27 ára.

Við sendum þeim báðum bestu afmæliskveðjur

Friðrik, Guðmundur og Guðrún (og Stefán Bogi)

Guðmundur Karl | 15.06.2008, 18:27 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsti sumarfundur Meme: Sundferð

Fyrsti sumarfundur Meme group er á morgun, þriðjudaginn 10. júní. Við ætlum að skella okkur í sund. Fínt að hressa sig aðeins við svona í sumarbyrjun.
Mæting er í Sundlaug Kópavogs kl. 19:30 með sundföt og 120 kr (amk skv. heimasíðunni. Mæli samt með 200 kr til öryggis)
Sjáumst á morgun í ofurgóðu skapi :-)

Guðmundur Karl | 09.06.2008, 21:21 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Viltu vinna milljón?
(Kannski ekki milljón en samt slatta pening)

Það eru ennþá um 750 blöð eftir í kirkjunni sem þarf að bera út. Hverfin sem um ræðir eru í 101 við Hallgrímskirkju, smá í Salahverfi, Hafnarfirði og í Garðabæ. Þið fáið 50 kr á hvert blað sem þið berið út. Athugið að þetta er í boði fyrir alla, bæði þá sem fara til Prag og eins hina. Þið fáið þetta greitt beint í vasann, en ekki inn á Prag sjóðinn frekar en þið viljið.
Þarna er um að ræða góðan pening fyrir frekar auðvelda vinnu.
Ef þið hafið áhuga skuluð þið senda mér póst á gudmundur (hjá) jarma.net eða hringja í mig í síma 690-4005. Ég myndi þá hitta ykkur í kirkjunni og afhenda blöðin.
Koma svo, fyrstir koma - fyrstir fá!!!

Viðbót, 7. 6. 2008 kl. 18:18
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og öll blöðin eru nú farin í dreifingu. Sem sagt. Allt búið :-)

Guðmundur Karl | 06.06.2008, 09:29 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Framundan í Meme

Jæja, nú finnst mér loksins komið sumar fyrst júní er kominn. Skólarnir fara að klárast og svona. Bara svalt. En hvað er framundan í Meme?

Í fyrsta lagi:
Það var ákveðið að fresta árshátíðinni fram á haustið. Ástæðan er sú að það voru margir í prófum á föstudaginn og því alveg glatað að vera með hana kvöldið áður. Við getum ekki haft hana á morgun því þá er Anna farin til útlanda og þegar hún kemur heim eru margir farnir í frí, til útlanda o.s.frv. Þannig að: hún verður í haust og áður en starfið fer í vetrargírinn.

Í öðru lagi:
Á morgun, þriðjudaginn 3. júní, ætlum við að fara í grillferð og skemmtilegheit upp í Heiðmörk. Þar verða grillaðir girnilegir hamborgarar að hætti Friðriks Hall, farið í leiki og juniorarnir vígðir inn í Meme senior. Farið verður stundvíslega frá Digraneskirkju kl. 19:30 með hópferðarbifreið. Og verðið: Það kostar barasta ekki neitt fyrir ykkur :-)

ÞEIR SEM EIGA LOPAPEYSU ERU SKYLDUGIR AÐ KOMA Í HENNI!!!

Í þriðja lagi:
Í sumar verða Meme fundir annan hvern þriðjudag. Fyrsti sumarfundurinn verður þriðjudaginn 10. júní og svo aðra hverja viku eftir það. Skiljanlega verður ekki fundur þegar við verðum í Prag..

En við ætlum að sjást öll hress og kát á morgun :-)

Guðmundur Karl | 02.06.2008, 21:29 - 25 lömb hafa jarmað :-)

Árshátíð - sameining og Meme sumar

Þar sem kom í ljós að Árshátíðin var í miðri prófaviku (sem var eitthvað sem ég átti að vera búin að átta mig á fyrir löngu en einhvernveginn tókst ekki að púsla saman í hausnum á mér) ákváðum við að sjálfsögðu að fresta henni. Þetta verður svolítið öðruvísi en venjulega.

Vandinn er að ég er að fara á æskulýðsleiðtogaráðstefnu í Liverpool í næstu viku og verð þar í rúma viku svo ég get ekki verið með ykkur eftir þessa helgi.

Við ætlum því að hafa mini-árshátíð og sameiningu næsta þriðjudag, 3. júní. Þann dag kemur rúta fyrir utan kirkjuna og leggur af stað kl 19:30 og fer með ykkur út fyrir bæinn upp í Heiðmörk þar sem verður grillað og leikið og félögin sameinuð.

Eftir það tekur sumardagskrá við.
Sumardagskráin verður þannig að það verða fundir annað hvert þriðjudagskvöld. S.s. 3. júní, næst er það hmm.. 17. júní (þarf eitthvað að skoða það hugsanlega hafa fundinn á mánudegi eða miðvikudega þá vikuna) svo er það tveimur vikum eftir það og svo framvegis. Dagskrá þessara funda verður auglýst síðar.

Svo förum við (hluti af okkur allavega) til Prag!

Þegar heim er komið frá Prag verður langt liðið á ágúst og  í lok ágúst áður en allt byrjar aftur og útskriftarnemendur 10. bekkjar segja skilið við Meme senior og byrja í Meme movie, ætlum við að hafa alvöru árshátíð. Hugsanlega ekki eins og við höfum haft undanfarin ár einhversskonar góða skemmtun saman.

Það verður ekki fundur á fimmtudaginn en næsti fundur er Heiðmerkur ferð á þriðjudag.

Gangi ykkur vel í prófunum og verið dugleg að læra.
kveðja
Anna, Friðrik, Guðrún, Gummi og Stefán Bogi

Anna | 27.05.2008, 23:09 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Frábær hátíð!

Þetta var frábær hátíð í gær og ég var ákaflega ánægð að sjá hvað margir voru duglegir að koma og hjálpa til.
Fólk var mjög ánægt með hátíðina og allir skemmtu sér konunglega. Veðrið var nátturlega frábært og við þökkum veðurstjóranum á himnum sérstaklega fyrir sinn þátt í því ;o)
Allir sem mættu voru ákaflega duglegir að sinna sínum verkum og ég þurftu bara einu sinni að byrsta mig smá...
Þið eruð æði og ég er ákaflega stolt af ykkur.
Sjoppan seldi mikið meira en ég átti von á svo við erum bara ákaflega happy í dag.

Ég vil minna þá sem eiga eftir að borga klósettpappírinn sinn á að það er fyrir löngu kominn tími á það ;o) drífa sig að klára það strax.

Og svo vil ég minna fólk á að á fimmtudaginn er árshátíðin okkar. Allt um hana verður nánar auglýst síðar.
Group fundur á morgun og þar verða málin útkljáð.

Gangi ykkur vel í prófunum í vikunni.

 

Anna | 26.05.2008, 09:49 - 20 lömb hafa jarmað :-)

Eurovision kvöld MEME group

Þá er komið að því. Forkeppni Eurovision verður í kvöld kl. 19 að íslenskum tíma. Við í Meme group ætlum að sjálfsögðu að hittast í Digraneskirkju, horfa á Eurovision, styðja okkar fólk og hafa það ýkt kósý.
Þeir sem vilja mega koma með nammi og gos :-)

Kirkjan opnar kl. 18:50 og lokar ekki fyrr en úrslit liggja fyrir. Sjáumst!




Guðmundur Karl | 22.05.2008, 13:11 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Útivistarferð ÆSKR og Júróvísjón á fimmtudag

Útivistarferð ÆSKR er í dag, rútan fer kl 17:00 frá Grensáskirkju.
Verð 2000 krónur, heimkoma kl 22:00 í Grensáskirkju.

Á fimmtudaginn verður svo Júróvísjón gláp í Digraneskirkju. Allir sem hafa áhuga mæti rétt fyrir auglýstan sýningartíma frá RÚV og skemmti sér konunglega í salnum með okkur að horfa og borða nammi - má koma með nammi - hugsanlega hægt að kaupa það á staðnum líka....

 

Anna | 21.05.2008, 08:46 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Óvissuferð Meme junior

Það átti að vera keiluferð á morgun en kemur í ljós að þeir í keiluhöllinni klúðruðu skráningunni okkar og það er allt fullt hjá þeim á morgun.
Við látum það ekki stoppa okkur, erum komin með rútu og frábæran bílstjóra, mætum galvösk með 500 krónurnar okkar og förum út í óvissuna.
Mætið klædd eftir veðri, með góða skapið og fimm hundruð krónur ;o)
Athugið að þetta er síðasti fundur meme junior. Eftir þennan fund eru það bara group fundir fram að sameiningu og fljótlega verðið þið í meme senior! - awww... þið eruð orðin svo stór...
Rútan fer kl 19:30 svo ekki koma of seint.
Hlakka til að sjá ykkur

kveðja
Anna

p.s. athugið fréttina hér að neðan um útivistarferð ÆSKR

Anna | 14.05.2008, 09:26 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Útivistarferð ÆSKR

Komið þið sæl

Nú er komið að útivistaferð ÆSKR en hún verður miðvikudaginn 21. maí.
Útivistaferðin er skemmtilegt tækifæri fyrir æskulýðsfélögin til að hittast fyrir sumarið. Lögð er áhersla á létta og skemmtilega dagskrá sem ætti að henta flestum.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl. 17.00 og komið í bæinn kl. 22.00.
Farið verður að Úlfljótsvatni þar sem skátar taka á móti okkur af sinni alkunnu gestrisni. Þar byrjum við á að fara í ratleik og borðum svo grillaðar pylsur. Eftir það verður í boði að fara á báta ef veður leyfir. Hægt er að fá að fara í sturtu og skipta um föt ef einhverjir blotna!
Að lokum verður helgistund úti í guðsgrænni náttúrunni í kringum varðeld.
Mikilvægt er að koma klædd eftir veðri.
Þátttakan kostar 2000 krónur og þarf að tilkynna þátttöku í síðasta lagi föstudaginn 16. maí kl 15:00.
Kl 15:01 verða nöfn skráð hér að neðan send til ÆSKR og eftir það getur enginn skráð sig.

Vonast til að sem flestir komi með. Þetta verður geggjað!

Anna | 14.05.2008, 09:23 - 3 lömb hafa jarmað :-)

ÞRÍBURAAFMÆLI!!!!

Jæja þá eiga þríburarnir okkar afmæli í dag.
Til hamingju með daginn Anna Diljá, Birnir Jón og Indíana.
Við vonum að þið eigið góðan afmælisdag og ætlum svo sannarlega að gefa ykkur kökur á eftir á meme fundi.
Njótið dagsins og líði ykkur vel 15 ára ;o)

Anna, Friðrik, Guðrún, Gummi og Stefán Bogi



Vil minna alla aðra á að það verður frábær fundur í kvöld, Nedó kemur í heimsókn, afmæli og kökuveisla og allir í góðu skapi.

Juniorar að sjálfsögðu velkomnir ;o)

Anna | 13.05.2008, 13:03 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Textar fyrir sönghóp

Hér undir þessum link: http://www.digraneskirkja.is/athafnir/hvitasunna/songtextar
eru allir textar sem við ætlum að syngja um helgina og sönghópur þarf að læra. Þeir sem voru að vandræðast með að uppfylla ekki æfingakröfurnar geta komið ef þeir gera sitt besta til að læra textana. Allir þurfa að athuga að það er breyting á laginu hans Gunnars. Skoðið það vel.
Ég setti ekki inn textana af Drottinn Guð ég hugsa stundum og Lífsins ljósið, þið kunnið það nógu vel.
kveðja
Anna

Anna | 08.05.2008, 11:21 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Messur framundan

Minni á messurnar framundan.
Æfingar fyrir tónlistarhóp og söngóp - laugardag kl 12-14, sunnudag kl 18:00, mánudag kl 18:00

Messurnar hefjast kl 20:00 eins og venjulega.

Mæting fyrir bænahóp kl 18:00 á sunnudag. Þarf að sjá um aðeins öðruvísi bæn en venjulega svo gott væri að fá bænahópinn þetta snemma. Inga þú ert ein í bænahóp sem stendur, endilega reyndu að fá einhvern góðan með þér því Klara er svolítið upptekin þetta kvöld ;o)

Mig vantar lesara fyrir kvöldið, sjálfboðaliðar endilega gefi sig fram hér að neðan.

Mig vantar móttökunefnd, tvo prúða einstaklinga sem standa og bjóða fólk velkomið.

Við ætlum að sjálfsögðu öll að mæta á sunnudaginn til að gleðjast með Klöru á þessum stóra degi og eiga góða stund saman.

og já það verður matur og nei ekki pylsur - nema bara handa Birnu afþví henni finnst þær svo góðar (^o^)


Mótorhjólamessan á mánudaginn er líka kl 20:00, þar þarf bara tónlistarhópur að mæta kl 18:00 og líka Praghópur sem ætlar að sjá um kaffisölu ( ̄ー ̄)
Allir sem vilja mæta eru hinsvegar hjartanlega velkomnir að koma og vera með í fjörinu, því já það verður fjör!!!

Anna | 07.05.2008, 19:18 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Þriðjudagurinn 6. maí

 Það er margt að gerast á morgun.
Minni á að það er æfing kl 16:00 - 18:00 í Digraneskirkju.
Allir sem ekki mættu á miðvikudaginn var þurfa að mæta og þeir sem voru þá og komast á morgun eru hjartanlega velkomnir, best er nátturlega ef allir komast en með tilliti til prófa eru þeir sem mættu síðast afsakaðir. Hljómsveitin verður á staðnum (allir nema Jón Árni því hann var síðast og er núna í prófum) svo það er um að gera að mæta því við ætlum að sjálfsögðu að gera þetta ákaflega flott í lok vetrar. Þetta verða flottustu messurnar okkar hingað til ;o)

Þið í Smáraskóla megið endilega hnippa í Sindra trommara. Ég er búin að vera að reyna að ná í hann í síma en hann svarar ekki. Það væri mjög gott að fá hann.

En svo er Meme group leikjafundur um kvöldið kl 19:30-21:30.

Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna

Anna | 05.05.2008, 14:34 - 18 lömb hafa jarmað :-)

Born to be wild!

Hér er linkurinn á lagið sem ég lofaði sönghópnum.

Svo þurfa allir bara að vera duglegir að æfa sig og æfa íslenska textan sem þið fenguð á æfingunni á miðvikudag.
Hlakka til að hitta ykkur á þriðjudag
kveðja
Anna

Anna | 02.05.2008, 17:39 - 12 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Kolbrún!

Já hún á afmæli í dag hún Kolbrún og orðin 14 ára stúlkan sú.
Við óskum henni til hamingju með daginn og vonum að hún njóti hans í botn og skemmti sér vel í dag. Ekki slæmt að eiga afmæli á föstudegi.
Eigðu frábæran dag elskan.
Kveðja
Anna, Guðrún, Stefán Bogi, Gummi og Friðrik.

 

Anna | 02.05.2008, 08:47 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópur!

Þá er að koma að stærstu kvöldmessum vetrarins. Eftir tvær vikur er hvítasunnan og þá verður fyrst fermingarguðsþjónustan hennar Klöru Rakelar á hvítasunnudagskvöld og svo er mótorhjólamessan á annan í hvítasunnu.

Það veitir því ekki af að fara að æfa sig.

Ég geri mér grein fyrir að samræmduprófin eru í hámarki og því skil ég vel ef 10. bekkingarnir geta ekki verið með á öllu æfingum eða treysta sér ekki til að vera með að þessu sinni. Ég vonast til að sjá ykkur eitthvað en munið að námið kemur fyrst.

Æfingar verða eins og hér segir:

Miðvikudaginn 30. apríl kl 16 - 18
Þriðjudaginn 6. maí kl 16 - 18
Laugardaginn 10. maí kl 12 - 14 - tímasetning óstaðfest en mjög líkleg - sjá nánar síðar.

Svo er eins og áður mæting í messur kl 18:00 báða dagana.

Þeir sem ætla að vera með þurfa að mæta á laugardagsæfinguna og allavega aðra af hinum, þ.e. þriðjudag eða miðvikudag. Helst á allar æfingar en hitt sleppur, sérstaklega ef maður er í samræmdum prófum og er duglegur að læra. Það þýðir hins vegar ekkert að sleppa æfingu og sitja svo heima í tölvunni ;o)

Hlakka til að sjá ykkur, vonast til að sjá sem flesta.
Kveðja
Anna
 

Anna | 28.04.2008, 08:57 - 20 lömb hafa jarmað :-)

Frídagar framundan

 Sæl verið þið junior fólk.

Því miður hittast frídagar þessarar þjóðar á tvo fimmtudaga í röð núna svo þá er frí í meme junior.

Á hinn bóginn ætlum við að hafa meme group fund á þriðjudaginn sem er þarna á milli, 29. apríl. Þann dag ætlar Gummi að mæta með Veltibílinn og við ætlum að velta nokkra hringi og skemmta okkur öll saman.

Hlökkum til að sjá ykkur.
kveðja
Anna, Guðrún Þóra og Stefán Bogi

Anna | 21.04.2008, 10:27 - Jarmaðu litla lamb

Kvöldmessa 13. apríl

Heil og sæl það er komið að kvöldmessu.

Tónlistaræfing byrjar kl 18:00 en því miður verður ekki búið að stilla upp svo tónlistarhópurinn þarf að hjálpa til við það og aðrar reddingar og því duglegri sem allir eru því fyrr byrjar æfingin.

Bænahópur mæti kl 19:00 og geri allt sitt klárt. Hafi samband við Stefán Boga ef eitthvað vantar.

Mig vantar ennþá lesara. Ég er komin með einn en vantar tvo, ég óska hérmeð eftir sjálfboðaliðum.
Mig vantar sjálfboðaliða nr 1 til að lesa lexíuna sem má finna hér.
Sjálfboðaliða nr 2 til að lesa pistilinn sem má finna hér.
og svo ætlar Didda að lesa guðspjallið sem má finna hér.
 
Kvöldmessan hefst svo kl 20:00 og það væri mjög gott að fá tvo yndæla sjálfboðaliða til að standa huggulega við dyrnar og bjóða fólk velkomið frá ca 19:45

Með kærri kveðju og von um offramboð af sjálfboðaliðum
Anna Panna

Anna | 12.04.2008, 22:03 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópsæfing

Ég biðst afsökunnar á hvað þetta kemur seint.
Tónlistarhópsæfing verður þá í dag kl 16:30 - 18:30.
Þá ættu allir að komast sýnist mér, nema þeir sem komast ekki yfir höfuð.

Vonast til að sjá sem flesta og endilega látið þetta berast til að allir fái örugglega skilaboðin
kveðja
Anna

 

Anna | 09.04.2008, 14:24 - 12 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópsæfing

Jæja eins og allir vita er kvöldmessa næsta sunnudag. Það er líka gaman að vita af því að í maí verðum við með tvær kvöldmessur eina á hvítasunnudag sem verður einstök að því leiti að í þeirri messu ætlar hún Klara okkar að fermast. Daginn eftir, eða annan í hvítasunnu, er tónlistarhópurinn svo beðinn um að sjá um tónlistina í mótorhjólamessu svo það verður nóg að gera hjá okkur.

Á miðvkudaginn 9. apríl ætlum við að hafa tónlistarhópsæfingu og nú er það þannig að fermingarfræðslan er hætt svo við getum hist fyrr en venjulega til að æfa okkur.

Nú spyr ég tónlistarhóp: Er einhver sem kemst ekki ef við höfum æfinguna frá 15-17?
Það myndi henta mér einstaklega vel en nú veit ég ekki með skóla og slíkt hjá ykkur.
Er þetta í lagi? eða eigum við að halda okkur við tímann frá 17-19?

Ég bið tónlistarhóp að kjósa hér að neðan og sú tímasetning sem er með fleiri atkvæði kl 18:00 á þriðudagskvöld 8. apríl verður notuð.

Með kærri kveðju
Anna
 

Anna | 07.04.2008, 10:22 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Unglingaflokkur í Kaldárseli - skráning á laugardag

Jæja elskurnar mínar.
Eins og ég hef áður sagt ykkur þá verður frábær unglingaflokkur í Kaldárseli í sumar.

Flokkurinn er fyrir 14-16 ára eða þá sem eru að ljúka 8. - 10. bekk í vor og verður í fimm daga, mánudaginn 7. júlí til föstudagsins 11. júlí. Það verður mikið fjör, vakið fram eftir og sofið fram eftir - ekki allan daginn þó, en lengur en á venjulegum æskulýðsmótum ;o)

Það verða kvöldvökur, hellaferðir, fjallgöngur, biblíulestrar, góður matur, eflaust verður líka vatnsstríð, sólböð og allskyns skemmtanir.

Það verða ekki fleiri en 25 sem komast með og skráning hefst núna á laugardaginn á vorhátíð KFUM og K á Holtavegi. Ég vonast til að fá sem flesta héðan til að við getum átt skemmtilega viku saman í sveitinni í sumar. Allar nánari upplýsingar um þessa hátið og skráninguna er að finna hér: http://www.kfum.is/nyr/template2.asp?id=408&nID=1372
Munið svo - fyrstir koma fyrstir fá.

Ég verð forstöðukona í Kaldárseli þessa viku og meðal starfsmanna þessa viku verður Arnór Heiðarsson sem þið þekkið flest.

Anna | 03.04.2008, 11:14 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Gleðilega páska

Við viljum óska ykkur öllum gleðilegra og ánægjulegra páska. Við hvetjum ykkur til þess að koma í kirkju um páskana, það er ómetanleg reynsla. T.d. verður Páskavaka kl. 22. á laugardaginn og hefst hún við eldstæði utan við kirkjuna.
Við sjáumst svo aftur strax eftir páska, keiluferð hjá senior og leikjafundur hjá junior.

Kveðjur frá leiðtogum Meme group
Anna, Friðrik, Guðmundur Karl, Guðrún Þóra og Stefán Bogi


Guðmundur Karl | 21.03.2008, 11:16 - 19 lömb hafa jarmað :-)

Afmæli og átak gegn rasisma

Í dag, mánudaginn 17. mars, eru tvö atriði sem ég vil ræða við ykkur:


  1. Heiður okkar Hallgrímsdóttir á afmæli í dag. Hún er víst orðin 16 ára skvísan. Við óskum henni að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju með daginn. Vonum að hún geri eitthvað skemmtilegt (hint hint Ingibjörg)

  2. Á morgun, þriðjudaginn 18. mars, verður ekki fundur í Meme senior (og ekki heldur á fimmtudaginn í junior). Hins vegar er núna Evrópuvika gegn gegn kynþáttamisrétti og verður af því tilefni uppákoma í Smáralind á morgun á milli kl. 16 og 17. Þar koma saman fjölmargir aðilar, m.a. æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar. Hara systur koma fram, barmmerkjum og sælgæti verður dreift og verður skarinn málaður í framan í öllum regnbogans litum. Guðrún Þóra ætlar að vera í Smáralindinni (verður reyndar komin eitthvað rúmlega 16) og við hvetjum alla Meme-inga til þess að mæta. Þetta verður mjög skemmtilegt, fullt af fólki og að sjálfsögðu verður sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson á staðnum (aka Óli Jói).

Mæting kl. 16. Láttu sjá þig!

Guðmundur Karl | 17.03.2008, 15:38 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Gleðilega Páska

Jæja englarnir mínir
Þá er komið páskafrí.
Juniorarnir okkar að fara að fermast, nokkrir á morgun aðrir á fimmtudag og einn senior ekki fyrr en um hvítasun
- smá ráðleggingar til fermingarbarna: Reynið að vera afslöppuð á fermingardaginn og njóta hans vel.
Ekki stressast upp úr öllu valdi, ritningarversin eru ekki svo flókin og þið kunnið þau vel núorðið og ekki stressast yfir því.
En nr. eitt tvö og þrjú, munið að borða morgunmat áður en þið komið í kirkjuna (eða hádegismat ef þið eruð á þeim tíma) það er ákaflega mikilvægt því það hefur komið fyrir að krakkar sem ekki borða fá sykurfall í miðri messu og það líður yfir þau.

Þetta er allt öðruvísi dagur en venjulegur dagur þar sem þið farið í skólann án þess að borða (þó að það sé aldrei holt) svo sömu reglur gilda ekki alveg um hvernig líkaminn virkar. Það er bara þannig. En umfram allt eigið góðan dag og njótið þess að fá að vera miðpunktur athyglinnar í fjölskyldunum  ykkar og í messunni. Þið eruð æðisleg og ég er ákaflega stolt af ykkur. Ég verð með í fermingarmessunum á morgun en því miður get ég ekki verið með á skírdag. Ég óska ykkur til hamingju.

Þið seniorar sem eigið systkin sem eru að fara að fermast á morgun, til hamingju með þau og ég vona að þið eigið góðan dag með systkinum ykkar.

Ykkur öllum óska ég gleðilegra páska og vona að þið hafið það gott, hvílið ykkur vel og borðið fullt af páskaeggjum.
Munum afhverju við höldum páskana hátíðlega, Jesús er upprisinn! Hallelúja!

Í öðrum fréttum þá er komin umfjöllun um Febrúarmótið og myndir frá því á heimasíðu ÆSKR: http://www.kirkjan.is/annall/aeskr/2008-03-03/10.57.20

Ég fékk líka fréttabréf frá Grafarvogskirkju inn um lúguna hjá mér í gær og þar var sagt frá mótinu og sagt frá því að lið Grafarvogs hefði komist í úrslit í spurningakeppninni en tapað þar fyrir Digraneskirkju ;o) Við erum fræg!

En eins og áður sagði:
Gleðilega páska!

Fyrir hönd leiðtoga Meme group
Anna 

Anna | 15.03.2008, 13:44 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Annan snýr aftur ;o)

Heil og sæl elskurnar mínar.
Ég er mikið búin að sakna ykkar og hlakka til að hitta ykkur aftur. Þakka ykkur fyrir fallegar kveðjur og bænir á meðan ég var veik. Ég er enn slöpp og ekki alveg orðin almennilega fótafær en þetta er allt að koma svo ég vonast til að vera ekki mikið lengur í burtu.
Mamma mín kom í heimsókn áðan og tók mig með sér út að borða, ég þurfti að sitja með fæturna upp á næsta stól eins og vitleysingur en það var ósköp gott að komast aðeins út og sjá annað fólk en mína elskulegu nánustu (þó að þau hafi öll hugsað ákaflega vel um mig síðustu tvær vikurnar).
Ég frétti að æskulýðsmessan hefði tekist með eindæmum vel og að ég ætti afbragðs duglega aðstoðarleiðtoga og að allir hefðu staðið sig með prýði, bæði söngvarar, lesarar, prédikarar, leikarar, gítarleikari, trommari, tæknimenn og fleiri. Ég er ákaflega stolt og bara örlítið leið að hafa ekki getað verið með sjálf. En ég vissi að þið gætuð þetta vel án mín.

Ég veit ekki alveg hvenær ég kem alveg aftur en ég vona að það verði í næstu viku. Ég er þó komin í stopult netsamband og kíki eitthvað á netið núna svo það er kannski hægt að ná af mér tali ef fólk þarf. Lofa samt ekki að svara samdægurs og er enn með slökkt á símanum að mestu leiti.

Þið eruð yndisleg og ég hlakka til að sjá ykkur aftur elskurnar mínar.
Ég sakna ykkar.
kveðja
Anna

 

Anna | 07.03.2008, 13:29 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Nýtt útlit á Jarma junior

Eins og glöggir gestir sjá er nú loks komið nýtt útlit á Junior síðuna. Útlitið er hið sama og ég er búinn að vera að prófa á senior í nokkurn tíma. Enn eru nokkur atriði sem þarfnast fínstillingar, en það er ekkert alvarleg. Vonandi eruð þið ánægð með breytinguna, ég mun svo búa til junior banner mjög fljótlega. Ef það koma upp einhverjar villur endilega látið mig vita.
Annars er mjög skemmtilegur fundur framundan í kvöld, Egg & Bacon. Ekkert verður gefið upp um efni hans frekar en þó má taka fram að fundurinn hefur alltaf vakið mikla lukku. Sjáumst í kvöld :-)

Guðmundur Karl | 06.03.2008, 14:36 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar

Eins og ykkur mun flestum kunnugt er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar á sunnudaginn kemur, 2. mars. Allt æskulýðsstarf Digraneskirkju kemur að messunni og þar spilar Meme group að sjálfsögðu stóra rullu.

Þeir sem eru í tónlistarhóp (hljóðfæraleikarar og söngvarar) eiga að mæta í kirkjuna kl 9:50 og æfing byrjar stundvíslega kl. 10:00. Ég bið ykkur um að koma þessum skilaboðum líka til Sindra trommara þar sem ég er ekki með símanúmerið hans.
Aðrir sem hlutverk hafa, s.s. lesarar, aðstoðarprédikarar og slíkir eiga að mæta í Digraneskirkju kl. 10:30 og setja sig strax í samband við Stefán Boga Sveinsson hdl.

Að lokum eiga þeir sem ekki hafa hlutverk í messunni að mæta kl. 10:50 í kirkjuna, þar sem messan byrjar stundvíslega kl. 11:00.

Viðbót:
Að sjálfsögðu mæta ALLIR í Meme peysu sem þannig eiga. Við eigum nokkrar peysur til að lána, þ.e.a.s. ef þeir sem fengu þær á febrúarmóti hafa skilað þeim.

Annað:
Ég talaði við okkar ástkæru Önnu Arnardóttur í dag. Hún biður kærlega að heilsa ykkur öllum. Hún er enn að jafna sig eftir aðgerðina sem gekk vel. Hún er þó ekki orðin rólfær ennþá og ég bið ykkur að biðja fyrir góðum bata hjá henni. En hún saknar ykkar sem sagt og segir að þið séuð æði :-)

En við sjáumst eldhress og kát á sunnudagsmorgun.

Guðmundur Karl | 01.03.2008, 00:01 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Söng- og tónlistarhópur

Þetta er sko mjög áríðandi. Allir sem eru í sönghópnum verða að mæta á æfingu á morgun miðvikudag kl. 16:30 hér í kirkjunni. Æfingin verður hins vegar stutt. Stendur vonandi bara til 17:30. Það sama á við um tónlistarhópinn, a.k.a. Jói H. og gömlu kallarnir.

Við munum æfa lögin sem sungin verða í æskulýðsmessunni á sunnudaginn næsta.

Allir að mæta! Annars verð ég reiður!!

Stefán Bogi | 26.02.2008, 17:34 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Frábæra fólk

Af því þið eruð svo frábær, og unnuð atriðakeppnina í Vatnaskógi, þá verður fundurinn í kvöld helgaður því að spila og borða snakk!

Guðrún Þóra og Gummi, einnig þekkt sem Zorro og ..... Zorrina(??) ætla að vera með ykkur og hjálpa ykkur með snakkið. Passið bara upp á Guðmund, hann borðar alveg svakalega mikið.

Allir að mæta og skemmta sér konunglega.

 

Stefán Bogi | 21.02.2008, 13:05 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Anna í fríi af heilsufarsástæðum

Jæja nú eruð þið búin að gera mig geðveika og ég er farin í frí að jafna mig...

... nei segi svona ;o)
Ég er hins vegar að fara í litla aðgerð á fótunum á mér á morgun svo ég verð rúmliggjandi og fæ ekkert að vera með ykkur í tvær vikur.
... og mun sakna ykkar alveg hryllilega.  En ég ætla að gera það besta úr hlutunum, lesa og horfa á sjónvarp og leika mér í Sims og koma hress og kát til baka.      anna_avatar
- verð alveg úr netsambandi allavega fyrstu vikuna, kem kannski inn á netið eftir það.

Verið þæg á meðan ég er í burtu. Ekki vera of vond við Hjallakirkjumenn þegar þau koma með bikarinn okkar yfir hæðina ;o)  og verið dugleg að undirbúa æskulýðsdaginn.

sakna ykkar strax
Kveðja
Anna

p.s. ég gleymdi... ég er búin að ætla að skamma ykkur pínulítið síðustu tvo fundi en gleymi því alltaf. Okei, ekki skamma en aðeins að uppfræða ykkur. Við Gummi vorum að skoða viðtölin í The Making of Lífsins Lengsta Nótt og þá kom alveg skelfilegur hlutur í ljós. Einungis einn maður vissi um hvað myndin fjallar og hver boðskapur hennar er. Hvað er málið með það? og það þarf víst ekki að taka það fram að eini maðurinn sem vissi þetta var akkurat maðurinn sem vissi strax að það var Nýjasjáland sem skiptist í Norðurey og Suðurey... þegar spyrillinn hafði ekki enn áttað sig á því.
Það er hreinlega ekki hægt að taka þátt í svona stóru kvikmyndaverkefni og standa svo á gati þegar kemur að boðskapi myndarinnar, sérstakelga ekki þegar tilgangurinn er boðskapurinn. Það er því skylda allra sem tóku þátt í kvikmyndagerðinni að lesa eftirfarandi pistil.
Myndin fjallar um Amelíu sem hefur lent í þeirri slæmu lífsreynslu að missa náin ástvin (þ.e.a.s. pabba besta vinar síns sem var henni mjög náinn.) Hún getur ekki höndlað þennan missi og hættir að umgangast vin sinn til að þurfa ekki að horfast í augu við missinn en jafnframt kennir hún Guði um að hafa tekið hann. Á meðan Lúkas sækir styrk sinn til Guðs og þyggur hjálp og ást Guðs til að komast í gegn um erfiðleikana lokar Amelía á hann og kennir honum um að hafa eyðilagt líf sitt. Hún kennir Guði líka um að hafa tekið Lúkas frá sér þegar raunin er sú að hún yfirgaf hann af sjálfsdáðum.
Þessa umræddu nótt fær hún tækifæri til að líta yfir líf sitt og sér hvað líf hennar er í molum út af innbyrgðri reiði og hatri út í Guð og alla sem áður voru henni nánir. Hún áttar sig á að það er ekki Guð sem tekur og leikur sér að því að eyðileggja líf mannanna heldur er lífið bara ekki alltaf sanngjarnt og þá kemur Guð til sögunnar og hjálpar þeim sem leyfa honum í gegn um erfiðleikana. Veitir þeim styrk, huggun og þor. Hún áttar sig á að hún vill sleppa reiðinni og hatrinu og fá vinina, fjölskylduna og Guð aftur í staðinn.

Anna | 20.02.2008, 21:44 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Þið eruð Zúper

Ég vil byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir samveruna um helgina. Þetta var mjög skemmtilegt og fjörugt febrúarmót og hefði svo sannarlega ekki verið það án ykkar. Þið eruð æði :-)

En ég vil auglýsa að á morgun, þriðjudag, verður sjoppan opin í karaoke keppninni. Það verður sem sagt hægt að versla sælgæti, gos, vasaljós og fleira góðgæti til styrktar Meme. Ég hvet alla (nema Þórð) til þess að úða í sig sælgæti og styrkja um leið gott málefni :-)

Annað (PRAG):
Okkur var að berast boð um að taka þátt í vörutalningu hjá Bónus á laugardaginn frá kl. 18-23. Þeir sem taka þátt fá 1000 kr á tímann svo það er vel þess virði að mæta. Áhugasamir geta haft samband við Stefán Boga Sveinsson hdl.

Sjáumst á morgun elskurnar mínar. Ekki missa af glæsilegasta upphafsatriði á Karaoke keppni Meme group fyrr og síðar!!!

Guðmundur Karl | 19.02.2008, 00:44 - 23 lömb hafa jarmað :-)

Karaoke - lagalisti

Nú er komið að því að velja lög fyrir hina ógurlegu karaoke-keppni Meme Group. Keppnin verður haldin á þriðjudaginn og hefst stundvíslega klukkan 19:30.

Búið er að útvega nokkra diska og fer lagalistinn hér á eftir. Um að gera að æfa sig og gera svolítið flott atriði úr þessu.

Diskur 1: CHART HITS vol 1

1. How do you love now / Danni Minogue
2. Can´t get you out of my head / Kylie Minogue
3. Slave for U / Britney Spears
4. Hero / Enrique Iglesias
5. Ain´t it funny / Jennifer Lopez
6. Words are not enough / Steps
7. Something stupid / Robbie Williams & Nicole Kidman
8. Teenage Dirtbag / Wheatus
9. Get the party started / Pink
10. Smooth criminal / Alien Ant Farn
11. Stan / Eminem
12. Don´t stop moving / S club 7

Diskur 2: Karaoke - Rock In The UK

1.Smoke On The Water
2.All Right Now
3.Start Me Up
4.Dancing In The Moonlight
5.We Are The Champions
6.Yellow
7.Roll With It
8.Good Souls
9.Why Does It Always Rain On Me
10.Hi-Ho Silver Lining.

Diskur 3: CHART HITS vol 4

1. Feel / Robbie Williams
2. Dilemma / Nelly feat. Kelly Rowland
3. Round round / Sugababes
4. I love to see you cry / Enrique Iglesias
5. Dy-na-mi-tee / Ms Danamite
6. Complicated - Avril Lavigne
7. I Love Rock And Roll - Britney Spears
8. I'm Right Here - Samantha Mumba
9. Papa Don't Preach - Kellie Osbourne
10. A Thousand Miles - Vanessa Carlton
11. The Girl All The Bad Guys Want - Bowling For Soup
12. I'm Gonna Getcha Good - Shania Twain
13. The Ketchup Song - Las Ketchup

Diskur 4: Taktu lagið

Ég sjálf - Írafár
Dag sem dimma nátt - Í svörtum fötum
Þú fullkomnar mig - Sálun hans Jóns míns
Aðeins einu sinni - Kalli Bjarna
Von mín er sú - Land & Synir
All Out of Luck - Selma
Ennþá - Skítamórall
Spenntur - Á móti sól
Láttu mig vera - 200.000 naglbítar
Með allt á hreinu - Stuðmenn
1000 kossa nótt - Bubbi
Ég sé þig - Björgvin Halldórsson
I Think of Angles - Páll Rósinkranz
Talað við gluggann - Hera

Ef einhverjar sérstakar óskir eru um lög, get ég kannað hvort mögulegt er að útvega þau, en ég get engu lofað. Svo væri ekki verra ef þið gætuð skráð ykkur hér í athugasemdakerfinu. Þá vitum við svona u.þ.b. hversu margir eru að fara að taka þátt.

Stefán Bogi | 18.02.2008, 12:10 - 9 lömb hafa jarmað :-)

peysur og febrúarmót

 Minni á að peysurnar eru komnar, þið getið sótt þær kl 17:30 - 19:30 í kirkjunni

Þeir sem eiga eftir að skila inn foreldrasamþykki og borga febrúarmót þurfa að skila því inn í dag. Blaðið er hægt að fá í frétt hér að neðan.

Eftir það er svo frábær junoir fundur þar sem valið verður í lið fyrir spurningakeppni og atriði fyrir atriðakeppni.

Hlakka til að sjá ykkur og hlakka ennþá meira til að fara með ykkur í Vatnaskóg á morgun!!!

kveðja
Anna

Anna | 14.02.2008, 15:01 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Peysurnar tilbúnar - afhentar á fimmtudag

Ég var að fá fréttir þess efnis að peysurnar væru tilbúnar en þær fréttir bárust mér ekki fyrr en núna rétt rúmum tuttugu mínútum eftir að Bros lokaði svo ég get ekki sótt þær fyrr en á morgun. En þar sem ég er lítið sem ekkert í kirkjunni á morgun fá allir sína peysu á fimmtudaginn. Seniorar mega kíkja við eftir 6-9 ára fund eða á milli kl 17:30-19:30 - svo er junior fundur og þá fá juniorar sínar peysur. 


Við verðum glæsileg á febrúarmóti.
Munið að koma með skráningarblöð útfyllt af foreldrum og pening til að borga mótið, 7900 krónur.

Kveðja
Anna

Anna | 12.02.2008, 17:40 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Peysumál og febrúarmótsmál

Ég minni á að síðasti dagur til að borga peysur er á morgun sunnudag!
Ef einhver á eftir að borga peysuna sína og kemst ekki í kvöldmessu á morgun þá er sá hinn sami beðinn um að senda mér tölvupóst á anna [hjá] jarma.net og fá uppgefið reikningsnúmer til að leggja inn á (það þýðir ekki að leggja þetta inn á Prag reikininginn) eða láta einhvern annan fá peninginn til að skila til mín í kvöldmessunni.
Það eru nokkrir sem eiga eftir að borga og ég hvet þá til að vera snöggir að þessu því peysurnar koma í næstu viku.

Minni ykkur líka á að koma með undirritað plagg frá foreldrum um að þig megið koma á febrúarmót, í síðasta lagi á þriðjudag og svo þarf að fara að borga fyrir febrúarmótið 7900 krónur á næsta fundi (þriðjudagur senior og fimmtudagur junior).

Á næsta fundi (bæði senior og junior) verður viðfangsefni fundarins ýtt til hliðar í smá stund til að velja lið í spurningakeppnina og atriði fyrir atriðakeppnina. Allir að leggja höfuð í bleyti og koma með góðar hugmyndir.

Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna

 

Anna | 09.02.2008, 22:21 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Febrúarmót ÆSKR

Þið sem eruð skráð á febrúarmótið þurfið að prenta út þennan miða og koma með í kirkjuna ekki seinna en þriðjudaginn 12. febrúar. Þá þarf líka að borga á mótið, 7.900 kr. Þetta verður alveg geðveikt skemmtilegt mót og ég hvet ALLA til þess að mæta :-)

Dagskrá mótsins og foreldrabréf

 

Guðmundur Karl | 07.02.2008, 16:47 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Tilkynning til tónlistarhóps

Minni á að það er æfing hjá Tónlistarhópi Meme í kvöld kl 17:00 - 19:00

Hlakka til að sjá ykkur
Gleðilegan Öskudag
Kveðja
Anna

 

Anna | 06.02.2008, 13:18 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Meme peysur eru að koma aftur á markaðinn

Jæja  þá er komið að því
Hinar geysivinsælu Meme peysur eru að koma aftur í sölu eins og svo margir hafa beðið eftir.
Að þessu sinni verða þrennskonar peysur í boði. Svartar heilar hettupeysur eins og voru í fyrra og svartar renndar hettupeysur bæði í herrasniði og dömusniði.
Heilu peysurnar kosta 3500 krónur en renndu peysurnar kosta 4500 krónur.
Það er engum skylt að kaupa sér peysu.
Þeir sem vilja peysu þurfa að mæta kl 19:00 á fimmtudag til að máta peysur, velja sér stærð, panta og borga.

Sjáumst á fimmtudag
Kveðja
Anna og co.

 

Anna | 30.01.2008, 08:56 - 42 lömb hafa jarmað :-)

Leikjafundur í kvöld!

 Vildi bara minna ykkur á frábæran leikjafund sem verður í kvöld í Digraneskirkju.

Við leiðtogarnir vorum á námskeiði í Skálholti í byrjun mánaðar (hmm og árs) og lærðum þar nokkra skemmtilega leiki sem við ætlum að fara í með ykkur.
Það er miklu skemmtilegra að fara í þessa leiki ef við erum svolítið mörg svo endilega hvetjið alla til að mæta.

Munið svo að þeir sem ætla með á Febrúarmótið í Vatnaskógi (ekki keppnismót heldur mót eins og í enska orðinu sem kemur af sama stofni meeting) þeir þurfa að vera duglegir að mæta á fundi til að geta komi með.

Vonumst til að sjá sem flesta í kvöld

Kveðja
Anna, Guðrún Þóra og Stefán Bogi


Anna | 24.01.2008, 08:52 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Extreme hellaferð

Já það er hægt að segja að hún hafi verið nokkuð extreme hellaferðin hjá Meme junior í gær. Við héldum sem leið lá eftir Suðurlandsveginum í suðurátt. Áfram var haldið eftir Þrengslavegi þangað til komið var að Raufarhólshelli. Þar var numið staðar og leiðangursmenn gerðu sig klára í göngu. Sá var þó galli á gjöf Njarðar að snjór var mikill á svæðinu og þurftum við að vaða snjó upp í mitt til þess að komast að hellinum. Við fórum af mikilli varfærni inn í þennan helli sem er talsver langur, eða 1300 m. Við létum okkur nægja að kíkja rétt inn fyrir þar sem við fengum okkur heitt kakó og kex.
Það var alveg magnað að sitja í myrkrinu og hlusta á hugleiðingu frá Stefáni Boga. En eftir stutt stopp var kominn tími til að halda til baka, því jafnvel þó við færum ekki langt inn vorum við strax búin að vera í 45 mín. Leiðin til baka gekk þó betur inn inn og allir komust heilir á húfi á réttum tíma til síns heima.
Ég þakka öllum leiðangursmönnum fyrir samveruna og við ykkur hin segi ég: "Þið misstuð af miklu" :-)

Guðmundur Karl | 18.01.2008, 21:51 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Hellaferð Meme junior

Fimmtudaginn 17. janúar verður hellaferð hjá Meme junior. Farið verður frá Digraneskirkju kl. 19:30 stundvíslega. Mæting kl. 19:15.
Komið með vasaljós og vel klædd þar sem það er oft kalt í iðrum jarðar. Einnig er afar mikilvægt að koma í góðum skóm, með hjálm eða húfu og með vettlinga. Fermingarbörn Digraneskirkju eru alveg sérstaklega boðin velkomin í ferðina. Við höfum oft farið í Kaldársel og Heiðmörk í hellaferð en að þessu sinni verður farið annað, í helli sem ekki hefur verið farið áður í Digraneskirkju. Hér er texti af viðvörunarskilti sem er við hellismunann:
Hellirinn er um 1350 metra langur og frekar erfiður yfirferðar. Vinsamlega farið gætilega í hellinum og hafið góð ljós, hjálm eða húfu, trausta skó og vettlinga. Gangið vel um og ekki skilja eftir rusl í hellinum. Góða ferð.
Við munum ekki ná að fara inn í botn á hellinum en samt sem áður er vert að minna fólk á að huga að rafhlöðum áður en lagt er af stað, því það er fátt leiðinlegra en að verða batterýslaus inni í dimmum stórgrýttum helli.

ATH við komum heim kl 22:00 en ekki 21:30 eins og venjulega.

Sjáumst á fimmtudaginn :-)

Guðmundur Karl | 16.01.2008, 01:21 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Pizza og video fundur!

 Pizza í kvöld

Stefán Bogi Sveinsson - svalasti maður landsins - er í leiðangri að leita að hinni fullkomnu mynd til að horfa á í kvöld. Pizzur verða pantaðar og gosdrykkir keyptir svo þetta stefnir í bráðskemmtilegt kvöld!

Það kostar 500 krónur að fá pizzu og gos, ekkert að horfa á myndina.

Þeir sem ætla að fá pizzu verða að vera búnir að borga fyrir kl 19:30. Þá verða pizzurnar pantaðar og eftir það er ekkert hægt að breyta.

Hlökkum til að sjá ykkur
Fyrir hönd Meme junior leiðtoga
Anna

p.s. en hvernig var það var ekki einhver sem átti afmæli í dag? Var það Sif?

Anna | 10.01.2008, 12:05 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Beta!!!

Og það er bara stanslaus straumur af afmælisbörnum
Til hamingju með afmælið Beta og ég vona að þú eigir frábæran afmælisdag.
Hittumst svo kát á pizza og videofundi

Hafðu það gott í dag
kveðja

Anna, Guðrún og Stefán Bogi 

Anna | 07.01.2008, 01:49 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Ásgerður Lilja

Ef mér skjátlast ekki á Ásgerður Lilja afmæli í dag!
Er það ekki rétt hjá mér?

Til hamingju með daginn elskan. Vona að þú hafir átt góðan afmælisdag.

kveðja
Anna

 

Anna | 03.01.2008, 22:13 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Ný dagskrá að fæðast

Heil og sæl elskurnar mínar.

Anna ArnardóttirÞá er ný dagskrá alveg að fæðast. Hluti af henni er kominn á netið.. þ.e.a.s. sá hluti sem gerist fram að FEBRÚARMÓTI!!! JEIJJ!!!
Afgangurinn er væntanlegur fljótlega.

Eins og venja er hjá okkur förum við að fylgjast með mætingu eftir áramót og fram að febrúarmótinu. Það er skylda að mæta á fjóra fundi eftir áramót til að fá að koma með á febrúarmótið - og athugið það eru einungis fimm fundir þar til lokaskráning þarf að liggja fyrir. Tekið er tillit til veikinda og sérstakra aðstæðna svo ef einhver lendir í hremmingum er um að gera að koma og ræða málin við mig áður en farið er í fýlu og ákveðið að ekkert gangi ;o)

Það skal þó taka fram að ekki er eingöngu nóg að mæta, hegðun á fundum er líka tekin með í reikninginn því enginn fær að fara með á mót sem ekki kann að haga sér og fylgja settum reglum.

Á febrúarmótinu er mikið stuð og þetta er fyrsta ferðalagið sem Meme junior fær að taka þátt í svo það er margt spennandi framundan.

Hlakka til að hitta ykkur hress á nýju ári
kveðja
Anna

Anna | 03.01.2008, 22:11 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Meme að hefjast á ný

Jæja, þá er árið 2008 gengið í garð og það þýðir bara eitt: Meme fer af stað.
Við leiðtogarnir erum að fara að hittast í kvöld til þess að skipuleggja vormisserið. Ef þið eruð með tillögur um hvað ykkur langar að gera, hvað var skemmtilegt í fyrra o.fl, endilega póstið það á þessa frétt. Þið hafið 3 klst, eða til kl. 20 í kvöld
Ég lofa ekki að það verði allt gert en gaman að fá hugmyndir frá ykkur. Svo kemur dagskráin inn fljótlega.

Guðmundur Karl | 02.01.2008, 17:08 - 10 lömb hafa jarmað :-)

GLEÐILEGT ÁR :-)

Við óskum ykkur öllum gleðilegs árs og þökkum fyrir frábærar samverustundir á árinu sem er að líða.
Farið varlega með flugeldana og sjáumst hress á nýju ári :-)

Áramótakveðjur frá leiðtogum
Anna, Friðrik Þór, Guðmundur Karl, Guðrún Þóra og Stefán Bogi

Flugeldar

Guðmundur Karl | 31.12.2007, 15:57 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Milli-jóla-og-nýjárs-fundur-Meme group!

Annað kvöld (föstudagskvöld) ætla ég að vera í kirkjunni frá kl 19:30 - 21:30 og þá eru allir í meme boðnir velkomnir að hafa gaman með mér - og vonandi fleiri leiðtogum.. hvað segja leiðtogar?

Það gengur nátturlega enganveginn að bara tónlistarhópurinn fái að hittast á milli jóla og nýjárs.

Dagskráin er ákaflega opin. Það eina sem er bókað er að ég þarf að fá hjálp frá ykkur til að setja upp stóra jólatréð í kapellunni og skreyta það fyrir jólaballið sem verður á sunnudaginn.
Hvað fleira má bjóða ykkur að gera?
Uppástungur óskast hér að neðan... þó einungis frá fólki sem ætlar sér að mæta, hinir hafa ekkert um málið að segja... ;o)

Látið nú ljós ykkar skína.
Kveðja
Anna

Anna | 27.12.2007, 13:30 - 30 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarfundur Meme

 Jæja þá er komið að því
Allir tónelskir Meme-ingar sem hafa áhuga ætla að hittast til að spila og syngja. Markmiðið er að búa til einstaka kvöldmessu með allskyns tónum sem eru ekki endilega bara píanó, bassi, gítar og trommur. Þau hljóðfæri eru að sjálfsögðu velkomin líka en við ætlum líka að nota blásturshljóðfæri, strengi og hvað annað sem okkur dettur í hug.
Við ætlum að vinna í útsetningum og prófa allskyns nýja hluti. Árni ætlar að mæta og vera conductor en við ætlum að útsetja öll í sameiningu.

Ég setti upp könnun um daginn hverjir vildu koma og hvenær og ætlaði svo að setja upp fasta dagsetningu á þorláksmessukvöld en steingleymdi því og mundi það svo ekki fyrr en í dag... gleymdi mér alveg í jólafríi og biðst afsökunnar á því en það var ósköp notalegt jólafrí ;o)

Við ætlum að hittast í kirkjunni fimmtudagskvöld (á morgun) kl 19:30 og spila saman til kl 21:30
Öll hljóðfæri boðin velkominn, sönghóp væri vel þegið að fá á staðinn og ef einhver á skemmtilegar nótur af skemmtilegum lögum til að syngja og spila í messunni eða bara spila sem t.d. forspil þá endilega kippið því með.

Vonast til að sjá sem flesta.
Kveðja
Anna

Anna | 26.12.2007, 12:52 - 16 lömb hafa jarmað :-)

Jólakveðja

Guðmundur Karl | 24.12.2007, 18:00 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Guðmundur brosir ennþá hringinn

Ég var nú aldeilis heppinn í kvöld. Ég var búinn í vinnunni kl. 20 og gerði mér þá ferð niður í miðbæ að sækja jólafötin. Á leiðinni heim datt mér í hug að koma við í húsi nokkru á Laugavegi. Inni í þessu húsi rakst ég svo á Sönghóp Meme ásamt fleiri stórstjörnum. Tilefnið var að þau voru að fara að syngja hjá Loga í Beinni á Stöð 2 eð Hafdísi Huld og englunum hennar.
Skemmst er frá því að segja að þau stóðu sig ótrúlega vel og voru þvílíkt sæt. Birgitta Haukdal og Raggi Bjarna héldu vart vatni og ég er ennþá með bros allan hringinn :-)

En til að gera langa sögu stutta þá óska ég þeim til hamingju með frammistöðuna og hrósa þeim alveg sérstaklega fyrir að vera svona frábær :-D

Guðmundur Karl | 21.12.2007, 22:18 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Gjafabréf og plaköt

Heil og sæl

Gjafabréf og plaköt eru í kirkjunni núna! Þið getið sótt þau á milli 12:30 og 14:00.
Gjafabréfin kosta 1000 krónur og plakötin 500 krónur.
Ef þið getið ekki nýtt ykkur þennan tíma hafið þá samband og við reynum að redda því.

Anna | 21.12.2007, 11:43 - 1 lamb hefur jarmað

Sönghópur Meme að meika það!

Það er ekkert annað.

Nú hefur spurst út hversu frábær sönghópurinn okkar er og við höfum verið beðin um að syngja í englakór með Hafdísi Huld og litlu englunum hennar í beinni útsendingu frá jólaþætti Loga Bergmans á stöð 2 á föstudagskvöld kl 20:00.

Þetta verður rosalegur þáttur þar sem fram koma Diddú, Raggi Bjarna, Magni, Birgitta og margir fleiri svo við verðum ekki í slæmum félagskap það kvöldið. Sönghópurinn var á æfingu með Hafdísi og englunum í ullarsokkum í dag og þetta var alveg magnaður kór sem var þarna samankomin.

Mæli eindregið með því að allir horfi á þetta á föstudagskvöldið. Auglýsi jafnframt eftir því hvort einhver hérna sé með stöð 2 og aðgang að upptökutækjum sem geta tekið upp á tölvutækt form eða DVD? Mig langar nefninlega alveg afskaplega til að eiga þetta og geta séð þetta seinna þar sem ég á bæði tvo litla engla og svo alla þá stærstu en ég á hvorki upptökutæki né stöð 2.

Með kærri kveðju
Úberstolta Anna

p.s. ég er líka stolt af öllum hinum englunum mínum sem ekki syngja en gera svo ótal margt annað svo ótrúlega vel!

Anna | 19.12.2007, 22:46 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Anna og Guðmundur í kröppum dansi!

Mér datt í hug að þið vilduð kannski vita af því hvað við Gummi gerum okkur til skemmtunar í frístundum. Við höfum einmitt þessa dagana verið að æfa dans saman. Við stefnum á heimsmeistarakeppni í freestyle jóladansi 2008 í Berlín.
Hvað finnst ykkur, þurfum við betri rútínu:

http://www.elfyourself.com/?id=1543150617

kveðja
Anna og Gummi

Anna | 19.12.2007, 00:27 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistafundur Meme group

Í tónlistarmálum fyrir kvöldmessur og aðra viðburði Meme hefur ýmislegt gengið á.
Núna höfum við uppgötvað að það er allt morandi í hæfileikafólki í félögunum okkar og viljum endilega nýta það sem best.
Því kom upp sú hugmynd að hafa tónlistarfund í fríinu þar sem allir þeir sem spila á eitthvað hljóðfæri eru velkomnir að mæta og spreyta sig sem hljómsveit. Við ætlum að reyna eitthvað alveg nýt og hafa allt öðru vísi tónlist í kvöldmessu en við erum vön.
Ég stefni á að hafa tónlistarfund annað hvort á fimmtudaginn eða á föstudaginn milli jóla og nýjárs.
Nú vil ég fá smá könnun, hverjir geta mætt á hvorn daginn og með hvaða hljóðfæri? Ef þið getið mætt á báða skrifið það þá líka. Svo fer það eftir því hvor dagurinn virkar betur fyrir flesta hvorn daginn við notum (og líka eftir því hvor dagurinn er lausari í kirkjunni).
Öll hljóðfæri boðin velkomin, sérstaklega sekkjarpípur! he he

kveðja
Anna

Anna | 19.12.2007, 00:18 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Lífsins Lengsta Nótt - Gjafabréf fyrir jólin

Margir hafa látið mig vita að þeim langi að gefa fólki okkar frábæru mynd Lífsins Lengsta Nótt í jólagjöf. Þar sem myndin kemur ekki út á DVD fyrr en eftir jólin þá höfum við fengið okkar creative director - Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur, til að útbúa falleg jólaleg gjafabréf.

Þau er hægt að kaupa fyrir 1000 krónur og gefa í jólagjöf. Sá sem hefur keypt slíkt bréf fær myndina sér að kostnaðarlausu þegar hún kemur út. 

Það þarf ekki að skila gjafabréfinu inn aftur þegar myndin er sótt.
Gjafabréfin eru tilbúin og ef einhver vill kaupa slík þá er um að gera að hafa samband við mig og við finnum tíma þar sem hægt er að nálgast bréfin í kirkjunni.

Minni á að það er ennþá hægt að panta plaköt!

Kveðja
Anna

Anna | 17.12.2007, 20:42 - 8 lömb hafa jarmað :-)

LLN sýnd í Smárabíó... eða kannski Smáraskóla

Á morgun, mánudaginn 17. desember, verður stórmyndin okkar, Lífsins Lengsta Nótt, sýnd í Smáraskóla. Um er að ræða tvær sýningar, aðra fyrir 8-10. bekk og hina fyrir 6-7. bekk. Það verður gaman að hitta ykkur í Smáraskóla :-)


Svo vil ég vekja athygli ykkar á því að á aðfangadagskvöld eru tvær messur í Digraneskirkju, kl. 18 er aftansöngur. Það er klukkutíma messa og alveg frábært að byrja jólin með fjölskyldunni í messu. Kirkjan er venjulega alveg pökkuð kl. 18 og mjög gaman að mæta. Ég fer alltaf með familíunni kl. 18.

Það er líka miðnæturmessa í boði kl. 23:30. Þangað koma yfirleitt færri en voðalega notalegt að koma. Fæstir mæta þó bæði kl. 18 og 23:30 heldur velja á milli.

Á www.digraneskirkja.is getið þið séð frekari upplýsingar um helgihald yfir jólin. Það er hátíðarguðsþjónusta á jóladag, messa á annan í jólum og svo aftansöngur kl. 18 á gamlársdag. Ég hvet ykkur til þess að kíkja eitthvað í kirkju um hátíðarnar og taka endilega fjölskyldurnar með. Það er einstaklega hátíðlegt og minnir okkur á hvers vegna við höldum heilög jól.


Gleðileg jól :-)

Guðmundur Karl | 16.12.2007, 19:22 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Takk fyrir góðan daginn

Ég mæli eindregið með því að þið kíkið á FORSÍÐU Kópavogspóstsins sem dreift var núna á fimmtudag/föstudag. Þar eru engir aðrir en þið :-)

 

Guðmundur Karl | 15.12.2007, 09:47 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Sala á Lífsins Lengsta Nótt fer að hefjast

 Ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir um hvenær sala á Lífsins Lengsta Nótt kemur til með að hefjast. Margir hafa hugsað sér að gefa myndina í jólagjöf og bíða því ólmir eftir útgáfudeginum.

Því miður getum við ekki klárað dæmið fyrir jól en hins vegar eru frábær gjafabréf í hönnun þessa stundina hjá okkar listræna stjórnanda Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur. Þau koma út í næstu viku og þá getur fólk tryggt sér eintak af myndinni með kaupum á slíku bréfi og gefið viðkomandi ástvin bréfið í jólagjöf. Síðan verður myndin sjálf afhent eigendum slíkra bréfa þegar hún kemur út eftir áramótin.

Einnig hefur borið á að einhverjum tókst ekki að tryggja sér plaköt og þessvegna ætla ég að fara út í að láta prenta fleiri slík. Þeir sem vilja plaköt eru beðnir um að senda mér póst á anna (hjá) jarma.net og láta mig vita hversu mörg plaköt þeir hafa hugsað sér að fá.
Ég fer í að panta prentun um miðja næstu viku svo þá þarf talan að vera komin á hreint. Gott að minna á að því fleiri sem panta plaköt því ódýrari eru þau ;o)

S.s. jólagjöfin mín í ár... ekki metin er til fjár... nema að hún er það bara samt og kostar 1500 krónur -  Kvikmynd og plakat! það er ekki til flottari jólagjöf en það...

... jah nema þá að það væri kaffikanna sem malar og kaffibaunir með ;D

Anna | 14.12.2007, 22:34 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Opið hús og viðtöl

Jæja lömbin mín. Ég vil minna ykkur á að það er opið hús í Meme junior í kvöld. Við ætlum að hafa það kósý, spjalla, spila og eitthvað fleira gaman. Svo verða líka tekin viðtal við þá sem komu að gerð myndarinnar okkar (þar með talið auglýsinganna) til þess að nota í Making of Lífsins Lengsta Nótt.
Sjáumst öll í kvöld, hress og ofurkát :-)

Guðmundur Karl | 13.12.2007, 17:06 - 4 lömb hafa jarmað :-)

LLN sýnd í grunnskólum Digranessóknar

Í morgun mættum við gummi og imac hress og kát upp í Kópavogsskóla og sýndum þar 180 nemendum skólans í 6.-10. bekk myndina okkar Lífsins Lengsta Nótt.
Eitthva tók sýningin á taugarnar hjá aðalleikurunum okkar sem helst virtust vilja skríða undir borð til að fela sig á meðan á sýningu stóð. Þau jöfnuðu sig þó þegar á leið og mér skilst að þau hafi einungis fengið jákvæða athygli út á þessa sýningu það sem eftir var dags.
Það var almennt mat manna að sýningin hefði heppnast vel og hefur undirrituð fengið mikið lof fyrir frá ýmsum sem voru viðstaddir sýninguna í morgun. Einhver kvittaði fyrir hönd Kópavogsskóla í gestabókina okkar og þakkaði fyrir eins og sjá má.
Þetta var okkur mikill heiður að fá að sýna myndina í skólanum og erum við þakklát fyrir þær frábæru mótttökur sem við fengum.
Þetta var ekkert svo slæmt Heiður og Jói er það nokkuð?

En þetta spurðist út og í dag hringdi Sigurlín skólastjóri Smáraskóla í mig og bað um að fá sýningu í Smáraskóla líka. Við Gummi erum að sjálfsögðu meira en lítið til í það og stefnum við á að hafa sýningu þar í næstu viku. Verið er að ganga frá nánari tímasetningu núna svo við sjáum hvað setur.

Við erum ákaflega stolt af myndinni okkar og af félaginu okkar og afar þakklát fyrir að fá tækifæri til að monta okkur svolítið ;D

Kveðja
Anna

 

Anna | 12.12.2007, 21:47 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Viðtal vegna LLN

Eins og einhver ykkar hafa vonandi tekið eftir verður opið hús í Meme í þessari viku. Ætlunin er að taka viðtal við sem flesta sem komu að gerð myndarinnar til þess að nota í The Making of Lífsins Lengsta Nótt. Viðtölin verða tekin á þriðjudaginn fyrir senior og á fimmtudaginn fyrir junior.

Svo verður líka opið hús hjá okkur á fundartíma, þriðjudag fyrir senior og fimmtudag fyrir junior. Endilega komið og látið sjá ykkur. Við ætlum að hafa það kósý, spjalla, spila, syngja, taka viðtöl, ræða efnahagsmálin og fleira skemmtilegt :-)

Guðmundur Karl | 10.12.2007, 12:58 - 1 lamb hefur jarmað

Lífsins Lengsta Nótt í Kópavogsskóla

Aðstoðarskólastjóri Kópavogsskóla kom að máli við mig í dag og bað um að við kæmum í heimsókn í skólann og sýndum myndina okkar Lífsins Lengsta Nótt fyrir unglingadeildina, 6. og 7. bekk að morgni 12. desember.
Við erum að sjálfsögðu ákaflega montin af því að vera beðin um að koma með myndina í skólann og eftir smá samningaviðræður við aðalleikarana okkar þökkuðum við kærlega fyrir tilboðið og sögðumst hlakka til að hitta hana á umræddum degi.
Þetta er frábært tækifæri fyrir Meme til að sýna hvað í okkur býr, öflugt kynningarstarf og að ekki sé minnst á hversu gaman það er fyrir okkur að fá að hittast á skólatíma og horfa saman á skemmtilegustu mynd sem gerð hefur verið á Íslandi í áraraðir (okei, Astropía nær reyndar langt upp í þessa en engin önnur kemst með tærnar þar sem okkar mynd er með hælana að mínu mati). - ég er svo hógvær... þið vitið það er það ekki?

Það var rosalega gaman að hitta ykkur í skólaheimsóknunum í vikunni, bæði Kópavogsskóla og Smáraskóla, alltaf gaman að fá að hitta ykkur aukalega og nú kermur enn annað tækifæri.

Kæru leikarar og tæknimenn, þið megið vera stolt af ykkur sjálfum og mér finnst bara magnað að þið fáið að sýna skólafélögum ykkar og kennurum hvað þið eruð búin að vera að afreka í haust.

Þið eruð mögnuð

Kópavogsskóli 12. des baby! Yeah baby yeah!

Anna | 08.12.2007, 00:48 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Stórfengleg Frumsýning

Frumsýningin okkar í kvöld fór langt fram úr okkar viltustu draumum.
Þetta var magnað kvöld! Það voru um 120 manns í salnum okkar í kvöld sem nutu þess að horfa á þessa glæsilegu mynd og skemmtu sér með okkur.
Öll plakötin okkar seldust upp á skot stundu og fólk var að árita hægri og vinstri í langan tíma eftir sýninguna. Ég veit að eitt þeirra kemur til með að fara upp á vegg á Biskupsstofu og annað upp á vegg á skrifstofu ÆSKR. Þetta er glæsilegt.
Amma Jóa kom og gaf honum glæsilegt listaverk með myndum af einhverjum þeim fallegustu kindum sem ég hef séð. Þetta var glæsilegt verk og Jói, þessi líka öðlingur, vill fá að hengja listaverkið sitt upp í kirkjunni okkar svo við öll í Meme fáum að njóta þess.
Þetta er rosalega flott gjöf sem við erum ákaflega montin af að fá að hafa á veggnum hjá okkur.
Um leið og Jón kirkjuvörður mætir til vinnu á þriðjudaginn ætla ég að biðja hann um að hengja þetta upp fyrir okkur.
Takk Jói og takk amma hans Jóa (held hún heiti Fanný - Jói er það rétt?)

Takk Meme fyrir frábært kvöld og frábæra kvikmynd!
Þið eruð æði!
Kveðja
Anna

 

Anna | 07.12.2007, 00:31 - 23 lömb hafa jarmað :-)

Frumsýningarkvöld!!!

Meme group kynnir:

Lífsins Lengsta Nótt

Verður frumsýnd kl 19:30 fimmtudaginn 6. desember í "bíósal" Meme group á neðri hæð Digraneskirkju.

Gengið verður inn blá dregilinn og munu gestir mæta prúðbúnir til frumsýningar því líklegt er að einhverjir ljósmyndarar mæti til að taka mynd af þessum stórviðburði.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir á frumsýningu og þá sérstaklega foreldrar Meme group.

Leyfilegt er að hafa meðferðis gos og sælgæti en einnig verður selt popp og kók á staðnum.
Allur ágóði af þeirri sölu rennur óskiptur til Pragfarar Meme senior enda munu Pragfarar sjá um sölubásinn.

Myndin er sú glæsilegasta sem Meme group hefur gert hingað til og er þetta því viðburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Vonumst til að sjá sem flesta
Anna, Gummi, Guðrún, Stefán Bogi og Friðrik Þór 

Anna | 04.12.2007, 01:54 - 27 lömb hafa jarmað :-)

Frábært Karaokekvöld!!!

Það var fámennt en góðmennt á karaokekvöldi í gær. Það varð þó ekki til að skemma stemminguna því það varð eiginlega bara meira gaman. Allir sem vildu gátu sungið eins mikið og þeir vildu og svo var dansað og fíflast af hjartans lyst.

Ásgerður Lilja bar sigur úr býtum í gærkvöldi en hún var farin áður en úrslit voru tilkynnt svo hugsanlega veit hún ekki enn að hún vann. Hjördís ætlaði þó að færa henni verðlaunin svo vonandi er hún búin að frétta af þessu.

Annars var eiginlega langflottast þegar Anna og Stefán Bogi tóku hið ástkæra lag "Hjálpum þeim" í tilefni af jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. ;o)

Kári átti nokkra góða spretti og sjarmeraði liðið með Elvis Prestley töktum, Didda átti stórkostlegustu sviðsframkomu kvöldsins, við fengum líka geggjaðan skvísu söngflokk sem sló Nylon alveg út! Guðmundur Karl steig líka á stokk og söng hið ástkæra og ákaflega vel við eigandi lag "I'm not a girl, not yet a woman."

Þetta var snilldarkvöld og ég get ekki beðið eftir stóru Karaokekeppninni í vor. Það verður meiriháttar!

Takk fyrir frábæra skemmtun
Minni á að mæta í síðasta lagi 10:45 í messu á sunnudag til að hjálpa til við söfnunina fyrir Hjálparstarf Kirkjunnar.
kvejða
Anna

 

Anna | 30.11.2007, 08:23 - 1 lamb hefur jarmað

Karaoke lögin fyrir keppnina annað kvöld!

Jæja lömbin mín. Þá er komið að því. Karaoke keppni Meme junior.
Keppnin hefst kl 19:30 á morgun og er þetta æfingakeppni þar sem juniorum gefst færi á að þjálfa sig í að skemmta sér og öðrum áður en haldið er í stóru bikarkeppnina eftir áramótin.
Á bikarkeppninni verður úrvalsdómnefnd skipuð landsfrægu fólki en á þessari keppni verða það ykkar ástkæru leiðtogar sem skera úr um hver sigurvegari kvöldsins er. Þess má geta að Stefán Bogi Sveinsson hdl er líka karaoke meistari Uppsala í Svíþjóð árið 2005 og tvöfaldur karaokemeistari Lögfræðinema HÍ.
Meistarinn segir að það sé ekki endilega söngurinn sem skiptir máli í karaoke keppni heldur sé sviðsframkoman aðal málið. Ekki slæmt að ráða Gogo gellur eða boy-toys til að dansa fyrir aftan sig á meðan maður syngur. Svo segir meistarinn og hann veit greinilega hvað hann syngur ;o)

Lögin sem hægt er að syngja á morgun eru sem hér segir:

Ég sjálf - Írafár
Dag sem dimma nátt - í svörtum fötum
Þú fullkomnar mig - sálin hans Jóns míns
Aðeins einu sinni - Kalli Bjarni
Von mín er sú - Land & Synir
All out of luck - Selma
Ennþá - Skítamórall
Láttu mig vera - 200.000 naglbítar
Með allt á hreinu - Stuðmenn
1000 kossa nótt - Bubbi
Ég sé þig - Björgvin Halldórsson
I think of angels -Páll Rósinkranz
Talað við gluggann - Hera

Bohemian Rhapsody - Queen
Hey Baby - DJ Otzi
Reach - S Club 7
Paradise by the dashboard light - Meatloaf
Daydream Believer - The Monkees
Love Shack - The B52's
Macarena - Los Del Rios
Fame - Irene Cara
Like a Virgin - Madonna
Achy Breaky Heart -Billy Ray Cyrus
American Pie - Don McClean
Livin' La Vida Loca - Ricky Martin

Grease - Frankie Valli
Summer Nights - John Travolta & Olivia Newton-John
Hopelessly Devoted to you - Olivia Newton-John
You're the one that I want - John Travolta & Olivia Newton-John
Born to hand jive - Sha Na Na
Sandy - John Travolta
Look at me I'm Sandra Dee - Stockard Channing
Greased Lightning - John Travolta
Tears on my pillow - Sha Na Na
Beauty School Dropout - Frankie Avalon
There are wors things I could do -Stockard Channing
We go together - John Travolta & Olivia Newton-John

Dancing Queen - Abba
Hey Jude - Lennon/McCartney
Total eclipse of the heart - Steinman
Love is all around - Prestley
Sweet Caroline - Diamond
Love me tender - Prestley
Candle In the wind - Elton John
Careless whisper - Micheal
I will always love you - Parton
Satisfaction - Jagger
You're the one that I want - Farrar
Don't go breaking my heart - Orson
Down boy - Holly Valance

I'm not a girl not yet a woman - Britney Spears
One Love - Blue
In your Eyes - Kylie Minogue
You - S club 7
World of our own - Westlife
Colorblind - Darius
Any one of us - Gareth Gates
If tomorrow never comes - Ronan Keating
Got to have your love - Liberty X
Just Like a Pill - Pink
Tide is High (get the feeling) - Atomic Kitten

That's it folks! Veljið nú vel, veljið lög sem þið kunnið meira en bara viðlagið af og skemmtum okkur svo vel saman.
Það verða að minnsta kosti fjórir míkrafónar á sviðinu svo það er flott að fá hópa saman að syngja. Solo-istar líka alltaf flottir.
Leyfilegt að koma með gos og sælgæti en frumskilyrði er að gengið sé frá eftir sig og ruslafötur séu notaðar ;o)
Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna

Anna | 28.11.2007, 22:18 - 1 lamb hefur jarmað

Mission Possible?

Þetta var nú gaman.

Það voru frækin lið sem héldu út í þetta mikla verkefni og komu til baka með hund, spælegg, súkkulaði, steina, afmælisdaga, heimilsföng, starfsmannaskrár, Biblíuvers og margt fleira.

Liðið sem bar sigur úr bítum voru þær Emma og Sísí með 294 stig.
Í öðru sæti voru svo Sólveig, Ásgerður Lilja, Helena og Stasí með 256 stig.
Í þriðja sæti voru svo Kolbrún, Hulda og Lilja sem fengu 254 stig.

Karlpeningur Meme junior virtist ekki vera að standa sig eins vel í þessum leik... hm.. þeir ættu nú eiginlega skilið að fá einhverja sárabót fyrir að hafa farið svona illa út úr þessu....
... þetta var næstum eins slæm meðferð á þeim og þegar Steinar burstaði mig í borðtennis.... næstum.... sjáum hvað setur.... - ef þeir rukka mig um sárbætur á næsta fundi getur verið að ég láti þá fá slíkt.

En á næsta fundi er Karaoke æfinga keppni. Þá má gjarnan hafa með sér eitthvað gotterí, hvort sem er sykrað eða sykurlaust, sælgæti eða ávextir eða grænmeti eða gos eða safi eða mjólkursopi. Það er ekki nauðsynlegt að hafa eitthvað ætilegt með sér en ef maður vill þá er það leyfilegt.

Listi yfir Karaokelögin verður birtur hér á netinu í síðasta lagi á miðvikudaginn.

Takk fyrir góðan fund áðan
Kveðja
Anna

p.s. þeir sem unnu boli í Vatnaskógi, seinni ferðinni, eiga enn eftir að sækja þá til mín. Mætið nú á fund börnin góð og náið í bolina ykkar ;o)

Anna | 22.11.2007, 22:39 - Jarmaðu litla lamb

Mission Impossible

 Jæja þá er komið að því!

Mission Impossible!!!

Annað kvöld kl 19:30 í Digraneskirkju.
Mætið klædd eftir veðri því við verðum ekki bara inni.

Takið hugrekkið með!

Anna | 21.11.2007, 18:45 - 3 lömb hafa jarmað :-)

óvissuferðin afstaðin - smá ruglingur í dagskrauglýsingu...

 Jæja það var skemmtileg óvissuferð sem við fórum í á fimmtudaginn.

Frábært útsýni, margt skemmtilegt að sjá, fengum frábært góðgæti og gáfum öðrum sem ekkert áttu góðgæti með okkur.

Ég fékk líka þvílíkt dekur og notalegheit í rútunni... haus og herðanudd og voða kósý. Alger snilld.

En ég ruglaðist eitthvað í dagskrárauglýsingum, ég hélt að það væri Karaoke á næsta fundi en það er víst ekki fyrr en í lok mánaðar. Ég gleymdi að á milli kemur Mission Impossible. Því má ekki rugla. Það er mæting á venjulegum tíma en núna er alveg nauðsynlegt að mæta í hlýjum fötum því Mission Impossible er útileikur.
Ef veður verður hrikalegt sjáum við til hvort við frestum því og gerum eitthvað skemmtilegt inni í staðinn... en það er bara ef það er alveg hrikalegt.

Karaoke er svo á fundinum þar á eftir ;o)

Afsakið þennan rugling í mér.
Kveðja
Anna

Anna | 18.11.2007, 17:32 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Óvissuferð Meme junior!

 Jæja, þá erum við öll komin úr Vatnaskógi, frábærar ferðir báðar tvær, þó ég hafi reyndar ekki dansað eins mikið í Smáraskólaferðinni eins og í dag með Kópavogs- og Digranesskóla.
Það var nú falleg sjón... var það ekki?


En það er komið að óvissuferðinni okkar. Við leggjum af stað með rútu frá kirkjunni kl 19:30, ekki vera of sein! og við tökum stefnuna beint út í óvissuna!
Við komum aftur heim í Kópavog fyrir klukkan 22:00 og keyrum hring í hverfinu til að enginn þurfi að ganga of langt heim.

Hann Gummi okkar sem venjulega keyrir rúturnar fyrir okkur er að fara til Danmerkur í nótt svo hann getur ekki keyrt en í hans stað fáum við hinn geysimagnaða Þór Bínó sem er nátturlega snillingur í alla staði og margir kannast við úr Vatnaskógi.
Við komum að sjálfsögðu til með að sakna Gumma en gleðjumst yfir að hann fái að skemmta sér í Danmörku og yfir að fá að njóta nærveru Bínósins í staðinn!

Að sjálfsögðu verða Guðrún Þóra og Stefán Bogi á svæðinu og  Anna ballerína!

Vinsamlegast látið foreldra ykkar vita af því að við verðum ekki í húsinu og þau mega gjarnan hafa samband við mig ef þú vilja einhverjar nánari upplýsingar í síma 869-4403.
(en takið eftir því að þó að þau geti fengið nánari upplýsingar þýðir það ekki að þið fáið þær, sama hversu oft þið hringið - foreldrar eru á sérsamning!)

Hlakka til að sjá ykkur og verið nú dugleg að jarma hér á netinu ;o)
Kveðja
Anna

Anna | 14.11.2007, 22:56 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa í dag - jibbý :-)

Já það er kominn 11. nóvember. Það er svo sem ekki frásögur færandi nema fyrir þær sakir að það er kvöldmessa :-)
Messan hefst að vanda kl. 20:00 og er í umsjón Meme group.
Tæknimenn mæta kl. 17:30
Tónlistarfólk mætir kl. 17:45, æfing hefst kl. 18:00
Lestrarhestar og bænafólk mætir kl. 19:00

Ég hlakka ýkt til, verður gaman að hrista eins og eina kvöldmessu fram úr erminni. Fáið endilega ættingja og vini til þess að mæta, það verður nefnilega gaman í kvöld.

See yah :-)

Guðmundur Karl | 11.11.2007, 14:52 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Bænaganga í dag kl. 14

Ég vildi vekja athygli ykkar á Bænagöngunni sem farin verður í dag. Farið verður frá Hallgrímskirkju kl. 14 og gengið niður á Austurvöll. Þar verður stutt samvera. Markmiðið er að biðja saman gegn myrkrinu.
Kl. 18 í dag verður svo Lofgjörðarstund í Laugardalshöllinni, fullt af fólki og mikið fjör.

Nánari upplýsingar er að finna á www.baenaganga.com.

Ég hvet ykkur öll lömbin mín tl þess að mæta :-)

 

Guðmundur Karl | 10.11.2007, 11:35 - 1 lamb hefur jarmað

Kvöldmessa og æfing fyrir hana

Jæja, þá er keilumótinu lokið. Við vorum ekki með þvílíka yfirburði eins og í fyrra þó við hefðum verið fjölmennust (að minnsta kosti háværust) á svæðinu. Þökk sé Birni héldum við þó 1. sætinu, en hann var með heil 130 stig. Leiðtogakeppnin fór því miður ekki eins og áætlað var og lenti Friðrik í 3. sæti og Stefán Bogi í 4. sæti. Það þarf varla að taka það fram að þar sem undirritaður var á bakvið myndavélina tók hann ekki þátt, annars hefðum við vafalaust rúst... eða kannski ekki.

En það er kvöldmessa á sunnudaginn kl. 20:00 að vanda. Æfing fyrir hana verður á fimmtudaginn og hefst kl. 17:30 í Digraneskirkju. Þangað er mikilvægt að hljómsveit, tónlistarmenn og tæknimenn mæti. Tæknimenn þurfa að mæta kl. 17:00 til þess að setja upp kerfið.

Á sunnudaginn er svo mæting kl. 17:45 og æfing hefst stundvíslega kl. 18:00. Tæknimenn mæta 17:30.
Bænafólk og lestrarhestar mæta í Digraneskirkju kl. 19:00 á sunnudaginn.

Viðbót: Myndir frá keilumótinu eru komnar inn í myndasafnið.

Guðmundur Karl | 07.11.2007, 10:19 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Keilumót ÆSKR

Keilumót ÆSKR verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð þriðjudaginn 6. nóvember. Farið verður með rútu frá Digraneskirkju kl. 19:15. Verð: 500 kr.

Í fyrra áttum við efstu sætin og því er mikilvægt að mæta og halda uppi heiðri Meme.

Sjáumst á þriðjudaginn :-)

Guðmundur Karl | 04.11.2007, 17:21 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Ljós í myrkri

 Jæja, þá er komið að því, ljós í myrkri.

Ef það er gott veður er hugsanlegt að við verðum úti með Ljós í myrkri, en ef það er leiðinlegt veður verðum við inni.
Annars finnst mér eiginlega innileikurinn skemmtilegri svo ég býst við að við verðum bara inni... á enn eftir að taka endanlega ákvörðun, hún fer eftir veðurfari.

Hlakka til að sjá ykkur
Múhahaha
Anna

Anna | 31.10.2007, 11:35 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Talsetning: Meme junior

Það var einn kaldan fimmtudag á síðasta ársfjórðingi þessa árs að maður sem venjulega gengur undir nafninu Gummi var beðinn að mæta á fund hjá Meme junior. Forstjóri Meme group ásamt Creative Director/Forstöðumanni Leikjasvið höfðu forfallast og gripu því til þessa örþrifaráðs. Ekki átti þessi gjörningur að hafa neikvæð áhrif þar sem S.B.S. hdl, forstöðumaður Hugleiðingasviðs, forstöðumaður Greiningardeildar og ráðgjafi Meme group og Benedikts XVI Páfa, yrði einnig á staðnum. Forstjórinn lofaði jafnvel skemmtilegum fundi, en óraði ekki fyrir því sem koma skyldi.

Síðar kom hið sanna í ljós...

Umræddur Gummi ásamt S.B.S. hdl ræddust við í síma þennan fimmtudag og voru báðir undir miklum þrýstingi að uppfylla gefin loforð forstjórans. Þeir vildu gera sitt besta og um kl. 18:02 kom Hugmyndin, sú sem átti eftir að breyta öllu.
Þeir félagar ákváðu að talsetja teiknimyndina Madagaskar upp á nýtt. Fjögur saklaus lömb sem tilheyrðu hjörðinni mættu á svæðið og skemmtu sér allir konunglega. Teiknimyndin var talsett upp á nýtt, en vegna bágs kostar reyndist ekki unnt að taka gjörninginn upp. Fundurinn endaði á helgistund uppi í kirkju þar sem sungið var af fullum krafti og hlustað á Guðs orð.

Takk fyrir fundinn :-)

Guðmundur Karl | 27.10.2007, 07:22 - 1 lamb hefur jarmað

Fundur á fimmtudaginn

Þrátt fyrir vetrarfrí verður fundur hjá Meme junior. Ég veit að það verða margir í úglöndum en þeir sem verða heima eru velkomnir í kirkjuna að skemmta sér vel.

Hittumst og höfum stuð!

kveðja
Meme junior leiðtogar!
 

Anna | 23.10.2007, 15:16 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Klippingar í gangi

Nú erum við Anna að byrja að klippa myndina. Við erum með góðar fréttir og slæmar fréttir...


Góðu fréttirnar eru að við skemmtum okkur konunglega við þetta og myndin á eftir að verða cool.

Slæmu fréttirnar eru þær að við erum búin að fara í gegnum 60 mín af efni og strax búin að rekast á tvö atriði sem þarf að taka upp aftur. Alls voru teknir upp 10 tímar af efni, eða 600 mínútur. Það skal tekið skýrt fram að enn hefur kossaatriðið ekki verið skoðað, þó líklegt megi telja að það þurfi að endurtaka...


Meira síðar.

Guðmundur Karl | 20.10.2007, 16:28 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Auglýsingagerð lokið

 Jæja, í gær kláruðum við auglýsingarnar. Bjuggum til fallegar auglýsingar um girnilegt súkkulaði og fleira til.

Það var fámennt en góðmennt á fundinum og við áttum ágæta stund í kirkjuni á eftir þar sem við sungum (nokkuð oft...) hið undurfagra lag Kumba ya!

Margir fengu smá súkkó smakk og einungis 10% neitenda varð meint af ;o)

Næsta fimmtudag verður leikjafundur í umsjón Stefáns Boga og Guðmundar Karls, bakkabræðra með meiru. Endilega fjölmennið á þann merkisviðburð.

Takk fyrir skemmtilegt kvöld í gærkvöldi
kveðja
Anna

Anna | 19.10.2007, 09:12 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Upptökum kvikmyndarinnar er lokið!!!

 Jæja þá er komið að því.

Upptökum myndarinnar sem enn er kölluð "Ævintýri á jólanótt" er lokið.

Einungis á eftir að taka upp auglýsingar og slíkt sem verður sýnt á undan myndinni sjálfri. Upptökur gengu vonum framar og allir sem áttu hlut að máli stóðu sig með eindæmum vel.

Leikarar voru til sóma, ljósamenn, hljóðmenn og myndatökumaður voru sannar hetjur. Förðunardömur og aðrir sviðsmenn voru frábærir og allt gekk ótrúlega vel.

Sama hvar við komum voru allir sem með okkur fóru til sóma og við erum stolt af því að kalla ykkur æskulýðsungmenninn okkar.

Hvað nafninu viðkemur þá er eitt nafn sem stendur efst í leitinni að nýjum titli og er það nafnið "Lífsins lengsta nótt."
Hvernig legst það í fólk?

Nú er bara að fara að klippa og það verðum við Guðmundur Karl og Guðrún Þóra sem gerum það. Hlakka ekkert smá til að kíkja á upptökurnar.

Ég elska ykkur öll og er ótrúlega stolt af ykkur
Kveðja
Anna

Anna | 16.10.2007, 23:25 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Breytingar á upptökuplani

 Jæja vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur orðið smá breyting á upptökuplani.


Við tökum upp í Kópavogsskóla kl 16:00 á morgun þriðjudaginn 16. október!

Mæting er í matsal Kópavogsskóla á slaginu 16:00 og upptökur hefjast tíu mínútum síðar.
Það þarf mikið af fólki í þessa senu. Allir sem eru með hlutverk sem einhverjir af bekkjarfélögum Amelíu og Lúkasar verða að mæta og fleiri til. Við þurfum fullt af fólki til að vera sviðsmenn og fullt af fólki til að vera í bakgrunni í skólanum.
Þetta er umfangsmesta atriðið sem við tökum upp og mikilvægt er að allir mæti.

Þetta er eina breytingin frá upptökuplaninu og biðjum við ykkur um að skoða það vel til að athuga hvar þið eigið að vera og hvenær.

kveðja
Anna og Gummi
leikstjórar Meme movie

Anna | 15.10.2007, 15:43 - 20 lömb hafa jarmað :-)

Myndirnar komnar á netið

Gömlu stuttmyndirnar okkar, Meme's Next Top Model og What Would Jesus Do? er nú aðgengilegar á vefnum hér til vinstri undir Stuttmyndir. Það var Árni Inaba sem gerði okkur kleyft að birta þetta á vefnum og færum við honum að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir.

Guðmundur Karl | 14.10.2007, 22:24 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa í dag!

 Ok... þetta er skrifað um miðnætti svo það er á morgun fyrir mér og þeim sem enn eru vakandi...
En fyrir þeim sem eru duglegir að fara snemma að sofa og voru að vakna til að lesa þetta þá er það í dag... s.s. sunnudaginn 14. okt.

Messan hefst kl 20:00 á slaginu og verður mikið fjör.
Tónlistarhópur þarf að vera mættur og tilbúinn að byrja æfingu kl 18:00 - sem þýðir að þá verður að vera búið að stilla upp hljóðfærum og öðru sem til þarf.
Tæknimenn þurfa að mæta kl 17:30 til að allt sé klárt þegar tónlistarhópur byrjar æfinguna sína.
Lesarar þurfa að vera mættir kl 19:45 - 19:30 ef þeir eru ekki búnir að æfa sig nóg að lesa heima. Blöðin fáið þið í kirkjunni hjá mér eða Yrsu.
Bænaborðshópur þarf að vera mættur kl 19:00 til að gera bænaborðið tilbúið.

Eftir messuna ætlum við að rokka pínustund og taka upp fjölmennara atriði með fólki að syngja og dansa í salnum við lagið "Föndurstund".

Vonast til að sjá sem flesta.
Kveðja
Anna

Anna | 14.10.2007, 00:04 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Allir á fætur

Jæja, þá er kominn laugardagsmorgun og við á leiðinni í IKEA. Drífið ykkur nú á fætur elskurnar mínar þið sem eruð að koma með okkur....

Nei, Sigrún Jóna, ekki skríða aftur upp í. Farðu á fætur!

Þetta var betra, já og Jói, flýttu þér líka...

Nei, Jói, ekki fara í tölvuna núna. Við erum að drífa okkur

Sjáumst eftir 45 mín :-)

Guðmundur Karl | 13.10.2007, 07:20 - 18 lömb hafa jarmað :-)

Hefur einhver fundið myndavél?

ATH!!!
Hún Sigrún Gróa var með myndavélina sína í kirkjunni í gær en lagði hana frá sér á tæknimannaborðið þegar rafhlaðan tæmdist.
Svo fór hún heim og gleymdi henni þar. Ég hef leitað hátt og lágt í kirkjunni í dag og finn hana hvergi. Ef einhver hefur séð hana þá er hinn sami beðinn um að hringja í Sigrúnu Gróu í síma: 698-5120.
Á myndavélinni eru gögn sem Sigrún Gróa þarf að skila af sér í dag svo ef einhver veit eitthvað um hvar myndavélin gæti verið þá væri það vel þegið að fá að heyra af henni.
Kveðja
Anna

 

Anna | 12.10.2007, 13:29 - 18 lömb hafa jarmað :-)

Upptökuplan

Hér kemur til ykkar upptökuplan fyrir myndina. Vinsamlega skoðið þetta vandlega og passið að mæta þar sem ykkar er þörf :-)

Smelltu hér til þess að skoða planið

Guðmundur Karl | 10.10.2007, 23:12 - 28 lömb hafa jarmað :-)

Breytingar framundan á jarma.net

Mikið hefur borið á árásum erlendra hakkara á síðuna okkar. Þetta hefur lýst sér þannig að mikið af kommentum koma á fréttir og í gestabók. Með klækjum hefur mér tekist að sía út megnið af þessum skilaboðum en þó er enn talsvert sem sleppur í gegn.

Vegna þessa er nú verið að vinna að því að setja lykilorð á komment og gestabók. Þá munu Meme krakkar fá lykilorð sem þarf að nota til þess að skrá komment. Meiri upplýsingar um þetta síðar. Í kerfinu verða líka einingar eins og t.d. afmælisbarn dagsins.
Þá er vert að taka fram að nýtt útlit mun væntanlega líta dagsins ljós innan tíðar.

Viðbót:
Það er rétt að taka fram að hugmyndina að þessari breytingu á Harpa Lilja Björnsdóttir og fær hún bestu þakkir fyrir framlag sitt til vefmála fyrirtækisins :-)

Guðmundur Karl | 10.10.2007, 12:52 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Til foreldra og forráðamanna unglinganna í Meme-group

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Ég biðst innilega afsökunnar á að skila börnunum ykkar svona seint heim eftir upptökur í gær. Við færðumst full mikið í fang og vorum of lengi að. Málið var að við höfðum leigt ljósabúnað fyrir upptökurnar sem þurfti að nota í nokkur atriði en honum þarf að skila strax á morgun. Eins þurfti að klára atriðin sem átti að taka upp í Forvarnarhúsinu því það höfðum við líka bara í dag. Ég áttaði mig ekki sjálf á hversu langan tíma þetta myndi taka fyrr en það var orðið of seint.

Þar sem klukkan var orðin svona margt þá ákváðum við að keyra alla heim að dyrum til að enginn þyrfti að ganga heim svona seint að kvöldi. Það tók lengri tíma en ef allir hefðu gengið heim frá kirkjunni en mér fannst annað ekki hægt. Þegar ég var búin að vera með þau svona lengi úti gat ég ekki annað en fylgt þeim öllum heim.

Það er algerlega óafsakanlegt að við skyldum vera svona lengi að og mér finnst hræðilegt til þess að hugsa að ég hafi brotið þetta traust sem þið hafið alltaf sýnt okkur með því að leyfa okkur að þvælast um bæinn með börnin ykkar.

Ég lofa ykkur því að þetta kemur ekki fyrir aftur og vona að ég hafi ekki algerlega eyðilagt það traust sem hefur ríkt á milli okkar.

Við eigum enn eftir þó nokkuð í upptökum en engan upptökudag eins flókinn og þann sem nú er að baki. Ég læri af þessari reynslu að undirbúa upptökudagana betur og skipuleggja færri atriði á hvert kvöld.
Við eigum enn eftir að taka nokkur atriði á stöðum sem við fáum lánaða líkt og í Forvarnarhúsinu en þau atriði eru öll tekin upp að degi til eða snemma að kvöldi til. Allar kvöldtökur aðrar, utan eina, fara fram í Digraneskirkju sem lokar alltaf kl 22:00 í síðasta lagi svo þetta kemur ekki fyrir aftur. Ein kvöldtaka verður utan Digraneskirkju og hún er á þriðjudaginn eftir viku. Í þeirri töku eru örfáir sem taka þátt og það eru bara tvö atriði svo það ætti ekki að taka svona langan tíma. Þeir sem ekki eru í atriðinu fá að eiga almennan æskulýðsfund í kirkjunni.

Enn og aftur bið ég ykkur innilega afsökunnar á þessu og lofa að þetta endurtekur sig ekki.
Ef einhver vill ræða þetta frekar við mig þá er velkomið að hringja í mig í síma 869-4403.
Ég þarf að hafa slökkt á símanum mínum á morgun (miðvikudag) kl 13:00 – 14:30 vegna vinnunnar en aðra tíma ætti að vera hægt að ná í mig.

 Ég vil jafnframt fá að biðja kennarana í skólunum þremur, Kópavogsskóla, Digranesskóla og Smáraskóla, afsökunnar og ég vona að unglingarnir verði ekki of þreyttir í skólanum á morgun.

 Kær kveðja með mínum innilegustu afsökunarbeiðnum
Anna Arnardóttir
Æskulýðsfulltrúi Digraneskirkju
S: 869-4403
anna (hjá) digraneskirkja.is

Anna | 10.10.2007, 01:55 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur hefjast - loksins!

Þriðjudagur 9. október

Upptökur í Forvarnarhúsi og fyrir utan Hrísrima.

Rútan fer frá Digraneskirkju kl 19:00 og keyrir fólk heim um 22:00.

Mætið tímanlega, við höfum ekki tíma til að bíða eftir fólki.

Atriði tekin upp:

Allt í herbergi Amelíu (6 atriði). Amelía kemur heim úr skólanum, Amelía hittir Bjarna, Amelía hittir Anda 1, Amelía hittir Anda 2, Amelía hittir Anda 3 og Amelía vaknar.

Náttfatapartý heima hjá Freyju.

Fyrir utan heimili Lúkasar kvöldið sem pabbi hans dó

Persónur og leikarar sem þurfa að koma:

Amelía (Heiður), Bjarni (Jóhann Örn), Andi 1 (Beta), Andi 2 (Klara Rakel), Andi 3 (Birnir), Mamma Lúkasar (Didda), Sr. Hansi (Orlando Bloom), Freyja (Harpa), Steinunn (Sigrún Gróa), Stína (Andrea Kristín), Lísa (Linda), Þórður (Ólafur Heiðar), Bjartur (Bjarki Bjarnason).

Búningar:
Amelía: Skólaföt (frekar flott því Amelía er fín með sig), Náttföt (náttbuxur og bolur/skyrta, eitthvað hlýtt því Amelía þarf að vera úti á náttfötunum í myndinni).

Bjarni: gallabuxur og bolur eða flónelskyrta (ef einhver á svoleiðis þá endilega taka hana með)

Andi 1: Frekar frjálst en gott að vera í einhverju sem ekki er í týsku því þetta er andi þess liðna.

Andi 2: Jólahúfa (er hjá mér ég tek hana með), eitthvað sætt t.d. pils eða slíkt, Eitthvað sem er í týsku því þetta er andi nútíðar.

Andi 3: Svartar buxur, svartir sokkar, svartir skór. (ég kem með rest)

Mamma Lúkasar: Eitthvað konulegt ef getur reddað. Svo setjum við upp á henni hárið og málum hana.

Sr. Hansi: Svört prestaföt og kragi (þó ekki pípukragi bara venjulegur)

Þórður og Bjartur: Venjuleg föt, helst frekar töff því þeir eru flottustu strákarnir í skólanum.

Stelpur í partý: Náttföt, siðsamleg!!! Ekki of stutt og ekki of flegin.

Tæknimenn:Hljóðmenn (Þórður og Sigrún Jóna), myndatökumaður (Kári), Ljósamenn (Ari Jóhannesson og Guðmundur Óli, Ólafur Heiðar). Sviðsmenn – allir sem komast.

Förðun: Ásgerður Lilja, Helena, Ásdís.

Það sem þarf að taka með: Við auglýsum eftir plakötum og einhverju fleiru til að hengja á veggina í herbergi Amelíu. Ég á ekkert slíkt og ef ég ætti það þá væru bara myndir af Aragorn og Will Turner og ég hef grun um að Amelía myndi velja eitthvað annað...
Endilega takið eitthvað með til að herbergið hennar verði sem eðlilegast.

Annað, okkur vantar líka förðunarvörur. Gott væri ef förðunardömurnar ættu eitthvað sem hægt væri að taka með, aðrir sem ekki eru að farða en eiga eitthvað mega gjarnan taka með frá sér líka. Sjálf á ég lítið sem ekkert og er því í vandræðum.

Allir sem vilja vera með eru velkomnir að koma með og horfa á en það þarf að haga sér vel og hlýða því sem sagt er. Þetta er stórt verkefni og ekki hægt að vinna svona nema með samvinnu frá öllum. Vantar hjálp frá eins mörgum og geta.

 

Miðvikudagur 10. okt.

Upptökur í Smáralind kl 19:00- ca. 20:30

Mæting kl 18:45.

Atriði:

Allir í bænum með Anda 2. og Mamma og Pabbi Amelíu á kaffihúsi.

Nánari upplýsingar síðar.

 

Fimmtudagur 11. okt

Upptökur í Digraneskirkju á venjulegum fundartíma.

Nánar auglýst síðar.

 

Laugardagur 13. okt.

Upptökur í IKEA kl 8:30 – 10:00 – rútan fer kl 8:15.

Atriði:

Í eldhúsi Amelíu, í svefnherbergi mömmu Lúkasar og Amelía einmanna á afmælinu sínu.

Nánari upplýsingar síðar. 

Nánari upplýsingar um næstu viku koma bráðlega. 

Vonast til að sjá sem flesta. Ef einhverjir geta ekki mætt kvöldin sem þeirra atriði eru þarf ég að vita það strax. Er þegar búin að sjá að einhverjir eiga í vandræðum strax fyrsta upptökukvöldið.
Vandinn er að við erum upp á aðra komin hvað varðar tækni og upptökustaði og getum því ekki breytt upptökudagsetningum né heldur farið aftur á suma staðina til að taka upp einhvern sem ekki komst. Því miður.

Þannig að ef einhver ekki kemst þá er líklegt að sá hinn sami / sú hin sama missi hlutverkið sitt. Það er ákaflega leitt en þannig verður það að vera.

Endilega reynið að mæta. Stundum getur verið nóg að mæta bara smá stund og þá hægt að hagræða kvöldinu þannig að viðkomandi sé fyrst(ur) í upptökum og nái að klára sitt og fara svo eða koma seint og vera síðastur. Það er allt eitthvað sem þarf að ræða við mig eða Guðmund og athuga hvort hægt sé að athuga.

Hlakka rosalega til að byrja á morgun
Kveðja
Anna

 

Anna | 09.10.2007, 00:27 - 22 lömb hafa jarmað :-)

Meme-group á morgun + söngæfing.

 Já, á morgun er fyrsta æfingin hjá nýja sönghópnum.
Þ.e. Andrea Rakel, Birna, Harpa Lilja, Heiður, Ingibjörg Andrea, Jói Örn, Jói Hauks, Linda, Sigrún Gróa.
Við hittumst kl 17:30 í kapellunni. Spjöllum saman, spáum í veturinn og æfum ný og gömul lög. Æfingin stendur til 19:30 og þá tekur sameignlegur Meme-group fundur við.

MEME - GROUP fundur

Kvikmyndagerð!

Sameiginlegur fundur á morgun. Juniorar skoða hliðarverkefni sem á að vinna í samhliða bíómyndinni með Stefáni Boga og Gumma. Þeir sem eru komnir með hlutverk í myndinni æfa atriðin sín, sviðsmenn, tæknimenn og þeir sem ljúka snemma við að æfa sín atriði vinna í sviðsmynd.

Þeir sem eru á sönghópsæfingu og koma svo beint áfram á Meme-group fund þurfa að hafa með sér nesti. Ekki verður boðið upp á snæðing að þessu sinni. Því miður.

Anna | 03.10.2007, 23:43 - 16 lömb hafa jarmað :-)

Strætóratleikur

 Jæja þá er skráningu lokið og eftirfarandi lömb eru nú saman í liði til að sigra heiminn fyrir Meme-group í strætóratleiknum mikla:

Ingibjörg Andrea, Indí, Ásgerður, Þórður, Ólafur Örn, Robbi, Jón Bjarni, Árni, Eiríkur og Andrea Krisín.

Guðmundur Karl hittir ykkur í Grensáskirkju kl 11. Ekki vera of sein (Grensáskirkja er við hliðina á Austurveri, fyrir ofan sjoppuna bláa turninn og rétt ofan við Kringluna).
Öllu er lokið kl 17:00 og þá er matur í Grensáskirkju fyrir þátttakendur.

Verið klædd eftir veðri og gerið okkur nú stolt!

Kveðja
Anna

Anna | 03.10.2007, 23:35 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Áríðandi - strætóratleikur ÆSKR

Á laugardaginn kemur verður strætóratleikur ÆSKR haldinn. Þetta er skemmtilegur leikur sem ALLIR verða að taka þátt í af því það verður geggjað gaman.

Leikurinn hefst í Grensáskirkju klukkan 11:00 og honum lýkur kl. 17:00. Að leik loknum verður boðið upp á veitingar í safnaðarheimili Grensáskirkju.

Mæting er í Grensáskirkju kl. 10:50

Skráning er í kommentum á þessari frétt fyrir kl. 23:00 miðvikudaginn 3. október.

Guðmundur Karl | 03.10.2007, 00:26 - 27 lömb hafa jarmað :-)

Hlutverk í kvikmyndinni

Jæja, þá erum við loks búin að setja niður hlutverk í myndina. Þetta var allt annað en létt verk þar sem margir MJÖG hæfileikaríkir sóttust eftir sumum hlutverkunum. Við urðum þó að velja á endanum og vonum svo sannarlega að allir verði sáttir. Athugið að handritinu hefur einnig verið breytt lítilsháttar í samræmi við kynjahlutverk.

www.jarma.net/files/handrit.pdf

Við komum ekki til með að ræða einstök hlutverk eða rök sem liggja á bakvið val okkar hér á vefnum.

Listinn er eftirfarandi:

Hlutverk Leikari  
Amelía Heiður
Lúkas Jói Hauks
Andi 1 Beta Skagfjörð Nú kvenhlutverk
Andi 2 Klara Rakel  
Andi 3 Ólafur Heiðar / Birnir
Bjarni Jóhann Örn
Mamma Lúkasar Didda
Pabbi Amelíu Stefán Bogi Sveinsson, hdl.
Mamma Amelíu Ingibjörg Andrea
Rósa Ingibjörg Ósk
Kennari Andrea Rakel
Lísa Linda
Freyja Harpa Lilja
Stína Andrea Kristín
Steinunn Sigrún Gróa
Þórður Ólafur Heiðar
Bjartur
Hjalti Freyr

Hanna Telma Hét áður Hannes.
Nú kvenhlutverk
Lovísa Oddný  
Ólöf Maja
Karlotta Tinna
Katrín Anna Diljá
Arna Birna Hét áður Aron.
Nú kvenhlutverk
Sigurður Óli  
Magnús Sindri
Sölvi Hrannar
Þjónn á kaffihúsi Indí
Stúlka 1 Ásgerður Áður Drengur 1.
Nú kvenhlutverk
Stúlka 2 Helena Áður Drengur 2.
Nú kvenhlutverk
Aníta Ólöf Lena Inaba  
Amelía lítil
Iðunn
Lúkas lítill
Ríkharður
Jólasveinn Guðmundur Karl
Staðgengill Amelíu Klara Rakel
Sr. Hansi
Orlando Bloom
Hljóðmenn Sigrún Jóna
Þórður
Ljósamenn Ari Jóhannesson
Guðmundur Óli
Ólafur Heiðar
Myndataka Kári
Förðun
Lilja, Helena, Ásdís


Guðmundur Karl | 03.10.2007, 00:17 - 74 lömb hafa jarmað :-)

Hlutverk í myndinni

Smelltu hér til þess að skoða hlutverkaskrá

Guðmundur Karl | 02.10.2007, 21:53 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Kvikmyndagerð !!!

Frábærar fréttir!!!!
Við erum komin með leyfi til að taka upp myndina okkar í Kópavogsskóla, í Smáralind, í Forvarnarhúsinu og í IKEA!!!!!
Bara snilld
Varð bara að fá að deila þessu með ykkur!
Kveðja
Anna

 

Anna | 01.10.2007, 17:06 - 38 lömb hafa jarmað :-)

Handrit að kvikmyndinni

Jæja, þá er komið að því. Handritið er komið inn. Hægt er að nálgast það á þessari vefslóð:

www.jarma.net/files/handrit.pdf

Áheyrnarprufur verða á þriðjudaginn í Digraneskirkju á senior fundi. Athugið að hér er um að ræða handritið að myndinni, einnig verða tekin upp hliðaratriði sem sýnd verða á undan myndinni, eins konar auglýsingar, og verða þau að mestu í höndum Meme junior.

Skoðið handritið, veljið atriði og æfið. Svo verður gaman að sjá hver fær hvað. Það er alveg hugsanlegt að þið verðið sett í annað hlutverk en þið lesið í prufunum. En eitt er ljóst: Allir fá að vera með sem það vilja, juniorar jafnt sem seniorar.

Það er rétt að taka fram að til þess að geta lesið skjalið þarf að vera með Adobe Reader uppsettan í tölvunni. Smellið hér til þess að sækja hann.

Guðmundur Karl | 30.09.2007, 19:50 - 41 lömb hafa jarmað :-)

Kvikmyndagerð

Nú fer að líða að kvikmyndagerðinni.
Handritið er næstum tilbúið. Því verður lokið á morgun og fyrir miðnætti á sunnudagskvöld verður handritið birt hér inni ásamt lýsingum á helstu persónum.
Það eru 21 hlutverk sem þarf að velja leikara í fyrir utan aukahlutverk.
Auk þess erum við að vinna að hliðarverkefnum sem verða að öllum líkindum alfarið í höndum Meme-junior.

Spennan magnast.
Fylgist með.....

 

Anna | 29.09.2007, 12:19 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Allt fyrir ástin

 Já, það var fjör á kærleiksfundinum okkar.

Mörg bréf voru skrifuð. Færri en ég átti von á fóru þó til foreldra, ömmu og afa eða til einhvers sem hefur virkilega unnið sér inn ást og alúð ykkar. Mun fleiri en ég átti von á fóru til annarra einstaklinga í félaginu.

Við ræddum um það hversu erfitt það er oft að segja öðrum að okkur þyki vænt um þau. Margir tóku þá upp á því að gala það yfir fundinn en áttuðu sig ekki á því að það er mikið auðveldara að gera það í fíflagangi heldur en í alvöru.

Áskorun mín til ykkar allra er að ganga upp að einhverjum sem skiptir ykkur miklu máli í lífinu. Einhverjum sem er alltaf til staðar fyrir ykkur og segja honum/henni hvað ykkur þykir vænt um hann/hana.

Góðverkakeppnin er hafin. Ég vona að allir séu að vinna í því.
Á mánudagsmorgun eiga allir kennararnir ykkar að vera búin að frétta af þessari keppni og vonandi þau geti hjálpað ykkur og leyft ykkur að gera góðverk í kennslustofunni. Verið svo endilega dugleg að gera góðverk utan kennslustofunnar líka.
Nokkrir drengir byrjuðu strax á fimmtudagskvöldið og hjálpuðu okkur leiðtogunum að ganga frá eftir Meme-fundinn.
Sýnið nú hvað í ykkur býr.

Kveðja
Anna

Anna | 29.09.2007, 12:11 - 1 lamb hefur jarmað

Mikið fjör á Kópavogsdegi Hjalla- og Digraneskirkju

Í gær, fimmtudag, var haldinn sameiginlegur fundur Meme group og æskulýðsfélagsins í Hjallakirkju. Við röltum niður í dal þar sem hópurinn, sem samanstóð af um 60 unglingum, átti að leysa nokkrar þrautir. Þær voru misjafnlega erfiðar og misjafnlega blautar. Þegar reynt hafði verið á þolrifin eins og aðstæður leyfðu var haldið í Hjallakirkju þar sem boðið var upp á grillaðar pylsur. Það kom reyndar í ljós að um helmingur hópsins taldi rétt að tala um pulsur, en niðurstaðan var engu að síður sú að þær brögðuðust bara alveg jafn vel :-)

Við enduðum í helgistund inni í kirkjunni og allir héldu heim á leið kl. 22 eftir skemmtilegan fund.

Við þökkum Hjallakirkju fyrir samveruna og vonumst til að geta hitt þau aftur.

Guðmundur Karl | 21.09.2007, 08:36 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Kópavogsdagurinn á morgun, fimmtudag

Á morgun, fimmtudaginn 20. september, ætla æskulýðsfélögin í Digraneskirkju og Hjallakirkju að sameina krafta sína á sameiginlegum fundi. Farið verður frá Digraneskirkju kl. 19:30. Við komum til með að fara í skemmtilegan ratleik um dalinn og endum í pylsuveislu og helgistund í Hjallakirkju.


Mætum öll hress og kát og klædd eftir veðri :-)

Guðmundur Karl | 19.09.2007, 21:04 - Jarmaðu litla lamb

Skemmtilegur fyrsti fundur

 Það var mikið fjör á fyrsta fundi meme junior.

Þangað mættu 12 drengir en engin stúlka. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef verið með strákafélag. Það var skemmtileg upplifun.
Þetta var sem fyrr segir fámennt en mjög góðmennt.
Við skemmtum okkur konuglega við að lumbra hver á öðru, þó allt í góðu og enginn meiddist alvarlega, þó að spurning væri hvort að Jón Bjarni myndi missa auga þarna á tímabili. Það fór þó allt betur en á horfðist og allir kátir á eftir.

Við fórum í fleiri leiki, í billiard, borðtennis og fótboltaspil auk þess sem við horfðum á brot úr stuttmyndagerð síðustu ára og ræddum um dagskrá vetrarins.

Við enduðum svo uppi í kirkju eins og venjan er og spjölluðum þar saman í nokkra stund.

Ég held að ég hafi sjaldan átt svona skemmtilegan fyrsta fund. Það var ekkert vesen og enginn með leiðindi bara allir glimrandi glaðir og skemmtilegir.

Ég sé fram á mjög skemmtilegan vetur ef þetta heldur svona áfram því það er hægt að gera svo miklu skemmtilegri hluti með fólki sem er svona til í að skemmta sér með okkur heldur en með fólki sem er með stöðugt vesen.

Hlakka til að hitta ykkur aftur strákar.
Verið nú duglegir að skrifa í gestabókina og spjalla hér á síðunni, ekkert gaman þegar við Gummi erum hér ein. - Gummi minn, þú ert samt líka rosalega skemmtilegur ;o)

Á næsta fundi er svo karamelluspurningakeppni. Ég mæti ekki á þann fund þar sem ég ætla að vera í úglöndum - ef það verður flogið það er að segja..... vonum það....
Laufey og Stefán Bogi verða þó á staðnum í fullu fjöri.

Sé ykkur eftir rúma viku

kveðja
Anna

Anna | 09.09.2007, 23:11 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsti vetrarfundur Meme junior

Starf Meme junior hefst aftur fimmtudaginn 6. september kl. 19:30. Fundurinn verður í Digraneskirkju. Húsið opnar kl. 19:00.
Dagskrá Meme junior kemur á netið næstu daga og þá er hægt að sjá hvað er í boði í flottasta æskulýðsfélagi á Íslandi.
Meme junior er hluti af æskulýðsfélagi Digraneskirkju sem heitir Meme group. Því er skipt í tvö félög, Meme junior sem er fyrir 8. bekk og svo Meme senior sem er fyrir 9-10. bekk. Við erum oft með sameiginlega fundi og uppákomur fyrir bæði félögin, s.s. karaoke keppni, febrúarmót ÆSKR, árshátíð o.fl.

ÞÚ átt að mæta og kynnast besta æskulýðsfélagi í heimi :-)

Guðmundur Karl | 27.08.2007, 17:24 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Logos II - bóka- og kristniboðaskip

Í gær fórum við í Meme saman um borð í skipið Logos II sem liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Skipið siglir um öll heimsins höf og boðar trúna á Jesú Krist í gegnum ýmsi konar starfsemi, söng, leik og dans auk þess sem um borð er bókamarkaður þar sem m.a.a eru seldar kristilegar bækur og geisladiskar.

Í gær var sérstök ungmennasamkoma og var vel mætt, en við vorum 20 frá Meme. Boðið var upp á dans, leikþátt og vitnisburði auk tónlistar sem stórgóð unglingahljómsveit úr Krossinum sá um að flytja. Vitnisburðirnir komu víða að, frá Mexíkó, Jamaíka og Kanada en boðskapurinn alltaf sá sami. Ef við tökum á móti Jesú, treystum honum og gerum það sem hann biður okkur um þá mun allt fara vel. Guð hefur áætlanir fyrir okkur öll og getur unnið kraftaverk í öllum hvort sem við erum grunnskólanemendur í Kópavogi eða kókaínsalar í Mexíkó.

Þið getið fræðst meira um skipið og systurskip þess á heimasíðunni www.omships.org

Um samtökin sem reka skipið eru m.a. upplýsingar á síðunni www.om.org eða www.fo.om.org (Færeyjar) og www.dk.om.org (Danmörk).

Stefán Bogi | 25.08.2007, 08:41 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Einusinni á ágústkvöldi...

... samt ekki austur í Þingvallasveit... vinsamlegast, og öllum líkindum við þetta lag skal sleppt nema að því leiti að þetta verður á ágústkvöldi.

Klukkan hvað var spurt:
Jú, klukkan 18:30 á föstudagskvöld 24. ágúst,  skal hittast í Hamraborg, og munið að Strætó bíður ekki eftir neinum.

Við ætlum að hittast á strætóstoppistöðinni í Hamraborg og fara saman niður á Reykjavíkurhöfn þar sem bíður okkar skip sem heitir Logos II. Þetta skip er sérstakt að því leiti að um borð er áhöfn af kristniboðum sem fer um heiminn og segir frá Guði.
Á föstudagskvöldið verður sérstök dagskrá fyrir unglinga og við ætlum að fara um borð og leika okkur með fólkinu.

Um borð er líka bókabúð og geisladiskabúð sem hægt er að versla í.

Dagskránni lýkur um 21:00 og eftir það förum við saman aftur til baka í strætó.

Þetta verður skemmtilegt kvöld og ég fyrir mitt leiti hlakka mikið til.
Munið að vera búin að borða kvöldmat, hafa meðferðis strætópening og pening ef þið viljið kaupa eitthvað um borð og klædd eftir veðri.

Ég varð að skella þessu inn hér aftur því Stefán Bogi með sinni frekju ýtti fréttinu neðar á síðuna ... segi svona... Bogi, ég elska þig... þó að þér þyki rúsínukökur góðar og finnist gaman að ýta niður fréttunum mínum.

Vonast til að sjá sem flesta
kveðja
Anna

p.s. sms-þjónustan er óvirk sem stendur, var það líka í gær, þannig að ég get ekki sent sms. Endilega hringið eins og brjálaðir bavíanar út um allt og látið fólkið okkar vita og biðjið það að koma með. Gleymum sorg og sút og sinnisgrút og skemmtum okkur nú vel saman.

Anna | 21.08.2007, 17:52 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Jarmað á Menningarnótt

Eins og fram kom hér á síðunni óskaði hann Þorvaldur æskulýðsprestur í Dómkirkjunni eftir aðstoð vaskra söngvara úr Meme vegna tónlistarflutnings í Hallgrímskirkju á Menningarnótt.

Tvær gimbrar (auk gamla hrútsins sem þetta skrifar) svöruðu kallinu og við mættum á eina æfingu og svo beint í fjörið. Sungum fyrir framan hundruðir manna í Hallgrímskirkju við undirleik frábærrar hljómsveitar. Þetta var rosalega skemmtilegt, enda Nedó-krakkarnir alltaf hressir og lögin sem við sungum mjög skemmtileg.

Þetta voru lofgjörðarlög frá ýmsum löndum, t.d. Argentínu, Palestínu og Nígeríu svo eitthvað sé nefnt og við eigum örugglega eftir að prófa eitthvað af þessum lögum í vetur.

En gimbrarnar mínar, þær Sigrún Gróa og Klara eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna. Við skulum endilega vera fleiri næst þegar okkur býðst að gera eitthvað svona skemmtilegt.

Stefán Bogi | 21.08.2007, 10:25 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Ágústfundurinn á föstudaginn

Jæja þá er loksins komið að því það er ágústfundurinn langþráði.

Við ætlum að hittast á strætóstoppistöðinni í Hamraborg og fara saman niður á Reykjavíkurhöfn þar sem bíður okkar skip sem heitir Logos II. Þetta skip er sérstakt að því leiti að um borð er áhöfn af kristniboðum sem fer um heiminn og segir frá Guði.
Á föstudagskvöldið verður sérstök dagskrá fyrir unglinga og við ætlum að fara um borð og leika okkur með fólkinu.

Um borð er líka bókabúð og geisladiskabúð sem hægt er að versla í.

Dagskránni lýkur um 21:00 og eftir það förum við saman aftur til baka í strætó.

Þetta verður skemmtilegt kvöld og ég fyrir mitt leiti hlakka mikið til.
Munið að vera búin að borða kvöldmat, hafa meðferðis strætópening og pening ef þið viljið kaupa eitthvað um borð og klædd eftir veðri.

Vonast til að sjá sem flesta
kveðja
Anna
 

Anna | 20.08.2007, 21:52 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Sönghópur Meme beðinn um að koma fram á menningarnótt

Heil og sæl alle sammen

Hann Þorvaldur í Nedó var að hringja í mig. Núna á laugardaginn næsta er menningarnótt í Reykjavík og verður dagskrá allan daginn - ekki bara nóttina

Hópur frá ÆSKR og fleirum ætlar að syngja í Hallgrímskirkju kl 17:30 á laugardag. Þau voru með æfingu í gær og þá hringdi Þorvaldur í mig og sagði að þau væru ekki alveg að meika þetta því þeim vantaði meiri kraft í sönginn. Þá datt þeim að sjálfsögðu í hug að hringja í besta og flottasta sönghóp ÆSKR að sjálfsögðu "Meme-group sönghópinn"

Við erum s.s. beðin um að mæta á æfingu í Grensáskirkju kl 18:00 á föstudag og síðan er mæting í Hallgrímskirkju kl 17:00 á laugardag.
Ég ætla að sjálfsögðu að mæta og vonast til að fá sem flesta söngvara frá okkur líka.

Hverjir koma með mér?

Kveðja
Anna

Anna | 15.08.2007, 12:10 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Sumaruppákomur...

Það er búið að skipuleggja sumaruppákomur Meme group...


Meira síðar...

 

Guðmundur Karl | 13.06.2007, 23:05 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Skondin saga frá Þórði

Þórður sendi mér þessa sögu og bað mig að birta hana á jarma.net :-)


Guðmundur Karl | 30.05.2007, 19:46 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Mótorhjólamessa í kvöld

Í kvöld, annan í hvítasunnu, verður hin stórglæsilega mótorhjólamessa í Digraneskirkju. Messan hefst kl. 20 og má búast við stórum hópi leðurklæddra mótorhjólakappa. Meme group sér að stórum hluta um tónlistina í messunni, eingöngu vegna þess að við erum svo frábær.
Mæting fyrir tónlistarfólk er í Digraneskirkju kl. 18:00. Það er mikilvægt að mæta á réttum tíma svo við náum örugglega að fara yfir allt sem þarf að fara yfir.

Guðmundur Karl | 28.05.2007, 11:23 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Tilkynning til tónlistarhóps

Eins og alþjóð veit hefur verið leitað til tónlistarhóps Meme group um að aðstoða við tónlistarflutning í mótorhjólamessu sem haldin verður í Digraneskirkju á annan í hvítasunnu kl. 20:00 (28. maí). Æfing fyrir messuna verður í Digraneskirkju mánudaginn 21. maí kl. 20:00. Það er mikilvægt að allir sem ætla að taka þátt í mótorhjólamessunni mæti á staðinn því við munum líklega læra einhver ný lög. Við viljum líka fá Bibba á trommur og Aron Stein og Hlyn á gítar.

Sjáumst á mánudaginn :-)

Guðmundur Karl | 18.05.2007, 15:58 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Amazing Race

Þá er árshátíðin okkar yfirstaðin. Þetta var alveg meiriháttar kvöld, enda eruð þið frábærir krakkar. Ég vona að þið hafið haft gaman að þessu og sjáumst auðvitað hress og kát í haust.

En útivistarferð ÆSKR er í dag. Mæting er í Grensáskirkju kl. 17:30. Munið að þetta er útivistarferð og mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Þið fáið víst að borða í ferðinni :-) Ég kemst ekki en hún Annfríður verður á staðnum.
Góða skemmtun!

Guðmundur Karl | 16.05.2007, 12:00 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Árshátíð í kvöld

Jæja þá er komið að því
Árhátíðin er í kvöld!!!

Mæting er sem hér segir:

Skreytinefnd mætir kl 16:00 - skreytir og hefur svo tíma til að fara heim og punta sig.
Skemmtinefnd mætir kl 17:30 - komin í sitt fínasta púss.
Þjónar mæti kl 18:15 - komnir í sitt fínasta púss.
Kokkar mæti kl 17:00 - með sitt fínasta púss meðferðis.
Aðrir mæti kl 19:00 í sínu fínasta pússi og njóti vel.

Hér er gestalisti kvöldsins:

Senior:
Andrea Rakel Sigurðardóttir
Aron Örn Vilhjálmsson
Birna Daðadóttir
Gunnar Óli
Harpa Lilja Björnsdóttir
Heiður Hallgrímsdóttir (ógreitt)
Ísak Toma
Jóhann Örn Benediktsson
Klara Rakel Grétarsdóttir
Óli Björn Vilhjálmsson
Sigrún Gróa Jónsdóttir
Sigrún Jóna Jafetsdóttir
Telma Ýr Birgisdóttir

Junior:
Aníta Rós Rúnarsdóttir
Ari Þór Gunnarsson
Arnór Jón Hreinsson
Aron Steinn Guðmundsson
Ásdís Huld Vignisdóttir (ógreitt)
Ásgerður Birna Halldórsdóttir
Birnir Jón Sigurðsson
Ingibjörg A. Hallgrímsdóttir (ógreitt)
Rakel Vilhjámsdóttir
Þórður Magnús Tryggvason

Aðrir:
Anna Arnardóttir
Árni Rúnar Inaba Kjartansson
Dagný Halla Tómasdóttir
Friðrik Þór Erlingsson
Guðmundur Karl Einarsson
Gunnar Sigurjónsson
Hreggviður Norðdahl
Jón Jakobsson
Jón Ómar Gunnarsson
Laufey Aðalsteinsdóttir
Magnús Björn Björnsson
Pálfríður Benjamínsdóttir
Stefán Bogi Sveinsson
Yrsa Þórðardóttir

Fleira var það ekki lömbin mín.
Hlakka til að sjá ykkur í kvöld.
Kveðja
Anna


p.s. þeir sem ekki eru í neinni nefnd eru nú í frágangsnefnd og sjá um að taka til eftir kvöldið. Einnig vantar tvo í þjónanefnd. Svo ef einhver bíður sig fram þá endilega hafið samband við mig.

Anna | 15.05.2007, 08:38 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Síðasti séns!

Jæja, fáir hafa enn borgað árshátíðina svo þetta verður fámennt en góðmennt.
Margir hafa skráð sig en ekki enn borgað og það er í raun orðið of seint.
Ég var búin að setja síðasta séns á föstudaginn.
En af því að ég er svo ómótstæðilega góðhjörtuð ætla ég að gefa ykkur einn séns í viðbót og þeir sem ekki nýta hann fá ekki að vera með á þriðjudaginn.

Það má leggja þúsund krónur inn á reikningin minn fyrir kl 19.00 í kvöld.
Reikningsnúmerið er : 0322-26-2197 og kennitalan mín er 150679-5329
Setjið nafnið ykkar í skýringu svo að ég viti hver var að borga.

Í síðasta lagi kl 19:00 í kvöld.

Kveðja
Anna

Anna | 13.05.2007, 16:16 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Árshátíð nálgast

Nú nálgast árshátíðin okkar óðfluga og ég er orðinn spenntur...

Guðmundur Karl | 12.05.2007, 12:42 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Júróvísjón, ársátíð og amazing race.

Í kvöld ætlum við í Meme-group að njóta þess saman að horfa á Eirík okkar Hauksson syngja sig inn í hjörtu Evrópubúa. Sýningin hefst kl 19:00, mætum tímanlega.
Leyfilegt að taka með sér nammi og gos. (líka ávexti ef einhver er á hollari línunni)

Einnig verður skráning á árshátíð í kvöld.
Það kostar 1000 krónur á árshátíðina, innifalið í verði er dásamleg kvöldsstund, skemmtun og þríréttuð máltíð af grillinu.
Þarf að skrá sig í kvöld og borga.

Skráning í Amazing Race sem verður með öllum félögum ÆSKR 16. maí. Farið út úr bænum kl frá Grensáskrikju klukkan 17.45 og er stefnt að því að koma aftur til borgarinnar klukkan 21.30. Ókeypis!
Skráning í kvöld og hvergi annarsstaðar.

Sjáumst í kvöld
Anna

 

Anna | 10.05.2007, 15:58 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Sérlega vel heppnuð kvöldmessa

Það var sérlega vel heppnuð kvöldmessa í Digraneskirkju í kvöld. Allir lögðu sig 110% fram og árangurinn var glæsilegur. Ég vil þakka öllum sem komu að messunni á einn eða annan hátt kæralega fyrir. Þið eruð og hafið alltaf verið æðisleg :-)

Guðmundur Karl | 06.05.2007, 23:40 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Síðasta kvöldmessa vetrarins

Heil og sæl
Þá er komið að því. Síðasta kvöldmessa vetrarins.
Hljómsveit og sönghópur mæti kl 18.00.
Við vorum með mikla og skemmtilega sönghóps-æfingu á fimmtudaginn sem gekk rosalega vel. Það er skemmst frá því að segja að við erum með fjórraddað lag þar sem stúlkur syngja eina rödd, strákur og Laufey syngja aðra rödd, selló spilar eina rödd og þverflauta þá fjórðu.
Við verðum með einsöng og fleira skemmtilegt.

S.s. mæting fyrir tónlistarhóp kl 18.00 en fyrir aðra kl 20:00

Hlakka til að sjá ykkur
Vonast til að fá fleiri af ykkur sem ekki hafði verið að mæta hingað til. Tilvalið að skella sér í messu og hafa gaman með vinum og félögum.

Kveðja
Anna

 

Anna | 05.05.2007, 10:01 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Vögguðum og ultum úti í bæ

Eins og fram hefur komið var kirkjan lokuð í gær, 1. maí, og því brugðum við á það ráð að fara með rútu í Forvarnahúsið. Þetta var sameiginlegur fundur Meme group þannig að við vorum alls 27. Við fengum að prófa Veltibílinn, beltasleða, ölvunargleraugu o.fl auk þess að skoða allan búnaðinn í Forvarnahúsinu. Svo enduðum við á helgistund þar sem við sungum slatta og Anna spjallaði við okkur.

Það verður enginn fundur hjá Meme junior á fimmtudaginn en kl. 19:00 verður æfing hjá sönghópnum okkar fyrir sunnudaginn. Á sunnudaginn verður nefninlega síðasta og flottasta kvöldmessa vetrarins kl. 20. Mæting er fyrir hljómsveitina kl. 18.

Svo er gaman að segja frá því að Meme kom upp í umræðum á www.hugi.is/ljosmyndun. Ég varð auðvitað ekkert smá montinn, hefði gaman af að vita hver Robbi14 er. Endilega komið með kenningar :-)

Guðmundur Karl | 02.05.2007, 11:37 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Vagg og velta, eða...

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað leiðtogarnir í Meme eru vitlausir. Núna var t.d. að koma á daginn að kirkjan verður lokuð 1. maí, auðvitað. Ohhh, stundum erum við svooo vitlaus að við náum ekki upp í nefið á okkur.
En við reddum því að sjálfsögðu. Í staðinn fyrir að Vagg og velta verði í Digraneskirkju ætlum við að fara í N1 rútuferðina og við ætlum ekki að segja ykkur hvert við förum. Það verður þó fari með hópferðasjálfrennireið frá Digraneskirkju kl. 19:30 og vert er að taka fram að fundurinn er fyrir bæði Junior og Senior.
Sjáumst á þriðjó.

Guðmundur Karl | 27.04.2007, 21:37 - 16 lömb hafa jarmað :-)

Kópavogsdagurinn

Jæja þá er komið að honum.
Það er Kópavogsdagurinn í dag!

Við ætlum að hafa sameiginlegan fund Meme-group og Hjallakirkju. Mæting í Hjallakirkju kl 19:30 á slaginu, vel klædd og þeir sem eiga stafrænar myndavélar eru beðnir að hafa þær með í för. Ef ekki vill betur þá síma með myndavélum í. Það er þó ekki nauðsynlegt að allir taki með myndavélar en gott er ef einn af hverjum 5 ca. hafi myndavél.

Við ætlum svo að vera úti að sprella svolítið og enda svo á að grilla pylsur og skemmta okkur.
Það ætti því enginn að fara svangur heim og allir ættu að skemmta sér vel.

Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna

p.s. fundur hjá meme junior fellur niður næsta fimmtudag og þessi fundur er því eini æskulýðsfundur Meme í þessari viku.

 

Anna | 24.04.2007, 13:18 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Skemmtilegur dagur í dag

Þá er hann runninn upp, þriðjudagurinn 24. apríl 2007. Þetta er frábær dagur, sérstaklega með það í huga að við ætlum að hitta æskulýðsfélagið í Hjallakirkju í dag.

Því er mikilvægt að muna eftirfarandi.

MÆTING Í HJALLAKIRKJU Í DAG KL. 19:30

Guðmundur Karl | 24.04.2007, 07:33 - Jarmaðu litla lamb

Sími týndist

Rakel týndi símanum sínum í rútunni í gær á leiðinni heim úr keilu. Þetta er bleikur sími. Ef einhver er með símann eða veit hvar hann er að finna þá vinsamlegast hafið samband í síma 659-0243 (Óli í Nedó).

Annars þótti mér afskaplega ljúft að vinna keilukeppnina í gær og í verðlaun fékk ég meira að segja að keira alla heim :-)


Guðmundur Karl | 20.04.2007, 21:38 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Unglingaflokkur í Vatnaskógi

Takk fyrir kvöldmessuna í gær, þið stóðuð ykkur vel að vanda :-)

Mig langar til þess að benda ykkur á Unglingaflokk í Vatnaskógi sem verður 24. júlí - 1. ágúst. Þetta er flokkur fyrir 14-17 ára stráka og stelpur og er alveg GEÐVEIKT gaman. Ég hvet ykkur til þess að fá nánari upplýsingar á www.kfum.is/vatnaskogur og svo er bara um að gera að skrá sig!

Guðmundur Karl | 16.04.2007, 21:35 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa - tónlistaræfing

 Minni á að það er kvöldmessa á sunnudaginn. Tónlistarhópurinn ætlar að mæta kl 16:30 og æfa fyrir kvöldið. Boðið verður upp á kvöldverð fyrir tónlistarfólk áður en messa hefst. Endilega bjóðið gestum á kvöldmessuna. Ætlum að hafa mikið af hressri og skemmitlegri páskatónlist. Jesús er upprisinn og við ætlum að fagna!

Vonast til að sjá sem flesta í messunni og alla úr tónlistarhópnum á æfingunni.
Bibbi og Hlynur eru sérstaklega beðnir um að mæta ;o)

Kveðja
Anna

Anna | 13.04.2007, 16:58 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Amazing Race frestað

Eftirfarandi tilkynning var að berast frá ÆSKR:

Því miður sökum ónægrar þátttöku hefur "Amazing Race" voratburði ÆSKR verið frestað til 16. maí og mun þá sameinast útivistarferð ÆSKR.

Við verðum þá bara að fjölmenna þangað. En góða skemmtun á páskavökunni

Guðmundur Karl | 04.04.2007, 21:07 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Síðasti séns

Jæja nú er síðasti séns.
Þeir sem ætla að skrá sig í Páskavökuna á skírdag (allar upplýsingar hér að neðan) þurfa að gera það núna! Ég sendi inn þáttakendafjölda til yfirstjórnenda vökunnar kl 14:00 í dag.
Skráðir eru:
Þórður
Sigrún Jóna
Sigrún Gróa
Harpa
Heiður
Ingibjörg
Unnar
Daði
Adrea Rakel
Birna

Einnig síðasti séns til að skrá sig í Amazing Race, það sendi ég inn eldsnemma í fyrramálið
Skráðir eru:
Þórður
Sigrún Jóna
Sigrún Gróa
Harpa

Hamingjuóskir til þeirra sem voru að fermast í gær.
Vonast til að fá fleiri skráningar í dag.
Kveðja
Anna

 

Anna | 02.04.2007, 09:18 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Amazing Race - skráning í commentum fyrir kl 22:00 mánudaginn 2. apríl

ATH líka vöku á skírdagskvöld hér að neðan - skemmtun alla nóttina, verður að skrá sig fyrir sunnudagskvöld.

Þá er komið að því Amazing Race - ÆSKR -11. apríl

Við förum með rútu upp í Kaldársel þar sem fram fer hin ægispennandi keppni Amazing Race milli æskulýðsfélaga á Höfðuborgarsvæðinu.
Leikurinn verður liðaleikur og fer fram úti.

Liðin munu þreyta margvíselgar þrautir sem reyna á hugvit, áræðni,
leikni og almenna þekkingu. Að leik loknum verður helgistund og
kvöldmatur.

Rútuferðir verða í boði (brottfararstaður ákveðinn síðar)klukkan 17.25
Áætluð heimkoma klukkan 20.30
Þátttökugjald 500 krónur
Fyrir aldurinn 13 - 16 ára

Skrá sig hér að neðan. Síðasti skráningardagur er 2. apríl.
(bannað að skrá sig og hætta svo við - þeir sem það gera lenda í vandræðum með a skrá sig á aðra atburði síðar meir.)

 Kveðja
Anna

Anna | 30.03.2007, 14:59 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Vaktu með Kristi - skrá sig í kommentum fyrir kl 21:00 í kvöld 30. mars.

ATH! Við fengum frest á skráningu til sunnudagskvölds.
Þeir sem ekki eru skráðir fyrir þann tíma komast ekki með.
Ekki láta þetta fram hjá ykkur fara skemmtun heila nótt.

Næturdagskrá í boði Kjalarnessprófastsdæmis.
Haldin í Víðistaðakirkju (Hafnarfirði)
aðfaranótt Föstudagsins langa, 5.- 6. apríl 2007

MARKMIÐ VÖKUNNAR ER AÐ GEFA UNGU FÓLKI (8.bekk og eldri) KOST Á AÐ SÝNA Í ORÐI OG VERKI AÐ ÞAU VILJI TAKA ÞÁTT Í OG VERA HLUTI AF KRISTNU SAMFÉLAGI.

Vakan verður í VÍÐISTAÐAKIRKJU aðfaranótt föstudagsins langa. Á vökunni viljum við leiða hugann að atburðum næturinnar þegar Jesús var svikinn og því samfélagi sem hann átti með lærisveinum sínum þessa síðustu nótt. Þannig fáum við tækifæri til að upplifa atburði næturinnar á áþreifanlegan og áhrifamikinn hátt.

Vakan hefst kl. 22:00 á skírdag, 5. apríl, og stendur til kl. 8:00 að morgni föstudagsins langa 6. apríl (húsið lokar kl 23.00, eftir það er ekki hægt að fara út, nema ef foreldrar/forráðamenn sækja viðkomandi).

Uppbygging vökunnar er tvíþætt. Annars vegar eru helgistundir í kirkjunni og hins vegar er hægt að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem ýmislegt er í boði, svo sem afslöppunarherbergi, sjónvarpsherbergi, söngur og listasmiðja. Við hvetjum svo æskulýðsfélögin sem koma á staðinn til að koma sjálf með dagskrártilboð.

Þátttakendur þurfa í raun ekkert að taka með sér, en það er gott að taka með sér dýnu, svefnpoka og tannbursta, ef ætlunin er að hvílast eitthvað yfir nóttina. Boðið verður upp á sameiginlega máltíð um nóttina, en allt annað, s.s nammi, verður hver og einn að taka með sér. Ekki verður hægt að fá að skreppa út í sjoppu. Að lokinni vökunni um morguninn verður rúta sem ekur þátttakendum til sinna kirkna (á höfuðborgarsvæðinu). Hægt er að hringja í síma Víðistaðakirkju 5652050/5652051 á meðan vökunni stendur.

Allir eru velkomnir en undirskrift foreldra/forráðamanna er skilyrði fyrir þátttöku.

Þeir sem ekki koma með undirskrifað leyfisbréf verða sendir aftur heim.

Smellið hér fyrir leyfisbréfið. Prentið út og skilið.

Vonast til að sjá sem flesta
Kveðja
Anna

Anna | 30.03.2007, 14:53 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Góður fundur hjá Meme-junior í gær

 Í gærkvöldi var svolítið öðruvísi fundur hjá Meme-junior en venjulega.

Þar sem árshátið var hjá Kópavogsskóla mættu einungis þrír drengir til funds, það voru þeir Sindri, Hrannar og Daði.
Við ákváðum þá að fara eitthvað út og gera eitthvað skemmtilegt. Stefnt var á keiluhöllina þar sem átti að keppa í liðakeppni milli leiðtoga og drengja.
Þegar þangað kom var þó allt fullt af einhverju fólki í grímubúningum sem höfðu tekið frá allar brautir svo ekki gekk það plan upp.
Þá lögðum við höfuðið í bleyti og enduðum á að fara út í Garðabæ og spila fótbolta á litlum óupplýstum gerfigrasvelli (nema Laufey hún var að horfa á sætu strákana úr Stjörnunni sem voru að spila á upplýsta vellinum við hliðina á okkur.)
Þegar komið var á völlinn var verið að skipta í lið og þá kom fleyg setning "Anna og Laufey, viljið þið ekki bara horfa á?" Við Laufey tókum þetta mjög nærri okkur og fannst vegið hrillilega að orðspori okkar sem fótboltamanna og fórum í fýlu á bak við markið (og horfðum á sætu strákana í Stjörnunni).
Svo bar svo við að Stefán Bogi (sem var markmaður) þurfti að svara í símann og þá stigu Anna og Laufey aðstoðarmarkmenn inn á völlinn og sýndu af sér gríðarlega takta í markvörslu, annað eins hefur ekki sést um þessar slóðir. (sætu strákarnir í Stjörnunni voru alveg yfir sig hissa og hringdu í okkur seint í gærkvöldi og vildu fá okkur í liðið.... við sögðum nei því við viljum ekki skyggja á aðra).

Það verður reyndar að viðurkennast að drengirnir okkar í Meme-junior eru rosalegir herramenn. Þegar kvenkynið var í marki voru skotin áþreifanlega lausari en annars. Þó héldum við áfram í marki og hjálpuðum Boga eftir að hann kom, þetta var svo stórt mark að það veitti ekkert af þrem markvörðum. En ef einhver er að efast um hæfileika mína í þessum leik þá er ég með rosastóran marblett á fætinum til sönnunum þess hve góð ég er í marki ;o)

En leikar fóru þannig að Sindri og Daði sigruðu Hrannar og Orra (held hann heiti það, einhver drengur sem við hirtum í Garðabæ til að leika við okkur og jafna í liðin)  18 -17.

Að leik loknum gæddu leikmenn sér á litlum páskaeggjum í tilefni dagsins.

Takk fyrir frábæran fund strákar... og Laufey
Kveðja
Anna

Anna | 30.03.2007, 14:48 - 37 lömb hafa jarmað :-)

Myndir úr Smáralind

Jæja, þá er Guðmundur litli kominn heim á klakann aftur eftir ánægjulega dvöl í Tékklandi, nánar tiltekið Litomyšl. Og auðvitað byrjaði ég á því að setja myndir úr Smáralindinni inn á netið og þær má nú nálgast á undraverðan hátt hér á vefnum. Njótið vel

Guðmundur Karl | 29.03.2007, 11:16 - 1 lamb hefur jarmað

Gengið gegn rasisma í Smáralind



Jæja þá er komið að því.
Á morgun göngum við gegn rasisma í Smáralindinni.
Mæting er kl 16:00 í miðri Smáralindinni á fyrstu hæð. Þar verður komið svið og eitthvað húllumhæ í gangi svo við ættum að ramba á þetta. Við hittumst þar og þar verður Þorvaldur miðbæjarprestur úr Nedó og tekur á móti okkur ásamt fleirum. Við málum okkur í framan þar og förum í bolina (sem þið svo fáið að öllum líkindum að eiga) og vöppum svo um Smáralindina. Hlustum á fólkið úr X-factor syngja, skemmtum okkur vel og verum öðrum til fyrirmyndar. Spjöllum við fólk sem við okkur vill spjalla og verum sæt fyrir myndavélarnar ^^,

Eftirtaldir eru skráðir:
Aníta
Aron
Ásdís
Ásgerður
Birna
Harpa
Heiður
Indí
Jóhann Örn
Klara Rakel
Sigrún Gróa
Sigrún Jóna
Sindri Þór
Telma

Á kannski listanum eru:
Andrea Rakel
Tinna

Hlakka til að hitta ykkur
Kveðja
Anna

Anna | 20.03.2007, 12:26 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Komment keppni - niðurstaða

Jæja, þá er hinni stórkostlegu komment keppni lokið. Þátttaka var talsverð, þó fjöldi þátttakenda hafi ekki verið mikill :-). Alls bárust 3633 færslur í keppnina, eða 1566 komment. Junior sendi inn 2248 færslur og Senior 1385 færslur. Niðurstða keppninnar var þessi:

Junior - Senior
326 - 1240

Eins og við var að búast voru nokkrir mun duglegri en aðrir að kommenta og ég hef tekið saman smá tölfræði yfir þá.

Junior   Senior
1. sæti Þórður 151 46,3% 1. sæti Harpa 460 37,1%
2. sæti Birnir 144 44,2% 2. sæti Andrea 291 23,5%
3. sæti Ásgerður 16 4,9% 3. sæti Sigrún G 177 14,3%
4. sæti gummi 5 1,5% 4. sæti Sigrún J 153 12,3%
5. sæti Ari 4 1,2% 5. sæti Klara Rakel 80 6,5%
6. sæti Anna 2 0,6% 6. sæti Birnir 41 3,3%
7-10. sæti Indí 1 0,3% 7. sæti Birna 14 1,1%
7-10. sæti Ingibjörg 1 0,3% 8. sæti Gummi 12 1,0%
7-10. sæti Sigrún Gróa 1 0,3% 9. sæti Þórður 5 0,4%
7-10. sæti Klara Rakel 1 0,3% 10. sæti Anna 4 0,3%
  11. sæti Bibbi 2 0,2%
12. sæti Jói 1 0,1%


Junior



Senior

Guðmundur Karl | 18.03.2007, 22:12 - 17 lömb hafa jarmað :-)

Gengið gegn rasisma

Næsta miðvikudag, 21. mars, er alþjóðlegur dagur gegn rasisma (eða kynþáttahatri/útlendingahatri). Þá ætlum við að hitta fleiri æskulýðsfélög í annað hvort Kringlunni eða Smáralindinni (nánari upplýsingar um staðsetningu birtast hér í síðasta lagi á þriðjudag) kl 16:00 og mála á okkur andlitin græn, blá og fleiri liti. Auk þess ætlum við að fara í boli sem á stendur "Dæmir þú mig eftir hörundslit mínum?" með hausúpum á sem stendur á "Við erum öll eins inn við beinið".
Við ætlum svo að ganga um í Smáralindinni (eða Kringlunni) og vera sýnileg svo að fólk muni eftir deginum. Mannréttindastofa Íslands, Soka-Buddistar, Rauði-krossinn, Miðbæjarprestur og fleiri standa að þessu með okkur. Auk þess munu keppendur úr X-factor syngja og hafa skemmtiatriði til að vekja athygli á málstaðnum.
Þeir sem vilja koma með, hvort sem er úr senior eða junior þurfa að skrá sig hér að neðan í commentunum.
Eftirtaldir eru nú þegar skráðir:

Heiður
Klara Rakel
Sigrún Gróa
Hapra Lilja
Sigrún Jóna
Birna
Telma
Birgir Steinn
Jóhann Örn


Vonast til að sjá sem flesta.
Kveðja
Anna

Anna | 17.03.2007, 10:12

Ávöxtur erfiðisins

Litlu lömbin áttu góða stund saman við að horfa á fimleikastórvirkið Stick it, í gærkvöldi. Einhverjar umkvörtunarraddir heyrðust yfir myndavalinu fyrirfram, en í lokin held ég að allir hafi verið nokkuð sáttir. Ég var að minnsta kosti að sjá myndina í annað skipti og skemmti mér bara ágætlega.

Í lokin var svo stutt hugleiðing þar sem efni myndarinnar var tengt við vers úr Biblíunni. Ykkur til fróðleiks set ég versin hér ef þið viljið fletta þeim upp.

Annars vegar var það Matteusarguðspjall 12 kafli, 1.-2. vers. Þessa sögu er reyndar að finna víðar í Biblíunni og fleiri sögur svipaðar. Hér er tengill á litla grein um þetta efni sem séra Íris Kristjánsdóttir í Hjallakirkju skrifaði. http://tru.is/svor/2006/08/hvad_er_ad_halda_hvildardaginn

Hins vegar var vitnað í Jeremía 29. kafli, 11. vers.

Ég mun fljótlega láta setja upp skoðanakönnun um það hvað ég á að gera við skeggið á mér. En þangað til sendi ég ykkur mínar bestu kveðjur :)

Stefán Bogi | 16.03.2007, 11:57 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Kosning -mynd kvöldsins

Jæja þá er kosningin komin í gang
Það er einungis hægt að kjósa einu sinni svo tvíburar þurfa að slást um sitt atkvæði (sorry Anna Diljá og Birnir).
Það var ekki hægt að setja inn Lord of the rings því hún er allt of löng.

Sjáumst á fimmtudag
Kveðja
Anna

Anna | 12.03.2007, 13:07 - 19 lömb hafa jarmað :-)

Komment keppni - staðan

Eins og mörg lömb vita hafa sprottið upp talsverðar deilur í sambandi við komment keppnina. Ástæðan er meðal annars sú að meðlimir senior hafa sakað meðlimi junior um óheiðarleg vinnubrögð í keppninni. Ég ætla ekki að dæma um það hér.
Hins vegar vil ég benda á að þetta er keppni um það hvort félag getur komið með fleiri komment. Þó að sama kommentið sé sent oft inn þá er það engu að síður alltaf sama kommentið. Með það í huga sótti ég gögn í gagangrunninn og keyrði í gegnum Excel töflureikni. Þar taldi ég kommentin með ofangreindar skilgreiningar í huga. Eftirfarandi kom í ljós:

Junior: 251
Senior: 1148

Þegar þetta er ritað er staðan skv teljurum 1814 - 1279 Junior í vil en skv minni skilgreiningu er Senior langt yfir með 1148 komment á móti 251 hjá Junior.

Ég vil taka fram að enn er vika eftir af keppninni og á þeim tíma getur margt gerst. Ekki gefast upp og sýnið nú hvað í ykkur býr.

Ég er líka búinn að taka saman hverjir eru duglegastir að kommenta í hvoru félagi og niðurstaðan er þessi:


Senior
Junior
   
1 Harpa 414 1 Þórður 144
2 Andrea 260 2 Birnir 81
3 Sigrún Gróa 172 3 Ásgerður 16
4 Sigrún Jóna 155 4 Gummi 5
5 Klara Rakel 59 5 Anna 2
6 Birnir 39 6-7 Klara Rakel 1
7 Birna 12 6-7 Ingibjörg 1
8 Gummi 11  
9 Þórður 5
10 Anna 4
11 Bibbi 2

Guðmundur Karl | 12.03.2007, 00:13

Myndir úr Vatnaskógi

Ég fékk nokkrar myndir frá honum Þórði síðan í Vatnaskógi og hef nú sett þær á veraldarvefinn. Hægt er að nálgast þær undir Myndir.
Komment keppnin gengur vel og gríðarleg spenna í gangi. Ég sé að hún er kannski full löng að þessu sinni, en það verður bara að hafa það. Ég hvet bæði félög til þess að leika heiðarlega og skemmtilega ;-)
Svo sé ég ykkur vonandi sem flest í kvöld. Bæ bæ

Guðmundur Karl | 11.03.2007, 14:17 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Mynd fyrir næsta fund?

Í jörmum fyrir neðan þessa frétt má koma með uppástungur af myndum til að horfa á í næstu viku. Þetta er EKKI kosning heldur uppástungur. Þegar uppástungum lýkur þá verður kosning. Svo ekki nefna myndir sem áður hafa verið nefndar.
Á mánudag eða þriðjudag hefst svo kosning.

kveðja
Anna

 

Anna | 08.03.2007, 23:31 - 16 lömb hafa jarmað :-)

Frábært Karaokekvöld!!!

Já þetta var í alla staði frábærlega vel heppnað karaoke-kvöld.

Jói, Ingibjörg og Heiður komu sáu og sigruðu í kvöld með glæsilegum flutningi á "When I think of angels"

Linda og Ásgerður lentu í öðru sæti með lagið "All out of luck". Það gerðu þær snilldarvel og ég verð að segja að ég hafði ekki áttað mig á að Linda væri svona hæfileikarík söngkona. Það er ekki laust við að reynt verði að draga hana í sönghóp Meme-group.

Þórður var svo í þriðja sæti og söng hann líka lagið "When I think of angels".

Juniorar geta verið stoltir af þessu kvöldi. Þeir komu víst sáu og sigruðu nánast. Þeir áttu fulltrúa í öllum sætum.

Seniorar geta líka vel við unað þar sem tveir af þremur sem lentu í fyrsta sæti koma frá senior.

Í kvöld var mikið um skemmtilega sviðsframkomu, góða tónlist, lélegan flutning (úff....), góðan flutning, hresst fólk, skemmtilegt fólk og umfram allt góða stemmningu og það er það sem öllu máli skiptir.

Það var gaman að vera með ykkur í kvöld.
Til hamingju með sigurinn Jói, Heiður og Ingibjörg, þið áttuð þetta skilið.

Mér skildist á dómurunum að einhverjir hefðu komið til greina í annað sætið sem ekki fengu þar inni því dómurum fannst hegðun þeirra einstaklinga í sal vera dónaleg og óviðeigandi.... Það borgar sig greinilega að hegða sér vel.

Ég verð þó að bæta því við að rassálfarnir bæði þeir grænu og bláu (var það ekki eitthvað svoleiðis?) voru snillingar á sviði. Það er endalaust hægt að horfa á ykkur... þið eruð meiriháttar. Söngurinn kannski ekki alveg upp á það besta en það sem vantaði uppá í söng bættuð þið fyrir með sviðsframkomu. Að henda derhúfunni út í sal var bara klassískt!
Eins er alltaf gaman að horfa á apadansinn hennar Sigrúnar Gróu ^^,

Þið eruð öll ÆÐI og það er frábært að eiga svona kvöld með ykkur.
Ef ekki væri fyrir ykkur væri ekkert Meme.

Kveðja
Anna

Anna | 08.03.2007, 23:26 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Glæislegasta Karaoke-keppni allra tíma!!!

Þá er karaoke-keppnin að fara af stað.
Ég sæki bikarinn tilbúinn á morgun og hann verður afhentur sigurvegara kvöldsins sem hlýtur titilinn "Karaoke-meistari Meme-group 2007"

Húsið opnar að vana klukkan 19:00 og þá er strax hægt að velja sér lög og skrifa sig niður á blað. Kl 19:30 hefst svo keppnin og úrslit verða ljós uppúr kl. 21:00

Það er leyfilegt að koma með sætindi og eitthvað að drekka en skylt að þrýfa eftir sig að keppni lokinni.

Hlakka til að sjá ykkur
Þetta verður "AWSOME!!!"

 

Anna | 07.03.2007, 21:44 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Karaoke

Nú eru karaoke lögin kominn inn á netið, valmyndin hér til vinstri. Farið endilega inn á hann og finnið skemmtileg lög til þess að syngja.

 

Guðmundur Karl | 05.03.2007, 18:43 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Æskulýðsmessa að baki

Jæja, þá er æskulýðsmessan að baki. Við leiðtogarnir erum öll alveg rosalega stolt af ykkur - þið eruð snillingar. Ég vil svo benda ykkur á að það er hægt að hlusta á messuna á netinu næstu tvær vikurnar. Slóðin er http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4315523.

Annars gengur komment keppnin vel, Senior er langt yfir núna en það er aldrei að vita hvað gerist í vikunni. Að lokum vil ég minna alla Meme meðlimi á karaoke keppnina sem verður á fimmtudaginn. Lagalistinn kemur inn í dag eða á morgun.

Guðmundur Karl | 04.03.2007, 14:13 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Komment keppni - junior frétt

Vegna fjölda áskorana (aðallega úr einni átt) hef ég ákveðið að efna til annarar komment keppni á milli Junior og Senior. Þá er bara að hefjast handa og sjá hvort félagið er duglegra.
Til þess að taka þátt þarf að kommenta á þessa frétt.

Go go go...

Bætt við 2. mars:
Keppnin stendur til kl. 18:00 þann 18. mars.

Guðmundur Karl | 01.03.2007, 23:47 - 2250 lömb hafa jarmað :-)

Ef ég væri fiðrildi

Ef ég væri fiðrildi
myndi’ ég þakka þér Guð mína fögru vængi.
Og ef ég væri þröstur í tré
þér látið gæti minn lofsöng í té.
Og ef ég er nú fiskur í sæ
með sporðinum vinkað ég Guð til þín fæ.
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ér er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta gleðin svellur í mér.
Þú gafst mér Jesú og nú Guðs barn ég er.
Og þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Ef ég væri afríkufíll
ég rananum lyfti í þakkargjörð.
Og ef ég væri krókódíll
fengir þú stærsta bros á jörð.
Og ef ég væri kengúra
ég hoppa myndi upp til þín, húrra!
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta...

Breyttist ég í iðandi orm
ég óðara fengi frá þér nýtt form.
Og ef ég væri belja á bás
af bauli til þín ég yrði hás.
Og ef ég væri loðinn ísbjörn
ég þakka myndi þér mína góðu kuldavörn.
En þökk þér faðir þú gjörðir mig eins og ég er.

Því þú gafst mér nýtt hjarta...

Guðmundur Karl | 01.03.2007, 20:00 - Jarmaðu litla lamb

Frábært Febrúarmót

 Já það var gaman í Vatnaskógi um helgina.

31 manneskja vappaði um skóginn í merktum Meme-peysum og 3 lömb voru ómerkt. Við vorum án efa stærsti hópurinn í Vatnaskógi og sá sem var hvað mest áberandi.

Okkar fólk var í fremstu línu á kvöldvökum, við sigruðum atriðakeppnina með glæsilegu Freak-show í boði Junior. Okkur gekk ekki jafn vel í spurningakeppninni en nágrannar okkar úr Hjallakirkju tóku hana með trompi. Glæsilegra lið hef ég ekki séð í spurningakeppni sem þessari.

Ekki var mikið um óhöpp á mótinu og þó... einn fingurbrotnaði en lét það nú ekki á sig fá og var hinn sprækasti það sem eftir var móts með hendina í gipsi. Nokkrir fengu laumufarþega með sér heim en tóku því með stóískri ró.

Nú er það bara næsta verkefni sem bíður okkar og það er útvarpsmessa í Digraneskirkju á æskulýðsdaginn þann 4. mars.

Kveðja
Anna og co

Anna | 20.02.2007, 16:08 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Breytt merki

Eins og kunnugt er var ákveðið að víxla merkjum Meme group og Meme senior. Ég hef fengið athugasemdir við að þessi breyting hafi ekki náð fram að ganga hjá á jarma.net en nú hef ég breytt merkjunum til samræmis við ákvörðun félagsins.
Merki Meme junior er óbreytt en merki Meme senior er framvegis grænt og lamb með lítil horn. Merki Meme group verður framvegis blátt og hrútur í stað lambs.

Munið að koma í kirkjuna í kvöld og sækja peysurnar :-)

kamelåså
Mr. Einarsson

Guðmundur Karl | 15.02.2007, 12:30 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Peysur og Febrúarmót

Heil og sæl alle sammen!

Nú fer að líða að febrúamóti. Við förum á föstudaginn frá Digraneskirkju kl 17:00

Mæting við kirkjuna kl 16:45. Þar á að borga ferðina sem er kr. 4500.
Við komum heim aftur að Digraneskirkju á sunnudaginn kl 15.00

ATH! Þeir sem vilja taka þátt í tónlistarhóp á mótinu endilega takið með ykkur hljóðfærin ykkar.

Peysurnar þarf að borga í síðasta lagi í kvöld á milli 19:00 - 19:30.
3000 kr.
Það eru 6 aðilar sem eiga eftir að borga þær og þeir verða að gera það í kvöld.
Á morgun borga ég reikninginn fyrir þeim og á fimmtudagskvöld verða peysurnar afhentar í Digraneskirkju á milli 19:00 og 19:30

Nánari upplýsingar á fundum í vikunni. Eða í fyrirspurnum hér að neðan.

Kamelåså
Anna


 

Anna | 13.02.2007, 17:38 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópsæfing ársins á morgun laugardag!

Á morgun, laugardaginn 10. febrúar, verður stærsta tónlistarhópsæfingin okkar hingað til. Við verðum í Digraneskirku frá kl 14:00 - 19:00. Mikilvægt er að sem flestir sjá sér fært að mæta og vera allan tímann. Það verður boðið upp á síðdegishressingu í kirkjunni.
Hópnum verður skipt í tvennt, sönghópurinn fær raddþjálfun frá útlærðri söngkonu sem að mínu mati er ein besta söngkona landsins. Hún er ekki mjög þekkt, ennþá, en það skrifast einungis á óframfærni hennar. Hún heitir Helga Magnúsdóttir.

Á meðan Helga ætlar að kenna sönghópnum rétta raddbeitingu og fleira til að bæta okkur þá ætla Siggi Bjarni og Árni að koma hljóðfæraleikurunum í betra form. Þessvegna er um að gera að fá sem flesta hljóðfæra leikara á morgun, bara taka með sér hljóðfærin.

Við erum með fullt af nýjum lögum sem við ætlum að æfa fyrir kvöldmessu á sunnudaginn og ekki síður fyrir útvarpsmessuna okkar í mars.

Allir að mæta!
Hlakka til að sjá ykkur

Kveðja
Anna
 

Anna | 09.02.2007, 18:46 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Danska er æðisleg

Af einhverjum undarlegum ástæðum fékk ég sent þetta myndband um daginn. Þetta er bara snilld.

Guðmundur Karl | 08.02.2007, 12:52 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Gestur á fimmtudag 8. febrúar

Eins og glöggir menn hafa séð þá hefur dagskráin okkar breyst aðeins.
Í staðinn fyrir Survivor á fimmtudaginn hefur komið gestur sem vill ólmur hitta okkur. Ég var búin að vera í sambandi við hann um nokkurt skeið og ekki tókst að finna tíma en allt í einu losnaði dagur svo við fáum tvo gesti í röð. Það var gaman að fá Önnu síðast og það verður líka gaman að fá þennan gest, ef mér skjátlast ekki er líka ferfætlingur með honum.... mun gáfaðari ferfætlingur sem er ekki þekktur sem typpasleikir.... ;o)

Hlökkum til að hitta þessa gesti,

Minni á að koma með skráningarblöð fyrir febrúarmót og 3000 krónur fyrir peysum.

Kveðja
Anna

 

Anna | 06.02.2007, 12:46 - 1 lamb hefur jarmað

Senior burstar komment keppnina

Þá eru úrslit klár í komment keppninni miklu. Á tímabili var gríðarleg spenna og alls óvíst hvort félagið færi með sigur af hólmi. En á lokadögum keppninniar sigldi Senior vel fram úr Junior og hélt forystu sinni glæsilega. Staðan í lok keppni var 66 - 157 Senior í vil.

Fyrir hönd kynningarsviðs Meme group vil ég óska Senior til hamingju með sigurinn.

Guðmundur Karl | 05.02.2007, 07:25

Víti til varnaðar

Ég rakst á myndband á netinu af þýzkum strák sem hefur aðeins misst stjórn á tölvunotkun sinni. Þið skulið endilega passa ykkur að fara varlega því það er auðvelt að missa stjórnina.

Skoða myndband

Heimasíða SAFT.

Guðmundur Karl | 04.02.2007, 00:07 - Jarmaðu litla lamb

Leynigestir í junior

 Í kvöld kom leynigesturinn í Meme-junior það var hún Anna M. Þ. Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Hún kenndi okkur meira um stéttlausa fólkið í Indlandi, eins og hana Lakshmi okkar, og sagði okkur líka frá barnahermönnum í Sierra Leone.
Við fórum í leik þar sem við fengum að kynnast því örlítið hvernig er að búa á götunni í Indlandi. Í þeirri lífreynslu brutust út slagsmál eftir að einhver reyndi að grípa til þess að stela frá öðrum... eitthvað sem borgar sig yfirleitt ekki en gerist oft á götunum. Í þessu tilfelli þurfti lögreglan (ég) að skerast í leikinn og setja viðkomandi í steininn (eða reyndar bara í sófann) það sem eftir lifði þessa indverska dags.

Kaupmennirnir voru misharðir við fólk og margir fengu að kenna á því að það er ekki gott að eiga allt sitt undir einhverjum sem er alveg sama um hvort maður lifir eða deyr.

En leynigesturinn okkar kom líka með tvo aðra leynigesti með sér en það voru dverg Schnauser hundarnir Uggi og Garmur. Þeir skemmtu sér konunglega í kirkjunni og áttu það til að stela senunni svolítið af mömmu sinni þegar hún var að kenna um alvarlega hluti.

Það var virkilega gaman að fá þau öll í heimsókn og við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og vonumst til að sjá þau aftur seinna.

Við lærðum mikið um Indland og þær aðstæður sem Lakshmi okkar lifir við og þetta verður okkur örugglega hvatning til að standa okkur betur í að safna fyrir hana.

Kveðja
Anna

Anna | 01.02.2007, 23:18 - Jarmaðu litla lamb

Komment keppni Junior vs Senior

Ég hef ákveðið að efna til komment keppni á milli Junior og Senior.  Hún hefst núna og stendur til kl. 20:00 sunnudaginn 4. febrúar. Til þess að taka þátt þarf að kommenta á þessa frétt.

Hverjir eru bestir?

Guðmundur Karl | 28.01.2007, 14:27 - 65 lömb hafa jarmað :-)

Óvissuferð í Bláfjöll

Á fimmtudaginn fórum við junior í óvissuferð. Það sem átti að koma með var sleði, banani og vel klæddur. Við ætluðum á sleða upp í Bláfjöll og því meikaði bara sens að koma vel klæddur og með sleða. Bananinn var bara upp á djókið, samt ágætis nesti.

Við ókum sem leið lá upp í Bláfjöll. Þar lentum við í smá erfiðleikum, brattri brekku sem rútan ætlaði bara ekki að komast upp. Það hafðist þó á endanum enda var bílstjórinn sá best í bænum :-) Við þurfum að leita smá að góðum stað til að renna okkur. Víða var nefninlega vatn undir snjónum og nokkrir sem blotnuðu þar.

Við fundum góðan stað og röltum upp í fjall. Það var reyndar alveg svartamyrkur og vasaljósin komu sér því afskaplega vel. Því miður varð smá óhapp þegar Ásgerður féll af sleðanum. Við vonum að hún hafi jafnað sig núna.

Við vorum í seinna lagi í bæinn, eða um kl. 22. Venju samkvæmt keyrðu við hring í hverfinu þannig að juniorar gætu hoppað út þar sem þeim hentaði. Þetta var bara frábær ferð.

Á næsta fundi er svo leynigestur. Ég ætla ekki að segja meira.

Guðmundur Karl | 28.01.2007, 12:53 - Jarmaðu litla lamb

Styttist óðum í óvissuferð

Nú eru rétt rúmar 2 klst þangað til lagt verður af stað í óvissuferðina okkar. Það sem þið þurfið að koma með er:
  • Vel klædd
  • Sleði
  • 1 banani
Upp hafa komið spurningar um hvort þurfi sleða vegna snjóleysis. Því er til að svara að þetta er óvissuferð og því alls óvíst hvað gerist. Til þess að þið njótið hennar sem best skuluð þið samt koma með allt á listanum. Annars er aldrei að vita hvað gerist.
Við gætum orðið í seinna fallinu heim, en reiknum með að vera komin aftur eigi síðar en 22:00. Við keyrum þá hring um hverfið eins og vanalega og þið hoppið þá út þar sem ykkur hentar.

Guðmundur Karl | 25.01.2007, 17:21 - 1 lamb hefur jarmað

Dósasöfnun gekk vonum framar

Þá er dósasöfnun til styrkar Lakshmi lokið. Við tókum tvær rispur, fyrst á þriðjudag hjá senior og svo á fimmtudag hjá junior. Er skemmst frá því að segja að söfnunin gekk mjög vel og tókst okkur að safna dósum sem nægja til þess að greiða fyrir skólagöngu Lakshmi í heilt ár. Við fórum í hverfin fyrir ofan kirkjuna og var okkur tekið í flestum tilfellum mjög vel. Sums staðar fengum við meira að segja pening þar sem ekki voru til dósir. Við þökkum kærlega fyrir góðar viðtökur.

Annars er brottför frá Digraneskirkju kl. 17:00 í dag. Við förum ásamt NEDÓ og MEGAS í Dómkirkjuna og ætlum að eiga þar notalega stund saman. Eftir hana fáum við léttar veitingar á kirkjulofti Dómkirkjunnar. Við reikum með að vera komin aftur til baka í Digraneskirkju kl. 19:00. Sjáumst.

Guðmundur Karl | 19.01.2007, 10:44 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Tilkynning

Frá og með deginum í dag munu fréttir frá Meme junior og Meme group birtast á nýrri heimasíðu Digraneskirkju

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að fresta amk því að færa allt okkar efni inn á digraneskirkja.is. Held að það sé bara meira cool að vera með okkar eigin síðu :-)

Guðmundur Karl | 17.01.2007, 23:37 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa á sunnudag - æfing á miðvikudag

Jæja þá er fyrsta kvöldmessa ársins að skella á. Hún er næsta sunnudag.
Tónlistarhópur ætlar að hittast á morgun kl 17:00 í Digraneskirkju og vera til ca 19:00.
Allir að mæta.
Nú förum við að bæta okkur því það er margt spennandi framundan. Segi ykkur nánar frá því á morgun.
Kveðja
Anna

 

Anna | 09.01.2007, 18:11 - 1 lamb hefur jarmað

Vorönninn er að fara af stað

Heil og sæl
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Ég vona að allir hafi haft það gott um hátíðarnar og séu til í slaginn fyrir nýtt og spennandi ár.
Við erum að leggja lokahönd á nýja dagskrá og á henni má finna ýmislegt skemmtilegt eins og t.d. Febrúarmót æskulýðsfélaga Reykjavíkur og nágrennis sem verður 16.-18. febrúar í Vatnaskógi. Þeir sem stefna á að koma með þangað verða að mæta á 5 fundi fyrir þann tíma (eftir áramót). Það eru einungis 6 fundir þangað til svo þeir sem vilja koma með þurfa að vera duglegir að sýna það. (Febrúarmótið er fyrir bæði félögin)
Við komum til með að merkja við ykkur, eftir helgistund í allan vetur og þeir sem eru með bestu mætinguna fá einhver verðlaun á Árshátíðinni okkar 15. maí.
Já það er rétt, við ætlum að vera með sameiginlega Árshátíð Meme-group sem verður jafnframt síðasti fundurinn okkar í vor. Þá mæta allir í sparifötunum og við borðum góðan mat og fleira skemmtilegt.
Einnig er á dagskránni, keiluferð, karaoke-keppni, alvöru leynigestur (sem er búinn að staðfesta komu sína svo það endar ekki eins og fyrir jól) og margt annað skemmtilegt.
Fylgist spennt með,
Hlakka til að hitta ykkur, senior á þriðjudag og junior á fimmtudag (og í fermingarfræðslunni á þriðjudag og miðvikudag)
Kveðja
Anna

 

Anna | 05.01.2007, 16:51 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Kveðja frá veflambinu

Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegs árs lömbin mín og þakka ykkur fyrir það gamla. Sjáumst hress og kát í næstu viku í Meme.

Kveðja
Guðmundur Karl
veflamb

Guðmundur Karl | 01.01.2007, 12:58 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Síðasti fundur ársins

Jæja, þá er lokið síðasta fundi ársins í Meme group. Hann var haldinn í kvöld sameiginlegur og var jólafundur. Því miður komumast við að því að frú Annfríður Lövenskjöld er ómissandi. Hún var nefninlega veik þannig að efni fundarins var eitthvað á reiki. En við hinir stórkostlegu leiðtogar sem mættum gerðum náttúrulega það besta sem við kunnum: Að gera allt vitlaust!
Við vorum í jólaskapi, skreyttum aðeins jólatré, horfðum á gerð myndarinnar WWJD og borðuðum veitingar sem nokkrir komu með. Svo enduðum við upp í kirkju eins og vanalega þar sem við sungum jólalög og hlustuðum á jólafrásögn hjá Stefáni Boga.
Nokkrar pantanir bættust við á DVD disknum okkar. Ég þarf sem sagt að fara og kaupa fleiri diska. Ég kem til með að afgreiða þá eftir jól að öllu óbreyttu. Þá þurfið þið að muna eftir að koma með 300 kr. Ef það eru einhverjir sem ekki geta beðið þangað til þá, er ykkur velkomið að hafa samband í gegnum gke (hjá) jarma.net og við reddum málunum.

Að öðru leiti óskum við leiðtogarnir ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk æðislega fyrir frábært ár og skemmtilegar samverur. Guð blessi ykkur og fjölskyldur ykkar.

Jólakveðjur
Anna, Friðrik, Guðmundur Karl, Laufey og Stefán Bogi

Guðmundur Karl | 15.12.2006, 02:04

Bíóferð

Í gær fór Meme group ásamt fleiri æskulýðsfélögum í bíó. Við fórum í Háskólabíó á myndina Leiðin til Betlehem (Tha Nativity Story) þar sem sagt er frá Maríu og Jósef fyrir fæðingu Jesú og svo náttúrulega fæðingunni sjálfri. Þetta var skemmtileg og falleg mynd og passaði vel á aðventu. Eftir myndina fórum við svo yfir í Neskirkju þar sem við enduðum með helgistund. Við vorum seint á ferðinni enda myndin ekki búin fyrr en rétt fyrir 22. Margir voru að fara í próf daginn eftir og því var meðal annars töluð danska í rútunni. Við keyrðum þó hring um hverfið og félagana heim.

Svo er ég stoltur að tilkynna að nú er kominn út DVD diskur með myndinni okkar, WWJD. Þeir sem hafa pantað disk geta nálgast hann á morgun. Sjáumst svo á jólafundinum.

Guðmundur Karl | 13.12.2006, 19:15 - 1 lamb hefur jarmað

Meme á aðventukvöldi

Í gær var haldið aðventukvöld í Digraneskirkju. Slík kvöld eru haldin alla sunnudaga á aðventunni og var Meme group fengið til þess að sjá um tónlistina í gær.
Fjöldi manns mætti í kirkjuna til þess að eiga stund saman og heppnaðist hún afskaplega vel. Hljómsveitin stóð sig vel að vanda og lyfti kvöldinu á hærra plan :-)
Einnig var sýndur helgileikur sem krakkar úr 6. bekk Smáraskóla settu upp. Það var sjálft jólaguðspjallið sem þau sýndu og stóðu þau sig mjög vel. Að lokum röðuðu kirkjugestir sér í hring um kirkjuna, ljósin voru slökkt og allir kveiktu á kertum.
Ég skellti inn myndum frá kvöldinu í myndasafnið, en svo er lang flottasta myndin hér með þessari frétt ;-)
Sjáumst í bíó á morgun

Guðmundur Karl | 11.12.2006, 13:48 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Bíóferð - skráning.

Í næstu viku eru jólavikan okkar.

Þriðjudaginn 12. desember förum við í bíó. Kl 19:30 fer rútan niður í Háskólabíó þar sem við hittum fleiri æskulýðsfélög og horfum saman á myndina "Leiðin til Betlehem". Við fáum miðana á sérkjörum og kostar kr. 650 á mannin. Innifalið er rútuferðin og bíómiðinn. Ef fólk vill kaupa sér popp og nammi í bíó þarf að koma með pening aukalega fyrir því.

Það þarf að skrá sig og borga fyrir sunnudagskvöld. Eftir aðventukvöldið okkar á sunnudaginn verður síðasti séns til að borga og skrá sig.
Allir velkomnir, bæði senior og junior og einnig vinir og ættingjar sem eru í 8. bekk eða eldri.
Eftir bíóferðina verður stutt helgistund í Neskirkju (sem er við hliðina á Háskólabíó).

Á fimmutudaginn 14. des. verður svo jólakvöld Meme-group þar sem við ætlum að drekka heitt súkkulaði og borða piparkökur. Það verður Pálínuboð þar sem alllir taka með sér eitthvað til að leggja á hlaðborð (smákökur, kökur, snakk, kexpakka eða hvað sem hver vill).
Við borðum saman og eigum notalega  jólastund.

VOnast til að sjá sem flesta bæði kvöldin.
Gangi ykkur vel í prófunum
Anna og co.

Anna | 08.12.2006, 15:58 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Bilun í gestabók

Það kom upp bilun í gestabókinni sem olli því hjá Meme junior að nafnið birtist ekki heldur bara færslan og hjá Senior fóru engar færslur inn. Ég er búinn að laga þetta núna og því ættu allir að geta gestabókað eins og þeir vilja.

Guðmundur Karl | 07.12.2006, 18:13 - Jarmaðu litla lamb

WWJD á DVD

Mér er það einstök ánægja að tilkynna ykkur lömbin mín að nú er ég að leggja lokahönd á DVD diskinn með myndinni okkar. Hann kostar 300 kr. Þið komið með pening á næsta fund og leggið inn pöntun. Svo verða diskarnir afgreiddir viku síðar.
Ég sett inn aukaefni á diskinn sem er 23 mín langt myndband um gerð myndarinnar. Ég lagði nánast enga vinnu í klippingu á því enda svona frekar til gamans gert. Vona að þið njótið vel.

Tilvalin jólagjöf :-)

Guðmundur Karl | 01.12.2006, 00:01 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Vefsíðan

Eins og glöggir gestir hafa tekið eftir hafa ekki komið inn fréttir í rúma viku. Ástæðan er sú að ég er ennþá með tölvuna hennar Önnu vegna klippingar á Making of WWJD. Ég vonast til þess að klára það fljótlega svo starfsemin komist í eðlilegt horf. Svo er ég að spá í að kaupa mér góða tölvu sem notuð verður í framtíðinni við klippingar m.a. fyrir Meme group.

Sjáumst, þið eruð frábær :-)

 

Guðmundur Karl | 26.11.2006, 13:39 - Jarmaðu litla lamb

What Would Jesus Do á netinu

Þá er loksins komið að því! Myndin okkar, WWJD er loksins komin á netið. Hægt er að skoða hana með því að smella hér.

Svo kemur DVD diskurinn út fljótlega en þessa dagana er verið að vinna að gerð hans.

Guðmundur Karl | 18.11.2006, 18:32 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Digraneskirkja kom, sá og sigraði

Já það má með sanni segja að Digraneskirkja hafi tekið hinar kirkjurnar í nefið á keilumóti ÆSKR sem fram fór í kvöld. Fjöldi unglinga af höfuðborgarsvæðinu mætti á svæðið, þar á meðal stór hópur úr Meme group. Úrslitin urðu þessi:

1. sæti 131 stig
131 stig
Ágúst
Sigga Rósa
Digraneskirkja
Seljakirkja
2. sæti 126 stig Indí Digraneskirkja
3. sæti 122 stig Úlfar Digraneskirkja

Í leiðtogakeppninni lenti Stefán Bogi í 1. sæti og Anna í 2. sæti. Þess má geta að undirritaður tók ekki þátt í keilumótinu sökum bifreiðaaksturs, annars hefði ég náttúrulega sigrað :-)

En við óskum sjálfum okkur að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn, við erum náttúrulega lang best. Til hamingju!

Guðmundur Karl | 17.11.2006, 01:32 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Keilumót ÆSKR

Fimmtudaginn 16. nóvember er keilumót ÆSKR í Keilhöllinni Öskjuhlíð. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Senior meðlimir skrá sig á þriðjudaginn og junior meðlimir skrá sig hjá Önnu í fermingarferðalaginu. Þeir Juniorar sem eru búnir í Vatnaskógi og hafa áhuga á að koma þurfa að senda Guðmundi póst í gegnum starfsmannasíðuna í síðasta lagi á þriðjudaginn.
Verð: 500 kr
Farið verður frá Digraneskirkju í rútu kl. 19:20 á fimmtudaginn.

Athugið að það er ekki leyfilegt að skrá sig og mæta svo ekki. Hart verður tekið á slíku athæfi enda kostar það mikla peninga að panta t.a.m. of stóra rútu.

Guðmundur Karl | 12.11.2006, 22:45 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa

Á morgun, sunnudag, er kvöldmessa í Digraneskirkju. Messan verður með svipuðu sniði og síðast þar sem orgelið fær frí og hljómsveit Meme group sér um tónlistina. Auðvitað verður hún með léttara sniði en venjulega. Messan hefst kl. 20:00.

Okkur vantar tvo lesara til þess að lesa ritningarlestra í messunni. Þeir sem hafa áhuga mæta í kirkjuna kl. 19:00 og tala við sr. Yrsu eða Önnu of Moria.

Tónlistarfólk á að mæta kl. 18:00.

Guðmundur Karl | 11.11.2006, 16:41

Frumsýningu lokið

Þá er loksins búið að frumsýna myndina okkar, What Would Jesus Do? Mikil spenna var í mannskapnum fyrir frumsýningu en tæplega 60 unglingar voru mættir á svæðið.

Sýningin hófst svo kl. 19:45. Reyndar höfðum við lent í nokkrum vandræðum með klippitölvuna og því þurfti að redda aðeins á síðustu stundu. En það hafðist eins og við var að búast.

Mikil ánægja var með árangur okkar og ég verð að segja fyrir mig að ég er ótrúlega stoltur af ykkur. Þið stóðuð ykkur með stakri prýði og árangurinn má greinilega sjá í þessari mynd, sem er heilar 67 mínútur að lengd. Aftast settum við svo smá grín, eins og viðtal við Jesú afturábak.
Fljótlega verður myndin sett á netið og einnig gefin út á DVD. Á disknum verður líka að finna gerð myndarinnar, en ég fer í það næstu daga að klippa það til.

Svo vil ég minna á kvöldmessuna á sunnudaginn í Digraneskirkju. Hún hefst kl. 20:00 og mun hljómsveitin okkar leika. Þeir sem eru í henni og kórnum eiga að mæta í kirkjuna á sunnudag kl. 18:00. Sjáumst :-)

Guðmundur Karl | 10.11.2006, 01:19 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Frumsýning á morgun

Nú eru ekki nema 26 klst þangað til myndin okkar verður frumsýnd. Það verður unnið alveg fram á síðustu mínútu við klippingu. Tónlist var að mestu sett inn í gærkvöldi og í kvöld er það grafík vinnsla. Myndin er stærsta verkefni sem ráðist hefur verið í síðan undirritaður tók að starfa í kirkjunni og verður gaman að sjá niðurstöðuna.

Við hvetjum ykkur til þess að mæta í sparifötunum á morgun svo að þetta verði nú glæsileg frumsýning. Ég ætla allavega að mæta í skyrtu og með bindi. Það má líka koma með gos og nammi.

Sjáumst

Guðmundur Karl | 08.11.2006, 17:47

Kvöldmessa: Tilkynning

Á sunnudaginn verður kvöldmessa í Digraneskirkju. Messan hefst kl. 20 og verður með svipuðu sniði og síðast þar sem orgelinu verður gefið frí og hljómsveitin okkar í Meme group spilar.


Æfingar fyrir hljómsveitina:
Æfingar verða fyrir hljómsveitina fimmtudaginn 9. nóvember kl. 16:00-18:00 og á sunnudaginn kl. 18:00. Við þurfum fólk í kórinn og að sjálfsögðu okkar frábæru hljóðfæraleikara. Sjáumst

Guðmundur Karl | 07.11.2006, 21:04 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Styttist í frumsýningu

Nú styttist óðum í frumsýningu myndarinnar okkar, What Would Jesus Do?. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á  klippingu, en við Anna eyddum gærdeginum í að fínpússa samsetningu myndarinnar. Við byrjuðum líka á að setja tónlist inn og ætla ég að reyna að klára þá vinnu í kvöld. Þá er einungis eftir grafísk vinna sem ég klára á morgun og fimmtudag. Það lítur því allt út fyrir að frumsýning verði á tilsettum tíma á fimmtudaginn.

Myndin getur ekki lengur talist stuttmynd, þar sem hún verður yfir klukkutími í fullri lengd. Á fimmtudaginn verður auglýst hvernig staðið verður að útgáfu á DVD. Stefnt er að því að á DVD útgáfunni verði einnig að finna gerð myndarinnar.

En við höldum áfram að telja niður í frumsýningu á fimmtudagskvöld.

P.S. Óskum Friðrik enn og aftur til hamingju með strákinn :-)

Guðmundur Karl | 07.11.2006, 08:31 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Stórkostlegt Karaoke kvöld

Sigurvegarar í karaoke keppni Meme junior

Já það var sannarlega frábært Karaoke-kvöldið í kvöld. Við notuðum nýja hljóðkerfið okkar og það var frábært!!!
Sigurvegarar kvöldisns voru þær Sylvía Night og Sylvía Day sem má sjá á myndinni hér að ofan. Þær voru með snilldar sviðsframkomu og takta sem skiluðu þeim sigri í kvöld.
Í öðru sæti var svo Þórður með glæsilegan flutning á laginu "Twist and Shout" eftir Bítlana. Hann söng eins og Lennon sjálfur endurborin og ef hann hefði bara twistað svolítið líka þá hefði hann án efa sigrað Sylvíurnar. Svo mjótt var á mununum.
Í þrijða sæti voru svo félagarnir Aron og Sindri með lagið "It's raining men". Þeir félagarnir voru engum líkir með frábæra sviðsframkomu og dans við textann. Ég bjóst bara hálft í hvoru við því að sjá nokkra karlmenn hrynja úr loftinu fyrir ofan þá.
Svo mikið var af frábærum atriðum í kvöld að við neyddumst til að verðlauna fjórða sætið líka en það var okkar fagra "Boy-band" þeir Arnór, Birnir, Unnar og Sindri sem hlaut þann titil og fengu geysi falleg endurskinsmerki að launum. En þeir tóku lagið "Bohemian Rhapsody" með Queen. Annars eins flutningur hefur ekki sést síðan Aron og Hlynur úr senior tóku þetta lag á fyrsta karaoke-kvöldi Meme. Nú er bara spurning hverjir taka þetta lag á bikarkeppninni???

En það voru margir fleiri sem áttu snilldar framkomur í kvöld. Meðal keppenda sem stóðu sig með prýði má nefna skvísurnar Ingibjörgu, Ásgerði, Siggu, Andreu og Indíönu sem sungu hin ýmsu lög og öll af alkunnri snilld. Aron sem tók lagið "Spenntur" á eftirminnilegan hátt. Stefán Bogi sem söng "Mustang Sally" með tilþrifum og margt fleira.
Einnig tók "Boy bandið" okkar lagið "I will survive" með snilldar töktum.

Í allt var þetta kvöld frábært og ég hlakka mikið til bikarkeppninnar. Ef kvöldið í kvöld er forsmekkurinn af henni þá verður fjör og ef þið juniorar haldið svona áfram eigið þið eftir að valta yfir seniorana.

Takk fyrir frábært kvöld.
Anna

p.s. Þeir sem ætla að taka þátt í kvöldmessunni verða að fylgjast með tilkynningum hér á netinu varðandi æfingar. Þær verða kynntar einhvern tíman á næstu vikunni.

Anna | 03.11.2006, 00:24

Karaoke lögin

Þá er kominn listi yfir karaoke lögin sem verða í boði á morgun . Smellið hér til þess að skoða listann.

Guðmundur Karl | 01.11.2006, 10:09

Úff hvað þetta er mikið

Úff, ég er að byrja að grófklippa myndina. Þetta er ekkert smá mikil vinna. Það er hluti af Survivor sem er skemmt en mér sýnist að þetta muni samt sem áður sleppa. Það er orðið nokkuð ljóst að þetta verður nokkuð löng mynd og er mikil vinna framundan hjá klippimeisturum Meme group.

Guðmundur Karl | 29.10.2006, 22:47 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Fundur í vetrarfríi.

Það var fámennt en góðmennt á fundinum okkar á fimmtudaginn var. Það var að sjálfsögðu vetrarfrí í skólunum svo margir voru með önnur plön.
En við létum það ekki aftra okkur og höfðum stórskemmtilegt íþróttamót. Kepptum í Billiard, borðtennis og fótboltaspili. Fólk var misgott í þessum þrautum þó held ég að mestu afburða borðtennisleikarnir hafi veið Laufey og Pálmi. Það var alla vega skemmtilegasti leikurinn sem ég horfði á.
Mér tókst það snilldarverk að tapa öllum þeim leikjum sem ég tók nema í fótboltaspili við Laufeyju. Þar rústaði ég henni og vann hana 10 - 1.
Flestir sigruðu einhverja leiki og töpuðu öðrum.
Að lokum enduðum við uppi í kirkju með góða helgistund.

Á næsta fundi verður svo karaoke-keppni. Þetta er svona æfingakeppni fyrir aðalkeppnina sem verður eftir áramót. Í þeirri keppni verður keppt um bikarinn og titilinn Karaokemeistari Meme 2007. Núna verða samt sem áður veitt verðalun fyrir fyrsta annað og þriðja sæti.
Fljótlega birtist lagalistinn á netinu svo um að gera að fylgjast með til að sjá hvaða lög eru í boði og fara að æfa sig fyrir framan spegilinn með hárbustann í hendinni.
Munið svo að karaoke er alltaf hallærislegt, málið er bara að njóta þess að hafa þetta eins hallærislegt og hægt er að vera með góða sviðsframkomu. Hún skilar oft betri árangri en góður söngur. Margur laglaus hefur komist langt í karaoke keppni með góðri sviðsframkomu.
Það er enginn skilda að taka þátt en það er hörkustuð.

Kveðja
Anna

 

Anna | 28.10.2006, 12:16 - Jarmaðu litla lamb

Junior myndatökum lokið

Jæja, þá er myndatökum hjá Meme junior lokið. Við tókum upp bæði Strákana og fermingarbörn í dag. Það gekk rosalega vel og allir stóðu sig með stakri prýði. Það er ótrúlega gaman að vinna með ykkur og verður mjög spennandi að sjá niðurstöðurnar.
Myndin verður svo frumsýnd þann 9. nóvember en þá verður sameiginleg frumsýning hjá Meme group. Þá mun ég líka kynna fyrir ykkur hvernig hægt verður að eignast DVD diskinn með myndinni, en ég geri ráð fyrir að þar verði líka að finna aukaefni eins og mistök og gerð myndarinnar.

Á næsta fundi verður svo leikjafundur, en þá förum við í alveg heilan helling af skemmtilegum leikjum. Eins og sjá má á starfsmannasíðunni er Laufey forstöðumaður Leikjasviðs þannig að það má gera ráð fyrir miklu fjöri :-)

Guðmundur Karl | 19.10.2006, 22:27 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Fundarlaunum heitið

Garðar hefur ekki enn fundið hjólið sitt. Það hvarf á meðan við vorum í upptökum fyrir Survivor síðasta fimmtudag. Það þykir okkur ákaflega leiðinlegt og sérstaklega finnst okkur slæmt ef einhver er að stela hlutum af æskulýðsfundum. Við höldum enn í vonina um að þetta hafi verið misheppnað grín hjá einhverjum og að hjólið sé falið einhversstaðar í nágrenninu. Ef einhver hefur séð hjólið sem er svart fjallahjól af tegundinni Mongoose þá endilega komið með það í Digraneskirkju eða til Garðars ef þið vitið hvar hann býr. Garðar hefur heitið fundarlaunum þeim sem finnur hjólið og kemur því til skila.
Kveðja
Anna

Bætt við af Guðmundi Karli:
Ég vil svo hvetja ykkur til þess að læsa hjólunum ykkar þegar þið komið á fundina. Það kemur í veg fyrir svona leiðindaatvik.

Anna | 19.10.2006, 10:52 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Eitt leiðinlegt á fimmtudag

Á meðan flestir stóðu sig með prýði á fimmtudaginn, bæði við upptökur, undirbúning fyrir upptökur, aðstoð við upptökur og að fylgjast hljóðlátlega með gerðist eitt leiðinlegt.

Hjólið hans Garðars, sem er svart Mongoose hjól hvarf frá kirkjunni.

Ef einhver hefur orðið var við hjólið hans, veit hver tók það eða hefur fundið það úti í móa einhversstaðar og veit núna hvar það er niðurkomið er sá hinn sami beðinn um að koma með það upp í Digraneskirkju (eða heim til Garðars ef þið þekkið hann og vitið hvar hann á heima).
Kær kveðja
Anna
 

Anna | 17.10.2006, 10:12

Þið eruð æði

Jæja, þá er fyrsta tökudegi lokið. Við tókum upp Survivor í kvöld við lækinn neðan við kirkjuna. Þið stóðuð ykkur alveg ótrúlega vel. Þetta var ótrúlega skemmtileg vinna og ég hlakka virkilega til þess að sjá afraksturinn. Allir gerðu það sem til var ætlast og stóðu sig með mikilli prýði :-)
Á næsta fundi tökum við svo upp Strákana og upphafsatriðið með fermingarbörnunum. Sjáumst þá.

Guðmundur Karl | 12.10.2006, 23:10 - Jarmaðu litla lamb

Stuttmyndagerð í dag

Jæja, þá er komið að því. Upptökur á stuttmyndinni hefjast í dag og munum við taka upp Survivor atriðið. Mikilvægt er að allir mæti tímanlega, helst ekki seinna en 19:00.

Sjáumst í kvöld.

Guðmundur Karl | 12.10.2006, 10:11 - Jarmaðu litla lamb

Kvöldmessa á morgun, sunnudag

Á morgun, sunnudaginn  8. október, verður kvöldmessa í Digraneskirkju. Messan hefst kl. 20:00.
Prestar verða sr. Magnús Björn Björnsson og sr. Yrsa Þórðardóttir. Við ætlum að gefa orgelinu frí og tónlistarflutningur verður í höndum hljómsveitarinnar okkar. Ljóst að það verður mikið fjör í kirkjunni. Einnig gefst fermingarbörnum kostur á að ganga til altaris í fyrsta skipti og verður altarisgangan sérstaklega útskýrð.
Tónlistarfólk á að mæta í kirkjuna kl. 18:15 á morgun, sunnudag, og þeir sem vilja taka þátt í messunni, t.d. með ritningarlestrum og þess háttar mæta kl. 19:00.
Sjáumst hress og kát á morgun.

Guðmundur Karl | 07.10.2006, 10:49 - 1 lamb hefur jarmað

Tónlistarhópsæfing í kvöld og á fimmtudag.

Heil og sæl öll sömul og takk fyrir síðast.

Það var meiriháttar að vera með ykkur á Fear Factor í gær. Þið stóðuð ykkur vel og voruð á allan hátt til sóma.

Í kvöl ætlar tónlistarhópurinn að hittast kl 18:30 í Digraneskirkju. Mætið tímanlega því við eigum mikla vinnu fyrir höndum ef við ætlum að vera orðin góð fyrir sunnudagin.

Þeir sem er í Meme senior mega gjarnan taka með sér eitthvað nesti því æfingin verður alveg þar til senior fundurinn byrjar kl 19:30. Í kvöld verður gerð undantekning fyrir ykkur og þið megið hafa með ykkur eitthvað að borða inn á fundinum. En bara þeir sem mæta tímanlega á æfingu.

Sjáumst í kvöld
Kveðja
Anna
 

Anna | 03.10.2006, 12:37 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Fear Factor

Minni á Fear Factor mótið sem verður haldið í Digraneskirkju á mánudaginn kl 20:00-22:00. Á mótið eru skráðir 215 unglingar víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu svo það verður mikið stuð.

Það er enginn skyldugur að taka þátt í einstökum þrautum svo ef einhverjum býður of við ákveðnum þrautum er allt í lagi að sleppa þeim. Þeir sem taka þátt í öllum eiga þó fremur en aðrir tækifæri til að sigra keppnina og það eru vegleg verðlaun í boði.

Munið að taka með einn grænan ópal og handklæði.

Kveðja
Anna
 

Anna | 30.09.2006, 21:06 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Pizza og Video fundur

Það var fjör á fimmtudaginn. Við horfðum á hina stórskemmtilegu mynd Ace Ventura.
Góðar pizzur en mikið var leiðinlegt hvað margir komu of seint og borguðu eftir að þeir fengu sér pizzu eða fengu sér án þess að borga. Allir sem borguðu eftir kl 19:45 voru að minnka skammtinn fyrir hinum. Því eftir þann tíma var búið að panta og ekki gert ráð fyrir fleirum. Þeir sem ekki borguðu, bæði þeir sem voru staðnir að verki og látnir borga og þeir sem ekki voru staðnir að verki og sluppu ættu að skammast sín fyrir að eyðileggja fyrir hinum. Það er leiðinlegt ef svona hegðun verður til þess að ekki er hægt að hafa fleiri svona pizza og video-kvöld.
Það voru 70 manns sem mættu á réttum tíma og borguðu sitt en urðu fyrir barðinu á þeim sem ekki kunnu á klukku eða mannasiði. Þeir 70 eigi skilið stóra afsökunarbeiðni frá hinum og mér persónulega finnst ákaflega leiðinlegt að þetta skuli hafa endað svona.
Við verðum að reyna að gera eitthvað til að passa upp á að svona lagað gerist ekki aftur. Við reynum að passa upp á þetta í framtíðinni.

Eftir að myndinni lauk og helstu vandræðagemsum hafði verið hent út ræddum við um stuttmyndagerðina. Það er mikil spenna í loftinu og mikilvægt að allir sem vilja taka þátt mæti á sína fundi frá og með 5. okt hjá junior og 10. okt hjá senior. Okkur vantar leikara, ljósamenn, sviðsmenn, fólk í förðunar- hárgreiðslu- og búningadeild ofl.
Mætum öll og látum ljós okkar skína.
Ein aðvörun þó:
Góð hegðun er frumskilyrði. Þeim sem ekki sína góða hegðun verður vísað á dyr og fá ekki að taka þátt.

Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna

 

Anna | 30.09.2006, 20:59 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Pizza og Video fundur á fimmtudag

Jæja.

Segið mér nú, hvað viljið þið sjá á fimmtudaginn?
Ég lofa ekki að það verði sýnt eitthvað af því sem þið biðjið um en það væri gott að fá hugmyndir og við sáum svo hvað setur.

Það verður í öllu falli eitthvað fyndið.

Endilega sendið inn óskalista hér í  "tjáðu þig"

Kveðja
Anna
 

Anna | 25.09.2006, 12:47 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Tilkynning til tónlistarhóps fyrir kvöldmessu

Nú fer að styttast í kvöldmessuna okkar og við þurfum nú eitthvað að fara að æfa okkur ef við ætlum að gera þetta eins flott og ég er búin að lofa prestunum.
Þessvegna ætlum við að hafa æfingu á þriðjudaginn kl 18:30 í Digraneskirkju.
Æfingin verður í klukkutíma eða alveg þar til Meme-senior fer í á fund í NEDÓ.

Vonast til að sjá sem flesta. Þeir sem ætla að spila á hljóðfæri þurfa að taka þau með sér, ef um er að ræða rafmögnuð hljóðfæri svo sem rafmagnsgítar eða bassa þá þarf að taka með sér magnara. Aron Örn þarf þó ekki að taka með sér trommusettið. Það verður vonandi komið í kirkjuna fyrir þriðjudaginn.

Kveðja
Anna

Anna | 22.09.2006, 09:56 - 1 lamb hefur jarmað

Dúndur mæting á Vagg og veltu

Já það má með sanni segja að það hafi verið dúndur mæting í gærkvöldi. Það voru 59 8.bekkingar sem mættu til að skella sér í veltibílinn í gærkvöldi.
Eitthvað bar nú á því að fólk kynni ekki alveg að haga sér í kirkju en það var fljótlega leiðrétt. Þegar búið var syngja svolítið og auglýsa dagskránna sem er framundan var farið út í Veltibílinn. Þar var ljósashow og frekar spes tónlist sem glumdi um hverfið undir formerkjum Vaggs og veltu.

Þegar Veltibíllinn hafði farið þó nokkuð marga hringi var kominn tími til að fara aftur inn í kirkju og hefja helgistundina. Þá fækkaði nú eitthvað í hópnum en það voru 38 unglingar sem komu með upp í kirkjuna. Það var allt indælisfólk sem greinilega kunni að haga sér í kirkjunni. Við áttum góða stund, sungum og báðum saman.

Myndir frá fundinum eru komnar á vefinn og þær má finna með því að smella á linkinn "myndir" hér til vinstri (who would have thought).

Hlakka til að hitta ykkur í næstu viku,
Kveðja
Anna

Anna | 22.09.2006, 09:52 - Jarmaðu litla lamb

Vagg og velta framundan

Heil og sæl junior lömb.
Biðst afsökunnar á þessu fréttaleysi undanfarna daga. Er búin að vera úr bænum alla vikuna og hef því ekkert getað sent inn fréttir frá því í síðustu viku. Það var gaman á Karamelluspurningakeppninni, þó að sumir hafi verið búnir að fá fullmikið af sykri í blóðið fyrir rest. Næst verður þetta jarðaberjaspurningakeppni ;oP

Á fimmtudaginn kemur verður Vagg og velta. Þá ætlar Guðmundur Karl að koma með Veltibílinn í heimsókn og við fáum að prófa hann. Það er alltaf skemmtilegt.

En nú fer að styttast í kvöldmessuna sem við ætlum að sjá um og hún verður 8. október.
Þeir sem ætla að taka þátt í tónlistarflutningi í þeirri messu verða að mæta á æfingu næsta þriðjudag kl. 18:30. Æfingin verður í klukkutíma eða alveg þar til Meme senior fundurinn byrjar. Þeir sem ætla að spila vinsamlegast taki með sér hljóðfæri.
Ef einhverjir vilja taka þátt sem ekki höfðu skráð sig hjá mér er þeim velkomið að mæta á æfinguna. Mætum tímanlega og verum dugleg að koma okkur að verki og þá gengur þetta allt vel.

Hlakka til að sjá ykkur
Kveðja
Anna Arnar

Anna | 19.09.2006, 22:56 - Jarmaðu litla lamb

Fyrsti fundurinn búinn

Heil og sæl

Það var líf og fjör í Meme junior í gær. Góður hópur sem mætti í gær, fullt af strákum sem mættu snemma til að fara í Billiard, borðtennis og fleira. Svo komu nú stelpurnar líka og fóru í fótboltaspilið þar til fundurinn hófst með leikjum og fjöri. Við fórum í nafnaleik þar sem margir fengu útrás fyrir ofbeldisfullar tilfinningar ;oP og svo var farið í rólegri leiki og svo aftur í fjörugan amöbuleik og endað á stólaleik.
Þá var farið í að skoða heimasíðuna okkar og dagskrána og að því loknu var horft á Meme's next top model. (9. bekkingar, ekki vera reið við mig...)
Að þessu öllu loknu var farið upp í kirkju þar sem við lukum fundinum með rólegri stund og bæn.

Einn leynigestur mætti á fundinn en það var lítil kisa sem læddist inn í kirkjuna í miðjum leik og skaust upp í stóra safnaðarsalinn á efri hæðinni. Anna og Sindri reyndu að króa hana af og að lokum tókst Sindra að handsama laumupúkann og koma honum út.

Takk fyrir skemmtilegan fund. Það var meiriháttar að vera með ykkur (líka þér, kisa) og ef allir fundir vetrarins verða svona skemmtilegir þá hlakka ég mikið til þess að vera með ykkur í vetur, bæði í Meme og í Fermingarfræðslunni.

Hvernig leist ykkur á? Endilega tjáið ykkur hér að neðan.

Kveðja
Anna Arnar
Æskulýðsfulltrúi
 

Anna | 08.09.2006, 21:10 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Allt að að fara af stað

Jæja, þá er nú komið að því! Meme junior er að hefjast.
Fyrsti fundurinn verður á fimmtudaginn (7. september) og hefst kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00 og þá er hægt að fara í borðtennis, billjard, fótboltaspil og fleira. Á fimmtudaginn ætlum við að hafa leikja- og kynningarfund þar sem starfið verður kynnt og farið í nokkra alveg mergjaða leiki. Fundir eru alltaf búnir kl. 21:30.
Hægt er að skoða dagskrána hér á síðunni til vinstri, eða með því að smella hér.
Sjáumst vonandi sem flest á fimmtudaginn.

P.S. Ef þið hafið áhuga á að skoða myndir frá því í fyrra þá getið þið farið inná heimasíðu Meme senior.

Guðmundur Karl | 05.09.2006, 11:09 - 1 lamb hefur jarmað

Sérstök síða fyrir 8. bekk

Í vetur verðum við með sérstaka síðu fyrir 8. bekk. Hún verður hér á jarma.net og sérsniðin að þörfum fermingarbarnanna :-)

Guðmundur Karl | 17.08.2006, 11:57 - Jarmaðu litla lamb


© Meme group 2008