Á morgun, sunnudaginn 7. mars, er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Af því tilefni verður æskulýðsmessa í Digraneskirkju kl. 11. Þar verður öll messan í umsjón æskulýðsstarfsins, s.s. tónlist, prédikun, biblíulestrar o.fl. Allir sannir MEME-ingar eru hvattir til að prófa að vakna eldsnemma og mæta ferskir kl. 11 

BÆNARÝ 2010
ÆSKR stendur fyrir margmiðlunarmessu í Neskirkju kl. 20 sama dag. Þar verður tæknin nýtt til hins ítrasta til að framkvæma hefðbundna messuliði. Notast verður við farsíma, hljóð, mynd, fjarfundabúnað o.fl. sniðugt. Þetta verður einstakur atburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. ALLRA SÍST MEME 