Æskulýðsfélagið Meme var stofnað í Digraneskirkju haustið 2005 og var þá aðeins boðið upp á starf fyrir krakka í 8. bekk. Nú hefur Meme stækkað og heitir Meme group. Meme movie er sá hluti Meme fjölskyldunnar sem sér um æskulýðsstarf fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri. Meme movie er, eins og nafnið bendir til, félag með áherslu á kvikmyndir. Við búum til stuttar og langar myndir, horfum á og stúderum kvikmyndir og síðast en ekki síst njótum við þess að vera saman.
Á þessari síðu er hægt að skoða myndir, lesa fréttir, dagskrá og fleira. Ekki gleyma gestabókinni.
Meme movie hefur fengið styrki frá Æskulýðssjóði, Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra, Reykjavíkurprófastsdæmi Vestra og Biskupsstofu.
Starfsfólk Meme movie
Hægt er að styrkja starf Meme movie með því að leggja inn á neðangreindan bankareikning:
Reikningur: 1135-05-201079
Kennitala: 691272-0449