MEME - Lengir lífið

Næst,

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána

Fundartími:

Fundir eru á mánudögum kl. 20:00-22:00 í Digraneskirkju.

Meme movie er félag fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri.

Gestabókin

MEME er á Facebook

MEGATILBOÐ í MEME movie

Í kvöld, mánudaginn 6. september, verður MEGATILBOÐ í Meme movie. 2 fyrir 1 í boði fyrir alla á aldrinum 16-30 ára! Ekki láta þig vanta! :)

 

(Á íslensku: Kirkjan verður opin og Guðmundur Karl á staðnum) 

Guðmundur Karl | 06.09.2010, 18:18 - Jarmaðu litla lamb

Tæknikynning á mánudag

Eftir árangursríkan movie fund á mánudaginn síðasta þar sem farið var yfir veturinn og verkefnin þá ætlum við strax að hefjast handa.

Núna á mánudaginn verður því fyrsti movie fundurinn og ætlar Guðmundur Karl að kenna á búnaðin sem við eigum svo þið getið sjálf stjórnað verkefnunum í vetur.

Hvet ykkur öll sem hafið áhuga á að vera með í vetur að koma á mánudaginn og byrja strax að læra!

Þráinn | 28.08.2010, 22:46 - 1 lamb hefur jarmað

Meme movie í vetur

Nú er farið að líða að vetri og því kominn tími til að huga að því hvernig eigi að standa að starfinu í Meme movie í vetur.  Nú hefur nýr æskulýðsfulltrúi tekið til starfa, Þráinn Haraldsson en hann vinnur einnig í Hjallakirkju.

Það mikilvægasta í Movie starfinu er að þið krakkar þurfið að stjórna því sjálf hvernig þið viljið hafa starfið.  Nú vilja Þráinn og Guðmundur Karl hitta ykkur til að heyra hugmyndir ykkar um það hvernig þið viljið hafa starfið í vetur. Sömuleiðis vilja þeir kynna nokkrar hugmyndir sem þeir hafa.

Þessi fundur verður hér í Digraneskirkju mánudaginn 23. ágúst og hefst kl. 20.  Við hvetjum ykkur öll til að koma, ykkur sem voruð í fyrra, hvort sem það var allur veturinn eða ekki og eins þá sem hafa áhuga á að vera með í vetur en hafa ekki verið áður.  Allir eru velkomnir!

Við hlökkum til að sjá ykkur.

 

Muna: mánudagur 23. ágúst kl. 20

Þráinn | 05.08.2010, 14:15 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Útivistarferð ÆSKR

Jæja, ég veit að þetta kemur seint en vonandi nær þetta til ykkar :)

Miðvikudaginn 26. maí stendur ÆSKR fyrir stórskemmtilegri
útivistarferð í Björnslund í Norðlingarholtinu. Farið verður í skemmtilega leiki og mikið stuð í gangi. Sláum botninní veturinn, tökum okkur frí frá amstri dagsins og skemmtum okkur saman öll sem eitt!
Við bjóðum upp á grillaðar pylsur og drykki og endum með helgistund.
Mæting á svæið er á milli 17.30 og 18.00 og gerum við ráð fyrir að dagskráin
verði búin c.a. 20.15.

Hvernig kemst maður í Björnslund? spyrð þú.
Svarið er einfalt:

Til að komast í Björnslund er auðvelt að taka strætó, vagnar númer 5, 19 og 51 ganga inn í hverfið og stoppa fyrir utan lundinn.
Mikilvægt er að allir séu mættir fyrir klukkan 18:00 hér fyrir neðan má sjá hvernig hægt er að komast upp í Björnslund frá skiptistöðvunum í Ártúni og Mjódd.
Á vefsíðunni www.straeto.is má líka finna leiðarlýsingu og kort. Heimilisfangið á Björnslundi er Elliðabraut 14, 110 Reykjavík.

Frá Ártúni: Vagn 5
Frá: Ártún 17:30
Ártún 17:31 Leið 5

Elliðabraut v/Bugðu 17:47
Gengið 40 metra
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:48

Frá Ártúni 2: Vagn 19
Frá: Ártún 17:11
Gengið 110 metr
Breiðhöfði v/Ártún 17:13 Leið 19

Elliðabraut v/Bugðu 17:32
Gengið 40 metra
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:33

Frá Mjódd 3: Vagn 51
Frá: Mjódd 17:33
Mjódd 17:33 Leið 51

Norðlingabraut v/Árvað 17:44
Til: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 17:48


Til að komast aftur heim
Að Mjódd: Vagn 51
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:34
Gengið 470 metra
Norðlingabraut v/Árvað 20:41 Leið 51

Mjódd 20:41 Gengið 0 metra
Til: Mjódd 20:41


Ártún: Vagn 19
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:16
Gengið 40 metra
Elliðabraut v/Bugðu 20:17 Leið 19

Breiðhöfði 20:33 Gengið 80 metra
Til: Ártún 20:34

Ártún: Vagn 5
Frá: Elliðabraut 14, 110 Reykjavík 20:46
Gengið 40 metra
Elliðabraut v/Bugðu 20:47 Leið 5

Ártún 21:02 Gengið 0 metra
Til: Ártún 21:02


.... okei svarið var kannski ekki ofur einfalt en flestir átta sig væntanlega á þessu. Ef ekki þá hvet ég ykkur til að skoða www.straeto.is eða fá einhvern til að skutla ykkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur og ekki gleyma að klæða ykkur eftir veðri og taka sólskinsskapið með ykkur!

♪ Það er ókeypis að B-R-O-S-A ♫


Ef einhver áhugi er fyrir því að fara þá megið þið senda mér sms í 6975755 og mæta svo í Björnslundinn. En þið verðið að láta mig vita ef þið ætlið að fara. Það þarf nefnilega leiðtogi að fara með ykkur og ég þarf að láta vita fyrir hádegi á morgun :)

sumarkveðja

Jessica

Jessica | 24.05.2010, 14:15 - Jarmaðu litla lamb

Lokafundur 17. maí

17. maí verður síðasti fundur vetrarins. Fundurinn byrjar klukkan 19;30 með grilluðum pylsum.Síðan er bara að draga fram vasaklútana og safna í þá saknaðartárum, gleðitárum og - tómatsósu. Hlæjum saman og undirbúum sumarið. Gleðikveðja, Þórunn og Jessica.

Þórunn | 16.05.2010, 22:03 - Jarmaðu litla lamb

Videoverkefni

Á mánudaginn ætlum við að fara í síðasta videoverkefni vetrarins. Við ætlum að nota þær hugmyndir sem komu fyrir páska og gera mynd sem fjallar um það hvernig það er að vera unglingur. Allir sem vilja geta verið með :)

Mættu á svæðið og taktu þátt í þessu stórskemmtilega verkefni.

Guðmundur Karl | 24.04.2010, 17:44 - Jarmaðu litla lamb

Stuttmyndagerð í Digraneskirkju

Í kvöld ætlum við í Meme movie að hella okkur út í stuttmyndagerð... eiginlega örmyndagerð. Mættu á svæðið hvort sem þú ert skinka, bacon, rúnstykki eða rúgbrauð :)

Sjáumst spræk. Húsið opnar 19:00 og fundurinn byrjar 19:30

Guðmundur Karl | 12.04.2010, 14:56 - Jarmaðu litla lamb

MEME movie komið í páskafrí

Þá er MEME movie komið í páskafrí. Við erum þó alls ekki hætt því Meme movie stendur til boða að fara á skólamót KSS í Vatnaskógi dagana 31. mars - 3. apríl. Allar nánari upplýsingar og skráningu er að finna á www.kss.is.

Næsti fundur Meme movie verður mánudaginn 5. apríl.

Guðmundur Karl | 28.03.2010, 16:11 - Jarmaðu litla lamb

MEME movie fer í kirkjubíó

Á morgun, mánudaginn 22. mars, hafa leiðtogar Meme movie ákveðið að fara á kirkjubíó í Vídalínskirkju í stað stuttmyndagerðar. Húm mun fara fram 12. apríl í staðinn.

Æskulýðsfélag Vídalínskirkju og ÆSKR bjóða til stórskemmtilegrar kvikmyndasýningar fyrir öll æskulýðsfélögin mánudagskvöldið 22. mars kl 19.30. Mæting er í Vídalínskirkju.

Sýnd verður ævintýramyndin UP sem hefur fengið frábæra dóma en þar segir frá Carl Fredericksen sem "er einmana gamall fýlupoki sem hefur lítið að gera við daginn sinn. Dag einn ákveður hann að láta verða af gömlum draumi sem hann og nýlátin kona hans átti, með því að ferðast um Suður-Ameríku. Með því að binda þúsundir blaðra við húsið sitt tekst hann á loft og ætlar sér að fljúga heimilinu alla leið. Það líður annars vegar ekki langt á ævintýrið þegar Carl uppgötvar að hann er ekki einn í húsinu, heldur hefur ungur skáti að nafni Russell stolist með" (http://kvikmyndir.is/KvikmyndirMovie/entry/movieid/4373).

Við hvetjum ykkur til að fjölmenna á þessa frábæru mynd sem verður sýnd á STÓRU tjaldi og svo mun STÓRskemmtilegi presturinn Guðni Már spjalla um myndina að sýningu lokinni.

Aðgangur er ókeypis en æskulýðsfélagið í Vídalínskirkju verður með sjoppu á staðnum þar sem hægt verður að kaupa popp, nammi og gos. Ekki er ætlast til að fólk komi með nesti!

Svona kemstu í Vídalínskirkju

Guðmundur Karl | 21.03.2010, 14:45 - 1 lamb hefur jarmað

Njótum fjölbreytileikans

Þann 18. mars er alþjóðadagur gegn fordómum.

Eins og undanfarin ár eru æskulýðsfélögin á höfuðborgarsvæðinu beðin um að senda hópa í Smáralindina þennan dag til að taka þátt. Dagskráin stendur yfir frá kl 16:00 - 18:00. Þeir sem mæta kl 16 fá gefins bol og eru málaðir í framan og fá svo haug af nammi til að gefa (og smakka sjálf auðvitað).
Sviðið verður að þessu sinni staðsett hjá kaffihúsinu á neðrihæð Smáralindarinnar (fyrir framan Eymundsson)
 
Í ár fá krakkarnir spennandi aukaverkefni því þrisvar sinnum yfir þennan tíma kemur tilkynning um átakið í hátalarakerfi Smáralindar og þegar það gerist þá frjósa allir krakkarnir í eina mínútu.
Markmiðið er að vekja athygli hjá gestum og gangandi. Engin útskýring verður gefin á þessum lifandi myndastyttum heldur verður þetta í svokölluðum "Flash Mob" stíl. Krakkarnir eiga að frjósa kl 16:30, 17:00 og 17:30.

 

Það verður spennandi dagskrá út um alla Smáralind þennan dag. Sirkus Ísland leikur listir sínar, leikfélag Kvennó sýnir atriði, Gjörningahópur SGI verður á svæðinu, Leifur breik sýnir og kennir breikdans og auk þess verða fjölmörg verkefni í gangi svo sem mannréttindatwister, fólki boðið upp á að setja fingrafar sitt gegn fordómum og margt fleira.

MEME mun að sjálfsögðu ekki láta sitt eftir liggja. Við viljum að fólk fái að vera það sjálft og þurfi ekki að vera eins og allir hinir til að vera samþykkt.

Mætum í Smáralind og hittumst fyrir framan Eymundsson.

Þórunn | 17.03.2010, 10:23 - 1 lamb hefur jarmað

Erfingjar eða hvað?

Á fundinum í kvöld ætlum við MEME movie fólk að setjast niður og ákveða með hvaða hætti við ljúkum við myndina okkar, Erfingja eilífðarinnar. Þess vegna er mikilvægt að allir þeir sem hafa áhuga á að vera með mæti. Án þátttakenda getum við lítið gert ;)

 

Sjáumst vonandi sem flest í kvöld.

Guðmundur Karl | 15.03.2010, 17:56 - Jarmaðu litla lamb

Leyniheimsókn MEME movie

Ég vil minna á leyniheimsókn MEME movie sem fram fer á mánudaginn næstkomandi. Ég bið þá sem hafa tök á að koma á bíl þar sem við þurfum að koma okkur smá spöl. Við munum ekki gefa upp ákvörðunarstaðinn en getum fullyrt að EKKERT æskulýðsfélag hefur nokkurn tíma heimsótt staðinn. Það er mikilvægt að mæta á réttum tíma því vísbendingar um ákvörðunarstaðinn verða gefnar kl. 19:29 og farið frá Digraneskirkju 2 mínútum síðar.

EKKI MISSA AF LEYNIHEIMSÓKN ALDARINNAR!
Þeir sem ekki hafa mætt lengi eru sérstaklega velkomnir

Guðmundur Karl | 06.03.2010, 17:38 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Æskulýðsdagurinn

Á morgun, sunnudaginn 7. mars, er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Af því tilefni verður æskulýðsmessa í Digraneskirkju kl. 11. Þar verður öll messan í umsjón æskulýðsstarfsins, s.s. tónlist, prédikun, biblíulestrar o.fl. Allir sannir MEME-ingar eru hvattir til að prófa að vakna eldsnemma og mæta ferskir kl. 11 :)

BÆNARÝ 2010

ÆSKR stendur fyrir margmiðlunarmessu í Neskirkju kl. 20 sama dag. Þar verður tæknin nýtt til hins ítrasta til að framkvæma hefðbundna messuliði. Notast verður við farsíma, hljóð, mynd, fjarfundabúnað o.fl. sniðugt. Þetta verður einstakur atburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. ALLRA SÍST MEME 

Guðmundur Karl | 06.03.2010, 17:31 - Jarmaðu litla lamb

Klippivinna

Í kvöld ætlum við movie fólk að klippa frétt af Febrúarmóti ÆSKR í Vatnaskógi. Við erum komin með nýtt forrit sem Guðrún Þóra mun kenna okkur á. 

Kíktu við og tjillaðu með okkur :)

Guðmundur Karl | 01.03.2010, 14:44 - Jarmaðu litla lamb

Meme movie á febrúarmóti ÆSKR

Frá Meme movie eru 5 skráðir þátttakendur. 

  • Ásthildur Guðmundsdóttir
  • Davíð Arnar Sigvaldason
  • Lilja Kristín Svavarsdóttir
  • Þórður Magnús Tryggvason

Þegar þið komið upp í Vatnaskóg á föstudaginn mun ég skipta hlutverkum á milli ykkar. Ég geri ráð fyrir að setja tvo í fjölmiðlahópinn og þrjá í sjoppuna. 

Þið þurfið að fylla út leyfisbréf foreldra/forráðamanna (sjá hér) og koma með pening fyrir mótsgjaldi, 8600 kr. Farið verður frá Árbæjarkirkju kl. 17:30. 

Við komum svo aftur að Árbæjarkirkju kl. 14:44 á sunnudaginn. Meme movie verður undir umsjón Guðmundar Karls, s. 690 4005.

Guðmundur Karl | 17.02.2010, 12:03 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Pizza og video

Í kvöld ætlum við að hafa það kósý inn í hlýrri kirkju, panta pizzu og glápa og einhverja skemmtilega mynd.

Þeir sem vilja panta með okkur pizzu VERÐA að mæta fyrir 19.30. Því að pizzan verður pöntuð í síðasta lagi 19.35. Ef þið eruð ekki komin fyrir þann tíma þá bara tough luck, ekki hægt að vera með í pizzunni :)

Mæta með 500.- fyrir pizzum.

Hlökkum mikið til að sjá ykkur í kvöld.

Jessica | 15.02.2010, 15:06 - Jarmaðu litla lamb

Meme movie á febrúarmóti ÆSKR

Meme movie hefur fengið boð um að mæta á Febrúarmót ÆSKR sem verður haldið í Vatnaskógi dagana 19-21. febrúar. Hlutverk Meme movie er tvíþætt:

  1. Reka sjoppu á staðnum.  Til þess þarf 4 úr Meme movie
  2. Sjá um fjölmiðlarekstur á staðnum, þ.e. taka video, viðtöl við fólk og slíkt. Til þess þarf 3 úr Meme movie. 

Þannig er pláss fyrir 7 einstaklinga frá Meme movie á mótinu. Þeir sem hafa áhuga á að koma þurfa að senda póst á gudmundur (hjá) jarma.net í síðasta lagi 14. febrúar. Við verðum svo að velja úr þeim umsóknum sem koma þar sem einungis eru 7 pláss laus. Mótsgjald er 8.600 kr. 

Athugið að mótið er ætlað unglingum í 8-10. bekk og er dagskrá þess sniðin að þeim aldurshópi. Þeir sem fara á vegum Meme movie þurfa því að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir hlutverki þeirra á mótinu.

Fjáröflun

Í kvöld stendur Meme junior/senior fyrir fjáröflun fyrir mótið og stendur movie-ingum til boða að taka þátt í henni. Mæting er í Digraneskirkju kl. 19:30.

Guðmundur Karl | 11.02.2010, 16:27 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Klipping

Í kvöld ætlum við að klippa verkefnið sem við vorum að vinna í síðustu viku, gera eitthvað sniðugt við greenscreen o.fl.

Sjáumst hress og kát í Meme movie
 

Guðmundur Karl | 01.02.2010, 15:58 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Alfa fyrir ungt fólk

Í Kópavogskirkju hefst á morgun Alfa námskeið fyrir menntaskólanema. Námskeiðið í haldið í safnaðarheimili Kópavogskirkju á þriðjudögum kl. 17:00. Allir menntaskólanema hvaðan sem er af landinu eru velkomnir. Um er að ræða samvinnuverkefni safnaða í Kópavogi.

 

Nánari upplýsingar veitir sr. Magnús (magnus (hjá) digraneskirkja.is)

Guðmundur Karl | 25.01.2010, 14:47 - 1 lamb hefur jarmað

Í svörtum fötum

Krakkar!

Allir sem tök hafa á skulu mæta í svörtum fötum í kvöld! Kemur í ljós hversvegna... mæli með Meme peysunum fyrir þá sem eiga soleiðs.

Sjáumst hress í kvöld!

Guðrún Þóra | 18.01.2010, 18:06 - Jarmaðu litla lamb

Ísferð og dagskrárgerð!

Blessuð börnin góð!

Í kvöld munum við leiðtogarnir ykkar hittast og undirbúa dagskrá þessarar annar og við ætlum meðal annars líka að finna útúr því hvernig við ætlum að ljúka við stóra kvikmyndaverkefnið okkar.

Þar sem ég hef heyrt óánægjuraddir um það að ekki sé formlegur Meme fundur í kvöld, þá mæli ég með því að þið farið í óformlega Meme movie ísferð öll saman í

Erluís í kvöld klukkan 20:00 (mánudaginn 11.jan)

Mér finnst að það sé skyldumæting fyrir alla og þið verðið að láta mig vita hérna í commentunum að þið ætlið að mæta, ástæðan fyrir því er bara til að svala minni forvitni og afþví það verða að vera milljón comment á alla pósta sem ég set hérna :D

Þið eruð yndisleg

Kær kveðja Guðrún

Guðrún Þóra | 10.01.2010, 21:24 - 12 lömb hafa jarmað :-)

Jólastund MEME, Fönix og Nedó

Á morgun, þriðjudaginn 15. desember, verður sameiginleg jólastund MEME, Fönix og Nedó í Neskirkju. Mæting er í Neskirkju kl. 19:30. Við ætlum að eiga saman notalega stund og gera eitthvað sniðugt saman.

Þetta er síðasti fundurinn fyrir jól og hvetjum við sem allra flesta MEME-inga til að mæta :)

Guðmundur Karl | 14.12.2009, 11:59 - 4 lömb hafa jarmað :-)

mánudagurinn 7. des

Í kvöld verður jólaföndur og video-gláp!

Skemmtum okkur saman, horfum á jólamynd, föndrum jólaskraut og borðum gotterí,

Allir ætla að taka með sér eitthvað gómsætt til að deila með öðrum og svo skemmtum við okkur saman og eigum ærlegt jólakvöld!

Hlakka til að sjá ykkur

Þau sem eru í prófum og þurfa að læra fá góðar kveðjur og óskir um gott gengi frá okkur í Meme, sjáum ykkur seinna ;o)

Anna | 07.12.2009, 11:27 - Jarmaðu litla lamb

Mánudagurinn 30. nóv - breyting á dagskrá

Heil og sæl kæru félagar

Við erum í vanda núna. Það kom í ljós áðan að við getum ekki verið í Digraneskirkju annaðkvöld sökum þess að grimmur kvennakór hefur hreiðrað þar um sig og hleypir engum inn. Við gætum reynt að freista gæfunnar og frelsa prinsessuna Pálfríði sem er föst í álögum í efsta turni hallarinnar en kórinn er illvígur og ég sting því upp á að við gerum eitthvað annað í staðinn.

Þá höfum við nokkra valkosti og set ég núna upp skoðanakönnun að því tilefni:

1. Við gætum farið saman út að borða og átt góða stund á einvherju af veitingahúsum höfuðborgarsvæðisins. T.d. fengið hlaðborð á Pizzahut eða farið á American Style og fengið okkur borgara, eða einhvern annan stað sem okkur dettur í hug. Þá þyrfti hver að borga fyrir sig. Ég myndi reyna mitt besta til að fá tilboð en til að það gangi verð ég að fá tölu yfir hvað margir ætla að mæta fyrirfram svo að hægt sé að semja. Verðið færi þó aldrei yfir 1500 kr. en ég geri mér grein fyrir að það er hellingspeningur svona í lok mánaðar.


2. Við gætum farið og rennt okkur á ruslapokum í Ártúnsbrekkunni eins og við gerðum einu sinni í fyrra. Það var hellingsfjör og gæti verið gaman. Þá þurfa allir að koma vel klæddir.


3. Við gætum leigt rútu og skellt okkur í óvssuferð - sem yrði alger óvissuferð því við leiðtogar höfum ekki hugmynd um hvert við ættum að fara og værum alveg opin fyrir ýmsum tillögum ;o)

Kjósið nú endinlega hér að neðan í jörmum og sú hugmynd sem hlýtur bestan hljómgrunn verður valin. Við veljum fyrir kl 15 á morgun svo kjósið sem allra allra fyrst og bendið öllum á að taka þátt í kosningunni sem ætla að koma á morgun.

Anna | 29.11.2009, 18:14 - 16 lömb hafa jarmað :-)

Ljósaganga

Þjóðkirkjan er aðili að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi, sem verið hefur árviss viðburður. Það hefst í dag með Ljósagöngu kl. 19.00 og eru allir hvattir til að mæta sem láta sig málið varða og möguleika á að koma.

 

Ljósaganga miðvikudaginn 25. nóvember.

 

markar upphaf 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi.

 

Gangan hefst kl. 19:00 fyrir framan Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu og lýkur við Sólfarið við Sæbraut.

 

Í broddi fylkingar verða kyndilberar sem láta sig málefnið varða. Þeirra á meðal verða Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, leikkona, leikskáld og höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli.

 

Það er von okkar að sem flestir mæti í gönguna!

 

Í tilefni dagsins er ljós Friðarsúlunnar tileinkað voninni um heim án ofbeldis. Friðarsúlan er verk Yoko Ono og hún sendir sérstaka friðarkveðju en þetta er í fyrsta sinn sem ljós Friðarsúlunnar er tileinkað sérstöku málefni: Alþjóðadegi um afnám ofbeldis gegn konum.

 

Við í Meme ætlum ekki að hafa formlega mætingu þangað en við hvetjum ykkur endilega til að kíkja við og taka þátt ef þið hafið tök á.

Anna | 25.11.2009, 08:50 - Jarmaðu litla lamb

- Tonight is the night my friends -

Í kvöld er sameiginlegur fundur MeMe Junior og MeMe Senior sem ber yfirskriftina LEYNIGESTUR.  OKkur langar reyndar að bjóða MeMe Movie krökkunum líka þar sem þetta verður bara svo fáránlega skemmtilegt og OSOM að við getum ekki skilið ykkur útundan.

Leynigestur kvöldsins er kannski ekkert gríðarlega leynilegur en við skulum ekkert vera neitt að auglýsa hann of mikið.  Leynigestur þessi er enginn annar en sjálfur danshöfundur Rokkóperunnar !HERO sem sýnd var hér á landi síðasta vetur og var nottla fáránlega geggjuð í alla stað.

;)

VIÐ ÆTLUM AÐ GERA TÓNLISTARMYNDBAND OG... ÞAÐ EINA SEM ÞÚ ÞARFT AÐ GERA ER AÐ MÆTA. - OG EF ÞÚ HEFUR GAMAN AF ÞVÍ AÐ DANSA ÞÁ MÁ ENDILEGA MÆTA Í ÞÆGILEGUM FATNAÐI.  EF ÞÚ HEFUR EKKI GAMAN AF ÞVÍ AÐ DANSA ÞÁ ÁTTU LÍKA AÐ MÆTA, ÞAÐ ER E-Ð VIÐ ALLRA HÆFI Í DIGRANESKIRKJU Í KVÖLD, ENDA Í MÖRG HORN AÐ LÍTA ÞEGAR GERA Á TÓNLISTARMYNDBAND.

ÞÚ VILT EKKI MISSA EF ÞESSUM FUNDI

SJÁUMST ELDHRESS Í BANANASTUÐI

Rakel | 17.11.2009, 12:43 - Jarmaðu litla lamb

Skautaferð og Ræðukeppni

Jæja félagar hér koma tvær fréttir í einni svo fylgist vel með:

Nr 1

Skautadjamm ÆSKR verður á fimmtudaginn 12 . nóvember. Meme movie mætir að sjálfsögðu á staðinn full af hressileika og skemmtun.

Mæting er kl 16.50 í Skautahöll Reykjarvíkur í Laugardal.

Aðgangseyrir í Skautahöllina eru kr. 400 og leiga á skautum er kr. 300. Þetta er hóptilboð sem fæst með því að greiða fyrir alla í einu. Því þurfið þið að hitta Önnu í andyrinu og láta hana fá pening svo hún geti borgað fyrir ykkur.
Samkvæmt upplýsingum frá Skautahöllinni mega allir sem borga aðgang fara inn á
svellið, sama hvort sem þeir eru í skautum eða ekki.
Eftir skauta verður rölt upp í Laugarneskirkju þar sem boðið verður upp á helgistund og ávexti.
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 16 á morgun miðvikudag. (i jörmum hér að neðan)

Nr 2

Ræðukeppni Meme movie verður á næsta fundi og hlökkum við mikið til. Þar gefst ykkur tækifæri til að æfa ykkur að rökræða og rífast fyrir framan annað fólk. Þetta verður hörku stuð og því meira stuð sem þið undirbúið ykkur betur. Keppt verður í þriggja manna liðum og er öllum heimilt að búa til lið og senda í keppnina.

Eftirfarandi umræðuefni verða rædd:

Harry Potter og Jesú - eru þeir vinir? Eða er Harry andkristilegur?

        Oddur Ævar leiðir liðið sem talar á móti

        Telma Ýr leiðir liðið sem talar með  

Týndist Jesús í jólunum?  (eru jólin ennþá kristileg?)

        þeir sem vilja fá þetta umræðuefni skrái lið sitt hér að neðan.



Það er mikilvægt að liðin undirbúi sig vel og viti hvað þau ætla að segja, hvernig þau ætla að tækla málið og hver ætlar að segja hvað svo ekki segi allir það sama og keppnin verði sem skemmtilegust.

Verðlaun í boði fyrir besta liðið!

  

Anna | 10.11.2009, 19:16 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Hvers lína er það eiginlega?

Í kvöld ætlum við að komast að því hvers lína það eiginlega er. Við erum búin að vera að leita og leita og við bara vitum ekki baun.

En allir geta verið með, við ætlum að flippa dálítið út og hafa það ógislega gaman. See yah 

 

Whose Line Is It Anyway?

Guðmundur Karl | 02.11.2009, 17:32 - Jarmaðu litla lamb

Post Landsmót

Jæja lömbin mín.

Nú er Landsmót ÆSKÞ lokið og heppnaðist einstaklega vel. Hér kemur stutt ferðasaga.

Við lögum af stað á föstudeginum, leiðin lá í Herjólf sem flutti okkur til Vestmannaeyja. Veðrið var ekki nógu gott og því var ferðin ekki góð fyrir langflesta nema nokkra útvalda sem dönsuðu eiginlega alla leiðina.

Þegar komið var í land lá leiðin beint í Höllina sem við eyddum flestum vakandi stundum um helgina, mótið var sett og nokkur æskulýðsfélög fluttu þjóðsönginn sinn sem hvert æskulýðsfélag átti að búa til. Að sjálfsögðu voru sungin nokkur lög saman og var það mikið fjör.

En flestir voru orðnir ansi þreyttir og klukkan orðin margt, því lá leið okkar í barnaskólann þar sem við gistum. Fólk kom sér fyrir og fengu smá tíma til að spjalla og kynnast.

Á laugardagsmorgni var afar skemmtileg fræðsla sem bar yfirskriftina Æskan telur... Í hópavinnunni sendi Meme hvatningarbréf til Dóms- og Kirkjumálaráðuneytis um hvað þeim fannst mætti betur fara og hvatti þá hluti sem þeim fannst starfsfólkið gera vel. Alveg einstaklega vel skrifað bréf og Meme má vera stolt að eiga svona góða unglinga sem láta sér annt um hlutina. Já og Meme flutti þjóðsöngin sinn um morguninn.

Nú eftir hádegismatinn fóru krakkarnir í hópa, allir áttu að velja sér hóp sem það vildi fara í og við tók hópavinna. Það voru svo margir hópar að ég get alls ekki talið þá alla upp en nokkra man ég. Brjóstsykursgerð, hljómsveitarhóp, myndlistarhóp, fjölmiðlahóp, siglingahóp, spranghóp og margt, margt fleira. Leiðtogar Meme sá um fjölmiðlahóp og hljómsveitarhóp.

Eftir hópavinnuna tók við frjáls tími sem var vel nýttur í að taka sig til fyrir búningaballið. Kvöldamaturinn var alveg til fyrirmyndar og Eyjafólk fær sértakt hrós fyrir hann. Hann var frábær. Á kvöldvökunni voru nokkrar stuttmyndir sýndar sem æskulýðsfélögin höfðu búið til og plaggötin líka, þar á meðal okkar eðal plaggat.

Á kvöldvökunni voru verðlaun afhent fyrir stuttmynd, plaggat og þjóðsöng. Og viti menn Meme fékk 1 sæti fyrir þjóðsöngin, enda var hann til alveg geðveikt flottur og þau stóðu sig svo vel!!

Ballið var til miðnættis og á henni spilaði frábæra hljómsveitin Tríkot fyrir dansi.

Eftir ballið var helgistund í kirkjunni til að róa liðið fyrir svefninn og má segja að það hafi virkað ansi vel, nokkrir sofnuði á henni enda allir orðnir mjög þreyttir eftir langan og góðan dag.

Á sunnudeginum eftir morgunmat var keppt í Fáranleikum þar sem unglingar Meme stóðu sig ótrúlega vel. Mikil og fáranlega skemmtileg skemmtun.  Fyrir brottför var messa sem var yndisleg og viljum við þakka þeim sem komu að henni mjög vel fyrir.

Þá lá leiðin aftur í Herjólf, veðrið var skárra og ekki eins margir urðu veikir. Komum til Reykjavíkur um 20.30 í gær, þreytt, lúin og köld eftir frábæra helgi.

Unglingarnir okkar stóðu sig með mikilli prýði, við erum svo ótrúlega stolt af þeim og hlökkum mikið til að halda starfinu áfram í vetur með svona frábæru fólki.

                                                                   

Jessica | 19.10.2009, 16:55 - 1 lamb hefur jarmað

- Landsmót á eftir -

Já, Landsmótið er alveg að bresta á.  Hittumst hjá Breiðholtskirkju.  Lagt af stað kl.17:30, endilega mæta tímanlega.

Minni ykkur líka á að koma með mynd af ykkur og ef þið eigið á hættu að verða sjóveik að taka sjóveikistöflur eða bara að slaka vel á :)

Sjáumst á eftir

Rakel | 16.10.2009, 14:50 - Jarmaðu litla lamb

Ný ofurhetja Meme group

Oft hefur það gerst að Meme fólk hefur lent í aðstæðum þar sem kvartað er yfir að eitthvað drama sé í gangi.
Nú eru allar áhyggjur úr sögunni því í hvert sinn sem drama dúkkar upp köllum við á "The Drama Llama" sem mætir og leysir úr vandanum.

Ég hvet Landsmótsfara til að taka Drama Llama með sér til Eyja, því enginn veit hvenær þörf verður á kröftum þess.

Góða skemmtun í Eyjum.

Anna

Anna | 16.10.2009, 13:46 - Jarmaðu litla lamb

-LANDSMÓT Á MORGUN-

Á LANDSMÓT  NÚ ÉG FER, FER, FER - ÞAR FEIKNA GAMAN ER, ER, ER, ÉG ÞANGAÐ FER MEÐ ÞÉR, ÞÉR, ÞÉR EF ÞÚ KEMUR MEÐ MÉR, MÉR, MÉR 

Já, á morgun kl.17:30 leggjum við af stað á Landsmót ÆSKÞ í Vestmanneyjum.  Það er lagt af stað frá Breiðholtskirkju og gott er að mæta um kl.17:00 svo allir séu tilbúnir og komnir upp í rútu þegar á að leggja af stað kl.17:30.

Þið eruð með allar upplýsingar á blaðinu sem við létum ykkur hafa.  Einnig skuluð þið endilega kíkja inn á http://www.aeskth.is og lesa þar um mótið 

En þið sömduð texta um daginn við lag Veðurguðanna, Nóttin hún er liðin.  Hér kemur textinn :)  Endilega söngla með heima svo þið verðið búin að læra þetta þegar á mótið kemur.  Lagið sjálft getið þið fundið á slóðinni: http://www.myspace.com/vedurgudirnir

 

Þjóðsöngur MeMe 2009

Á þriðjudögum hittumst við í Kirkjunni

Á Digraneshæðinni

Eftir okkur bíður hún Jessica

Með prjónana í hendinni

Inni situr Rakel með brosið sitt

Og hefur umsjón með manni

Jasser inní kapellu við píano

Og býr til lag um þennan dag.

 

Ég fer í MeMe

Mér líst svo vel á þennan hóp

Ég fer í MeMe

Mér list svo vel á þetta kvöld

 

Sjáumst á morgun við Breiðholtskirkju.  Brottför þaðan kl.17:30.

Rakel | 15.10.2009, 12:30 - 3 lömb hafa jarmað :-)

- Landsmót eftir 3 daga -

Í kvöld ætlum við að hittast á MeMe Senior fundi og undirbúa Landsmótið sem við erum að fara á um næstu helgi.

Einnig verðum við með YouTube fund á sama tíma en þá megið þið endilega koma með einhver skemmtileg YouTube myndbönd og við vörpum þeim upp á skjáinn.

Það þarf ýmislegt að undirbúa fyrir Landsmótið og við hvetjum ALLA sem eru að fara til að mæta og taka þátt í stórskemmtilegum undirbúningi.  MeMe Movie krakkar endilega mæta líka.

Það sem þarf að taka með sér á fundinn í kvöld:

  • Leyfisbréf (Arnar, Friðjón, Oddur Ævar)
  • Restina af mótssgjaldinu.  Þeir sem tóku þátt í dósasöfnun sl.þriðjudag eiga eftir að borga hver um sig: 3320 krónur, nema Hugrún og Ásgerður sem mættu líka á fimmtudaginn og náðu að safna alveg upp í sína ferð.  Ásgerður Birna, Linda, Kristján, Oddur og Þórður eiga eftir að greiða 7500 krónur.
  • Útprentaða mynd af ykkur - verður notað í leik á Landsmótinu :)

 

Annars sjáum við ykkur bara í kvöld :) Endilega mæta með allt sem er talið upp hér að ofan :)  Og ekki er verra að kippa með sér einni slóð á skemmtilegt og fyndið youtube myndband til þess að gleðja okkur öll :)

 

Allar nánari upplýsingar um Landsmótið verða kynntar í kvöld. 

Rakel | 13.10.2009, 17:19 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Myndasögugerð

Sælt veri fólkið

Í kvöld er planið að gera myndasögu/r. Ég ætla að fá ykkur til að klæða ykkur í búninga og jafnvel fá Jessicu til að farða ykkur og taka myndir af ykkur og túlka einhverja skemmtilega sögu úr Biblíunni. Svo ætla ég að fara með myndirnar í eftirvinnslu og gera þær enn skemmtilegri, svo setjum við þær hingað á netið þar sem þið getið skoðað þær.

Þórunn æskulýðsfulltrúi ætlar líka að vera með okkur og hlakkar okkur öllum til að hitta hana!

 

 

P.S. Biðst innilegrar velvirðingar á því að ekki verða upptökur í kvöld en kvikmyndatökuvélin okkar er enn í viðgerð, aumingjans Annan okkar er lasin og Gummi á næturvakt. Þið eruð best knús, hlakka til að sjá ykkur í kvöld!

Guðrún Þóra | 12.10.2009, 14:57 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Dósasöfnun gefur vel - viltu endurtaka leikinn?

Sæl verið þið,

Í gær fóru 15 galvösk lömb af stað að safna dósum.  Tilgangurinn var að sjálfsögðu sá að safna eins miklum pening og hægt er upp í LANDSMÓT ÆSKÞ sem haldið verið í Vestmannaeyjum 16.-18.október.

Söfnunin gekk rosalega vel svo ekki sé minna sagt og það er gaman að segja ykkur sem tókuð þátt í söfnuninni að þið hafið hvert um sig safnað ykkur 3430 krónum 

:D

Heildarverðið á mótið er 12.500 krónur.  Með skráningargjaldinu sem þið hafið þegar greitt og því sem safnaðist í gær eigið þið bara eftir að greiða 4070 krónur.

Þar sem þessi söfnun gekk svo vel þá datt okkur í hug að bjóða ykkur upp á að endurtaka leikinn annað kvöld og þá myndum við byrja aðeins fyrr, kannski svona milli 18:00 og 19:00.  Við leiðtogarnir erum til í að vera með ykkur og Gummi leggur til sinn flotta bíl....en þetta verður ekki gert nema næg þátttaka fáist.  

Ef þú ert til í að koma niður í Digraneskirkju annað kvöld og safna dósum....og safna ennþá meira upp í ferðina þína á landsmót þá verður þú að skrá þig í commentunum hérna fyrir neðan.  Endilega mætum sem flest.

 

Rakel | 07.10.2009, 13:41 - 14 lömb hafa jarmað :-)

SKRÁNINGARFRESTUR Á LANDSMÓT - SÍÐUSTU FORVÖÐ

Í kvöld milli kl.18:00 og 20:00 verð ég niðri í Digraneskirkju og ætla að skrá niður alla sem ætla á Landsmót ÆSKÞ 16.-18.október nk.

Við skráningu þarf að að greiða 5000 króna staðfestingjald og skila inni leyfisbréfi sem foreldrar ykkar eða forráðamenn hafa kvittað undir.  

Leyfisbréfið getið þið náð í og prentað út hér: http://www.aeskth.is/landsmot/skraning

Heildarverð á mótið er 12.500 krónur og dregst staðfestingargjaldið frá þeirri upphæð.

Á morgun verð ég að skila inn nöfnum á öllum sem ætla að fara á landsmót svo að það er mjög mikilvægt að þið komið upp í kirkju í kvöld og skráið ykkur.  Ef þið komist ómögulega í kvöld þá verðið þið að hringja í mig í símanúmerið: 661-0760 og skrá ykkur í gegnum símann.  Ef þið skráið ykkur í gegnum síma þá verð ég að vera komin með staðfestingargjald og leyfisbréf á morgun.

Sjáumst eða heyrumst í kvöld ;) 

Hafið samband í símann minn: 661-0760 - eftir kl.15:00 í dag ef þið komist ekki í kvöldið.


Rakel | 04.10.2009, 13:52 - Jarmaðu litla lamb

Þraukarakeppni ÆSKR

Fimmtudaginn 1. október fór fram keppnin ÞRAUKARINN 2009 á vegum ÆSKR í Grafarvogskirkju. Fréttastofa MEME movie var á svæðinu.

Guðmundur Karl | 02.10.2009, 01:59 - 1 lamb hefur jarmað

Fréttastofa MEME movie

Þá hefur fréttastofa MEME movie gefið út sína fyrstu frétt (sjá hér fyrir neðan).

En næsta verkefni liggur nú þegar fyrir, en það er þraukarakeppni ÆSKR sem verður á fimmtudaginn. Þá þurfum við að mæta upp í Grafarvogskirkju kl. 19:30. Mig vantar þá helst fréttamann. Þeir sem hafa áhuga og möguleika á að koma, vinsamlega svarið mér í kommentum hér fyrir neðan.

Guðmundur Karl | 29.09.2009, 00:33 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur á mánudag

Jæja kæru englar og púkar þá er komið að því að fara að spýta í lófana og halda áfram með myndina okkar!!!

Við þurfum að breyta um atriði þar sem tveir púkar komast ekki. Fyrsta atriði sem við stefnum á er þá samtal Eymdar og Lúsífers í Helvíti (sena 10) Atriði til vara verður svo samtal Árna og Dísu (fyrirgefðu samtalið).
Vona að það gangi

 

Við ætlum að byrja á að taka upp Helvítis-atriði á mánudaginn. Það eru tvö atriði sem koma til greina, það fer eftir veðri hvort þeirra við tökum svo það væri gott ef þið mynduð lesa bæði yfir og reyna að læra línurnar ykkar.
Annað atriðið er sena 14 sem er atriði sem við tókum upp fyrsta upptökudaginn okkar en þar sem sú upptaka tókst ekki sem skyldi sökum tíma og smink deildin hafði ekki eignast hina frábæru Jessicu þá þarf að taka það upp aftur. Í því atriði eru púkarnir að spjalla við Lúsífer og ég vil gjarnan fá aukapúkana með. Eymd er ekki á staðnum en ég vil fá alla aðra púka sem vilja koma. Þetta verður svona mótsögn við "allir að leika sér í himnaríki" atriðið.

Hitt atriðið er fyrir utan búlluna á Holtaveginum (sena 4) þar sem púkarnir eru að spjalla saman. Þar þurfa að vera Þráinn, Græðgi, Öfund og Ingi (hmm þurfum að finna púkanafn á þig Ingi) og Eymd og Lúsífer í bakgrunni.

Mér þykir leitt hvað ég auglýsi þetta seint og biðst afsökunnar á því en ég vona að allir komist.

Mæting er kl 18 í smink og hár.

Endilega sem flestir að mæta því ef það gengur ekki að taka upp þessi atriði þá gætum við þurft að skipta yfir í eitthvað annað og eins þurfum við alltaf á duglegu fólki að halda (og svo sakna ég ykkar og vil sjá ykkur öll!)

Anna | 19.09.2009, 11:51 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Upptaka í poppmessu

Á sunnudaginn n.k. verður poppmessa á vegum ÆSKR í Lindakirkju. Messan hefst kl. 17:00 og verður mikið um dýrðir.

Meme movie hefur verið beðið að gera fréttaskot frá messunni. Við þurfum þá 1-2 sem gætu komið á svæðið (myndavél og spyrill). 

Ef þið hafið áhuga þá endilega skráið ykkur hér í kommentum fyrir neðan.

 

Kvöldmessa í Digraneskirkju

Svo er vert að minnast á kvöldmessu í Digraneskirkju á sunnudaginn kl. 20:00. Hún verður í umsjón æskulýðsstarfsins og því gæti þetta orðið einn allsherjar messudagur fyrir þá sem hafa áhuga :)

Guðmundur Karl | 18.09.2009, 15:41 - Jarmaðu litla lamb

Hellaferð

Á morgun, mánudaginn 14. september, ætlum við í Meme movie að skella okkur í gamaldags hellaferð. Við höldum af stað frá Digraneskirkju kl. 19:30 á eigin bílum. Því eru þeir sem geta beðnir að koma á bíl. Það er mikilvægt að vera vel klædd(ur), í góðum skóm, með húfu/hjálm til að verja viskustykkið og að vera með vasaljós. Við ætlum svo að halda í hellaferð þar sem við gætum jafnvel rekist á ánægjulega hluti eins og heitt kakó og eitthvað maul :-)

Sjáumst á morgun

Guðmundur Karl | 13.09.2009, 21:12 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Aftur komið haust... eina ferðina enn

 Jæja elskurnar þá er komið að því. Haustið er komið og tímabært að fara að slá í bykkjuna og koma Meme movie af stað aftur (bykkjan er auðvitað Gummi... nei segi svona).

Næsta mánudag, 7. september, ætlum við að hafa dagskrárgerðarfund í Meme movie. Þá mæta allir hressir og kátir kl 19:30 (húsið opnar kl 19:00) og spjalla og hjálpa okkur við dagskrárgerð og spila svo kannski svolítið ef stemmari er fyrir því.

Það er margt spennandi framundan t.d. ætlum við að klára hina stórglæsilegu bíómynd um Erfingja Eilífðarinnar en við ætlum að gera það í rólegheitum. Við ætlum að taka okkur okkar tíma og gera þetta vel og leika okkur inn á milli við annarskonar skemmtun t.d. að spila, hafa leikjafund, ratleiksfund eða hvað sem ykkur dettur í hug. Þessvegna er mikilvægt að sem flestir mæti á fundinn á mánudag svo allir geti komið með hugmyndir. Við ætlum hafa þessa ókvikmyndatengdufundi svolítið í ykkar stjórn líkt og var fyrir áramótin í fyrra.

Ég ætla reyndar að fá að vera í fríi á mánudaginn þar sem dóttir mín verður 5 ára þann dag en mínar dagskrárhugmyndir berast í pósti og ég hlakka til að sjá ykkur viku seinna.

Gummi, Guðrún og Jessica mæta þó hress og kát og verða með ykkur í þessari dagskrárvinnu.

Sjáumst hress.
Anna

Anna | 04.09.2009, 09:49 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Mánudagurinn 8. júní

 Góðan og blessaðan daginn!

Mig langar að forvitnast um hverjir komast í Meme movie á mánudagskvöld?

Við erum aðeins að skoða núna hvað við ætlum að gera, hvort við ætlum að halda áfram eitthvað fram á sumarið eða hvort allir séu orðnir þreyttir og tímabært að taka pása fram á haustið?

Nú langar mig gjarnan að fá viðbrögð frá ykkur. Hvað finnst ykkur? Er kominn tími á sumarfrí eða viljið þið hittast eitthvað áfram?

og spurning númer tvö:
Hver ykkar komast á mánudagskvöldið næsta?

Ef við ætlum að taka eitthvað upp á mánudag þá væri gott að vita hverjir komast til að sjá hvaða atriði við getum tekið upp og hvað ekki.

Endilega látið í ykkur heyra

Anna | 05.06.2009, 08:48 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Útilega ÆSKR og ÆSKÞ

Meme movie lömb eru víst of gömul í ferðina og komast ekki með í þessa ferð.

Guðmundur Karl | 05.06.2009, 01:31 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Hvítasunnuupptökur

 Við erum núna hálfnuð með upptökurnar okkar og erum hörku ánægð með það sem komið er. Það er bara eitt atriði eftir með Söru sem er að yfirgefa okkur eftir helgina en það er fullt eftir af púkunum okkar og djöflinum sem hafa verið svolítið vanrækt undanfarið.

Við ætlum að taka upp meira á mánudaginn. Þá er frídagur hjá öllum svo við ætlum að mæta strax kl 10:00 um morguninn og byrja á að taka upp atriðið þar sem Árni og Gabríel eru að spjalla á himnum og Sara kemur til þeirra og Gabríel og Sara kyssast og kveðja.

Þegar því atriði lýkur ætlum við að taka upp nokkur helvítisatriði!

Það væri því gott að fá sem allra flesta á mánudag kl 10:00 - djöflar og púkar mega mæta kl 11:30 og kýla svo á þetta og gera þetta almennilega.
Reynum að taka upp eins mikið og við getum.

Þetta er 1. júní kl 10:00. Ég ráðlegg fólki að taka með sér nesti eða bút af nýfengnum mánaðarlaunum svo hægt sé að panta pizzu eða eitthvað slíkt.

Hlakka til að sjá ykkur og vonast til að sem flestir komist

kveðja
Anna

Anna | 29.05.2009, 13:22 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Textar fyrir Hvítasunnudag og mótorhjólamessu

Söngtextar fyrir næstu tvö gigg eru nú komnir á veraldarvefinn. Smellið hér fyrir neðan til að skoða þá:

Hvítasunnudagur
Mótorhjólamessa

Föndurstund

Góðar stundir :-)

Guðmundur Karl | 28.05.2009, 12:24 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Hvítasunnuhelgin

 Já Hvítasunnuhelgin verður mega-busy hér í kirkjunni okkar.

Það er stór samkirkjuleg bæna- og lofgjörðarsamkoma hér á sunnudagskvöld vegna alþjóðlega bænadagsins. Allar kirkjurnar og samfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla að koma hingað og sameinast í bæn kl 20:00 - allir velkomnir.

Tónlistarhóprinn okkar ætlar að leiða tónlistina í upphafi samverunnar og í lok hennar. Mig vantar alla sem geta verið með til að koma og hjálpa til. Það vantar fólk til að syngja og spila og svo vantar líka fólk til að vera í móttöku og aðstoða við hitt og þetta sem fellur til.

Á mánudaginn er svo mótorhjólamessan okkar og þá eins og venjulega syngjum við og djömmum með mótorhjólagenginu. K.K. verður á staðnum og Pétur Hrafnsson og margir fleiri snilldar tónlistarmenn verða með okkur.

Í kvöld kl 18 er æfing fyrir mótorhjólamessuna og ég vona svo sannarlega að ég fái góðan sönghóp til að mæta með mér.
Þeir sem eru í prófum á morgun og komast ekki í kvöld geta engu að síður mætt á sunnudag kl 17:00 og tekið þátt. Þetta er mest allt lög sem þið kunnið og þau birtast hér á síðunni fljótlega, vonandi í dag.

Á mánudag kl 17:00 verður svo aftur æfing fyrir mótorhjólamessuna.

Vonast til að sjá sem flesta, hressa og káta. Þetta verður magnað stuð!

Anna | 28.05.2009, 12:22 - Jarmaðu litla lamb

upptökur í kvöld

Heil og sæl og afsakið hvað þetta er seint á ferðinni núna.

Við ætlum að mæta kl 19:15 í kvöld og punta okkur og pússa og svo förum við út í góðaveðrið og tökum upp Gabríel-Eymd - Gabríel-Sara senuna.
Ef við erum snögg og dugleg þá verður ísbíltúr á eftir ;o)
Reynum nú að láta verða af honum loksins... he he

 

Anna | 25.05.2009, 13:50 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Upttökur mánudaginn 18. maí

Á mánudaginn ætluðum við að hafa það rólegt og horfa á eitthvað af því sem við höfðum tekið upp hingað til en það gengur ekki því við þurfum að drífa okkur að klára að taka upp Diddu atriði áður en hún flýr af landi brott á vit nýrra og spennandi ævintýra í jarðaberjatýnslu.

Við ætlum því að taka upp atriðið þar sem Sara kemur til himna í fyrsta sinn.
Í því atriði eru Sara, Jesús, Gabríel, Lykla Pétur, Rafaela, Laíla og aukaenglar.

Ef okkur tekst að ljúka því atriði á skikkalegum tíma - takið eftir EF-
þá ætlum við að skella okkur í atriðið þar sem Árni og Gabríel ræða stelpumálin, Sara kemur að þeim, Árni fer og Sara og Gabríel kyssast!

Mæting kl 18:00 í förðun og greiðslu. Óskað er eftir aðstoðarfólki í greiðslur því Anna kemst ekki á mánudaginn.

 

Anna | 14.05.2009, 14:30 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Júróvísjón partý!!!

Já það verður júróvísjónpartý í Digraneskirkju í kvöld.

Allir velkomnir, höfum stuð og gaman og allir mega taka með sér nammi og gos eða hvað sem þeir vilja snarla á meðan horft er á syngjandi og dansandi evrópubúa!

Fönix kemur í heimsókn svo þetta verður rosa stuð!

Keppnin og partýið byrja kl 19:00

Sjáumst!

Anna | 12.05.2009, 12:19 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur á mánudaginn

Næsta mánudag, 11. maí, ætlum að taka upp Gabríel og Söru, Gabríel og Eymd, Söru og Jesús. Atriðin verða tekin upp við Turninn í Smáratorgi og hugsanlega við Bókasafn Kópavogs.

Mæting er í Digraneskirkju kl. 18:00 í smink og búninga.

Guðmundur Karl | 08.05.2009, 12:07 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Enn á ný breytingar

 Svo virðist sem yfirmaðurinn okkar hafi verið því mótfallinn að við tækjum þessi útiatriði upp án Guðrúnar Þóru svo hann skellti á okkur vibbaveðri í dag.

Við verðum því að færa upptökur inn í hús og ætlum að taka aðeins meira upp í himnaríki. Stefnum núna á að taka upp atriði á skrifstofu Jesú svo þá væri eðal að fá inn Jesú, Gabríel, Emmu, Árna og hugsanlega aðra engla. (enn á ný - ekki þó Telmu)

Ég vonast til að geta séð sem flesta í kvöld og minni á að allir sem leika undirheimapakk og aðrir leikarar eru að sjálfsögðu velkomnir líka því okkur vantar alltaf sviðsmenn, klappstýrur og annað aðstoðarfólk.

Geymum ísferðina þar til betur viðrar en endilega að taka með sér smá gotterí til að hafa það kósý!

kveðja
Anna

p.s. ég veit að þetta er stuttur fyrirvari en ég vona að þetta gangi. Endilega látið mig vita ef þið komist ekki.

Anna | 04.05.2009, 16:40 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Víxl á dagskrá

Það fór eitthvað fram hjá mér (eða þá að ég hreinlega gleymdi því) að Didda var búin að segja frá því að hún kæmist ekki í kvöld. Við þurfum því að víxla atriðum og taka upp Djöfulinn og Jesú á Holtinu í kvöld en Gabríel og gellurnar í næstu viku.

Ég vil gjarnan fá nokkra engla í kvöld líka - nóg að fá eins og tvo til fjóra. - væri mjög gott ef það væru t.d. Gauji, Oddur, Konný og einhver einn í viðbót - (veit að Telma er að fara í próf svo hún er ekki velkomin ;o)
Ég held að Konný sé ekki á sms listanum okkar svo endilega látið hana vita fyrir mig.

Þessir englar eiga að fylgja Jesú eins og lífverðir í lok atriðisins.

Þetta er ekki mjög langt atriði og ég vona að við náum að klára það frekar hratt og ef það gengur þá ætlum við í ísbíltúr á eftir ;o) Jeij!!!

Vonast til að þetta rugli ekki ykkar plönum of mikið.

bestu kveðjur
Anna

Anna | 04.05.2009, 10:18 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Dagskrárbreytingar

Vildi bara benda ykkur á dagskrárbreytingar sem hafa verið gerðar á næstu fundum.
Ég er að reyna að púsla samkvæmt prófatöflum hjá fólki útfrá því sem ég hef heyrt af.
Endilega kíkið á þetta og sjáið hvort þetta hentar.
Mér sýnist svo að við þurfum að taka eitthvað upp í júní líka og halda eitthvað áfram fram á sumarið. Það er kannski ekki slæmt þar sem við eigum eftir að taka upp helling af útitökum og því hlýrra því betra ;o)

Endilega látið mig vita ef þetta stangast á eitthvað hjá ykkur

 

Anna | 30.04.2009, 12:41 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur 1. maí.

 Já 1. maí er frí í skólum og á mörgum vinnustöðum.

Við ætlum því að skella inn auka upptökudegi og taka upp allt sem gerist í himnaríki. Við Guðrún mætum kl 10 til að setja upp og búa til himnaríki, ef einhver vill hjálpa er hann/hún velkomin. Kl 11:00 byrjar förðun, greiðsla og búningar og upptökur hefjast kl 12:30.

Þeir sem verða í upptökum eru Jesús (og nú fær hann loksins að láta ljós sitt skína), Gabríel, Laíla, Lykla Pétur, Emma, Eymd (sem nú verður Von) allir englar sem hingað til hafa verið á sviði (ef þeir komast), litlir auka englar, Sara, Dísa og Árni.

Þetta eru 9 senur svo okkur veitir ekki af tímanum, ég efast um að við náum að taka þetta allt en við gerum okkar besta. Senurnar eru mislangar og misflóknar svo við sjáum til hversu mikilu við náum og hvað við geymum til betri tíma. Við áætlum að hætta kl 18:30 og vera búin að ganga frá fyrir kl 19:00

Ef einhver af englunum eða þeim sem taldir eru upp hér að ofan komast ekki þá þurfa þeir að láta mig vita hér að neðan í kommentum eða senda mér póst (netfangið mitt er á starfsmannasíðunni hér til hliðar).

Hlakka til að sjá ykkur, það er búið að vera geggjað í upptökum hingað til og ég hlakka til að halda áfram með ykkur.

Anna og co.

Anna | 28.04.2009, 11:42 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Myndir úr Forvarnahúsinu

Smelltu hér til að skoða

Guðmundur Karl | 28.04.2009, 00:27 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur í Forvarnahúsinu í dag

 Hæ hæ

Í fyrsta lagi vil ég þakka ykkur fyrir frábæran upptökudag á þriðjudaginn. Það var meiriháttar hvað allt gekk vel og allir voru jákvæðir þrátt fyrir kulda og þreytu.
Ég held að við höfum náð virkilega góðum skotum sem gaman verður að klippa og ennþá meira gaman að sjá hvernig kemur út endanlega.

Í kvöld verða tekin upp atriðin heima hjá Árna.
Þar koma fram: Árni, Dísa, Djöfullinn, Gabríel, Jesús, Laíla, Lyklapétur, Þráinn, Græðgi, Öfund og einn til tveir ónefndir englar (svo gott væri að fá eins og tvo aukaleikara).
Einnig vantar ljósamenn, hljóðmann, skriptu og sviðsmenn.

Við byrjum í Digraneskirkju kl 17:30 á að flétta, greiða og sminka og förum svo saman í Forvarnahúsið kl 19:30.
Endilega allir að mæta tímanlega svo það gangi hratt fyrir sig að koma öllum í búning og sminka og greiða. Það tók allt of langan tíma á þriðjudaginn.

Allir að æfa línurnar sínar og hlakka til að sjá ykkur jákvæð og kát í kvöld.

kveðja
Anna og co

Anna | 27.04.2009, 10:51 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur í kvöld og á morgun

 Heil og sæl öll sömul

Laugardagurinn fór nú svolítið í vaskinn þar sem hvorki Eymd né Djöfullinn voru á staðnum. Djöfullinn okkar mætti svo í nokkrar mínútur áður en hann þurfti að fara í vinnuna.
Okkur tókst því að taka upp hálft atriði. Náðum nokkrum mjög góðum skotum af duglegu aðstoðarpúkunum hans sem mættu á réttum tíma og voru til staðar allan tímann.

Það er MJÖG MIKILVÆGT að þið látið okkur vita ef þið komist ekki í upptökur svo það séu ekki allir að eyða tímanum sínum til einskis bara út af því að einhver einn eða tveir komu ekki.
Það sýnir öðrum svo mikla lítilsvirðingu að mæta bara ekki.

Við ákváðum á laugardaginn að mæta snemma í kvöld og því ætlum við að mæta kl 17:00 í Digraneskirkju í kvöld og byrja að greiða og mála og undirbúa tökurnar.

Í kvöld og annaðkvöld á að taka upp stóru atriðin á Torgi ljóss og friðar og því er mjög mikilvægt að allir mæti!
- nú veit ég t.d. að Didda kemst ekki í dag og þannig get ég planað að taka upp eina atriðið hennar á torginu á morgun.
Ef fleiri komast ekki þá verð ég að fá að vita það sem fyrst, en hafið það í huga að þessar dagsetningar eru búnar að vera hér á netinu í langan tíma og það eru fáar afsakanir sem eru nógu góðar til að ég taki þær gildar. Það er ekki hægt að láta alla bíða endalaust því að einhver þarf að fara í ræktina.

S.s. mæting í kvöld kl 17:00 og aftur á morgun kl 18:00.

Þurfum eins mikið af auka púkum og englum og hægt er svo endilega takið með ykkur eins mikið af fólki og þið getið.

Tilvalinn tími til að gamlir meme-ingar mæti og taki þátt í smá stund.

Allir aukaleikarar - stúlkur beðnar að koma í hvítum leggings - eða sokkarbuxum og hvítum/ljósum skóm eða í svörtum leggings/sokkabuxum og skóm.
Allir drengir beðnir um að koma í svörtum buxum og svörtum sokkum og skóm, eða hvítum buxum, hvítum sokkum og skóm - ef þeir eiga það til
Hef grun um að fleiri eigi svart en hvítt svo ef einhver á bæði er hvítt betra eða þá að taka bæði með svo við getum lánað þeim sem ekkert á.

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld
Anna og co

Anna | 20.04.2009, 12:25 - 25 lömb hafa jarmað :-)

Upptökur á morgun - Laugardag

Jæja okkur bárust þær fréttir að Gabríel er stunginn af til útlanda yfir helgina svo við getum ekki tekið upp himnaríki á morgun.

Í staðinn ætlum við að fara alveg í hina áttina og taka upp Helvíti.
Nú spyr ég - komast allir púkar og dríslar og að sjálfsögðu hinn myrki herra sjálfur?

Mæting er kl 12:00 og þá verða allir settir í búninga, greiddir og farðaðir og allt gert klárt. Kl 13:30 byrja svo upptökurnar.

Munið að okkur vantar líka, skriftu, ljósamenn, hljóðmann, sviðsmenn og fleira svo allir að mæta.

Ef einhver kemst ekki væri mjög gott að fá að vita af því sem fyrst.

Svo eru samkomur í kvöld, morgun og sunnudag í Grensáskirkju þar sem snillingurinn Roland Verner frá Þýskalandi talar. Ég mæli eindregið með að þið kíkið á þær. Þessar samkomur eru í umsjón KSS, KSF og Salt kristið samfélag og hljómsveitin á staðnum er alveg dásamleg - Árni, Siggi Bjarni, Laufey og fleiri sem þið þekkið eflaust.
Sjá nánar um samkomurnar hér


Mæli með samkomunum, vonast til að sjá sem flesta á morgun.

Anna | 17.04.2009, 14:56 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Fundi aflýst í kvöld

 Þar sem 66,6% leiðtoga eru lasnir í dag verður því miður enginn fundur í Meme movie í kvöld.

Allir eru samt boðnir velkomnir á páskakósý hjá meme group á morgun kl 19:30 - má taka með sætindi eða gotterí af öðru tagi - og eitthvað að drekka.

Við erum ákaflega sorgmædd að hitta ykkur ekki í kvöld, en svona er lífið..

... vonumst til að hitta sem flest á skólamóti. Síðasti skráningardagur er í dag svo ekki hika við að skrá ykkur.

Anna | 06.04.2009, 15:45 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Meme movie á skólamót í Vatnaskógi

 Já það er víst komið að vorskólamóti - Jeijj!!!

Meme movie er að venju boðið með á skólamót KSS.
Nú eru kannski einhverjir sem ekki vita hvað skólamót er.

Skólamót er ferð sem KSS - Kristileg Skólasamtök - standa fyrir í páskafríinu og á haustin.

Við förum í Vatnaskóg með rútu á miðvikudagseftirmiðdag (held ca kl 17) og komum heim á laugardagseftirmiðdag (og páskadagur er daginn eftir).
Við skemmtum okkur konunglega saman í Vatnaskógi, höldum kvöldvökur, förum í sund, heita potta, fíflumst í íþróttahúsinu og margt fleira. Einnig eru biblíulestrar og ræðumenn sem tala og kenna okkur eitthvað meira um Guð.

Það kostar 7500 krónur á mótið og innifalið er snilldar matur (Rakel og Jessica sem eru Meme vel kunnugar verða í eldhúsinu ásamt fleirum), gisting, fræðsla, kapellustund, heitir pottar, sundferð á Hlaðir, hreint loft og bara nefndu það.

Þeir sem vilja skrá sig þurfa að senda póst á anna.arnar [hjá] simnet.is þar sem fram kemur nafn, kennitala, gsm númer og hvort þið ætlið með rútunni eða á eigin bíl.
Einnig er hægt að skrá sig á mánudaginn á fundi.

Þetta verður þrusu skemmtilegt skólamót og ég vona að sem flest ykkar látið sjá ykkur.

Anna | 04.04.2009, 09:17 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Dagskrárbreyting

 Sælt veri fólkið

Þar sem Jói litli er í útlöndum þá verður ekki hægt að taka upp Helvítis atriðin (úff mér líður eins og ég sé að blóta) í kvöld.

Einnig hef ég fregnir af því að Dísa og Árni verði ekki á staðnum í næstu viku svo við ætlum að breyta og taka upp þeirra úti atriði í kvöld og Helvíti næst.

Ef tími verður til ætlum við líka að taka upp Gabríel og Eymd og Gabríel og Söru. (við erum komin með nýja Söru, erum mjög leið yfir að hafa misst Hörpu en fengum Diddu til að taka hlutverkið að sér og hún er engu síðri en Harpa svo þetta verður allt í lagi. Sem betur fer fáum við að hafa Hörpu áfram með okkur að einhverju leiti.)

Hins vegar á eftir að klára búningadæmið svo við þurfum að kíkja á það strax kl 19 í kvöld til að komast yfir eitthvað af þessu.

Vonast til að allir kunni textana sína og mæti hressir og kátir í kvöld.

Förðunarmeistarinn okkar ætlar að mæta á staðinn svo það verður rosa fjör.

Hlökkum til að sjá ykkur og byrja loksins á upptökum! jeij!!!

Anna | 30.03.2009, 12:17 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Dagskrá Meme movie

 Jæja þá er dagskráin okkar komin á netið.

Þar má finna hvað við ætlum að taka upp og hvenær.
Ég minni fólk á að það þarf fleiri en bara leikarana sem eigi að birtast í hverju atriði fyrir sig. Við þurfum líka ljósamenn (eða konur), hljóðfólk, skriptu (hún þarf alltaf að mæta), sviðsfólk og fleira.

Allir verða svo að muna að læra línurnar sínar og vera dugleg að mæta á réttum tímum.

Þeir sem ekki eru komnir með búninga þurfa að mæta á slaginu 19:00 á mánudaginn til að finna út úr því.

Ég er með eitthvað af búningum eftir, er að redda einhverju í viðbót, en svo þarf ég að fá eitthvað meira frá ykkur líka ef þið hafið eitthvað.

Hlökkum til að fara loksins af stað með upptökur
Kveðja
Leiðtogar Meme movie

Anna | 26.03.2009, 12:27 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Atburður gegn fordómum

Á morgun verður hátíð gegn fordómum í Smáralindinni kl 16-18.

Við ætlum að sjálfsögðu að taka þátt í því. Það eru Mannréttindastofa, Rauðikrossinn, kirkjan og fleiri sem standa að þessari hátíð. Fullt af ungmennum mæta í Smáralindina kl 16 og fá þar bol og eru máluð í framan í allskyns skemmtilegum litum. Svo verður farið í smá hópleiki og eftir það fara hópar af stað með ruslafötur og miða og bjóða gestum og gangandi að henda fordómum í ruslið. Einnig bjóða þau upp á sælgæti og lesefni um fordóma.
Á öðrum stað verður myndasýning um fordóma og fjölbreytni og á enn öðrum stað verður veggur þar sem við hengjum upp allskyns góða hluti sem tengjast fjölbreytni.

Á sviðinu verða svo atriði frá Rokkóperunni !Hero, söngleiknum Stardust og breikari sem dansar og kennir kannski gestum og gangandi einhver trikk.

Það er ekki ótakmarkað magn af bolum svo fyrstir koma fyrstir fá. Þeir einu sem hægt verður að taka frá fyrir eru þeir sem eru að vinna í 6-9 ára starfinu hér í kirkjunni og stefna á að koma strax eftir það. Þeir skulu láta mig vita svo að ég geti tekið frá bol handa þeim.

Vonast til að sjá sem flesta í Smáralindinni á morgun, fimmtudaginn 19. mars, kl 16.

Anna | 18.03.2009, 11:42 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Kveðja frá ÆSKR

Sæl öll 

Minnum aftur á hitting fyrir ,,eldri borgara", hann verður í kvöld, fimmtudaginn 5. mars kl. 19:30. Staðurinn er hins vegar breyttur.  Það á að hittast í Vídalínskirirkju í Garðabæ.  Allar aðrar upplýsingar eru í gamla póstinum sem ég sendi með. Bestu

kveðjur frá ÆSKR!

Anna | 05.03.2009, 11:44 - 2 lömb hafa jarmað :-)

!Hero General!

Generalprufan er á morgun kl. 20:00.
Mæting í Loftkastalann kl 19:45 í síðasta lagi.

Ég minni á að þetta er síðasta æfingin hjá !Hero hópnum og í fyrsta sinn sem við höfum áhorfendur. Öll ljós og tæknimál eru enn að ná réttu róli svo það verður ennþá meira gaman á sýningunni 8. mars. Ég held það gæti verið gaman fyrir ykkur að koma bæði á genralinn og líka á alvöru sýningu og sjá muninn.

!Hero hópurinn hlakkar mikið til að sýna ykkur hvað við erum að gera og við vonum að þið skemmtið ykkur vel.

Ef einhverjir vilja panta og borga miða fyrir 8. mars á morgun frekar en á þriðjudag þá er það leyfilegt.
Sjáumst!

Anna | 01.03.2009, 18:54 - 9 lömb hafa jarmað :-)

Leikhúsferð Meme group

 Já við í Meme group ætlum að skella okkur saman í leikhús og það er ekki sýning af verra taginu sem við förum á.

Við ætlum að sjá rokkóperuna !Hero. Þetta er stórglæsileg sýning með haug af flottum dönsurum og söngvurum og röppurum og ég veit ekki hvað og hvað.
Í aðalhlutverkum eru Svenni úr Luxor, Dabbi T, Poetrix, Eiríkur Hilmar Rafnsson, María Magnúsdóttir, Ingunn Huld Sævarsdóttir, Þorleifur Einarsson, Siggi Ingimars og fleiri.
Sjá nánar á www.hero.is

Við ætlum að fjölmenna á tilboðssýningu sem verður sunnudaginn 8. mars. kl 17:00. Verð á sýninguna er 2300 kr. (venjulegt verð á þessa sýningu er 2800 kr.) og til að koma með þarf að vera búin að skrá sig og borga í síðasta lagi þriðjudaginn 3. mars. Þið megið líka gjarnan taka vini og ættingja með á sýninguna.

Vonumst til að fá sem flesta með á þessa mögnuðu sýningu.
Kveðja
Leiðtogar Meme group

Anna | 26.02.2009, 12:54 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Tilboð frá ÆSKR

Góðan daginn.

Fimmtudaginn 29. janúar bauð ÆSKR “eldri unglinum” þ.e. þeim sem eru byrjuð í menntaskóla í smá hitting í Neskirkju. Hittingurinn gekk mjög vel, 23 mættu og var mikið gaman.

Hópurinn ætlar nú að hittast aftur í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 5. mars kl. 19.30 (ath. breytta dagsetningu). Breytendur sem starfa á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar, ÆSKR og Biskupsstofu ætla að koma og spjalla við hópinn en við ætlum líka að spjalla um heima og geima og enda svo með helgistund.

Hægt verður að fá pizzu fyrir 500 krónur.

Allir sem eru ca 17-20 ára og voru eða eru í æskulýðsstarfi eru velkomnir og látið þetta endilega berast. Þið megið líka endilega bjóða “gömlu” leiðtogunum ykkar með ykkur.

Með von um að sjá sem flesta,
ÆSKR

Anna | 24.02.2009, 13:52 - Jarmaðu litla lamb

Vörutalning.

Hvað segiði um að safna pening fyrir MeMe movie svo við getum gert Erfingar Elífðarinnar góða mynd.

Laugardaginn 28. febrúar er vörutalning í Bónus Fiskislóð. Pitsa og kók verður í boði fyrir duglega vinnumenn. Þetta gengur mest megnist út á það að telja hluti. Ef góð stemming er í fólki er þetta fínt.

Ef þið hafið eitthverjar spurningar þá er símanr. mitt 6985120.

Ef þið viljið koma með endilega skráið ykkur hérna fyrir neðan.
koma svo styrkja meme.

Kveðja Sigrún Gróa Jónsdóttir.

Sigrún Gróa | 18.02.2009, 12:24 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Febrúarmót í dag!!!!

 Jeij við erum að fara í Vatnaskóg á eftir!!!!

Mæting í Breiðholtskirkju kl 17:45 - rútan fer kl 18:00

Mæta með kr 8000 og leyfisbréf ef það er ekki enn komið til skila.

(nema sjoppustjórar sem mæta bara með sjálfa sig og góða skapið)

Allir taki með sér svefnpoka eða sæng, tannbursta og allt þetta venjulega stuff og nóg af sokkum og auka skó því það verður blautt í Vatnaskógi núna...

Taka svo með peninga til að versla í meme sjoppunni ;o)

Anna | 13.02.2009, 14:50 - 3 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa á sunnudaginn.

 Já það er kvöldmessa núna á sunnudaginn kl 20:00 í Digraneskirkju.

Allir eru hvattir til að mæta og eiga með okkur notalega stund í kirkjunni.

Tónlistin verður með rólegra móti og þar sem ekki gafst tími til mikilla æfinga verður þetta örlítið öðruvísi en oft áður.

Ef Jónas, Lárus og/eða Jón Árni vilja vera með að spila væri það ákaflega vel þegið og þá væri gott að sjá ykkur í kirkjunni kl 18:00 á sunnudaginn. Ef þið komist ekki þá skil ég það enda er þetta stuttur fyrirvari.

Ef einhverjir vilja lesa eða bjóða fólk velkomið þá eru þeir boðnir hjartanlega velkomnir kl 19:00 til að undirbúa það. Gott væri að fá nöfn hérna að neðan til að vita á hverjum ég get átt von.

Bestu kveðjur og hlakka til að sjá ykkur
Anna

 

Anna | 06.02.2009, 14:11 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Meme peysur!!!

 MEME PEYSURNAR hafa alltaf verið vinsælar og nú fást þæŕ enn á ný.
Peysurnar kosta 4000 krónur - renndar peysur og 3000 krónur - heilar peysur.
Peysurnar eru svartar hettupeysur með Meme merkinu aftan á bakinu og litlu meme merki og nafni viðkomandi á brjóstinu.

Þeir sem vilja peysur þurfa að koma og máta í þessari viku. Seniorar máta í kvöld og juniorar máta á fimmtudaginn - Meme movie fólk getur mátað hvort sem er í kvöld eða á fimmtudag kl 19:00 - 20:00. ATH að koma ekki seinna en átta til að trufla ekki fundinn.

Nauðsynlegt er að borga um leið og þið pantið. Pöntun er ekki tekin gild nema búið sé að greiða fyrir peysuna.

Vona að sem flestir geti nýtt sér þetta kostatilboð
Kveðja
Anna


Anna | 03.02.2009, 13:13 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Leiklistaræfingar í kvöld í Meme movie!

Jæja þá er komið að því, það eru leiklistaræfingar í Meme movie í kvöld. Við ætlum að spreyta okkur í leiklistarþrautum og sýna hvað í okkur býr. Í næstu viku ætlum við svo að skipta hlutverkum á milli ykkar og því er mikilvægt að allir komi í kvöld og sýni hvað í þeim býr til að við getum gert okkur grein fyrir hverjir virka í hvaða hlutverk.

Meme senior fólk er boðið hjartanlega velkomið að vera með í kvöld en athugið að láta foreldra ykkar vita að fundum í Meme movie lýkur ekki fyrr en kl 22:00. Ykkur er þó auðvitað heimilt að fara fyrr ef það þarf.

Ég vonast til að sjá sem flesta í kvöld og minni ykkur á við þurfum fullt af fólki til að koma þessari mynd á koppinn ;o)

Hlakka rosalega til að sjá ykkur
kveðja
Anna

 

Anna | 02.02.2009, 16:49 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsta skrefið í kvikmyndagerð

Jæja, þá er komið að því. Verkefninu sem allir hafa beðið eftir.
Á morgun, mánudaginn 26. janúar, ætlum við að byrja formlega á næsta stórverkefni Meme movie. Við ætlum að skoða drög að handriti fyrir myndina okkar Erfingjar Eilífðarinnar. Við veltum eitthvað fyrir okkur hlutverkum og spáum og spekúlerum.
Annað skemmtilegt sem gerist á morgun er að Anna æskulýðsfulltrúi kemur aftur til starfa :-) Við erum ógeðslega glöð og spennt að fá hana.
Ég vil hvetja sem allra flesta sem hafa áhuga á að koma að myndinni á einhvern hátt til þess að mæta á morgun. Það er í mörg horn að líta og ekki ráð nema í tímann sé tekið.

Sjáumst :-)

Guðmundur Karl | 25.01.2009, 16:59 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Palla- og Pálínuboð

Mánudaginn 12. janúar verður Palla- og Pálínuboð í Meme movie. Það þýðir að allir mæta með veitingar og um að gera að kippa með sér eins og einni hálfslíters gosflösku.
Sjáumst hress og kát á morgun. Ég mana ykkur til þess að baka :-)

Guðmundur Karl | 11.01.2009, 18:15 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa 11. janúar 2009

Eins og komið hefur fram á vefnum hefst æskulýðsstarfið í Digraneskirkju í næstu viku, vikuna 12-16. janúar. Raunar byrjum við á sunnudaginn því Meme sér um tónlist í kvöldmessu á sunnudaginn kl. 20. Við hvetjum ykkur til þess að kíkja og njóta yndislegrar stundar í kirkjunni okkar.

Þeir úr tónlistarhóp sem komast eru vinsamlega beðnir að senda skilaboð á gudmundur (hjá) jarma.net. Æfing verður á sunnudaginn kl. 18:00 og munið að vera búin að borða kvöldmat eða taka með ykkur nesti.

Guðmundur Karl | 09.01.2009, 10:52 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsti fundurinn

Gleðiegt nýtt ár lömbin mín og takk fyrir það gamla.
Fyrsti fundur Meme movie verður mánudaginn 12. janúar kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00 eins og alltaf

Sjáumst :-)

Guðmundur Karl | 04.01.2009, 17:18 - 13 lömb hafa jarmað :-)

Gleðileg jól

Leiðtogar Meme group óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Tengill á upphaflegu jólakveðjuna

Guðmundur Karl | 23.12.2008, 21:26 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Getur þú lesið þetta?

Nú langar mig að leggja próf fyrir tæknivædd Meme lömb. Ég óska eftir því að þið gerið ykkar til þess að ráða þetta dulmál og bregðast við skilaboðunum í því. Þorir þú???

Guðmundur Karl | 19.12.2008, 23:14 - 31 lömb hafa jarmað :-)

Friðarganga á Þorláksmessu

Ég fékk senda tilkynningu um friðargöngu á Þorláksmessu og vildi endilega deila henni með ykkur. Ég hvet sem flesta til að mæta :-)

Íslenskir friðarsinnar standa að blysför  niður Laugaveginn á Þorláksmessu.

Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og níuanda í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar.


Í lok göngu verður efnt til fundar á Ingólfstorgi þar sem Birna Þórðardóttir framkvændastjóri Menningarfylgdar Birnu flytur ávarp en fundarstjóri er Lárus Páll Birgisson sjúkraliði


Ráðlegt er fyrir göngufólk að mæta tímanlega því gangan leggur af stað studvíslega.

Guðmundur Karl | 18.12.2008, 10:28 - Jarmaðu litla lamb

Samverjinn

Samverjinn er kominn inn á youtube. Allir að kíkja á hann!

http://www.youtube.com/watch?v=mfByltL1ZSc

Guðrún Þóra | 16.12.2008, 18:11 - Jarmaðu litla lamb

Jólabíókvöld og Jólafundur

Í kvöld verður jólabíókvöld í MEME movie. Vakin er athygli á því að sælgæti og gos eru velkomin með. Já og eitt í viðbót: Anna Arnardóttir kemur í heimsókn :-)

Á morgun, þriðjudag, förum við svo á jólafund Meme. Farið verður í rútu frá Digraneskirkju kl. 19:30 inn í Neskirkju þar sem við ætlum að heimsækja vini okkar. Komum endilega í betri fötunum og eigum saman góða stund fyrir jólin.

Guðmundur Karl | 15.12.2008, 16:32 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Aðventukvöld hjá vinum okkar

Vinir okkar í Hjallakirkju eru með aðventukvöld í kvöld. Það hefst kl. 20 og er í umsjón æskulýðsfélags Hjallakirkju. Hljómsveit KSS spilar og ég veit ekki hvað og hvað. Allir Meme-ingar eru hvattir til að heimsækja Hjallakirkju til að eiga góða stund saman.

Guðmundur Karl | 14.12.2008, 13:02 - 1 lamb hefur jarmað

Við erum búin að finna lausn.

Ég og Harpa ræddum um það hvaða stað við ættum að borða á næstkomandi mánudagskvöld. Á american style geta fáir setið saman svo það er ekki gaman, það er einnig svoleiðis á ruby tuesday. Er Pizza hut ekki bara perfect staður? Margir hægt að sitja saman og góður matur.
Við ræddum það líka að við höfum reynslu á slæmri þjónustu á Pizza hut smáralind, hvað segiði um sprengisand. Hverjir sjá sig fært að mæta?
Ef þið hafið e'ð út á þetta að setja, komið þá með betri hugmyndir?

ATH BREYTING.
GUMMI HRINGDI OG SAGÐI AÐ ÞAÐ VÆRI BETRA AÐ HITTAST Á STAÐNUM. HITTUMST ÞAR KLUKKAN 8.

Gummi og Guðrún komiði bæði?

Kveðja Sigrún Gróa og Harpa Lilja.

Sigrún Gróa | 07.12.2008, 20:58 - 17 lömb hafa jarmað :-)

Glataður i-Pod touch - FUNDINN!! :D

Þriðjudaginn 2. desember hvarf i-Pod touch af skrifstofu Önnu Arnardóttur æskulýðsfulltrúa. Eðlilega er hans sárt saknað og ég vil endilega fá hann aftur. Ég vil biðja alla þá sem geta gefið mér upplýsingar um hvarf þessa tækis um að hringja í mig í síma 8651423 eða senda mér tölvupóst á arnor (hjá) kfum (punktur) is.

i-Pod

i-Podinn lítur svona út og hann var með skemmd á öðru hvoru neðra horninu. Endilega fylgist með þessu fyrir mig. Takk fyrir.

Arnór Heiðarsson, leiðtogi í 6-9 ára starfi Digraneskirkju og MEME junior.

Arnór | 06.12.2008, 17:55 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Aðventukvöld MEME

Á sunnudaginn kemur, 7. desember, verður aðventukvöld MEME í Digraneskirkju. Það er orðin hefð í kirkjunni að halda MEME aðventukvöldið á annan í aðventu. MEME sér um kvöldið og fáum við til liðs við okkur margt gott fólk. Eftir stundina í kirkjunni verður svo kökusala á vegum Mæðrastyrksnefndar Kópavogs. Kvöldið hefst kl. 20:00 og við viljum auðvitað fylla kirkjuna :-)

Á laugardaginn verður tónlistaræfing fyrir kvöldið. Æfingin hefst kl. 16 og er sönghópurinn allur beðinn að mæta.
Á sunnudag hefst æfing kl. 18.

Sjáumst ofursvöl um helgina :-)

 

Guðmundur Karl | 04.12.2008, 22:25 - 7 lömb hafa jarmað :-)

Kósýfundur

Af annarlegum ástæðum er hellaferðinni frestað fram á vor (þá verður líka hlýrra). Við ætlum að vera með kósýfund í kvöld í Meme. Lömbin eru hvött til að mæta með nammi og gos og koma í náttfötum. Við ætlum að hafa það hrikalega kósý og aldrei að vita nema Guðrún framkvæmi gjörning...

Sjáumst við ekki í kvöld???

Guðmundur Karl | 01.12.2008, 15:05 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Maður getur ekki lifað án matar.

Hvað segja litlu rúsinu lömbin mín? nei æj ég tala svona við junior...
ætti kannski að vera aðeins formlegri hérna.


Háttvirtu memeingar hvað er að frétta í daglegu lífi ykkar?
Hvað segiði um mat eftir rúmlega tvær vikur?
Langar ykkur fara út að borða, ef svarið er já, þá hvert?


Ég vil að þið svarið mér sem Hæstvirtur memeingur.
Annars hlusta ég ekki svar yðar.

lítil og sæt kveðja...

Sigrún Gróa Jónsdóttir

 

Fæðuhringurinn.

Sigrún Gróa | 27.11.2008, 09:53 - 30 lömb hafa jarmað :-)

Hver þekkir andlitin?

Þessi mynd hér fyrir neðan var tekin á jólaföndri 10-12 ára starfs KFUM og KFUK í Digraneskirkju þriðjudaginn 2. 12. 2002. Þekkir einhver andlitin?

Guðmundur Karl | 27.11.2008, 00:54 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Til tónlistarhóps: Æfing fyrir kvöldmessu/aðventukvöld

Næsta kvöldmessa er í raun ekki kvöldmessa heldur aðventukvöld á annan í aðventu, 7. desember. Aðventukvöldið er í umsjá Meme að vanda.

Fyrsta æfing yfir kvöldið verður þriðjudaginn 25. nóvember kl. 18-20 í Digraneskirkju. Það er mikilvægt að allir í tónlistarhópnum mæti þar sem við komum til með að læra og æfa jóla- og aðventulög fyrir kvöldið. 


Sjáumst á þriðjudaginn.

Guðmundur Karl | 23.11.2008, 22:37 - 15 lömb hafa jarmað :-)

Krakkar mínir!
Á næsta fundi ætlum við á fullu í upptökur og ætlum að klára þær sama kvöld, það verður svooooo GAMAN.

Mér vantar enn fólk í hlutverk og hef því ákveðið að biðja ykkur um að skrá ykkur á fundinn með commentum, sérstaklega ef þið eruð til í að vera í hlutverkum en svo vantar að sjálfsögðu líka fólk í annað eins og að vera "skrifta" fyrir mig.
En hérna er handritið svo þið getið lesið það yfir og hlutverkaskipan eins og er, gæti breyst ef ég fæ nóg af fólki.


Kvikmyndaverkefni
Miskunnsami Samverjinn

Sögumaður

Samverjinn er Darth Maul (Oddur)

Árásarmenn eru emokids (1.Telma?)

Hjálparar eru diskófólk (1. Harpa 2. Jónas)

Framhjágangarar eru Björk (Telma),

Sigur Rós

og Davíð Oddsson (Gummi)

Gistihúseigandi Harry Potter

Þannig að núna vantar mér allavegana tvo emogaura/gellur, þrjá í Sigur Rós og Harry Potter

En hér er sagan:

Einu sinni var lögfræðingur sem hitti Jesú og spurði hann "Meistari, hvað á ég að gera til að öðlast eilíft líf?" Því svaraði Jesú "Hvað stendur um það í lögmálinu? Hvað lest þú útúr því?" Lögfræðingurinn svaraði: "Elska skalt þú Drottinn Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig".
Jesús svaraði: Þetta var rétt hjá þér, gerðu þetta og þú munt lifa." og til að réttlæta sjálfan sig spurði lögfræðingurinn svo: "Hver er eiginlega náungi minn?"
Þá svaraði Jesú:

"Einu sinni var maður sem var ekki vanur að fara varlega í lífinu. Hann var mjög óvenjulegur í útliti og fólk var vanalega hrætt við hann. Þannig að þennan dag skildi hann geislasverðið sitt eftir heima og fór í gönguferð í emo hverfið, þar sem brjáluðu emokiddin bjuggu..."

        Sýnt þegar Darth Maul stendur upp úr sófanum og horfir á             geislasverðið sitt, ypptir öxlum og labbar út.

Algerlega upp úr þurru veittust að honum brjáluð emokid (öska td "drepið hann" "tökum alla peningana hans" "þú ert ljótur kúkur") sem börðu hann í klessu, þau stálu kyrtlinum hans og skildu hann eftir mjög særðan og hálf "nakinn" á jörðinni. Eftir nokkra stund gladdist hann mjög þegar hann sá nokkra menn koma labbandi, hann þekkti þá! Hann sá að þetta var uppáhalds hljómsveitin hans Sigur Rós og var alveg viss um að þeir myndu hjálpa honum og sagði með von í röddinni "Sigur Rós, það er svo gott að sjá ykkur" En allt kom fyrir ekki og meðlimir Sigur Rósar litu snöggt af honum og löbbuðu framhjá.
Nokkru eftir það heyrði hann í hælaskóm nálgast, svo rifur mynduðust á augum hans og hann sá Björk Guðmundsdóttur ganga framhjá sér án þess að horfa á hann. "Hjálpaðu mér Björk plís." Sagði hann en fékk ekkert svar.
Skammri stund seinna fann hann mikinn skugga yfir sér og opnaði augun, Davíð Oddsson sneri í hann baki og byrjaði að læðast í burtu.
"Vill virkilega enginn hjálpa mér í dag?" spurði hann út í loftið
Stuttu eftir það heyrði hann í hópi manna nálgast og varð hræddur um að fleiri emokid væru komin til að lemja hann. "Ó nei emokiddin eru örugglega að koma aftur" svo hann hélt augunum lokuðum í von um að þau héldu að hann væri dáinn. En skyndilega fann hann heita, blíða hendi á vanganum og honum var lyft varfærnislega upp. Það voru diskosvertingjar. Þau fóru með hann á gistihús Harry Potters og sögðu að þau myndu borga fyrir allan kostnað og að Harry yrði að nota fyrsta flokks galdra til að lækna hann. diskó 1;"Hæ Harry, ætlarðu að passa upp á þennan gaur, ég held að hann sé kvikmyndastjarna eins og þú, við fundum hann helsærðan við veginn." disko2: "og ekki hafa áhyggjur, við borgum allan kostnað, sama hvað" þá svaraði Harry "Já ekkert mál, wingardium leviosa".

Þá spurði Jesú lögfræðinginn. "hver þessara reyndist manninum góður náungi?"
Þá svaraði lögfræðingurinn "Þeir sem gerðu góðverkið"
"Far þú og ger hið sama" svaraði Jesú.

Guðrún Þóra | 19.11.2008, 15:28 - 27 lömb hafa jarmað :-)

Verkefnið flotta

Hæ krakkar mínir!

Nú er ég svakalega spennt. Á morgun ætlum við í undirbúningsvinnu fyrir mánudaginn eftir viku. Við ætlum að taka upp hugleiðingu um Miskunnsama Samverjann en ég er búin að búa til aðeins öðruvísi sögu í kringum það. Ég þarf á sem flestum að halda enda eru að minnsta kosti 12 hlutverk þannig að kannski þarf ég alla í hlutverk, þannig að endilega verið dugleg að mæta! Ég er með geggjaða búninga og svaka læti þannig að þetta verður SVAKALEGT stuð!
Hlakka endalaust til að sjá ykkur!

Guðrún Þóra | 16.11.2008, 16:12 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Hvað er að gerast?

Hvað haldið þið að ég hafi gert? Ég setti inn myndir frá Kópavogsdeginum. Það var ekki annað hægt fyrst hr. Arnór tók 273 myndir á viðburðinum :-O

Annars var bara voðalega gaman. Við hittum hressa krakka úr Hjallakirkju, en því miður mætti enginn úr Lindakirkju nema sr. Guðni Már. Við fórum í Survivor keppni og sumir átu mjög góðan mat með beztu lyst :-)

En kíkið endilega á myndirnar með því að fara inn í myndasafnið.

Guðmundur Karl | 14.11.2008, 00:10 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Kópavogsdagur

Jæja krekks(borið fram kúrreeekks).

Núna er komið að því

Kópavogsdagurinn er á fimmtudaginn!!!!!

Sæææææææll, þetta verður sjúkt. Við ætlum að hittast kl 19 og röltum af stað inn í Hjallakirkju kl 19:15. Herlegheitin hefjast síðan kl 19:30 í Hjallakirkju.

Vertu þar eða vertu Jókerinn í Batman 1.

(Var sko að horfa á Batman, the dark knight, Heath Ledger á skilið að fá óskarinn fyrir þetta!)

Hlökkum til að sjá ykkur. Leiðtogarnir í meeeeeeeeemeeeeeeee

Arnór | 10.11.2008, 14:00 - 75 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa í Digraneskirkju

Á sunnudaginn kl. 20:00 er kvöldmessa í Digraneskirkju. Meme group sér um messuna, nema hvað við ætlum að leyfa sr. Magnúsi að prédika :-)
Við þurfum að fá fólk til að lesa ritningartextana, ef það er einhver sem hefur áhuga þá má viðkomandi endilega senda rafpóst á gudmundur (hjá) jarma.net eða hringja bara í mig í síma 690-4005.
  • Tæknidúddarnir mínir er vel þegnir kl. 17:30.
  • Tónlistarfólk mæti kl. 17:45 til þess að geta byrjað að æfa kl. 18.
  • Bænafólk mæti kl. 19:00
  • Lesarar mæti kl. 19:30

Smelltu hér til þess að skoða söngtexta dagsins.


Guðmundur Karl | 07.11.2008, 15:18 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Klipping og spilafundur

Jæja, á morgun ætlum við að klára að vinna í verkefninu okkar frá því í síðustu viku. Það þarf að klippa myndbandið til og setja inn texta. Stefnan er að gera það fyrir opnum tjöldum þannig að sem flestir hafi tækifæri til þess að læra.
Við ætlum líka að spila saman og ef þið eigið skemmtileg spil þá er velkomið að kippa þeim með :-)

Guðmundur Karl | 02.11.2008, 12:39 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópur - æfing

Á morgun, miðvikudaginn 29. október, verður æfing tónlistarhópsins fyrir næstu kvöldmessu. Æfingin hefst stundvíslega kl. 17:00 og stendur til kl. 19. Það er mikilvægt að mæta á æfinguna ef áhugi er fyrir hendi að vera með í tónlistarhópnum. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til þess að mæta á æfinguna, sérstaklega vantar söngvara :-)

Fyrir þá sem ekki vita þá eru kvöldmessur haldnar í Digraneskirkju annan sunnudag í hverjum mánuði. Meme group sér um messurnar og þannig sjáum við um tónlist, bænir, lestur, móttöku o.fl. Þetta eru léttar og skemmtilegar messur þar sem við flytjum tónlist sem OKKUR finnst skemmtilegt og höfum það bara reglulega kósý. Næsta kvöldmessa verður 9. nóvember kl. 20.

 

Guðmundur Karl | 28.10.2008, 11:22 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Breytt dagskrá

Jæja. Ég vil minna ykkur á kvikmyndafundinn í kvöld. Við ætlum að taka upp verkefni og því mikilvægt að allir séu á réttum tíma. Ég vil líka minna þá sem eru að leika að koma nú með viðeigandi fatnað með sér.

Annað:
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu ákváðum við leiðtogarnir að fresta Biblíumaraþoninu sem hafði verið ráðgert um næstu helgi. Við teljum ekki að við gætum náð að safna fé að ráði og því heppilegra að bíða. Við stefnum hins vegar á að halda svona maraþon í vetur :-)

En sjáumst hress og kát í kvöld.

Guðmundur Karl | 27.10.2008, 17:33 - Jarmaðu litla lamb

Sölukeppni - til styrktar Meme movie

 Já við þurfum heldur að fara að slá í bikkjuna ef við ætlum að eignast tækjabúnaðinn sem okkur vantar áður en við förum að taka upp Erfingja Eilífðarinnar.

Við ætlum að taka eina létta klósettpappírs og fleira sölu snöggvast og sjá hvort við náum ekki að kaupa okkur eitthvað fallegt til að fara að nota. Eins og t.d. tölvu eða myndavél.

Lýst ykkur ekki bara vel á það?

http://www.jarma.net/files/pontunarlisti.pdf

Hér má finna pöntunarlistann en ekki taka mark á dagsetningunum.

Til að gera þetta örlítið spennandi þá ætlum við að hafa þetta keppni og sá sem selur mest fær verðlaun!!!  (og það verður ekki bara einn sleikjó eða eitthvað slíkt)

Dagsetningarnar eru eftirfarandi:

Þið hafið fram á sunnudagskvöld til að selja og ég þarf að vera komin með allar tölur á email til mín kl 10 á mánudagsmorgun. - ef það gengur ekki að senda email er hægt að senda póst í gegn um síðuna hér eða birta tölurnar í gestabókinni.

Á þriðjudagskvöld eða miðvikudagskvöld koma vörunrnar - nánar verður auglýst um það á mánudag.

Á föstudag þarf allur peningur að vera kominn inn á reikninginn okkar og mánudaginn þar á eftir 27. okt. verður tilkynnt um sigurvegara keppninnar!!!

Nú er að hefjast handa, selja sem aldrei fyrr svo við eignumst peninga og þið fáið verðlaun!

Anna | 16.10.2008, 08:38 - 12 lömb hafa jarmað :-)

Auglýsi eftir aðstoðarleiðtogum

Sælt veri fólkið.

Nú er ég að auglýsa eftir aðstoðarleiðtogum í 6-9 ára starfið. Við erum of fáliðuð þar og það er farið að bitna á starfinu sem er alls ekki gott. Starfið er alla fimmtudaga kl 15:30 - 17:15 (þ.e. leiðtogatíminn er þessi - krakkarnir eru 16-17)

Mig vantar fólk sem getur sest hjá ólátabelgjunum og hjálpað mér að halda þeim rólegum, gengið með okkur úr Kópavogsskóla niður í kirkju. Ekki myndi skemma fyrir ef við komandi gæti hugsað sér að segja sögu eða hjálpað okkur að stjórna söng eða leikjum en ef viðkomandi treystir sér ekki í það er það líka allt í lagi.

Sérstaklega vantar mig aukafólk á morgun, fimmtudaginn 16. október.
Þann dag eru stóru leiðtogarnir mínir báðir í fríi og eini aðstoðarleiðtoginn minn er líka í fríi.

Ég er þegar búin að fá tvær röskar stúlkur til að koma og hjálpa mér en ég þarf á fleirum að halda.

Spurningin mín er því tvíþætt:

Eru einhverjir tilbúnir til að hjálpa mér á morgun?
Eru einhverjir tilbúnir til að hjálpa mér í allan vetur?


Anna | 15.10.2008, 10:59 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Kvöldmessa 12. okt

 Já það er kvöldmessa 12. október.
Mig vantar lesara og mig vantar bænahópinn minn og mig vantar einhverja til að taka á móti fólki og bjóða það velkomið. Hverjir vilja taka að sér þessi hlutverk? Lesarar og þeir sem vilja bjóða fólk velkomið mæti 19:30, bænahópur 19:00

Sönghópinn vantar mig líka sönghópinn minn. Hann mæti 18:00 - hljóðfæraleikarar 17:30 til að stilla upp og tæknimenn (og konur) kl 17:30.

Lögin sem verða sungin eru eftirfarandi:

Trú, von og kærleikur (Heyr þann boðskap)
Miskunnarbæn Þorvaldar Halldórssonar (Himneski faðir, veit oss þína miskunn)
Dýrðin er þín
Lífsins ljósið mitt
Jesús þú fyllir líf mitt gleði
Guð ég þrái að dvelja
Þú öllum meiri
Skapa í mér hreint hjarta, ó, Guð
Megi gæfan þig geyma.

Vonast til að sjá sem flesta og áhugasamir endilega skráið ykkur hér að neðan

ATHUGIÐ - það verður EKKI boðið upp á mat á milli æfingar og messu svo takið með ykkur nesti. Eitthvað hollt og gott sem fer vel í maga fyrir söngvara.

kveðja
Anna

Anna | 09.10.2008, 23:38 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Tónlistarhópsæfing

 Heil og sæl.

Það er kvöldmessa á sunnudaginn. Á morgun er tónlistarhópsæfing í Digraneskirkju kl 17:10 - 19:00.

Nýr tónlistarstjóri ætlar að vera með okkur og það er enginn annar en hann Jasser (Jóhann Axel Schram Reed) sem við mörg þekkjum til og vitum að er dáðadrengur. 

Vonast til að sjá sem flesta úr tónlistarhópnum og svo eftir þessa messu förum við að kýla á Meme músík.

Látið þetta endilega berast til þeirra sem ekki sjá.

kveðja
Anna

Anna | 07.10.2008, 19:29 - 11 lömb hafa jarmað :-)

Breytt dagskrá

Vegna ófyrirséðra aðstæðna verðum við að víxla fundum Meme movie þannig að Heavens Kitchen verður í kvöld, mánudaginn 6. október og sr. Gunnar talar um Green Mile eftir viku, 13. október.
Húsið opnar eins og alltaf kl. 19:00 og svo byrjar fundurinn kl. 19:30. Vonumst til að sjá sem flesta í kvöld :-)

Guðmundur Karl | 06.10.2008, 14:35 - 4 lömb hafa jarmað :-)

FreeRice.com - nýjir leikir

 Mig langaði bara að benda ykkur á að það eru komnir nýjir leikir á FreeRice.com síðunni.

Núna er hægt að læra einfaldari ensku - allt niður í mjög einföld orð - maður velur bara level og ef maður velur level 1 þá eru þarna mjög einföld orð en ef maður velur level 40 þá eru þau temmilega erfið.

Einnig er hægt að læra stærðfræði, landafræði, spænsku og fleira þarna núna. Endilega kíkið á þetta.

Þetta er skemmtileg leið til að troða kunnáttu í hausinn á sér og gefa fátækum að borða í leiðinni, því eins og þið vitið þá fá fátækir í heiminum að borða 20 hrísgrjón fyrir hvert rétt svar sem við svörum. Endilega kíkið á þetta ;o)

http://www.freerice.com/

kveðja
Anna

Anna | 28.09.2008, 18:56 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Skólamót KSS

 Já við erum að fara á skólamót KSS.

Skráning hefst á morgun í kirkjunni og henni lýkur á næsta KSS fundi.
Meme movie ætlar að sjálfsögðu að fjölmenna á mótið og Anna og Guðrún Þóra eru farnar að hlakka ákaflega mikið til að endurupplifa gamla dýrðardaga ;o)

Eftirfarandi frétt er tekin af heimasíðu KSS - kss.is :

Já kæru KSS-ingar, nú fer að styttast í okkar árlega haustkólamót *fagnaðarlæti*

Hérna koma helstu upplýsingar um mótið, en nákvæmar tímasetningar og annað misnauðsynlegt mun vera auglýst síðar þegar nær dregur mótinu.

-Haustkólamót KSS í ár verður að venju haldið í Vatnaskógi.

-Mótið verður frá föstudeginum 3. október til sunnudagsins 5. október.

-Lagt verður af stað í rútu frá Holtaveginum seinni partinn á föstudeginum.

-Það kostar 5.999 kr. á mótið en innifalið í því verði er rúta báðar leiðir, gisting, matur og öll fræðsla.

-Mótið er fyrir alla á aldrinum 15-20 ára (10. bekkur og upp úr) ATH! Ef þú ert í 9. bekk en langar að koma á skólamót þá skaltu hafa samband við stjórn KSS (stjorn(hjá)gmail(punktur)com).

-Skráning er hafin á KSS-fundum og á netinu. Hægt er s.s. að skrá sig á netinu með því að senda upplýsingar um fullt nafn, kennitölu og gsm-númer á stjórnar e-mailið.

-Þeir sem ekki hafa náð 18 ára aldri verða að skila inn leyfisbréfi við brottför, undirrituðu af foreldri/forráðamanni. Hægt verður að nálgast leyfisbréfið hérna á KSS.is og líka á næstu KSS-fundum. LEYFISBRÉFIÐ ER MJÖG MIKILVÆGT!

Þetta skólamót verður eitthvað það magnaðasta í manna minnum síðan Íslendingar risu upp gegn einveldi Dana, svo be there or be square!


Þess má geta að ég og Erla Guðrún vinkona mín (sem einnig er eldri fulltrúi KSS) vorum einmitt að ræða það hversu undravert verð á skólamót er. Þegar við fórum á skólamót fyrir  (úff...) 10 árum síðan þá kostaði 5000 krónur, núna kostar 5999. Á meðan allt í þjóðfélaginu hefur rokið upp um 50 - 150% í verði hefur skólamótið rétt aðeins hækkað um 999 krónur. Þetta er nátturlega bara magnað! til samanburðar má sjá að Landsmót ÆSKÞ kostar um 12000 kall á manninn.

Ég mæli eindregið með því að allir komi með á skólamót og vonast til að fá skráningu frá ykkur öllum á morgun.

kveðja
Anna

Anna | 21.09.2008, 13:00 - 20 lömb hafa jarmað :-)

Kynningarfundur KSS

 Vildi bara minna ykkur öll á kynningarfund KSS í kvöld kl 20:30 á Holtaveginum. Kostar ekkert að vera með og það er partý á eftir!

Munið að KSS og Meme movie eru í samstarfi svo um að gera að kynnast fólkinu þar vel og skemmta sér með þeim tvisvar - þrisvar í viku ;o)

Allar nánari upplýsingar um KSS má finna í löngu fréttinni á senior síðunni og á www.kss.is

Vonast til að sjá sem flesta í kvöld

kveðja
Anna

Anna | 20.09.2008, 15:34 - 2 lömb hafa jarmað :-)

Myndir frá Prag

Heyrðu! Veistu hvað ég var að gera?


Hérna ég var sko að... uhh........




Æ já. Ég þú veist setti inn myndir.


Æ þarna frá leikjafundinum.



Skoðaðu þær bara þarna gerpið þitt

Guðmundur Karl | 20.09.2008, 11:45 - 1 lamb hefur jarmað

Kvikmyndalömb...

 ... þið eruð ÆÐI!


Fundurinn í gær var alveg yndislegur. Takk fyrir að koma, þið sem komuð, það var ekkert smá gaman í leikjum með ykkur. Það voru samt einhverjir sem ég saknaði en þeir verða bara að vera duglegir að mæta næst :D (svona svo ég geti knúst þá)
Mér leist líka rosalega vel á dagskrárhugmyndirnar ykkar, sérstaklega að fara út að borða saman, ég hlakka rosalega mikið til þess.

Annars þá hlakka ég ekkert smá til æðislegs vetur með Meme MOVIE!

Ps þetta er í fjórða sinn sem ég bý til frétt, þannig að allir eiga að commenta :D

Guðrún Þóra | 16.09.2008, 12:19 - 23 lömb hafa jarmað :-)

Til lukku með hrukku Arnór!!!

 Já þið lásuð rétt - ofur fótboltaleiðtoginn Arnór á afmæli í dag og er orðin heilu ári eldri en hann  var í fyrra.
Frést hefur að hann sitji að ljúffengum afmælissnæðingi í Hafnarfirði þessa stundina. Við vonum að honum verði að góðu og að hann njóti þess að eldast þetta krútt.

Bestu afmælisóskir frá Meme

því miður var ekki unnt að setja inn mynd því það er eitthvað bilerí í gangi en vittu að hér er ósýnileg mynd af Arnóri að borða afmælisköku ;o)

Anna | 15.09.2008, 20:56 - 10 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsti fundur Meme MOVIE!

Með djúpstæðu stolti tilkynni ég hér með að fyrsti fundur Meme movie er á morgun, eins og þið öll vitið. Með gleði í hjarta býð ég ykkur öll velkomin á þennan sögulega fund sem mun verða ritaður á spjöld Íslandssögunnar, því aldrei áður, ég sagði aldrei, hefur áður verið haldinn fundur Meme movie.

Það sem mestu máli skiptir er að þið fáið að koma með ykkar hugmyndir á þennan fund svo við getum skipulagt veturinn með það í ljósi hvað þið viljið gera. Þar að auki ætlum við í leiki og mun undirrituð þar stjórna. Vil ég þvi biðja ykkur um að setja í comment leiki sem ykkur finnst skemmtilegir og viljið fara í en ég ætla þar að auki að koma inn með einhverjar nýjungar.

En vá hvað ég hlakka til á morgun! Rétt upp hönd sem ætlar að mæta!

 

Guðrún Þóra | 14.09.2008, 22:03 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsta dagskrá Meme Movie komin á netið

Já loksins er þessi langþráði draumur að verða að veruleika.
Meme movie er að fara formlega af stað.
Fyrsti fundur er á mánudaginn og dagskrá fram yfir jól má finna hér á síðunni.
Við viljum vekja athygli ykkar á því að á sumum stöðum í dagskránni eru fundir merktir ??? ástæðan fyrir því er að við viljum fá hugmyndir frá ykkur til að setja inn í eyðurnar áður en við skipuleggjum allt saman.

Hlökkum til að sjá ykkur á mánudag og minnum ykkur á að það er fyrri kynningarfundur KSS á laugardaginn á Holtavegi. Mælum eindregið með að allir mæti þangað.

Bestu kveðjur
Anna, Guðrún og Gummi.

Anna | 11.09.2008, 12:43 - 6 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Jói =)

Hann Jói H á afmæli í dag, hann er orðinn 16 ára.
Við óskum honum innilega til hamingju með afmælið og vonum að hann egi frábærann dag.
Já gaman er að segja frá því að nú er Jói kominn í hóp þeirra sem mega læra á bíl, og við óskum honum góðs gengis með það.
Til hamingju með afmælið og eigðu æðislegan dag.
Kveðja
leiðtogar Meme group.
 

Telma Ýr | 07.09.2008, 17:01 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Praghittingur á Holtavegi 11. sept

Hér að neðan er bréf sem ég fekk sent frá Hjördísi Rós fararstjóranum okkar í Prag.

Hæhæ kæri Pragfari!!!!

Fyrst langar mig til að þakka þér kærlega fyrir síðast og þakka þér fyrir ferðina!! 

Ég vona að þú hafir skemmt þér jafnvel og ég gerði :o) Það er ótrúlegt að hugsa til þess að mótið sé búið og nokkur ár í það næsta.

EN eins og við töluðum um á Íslendingahittingnum úti í Prag þá er ævintýrið ekki úti þó mótið sé búið. Við ætlum að bjóða öllum íslensku Pragförunum á Praghóps-hitting/Praghóps-reunion fimmtudaginn 11. september kl. 20.00 á Holtavegi 28. Þar ætlum við að rifja upp helstu atriði ferðarinnar, skoða myndir frá mótinu og gæða okkur á veitingum. Að sjálfsögðu má ekki gleyma því að þetta er tækifæri til að hitta aftur þá sem voru með okkur úti í Prag (eða í það minnsta þá Íslendinga sem voru með okkur úti í Prag)...en ný vináttusambönd mynduðust þar :o)

Einhverjir gestir munu kíkja á okkur og heyrst hefur að PEZ-kallinn sé væntanlegur á hittinginn...þú vilt því ekki missa af þessu einstaka tækifæri!!!!!

Taktu því daginn frá og hittu okkur fimmtudaginn 11. september kl. 20.00 á Holtavegi 28

Kær kveðja,
Hjördís Rós

 (hún biður líka um að þeir sem eigi myndir af mótinu kíki með þær á Holtaveginn til hennar sem allra fyrst svo hún geti sett þær í showið)

Ég er ákaflega svekkt yfir þessari dagsetningu því þetta er akkurat á sama tíma og fyrsti fundur meme junior í Digraneskirkju og ALLIR starfsmenn Meme junior voru í Prag.
En ég vona að flest ykkar sjái sér fært að kíkja niður eftir og njóta kvöldsins. - skilið góðum kveðjum frá okkur meme junior fólki ;o)
Kveðja
Anna

Anna | 30.08.2008, 18:23 - 24 lömb hafa jarmað :-)

Myndir frá Prag

Já einhverjir tóku greinilega myndir í Prag. Heiðdís Ragnarsdóttir er afar samviskusöm ung kona og sendi mér myndirnar sínar. Þær eru að sjálfsögðu komnar beina leið á jarma.net og hvet ég ykkur til að skoða þær gaumgæfilega.

Fyrir þá sem ekki vita hvernig á að senda inn myndir má nálgast leiðbeiningar um það hér.

Guðmundur Karl | 29.08.2008, 00:13 - 12 lömb hafa jarmað :-)

Alfa í Kaldársel

Tilkynning til Alfa fólks sem er á leiðinni í Kaldársel á morgun.
Eins og fram hefur komið er mæting í Digraneskirkju kl 16:30 og við förum af stað á einkabílum fljótlega uppúr því. Það verður nóg af bílum svo allir ættu að fá gott far.

Ég vil benda ykkur á að ef þið viljið drekka eitthvað annað en vatn eða mjólk í ferðinni þá verðið þið að taka slíkt með ykkur (þ.e.a.s. gos eða safa eða eitthvað slíkt).
Eins er ykkur velkomið að taka með eitthvað gotterí til að bjóða með ykkur í kvöldkaffi eða bara sælgæti til eigin nota.

Munum bara að við þrífum eftir okkur sjálf.
Hún Rakel (ein af nýju leiðtogunum úr Meme junior) ætlar að elda fyrir okkur í Kaldárseli sem er meiriháttar því hún er snilldar kokkur!!!

Hlakka til að sjá ykkur, hress og kát.
kveðja
Anna

 

Anna | 28.08.2008, 22:58 - 8 lömb hafa jarmað :-)

Gaman á fyrsta klippi fundi Meme movie

Það var fámennt en góðmennt (og góðfuglt) á klippifundinum í gær.

Mættir voru:
Guðmundur Karl Einarsson
Anna Arnardóttir
Telma Ýr Birgisdóttir
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Vaskur Guðrúnarson/dóttir  (páfagaukurinn hennar Guðrúnar)

Við skemmtum okkur konunglega við klippingar, Telma spurði mikið út í forritið og lærði vonandi helling af þessu og Helga Steffensen hefur aldrei litið betur út á mynd (og þó hefur hún nú verið í sjónvarpi frá því áður en að ég man eftir mér).

Við vorum að klippa frá kl 16:00 - 20:00.

Hefðum gjarnan viljað sjá fleiri mæta þó að þeir hefðu kannski ekki komist strax kl 16. En það verður vonandi betri mæting næst.

Við Vaskur skemmtum okkur allavega konunglega. Hann kyssti og knúsaði Guðrúnu en var svolítið feiminn við okkur hin. Við fengum þó öll að halda á honum og spjalla við hann en hann vildi lítið spjalla nema til að segja frá þegar hann þurfti að kúka. (já hann gerir það, alger snillingur þessi fugl).

Vona að ykkur sé öllum að ganga vel í nýju skólunum ykkar.

Anna | 27.08.2008, 07:32 - 1 lamb hefur jarmað

Klippingar framundan í Meme movie

Í morgun mætti Helga Steffensen í Digraneskirkju á Brúðubílnum og var tekið upp efni fyrir kennslumyndbandið sem við sögðum frá hér að neðan. Upptökurnar gengu afar vel og Meme movie því komið formlega af stað. Reyndar komstu engir krakkar þar sem þetta var á skólatíma en við Anna vorum fulltrúar Meme movie :-)
Klippingar hefjast svo á morgun Þriðjudag kl. 16:00 í Digraneskirkju. Þeir sem nú þegar hafa lýst yfir áhuga á að vera með eru vinsamlega beðnir að koma á svæðið. Ástæða þess að við gerum þetta strax er að það liggur á að klára verkefnið. Gert er ráð fyrir að sýna ykkur eilítið klippiferlið og að þið takið þátt í því eins og kostur er. Þegar svo við verðum búin að safna nægum fjármunum verður keypt tölva til klippinga í kirkjuna og þá getið þið komið enn sterkar inn.
Sjáumst kát á morgun.

Guðmundur Karl | 25.08.2008, 15:55 - 4 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsta fjáröflunin fyrir Meme movie

Vörutalning til styrkar MeMe Movie verður laugardaginn 30. águst næstkomandi.
Vörutalning fer fram í Bónus út á Granda í Reykjavík. Mæting þangað 18:05 og þessu lýkur klukkan 23 eða fyrr.
Hver einasti sem skráir sig fær 1000 krónur fyrir hvern klukkutíma til styrktar MeMe.
Þetta getur orðið mikill peningur ef margir mæta.  9. og 10. bekkingar eru að sjálfsögðu velkomin að vera með til að ná sem mestum pening. Þið verða víst með í Meme movie á næstu árum líka ;o) 

Það þarf að skrá sig í dag eða fyrir hádegiá morgun (föstudag) til að fá fjöldan á hreint. Það er mjög mikilvægt!!!  Þið getið skráð ykkur á hér í jörmum eða hringt í mig ( Sigrún Gróa) síminn er 6985120.

ALLIR sem vilja styðja MeMe Movie að mæta. Allir fylgihlutir velkomnir með.


 

Sigrún Gróa | 21.08.2008, 12:47 - 42 lömb hafa jarmað :-)

Fyrsta verkefni Meme movie

Þá er komið að því. Meme movie er að hefja göngu sína.
Við vorum ekki alveg komin að því að hefjast handa en þá fengum við launað verkefni í hendurnar. Verkefni sem gefur okkur peninga til að kaupa tæknibúnað og fleira sem við þurfum á að halda.

Verkefnið er komið frá Fræðslusviði Biskupsstofu og til stendur að búa til kennslumyndband í brúðustjórnun. Helga Steffensen (úr Brúðubílnum) ætlar að stjórna brúðum og kenna á þessu myndbandi en við í Meme movie sjáum um upptökur, lýsingu, hljóð og klippingu og allt hitt.

Þetta er s.s. verkefni fyrir tæknideild Meme movie.
Seinna koma verkefni fyrir leikara, förðunardeild, búningadeild og fleira.

Nú auglýsum við eftir 3-4 einstaklingum til að taka að sér hlutverk í þessu verkefni. Þetta verkefni verður líka notað sem verkleg æfingarkennsla í því sem framundan er.
Hver og hver og vill?

Kennslumyndbandið þarf að vera tilbúið fyrir 1. september svo við þurfum að hafa hraðar hendur og vinna vel.

Hver vill vera með í fyrsta verkefninu okkar?
- áhugasamir skrái sig hér að neðan.

 

Anna | 14.08.2008, 17:07 - 23 lömb hafa jarmað :-)

Til hamingju með afmælið Gummi!!!

Já þið lásuð rétt. Okkar ástkæri Gummi á afmæli í dag og er orðinn ** gamall þessi dáðadrengur. Það er s.s. akkurat ár síðan við vorum öll saman í Kaldárseli að halda upp á afmælið hans og gáfum honum MEME húfuna flottu áður en við fórum og skelltum okkur á Harry Potter veiðar ;o)
Snilldarhelgi það.
Gummi minn við vonum að þú eigir jafn frábæran dag í dag og við áttum með þér þá.
Til lukku með hrukku
Meme group.

 

Anna | 20.07.2008, 13:59 - 14 lömb hafa jarmað :-)


© Meme group 2008