Kabbadí?
Já, nú er komið að því að við reynum á hvað við kunnum og getum í kabbadí. Þetta verður spennandi og eru því allir eindregið hvattir til að mæta og sjá hvernig fer. Sjáumst hress í kvöld ;)
Hvað er að gerast?
Hvað haldið þið að ég hafi gert? Ég setti inn myndir frá Kópavogsdeginum. Það var ekki annað hægt fyrst hr. Arnór tók 273 myndir á viðburðinum :-O
Annars var bara voðalega gaman. Við hittum hressa krakka úr Hjallakirkju, en því miður mætti enginn úr Lindakirkju nema sr. Guðni Már. Við fórum í Survivor keppni og sumir átu mjög góðan mat með beztu lyst :-)
En kíkið endilega á myndirnar með því að fara inn í myndasafnið.
Keilumót
Nú er alveg að koma að keilumótinu svaðalega. Að sjálfsögðu látum við úr Meme sjá okkur þar og rústum þessu móti, er það ekki ;)? Þetta rúst mun verða svo gífurlegt að það verður skráð í sögubækurnar og fjallað um það næstu öldina. En nóg um það hversu mikið rúst þetta verður. Hér koma MJÖG MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR:
Mæting: Digraneskirkju, tökum rútu saman upp í keiluhöll
Tímasetning: Húsið opna kl. 19 og gott er að mæta þá, BROTTFÖR VERÐUR kl. 19:25 þar sem að við þurfum að vera mætt á réttum tíma í keiluhöllina.
Kostnaður: 500kr, keppt verður eina umferð og eru verðlaun í boði fyrir 1. sætið.
Sjáumst hress og kát og hvað segið þið um að semja smá sögu í kommentunum...
Kópavogsdagur
Jæja krekks(borið fram kúrreeekks).
Núna er komið að því
Kópavogsdagurinn er á fimmtudaginn!!!!!
Sæææææææll, þetta verður sjúkt. Við ætlum að hittast kl 19 og röltum af stað inn í Hjallakirkju kl 19:15. Herlegheitin hefjast síðan kl 19:30 í Hjallakirkju.
Vertu þar eða vertu Jókerinn í Batman 1.
(Var sko að horfa á Batman, the dark knight, Heath Ledger á skilið að fá óskarinn fyrir þetta!)
Hlökkum til að sjá ykkur. Leiðtogarnir í meeeeeeeeemeeeeeeee
Sýna allar fréttir