MEME - Lengir lífið

Næst,

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána

Fundartími:

Fundir eru á þriðjudögum kl. 19:30-21:30 í Digraneskirkju. Húsið opnar kl. 19:00

Gestabókin

MEME er á Facebook

Kaldárselsferð

 Smá áminning um ferðina okkar í dag.

Allir þurfa að koma sér sjálfir upp í Kaldársel. Kaldársel er rétt fyrir utan Hafnarfjörð. Ef keyrt er í gegn um Hafnarfjörðinn eins og maður sé á leið til Keflavíkur þá stendur á vegaskiltum hvar skal beygt til að fara í Kaldársel. Það þarf að fara upp á brúna og yfir í hesthúsabyggðina sem er rétt hjá kirkjugarðinum. Keyra fram hjá öllum hesthúsunum og áfram eftir veginum þar til komið er að Kaldárseli. Þetta er allt vel merkt á mörgum stöðum á leiðinni.

Síminn í Kaldárseli er: 555-6211

Það er ekki gott gsm samband í Kaldárseli nema við flaggstöngina og uppi á svölum. Þessvegna er gott að foreldrar hafi símanúmerið í Kaldárseli ef þau þurfa að ná í ykkur og eins ef þið villist á leiðinni uppeftir þá getið þið hringt til að fá leiðbeiningar.

Takið með ykkur svefnpoka (eða sæng eða teppi - hvað sem þið viljið sofa með) og lak. Það er mjög nauðsynlegt að taka með lak á rúmið sitt.
Einnig mæli ég með að þið takið nóg af aukafötum og nokkur pör af sokkum - fólk vill blotna í Kaldárseli.
Við ætlum líka í nokkrar gönguferðir svo takið með ykkur hlý föt og góða skó. Í einni gönguferðinni ætlum við í hellaferð svo gott væri að hafa með vasaljós.

Hlökkum til að sjá ykkur
ykkar ástkæru leiðtogar.

Anna | 05.06.2009, 08:58 - Jarmaðu litla lamb

Vorferðin okkar - fjör að loknum prófum

Já það er komið að því
í kvöld rennur út skráningarfrestur fyrir ferðina okkar.
Þeir sem ætla með verða að skrá sig á fundinum í kvöld eða á jörmum hér að neðan - þeir sem ekki komast á netið geta skráð sig með sms til Önnu.

Þeir sem eru að fara í útskrifarferð í dag skrái sig því í sms eða á netinu.

Allir sem tóku þátt í kaffisölunni í gær komast frítt í ferðina!
Takk fyrir frábært kvöld.

Sjáumst hress

ath. leyfisbréfið og allt sem ferðinni viðkemur má sjá hér: http://www.jarma.net/files/kaldarsel.pdf


Anna | 02.06.2009, 13:34 - Jarmaðu litla lamb

Fjör að loknum prófum - Ferð Meme og Fönix í Kaldársel

 Já eins og heyrst hefur þá erum við að fara í Kaldársel og ætlum að hafa heilmikið fjör þar eftir rúma viku. Ferðin kostar 5000 krónur á mann en við ætlum núna að gefa ykkur frábært tækifæri til að lækka ferðakostnaðinn og jafnvel gera ferðina ókeypis.

Á mánudaginn kemur verður mótorhjólamessa og eftir að henn lýkur verða á bilinu 300-400 svangir mótorhjólaknapar í kirkjunni okkar. Við ætlum að baka vöfflur og selja kökur og kaffi á staðnum svo að allir verði saddir og kátir.

Unnið verður útfrá punktakerfi og fá allir sem leggja hönd á plóginn punkt eftir því hvað þeir eru duglegir. Fjárhæðin sem safnast skiptist svo á punktana og þannig kemur í ljós í lok dags hversu mikið hver og einn fær upp í ferðina.
Enginn fær þó meira en upphæðina sem ferðin kostar. Ef einhver afgangur verður mun hann verða notaður til að gera ferðina ennþá skemmtilegri!

Svona fáið þið punkta:
1 punktur fyrir að mæta kl 19:00 og hjálpa til á staðnum. Baka vöfflur, leggja á borð, taka við peningum, ganga frá þegar kaffinu lýkur og fleira (leiðtogar áskilja sér rétt til að gefa aukapunkt fyrir sérstakan dugnað í salnum)

1 punktur fyrir hverja köku eða rétt sem þið komið með. Það getur verið skúffukaka, diskur af pönnukökum, kleinuskál, rjómaterta, fat með smurðum brauðum eða hvað sem ykkur dettur í hug. Passið ykkur bara að hafa réttina nógu vel útilátna til að svangir bifjhjólaknapar geti fengið nóg.

Ef einhver kemur t.d. með tvær kökur og hjálpar til í sal og er afbragðsduglegur fær sá hinn sami þrjá punkta.

Þeir sem eru í tónlistarhóp í messunni geta auðvitað ekki hjálpað til á meðan á messunni stendur en þeir fá punkt fyrir að taka þátt í frágangi og hjálp eftir að messu lýkur.

Allir sem eru í Meme eða Fönix og ætla með í ferðina geta tekið þátt í þessari söfnun. Endilega skráið í jörmin hér að neðan hvort þið ætlið að koma með og hvað þið ætlið að leggja á borðið.

Bestu kveðjur með von um miklar undirtektir
Anna og Sigurvin

Anna | 28.05.2009, 17:03 - 14 lömb hafa jarmað :-)

Textar fyrir Hvítasunnudag og mótorhjólamessu

Söngtextar fyrir næstu tvö gigg eru nú komnir á veraldarvefinn. Smellið hér fyrir neðan til að skoða þá:

Hvítasunnudagur
Mótorhjólamessa

Föndurstund

Góðar stundir :-)

Guðmundur Karl | 28.05.2009, 12:24 - 5 lömb hafa jarmað :-)

Sýna allar fréttir


© Meme group 2008